Morgunblaðið - 21.01.1986, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANtJAR 1986
Samninganefndir rfldsins (til vinstri) og Bandalags starfsmanna rikis og bæja á fyrsta sáttafundinum í gær.
Fremst sér í hnakka Guðlaugs Þorvaldssonar ríkissáttasemjara. Með honum í sáttanefndinni eru Hrafn Magnús-
son framkvæmdastjóri Sambands almennra lífeyrissjóða og Jón Erlingur Þorláksson tryggingafræðingur.
Viðræður BSRB og ríkisins:
Samræmi verði í
kaupmáttarákvæðum
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ tel-
ur ekki mögulegt að semja um
kaupmáttartryggingu við BSRB
án þess að þess sé gætt að sam-
ræmi sé milli allra á á vinnu-
markaði hér. Þetta kom fram á
fyrsta samningafundi BSRB og
ríkisvaldsins hjá sáttasemjara í
gær, að sögn formanna samn-
inganefndanna.
Fundurinn stóð í liðlega tvo tíma.
Þar var ákveðið að setja á laggimar
tvær undimefndir beggja aðila, sem
ætlað er að fjalla um kaupmáttar-
tiyggingu og samningsréttarmái. Á
þessu tvö atriði hefur BSRB lagt
höfuðáherslu í sínum kröfum.
Af hálfu BSRB var í gær lögð
áhersla á að viðræðunum yrði hrað-
að. Ríkissáttasemjari mun væntan-
lega boða nýjan sáttafund undir
næstu helgi.
Sljórn Heimdallar samþykk-
ir vítur á iðnaðarráðherra
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á stjómarfundi Heimdall-
ar mánudaginn 20. janúar:
Stjóm Heimdallar, félags ungra
sjálfstæðismanna í Reylq'avík, for-
dæmir harðlega ummæli Alberts
Guðmundssonar iðnaðarráðherra í
garð Geirs Hallgrímssonar utan-
ríkisráðherra, sem eftir honum voru
höfð á forsíðu DV mánudaginn 20.
janúar 1986.
Stjóm Heimdallar telur vítavért
af 1. þingmanni Reykjavíkur að
viðhafa slík ummæli í garð fyrrver-
andi formanns Sjálfstæðisflokksins.
Er iðnaðarráðherra jafnframt
hvattur til að draga ummæli sín til
baka og biðja utanríkisráðherra
afsökunar. Slíkt gífuryrði, sem eftir
iðnaðarráðherra voru höfð, eru ekki
í samræmi við þá kröfu sjálfstæðis-
manna gagnvart forystumönnum
sínum að þeir hagi orðum sínum í
samræmi við stöðu sína og sýni
jafnvel flokksbræðrum lágmarks-
kurteisi.
Stjóm Heimdallar lýsir yflr full-
um stuðningi við steftiu utanríkis-
ráðherra í hinu svokallaða kjötmáli
sem staðfest er í nýlegri álitsgerð
þriggja af hæfustu lögfræðingum
landsins, og samin var að beiðni
þeirrar ríkisstjómar sem iðnaðar-
ráðherra á sæti í.
Athugasemd frá Delta-flugf élaginu:
Fargjaldið er ein-
göngu í gildi í Frakk-
landi og Bretlandi
Höfum sérsamninga, segir talsmaður Samvinnuferða
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi skeyti frá bandaríska
flugfélaginu Delta Airlines.
„Vegna misskilnings höfum við beðið Útsýn og Samvinnuferðir
um að selja ekki vetrarfargjöld á 88 sterlingspund. Þetta fargjald
er eingöngu tíl sölu í Bretiandi og Frakklandi." Jan J. Fooy umdæm-
isstjóri Delta Airlines í Stokkhólmi.
Morgunblaðið hafði samband við
ferðaskrifstofumar Útsýn og Sam-
vinnuferðir vegna þessa. Auður
Bjömsdóttir forstöðumaður utan-
landsdeildar Samvinnuferða sagði
upplýsingar í skeytinu á einhveijum
misskilningi byggðar. Samvinnu-
ferðir hefðu gert sérsamning við
Delta Airlines um sölu á farseðlum
á þessu fargjaldi, farþegar fljúga
til New York með Flugleiðum og
geta svo flogið til fjögurra staða
innan Bandaríkjanna fyrir 19.950
krónur.
„Þetta er sérstakt vetrartilboð,
ferðin verður að hefjast fyrir 21.
mars, lágmarksdvöl í Bandaríkjun-
um em 7 dagar og hámarksdvöl
60 dagar. Við fengum ákveðinn
fyölda farseðla á þessu fargjaldi og
emm með farseðla frá Delta-flug-
félaginu, sem em undir venjulegum
kringumstæðum ekki til sölu utan
Frakklands og Bretlands. Um 200
manns hafa þegar látið bóka sig
og fyrstu farþegamir fara nú í
vikunni. Ég ítreka að við höfum
samning við Delta og höfum leyfí
til að selja farmiða flugfélagsins
og þvf þurfa farþegar okkar ekkert
að óttast þótt þetta skeyti hafí
borist frá Delta," sagði Auður.
Ingólfur Guðbrandsson forstjóri
ferðaskrifstofunnar Útsýnar sagði
að þetta fargjald væri ekki í giidi
og hefði aldrei verið. Hann sagði
það byggt á fargjaldi sem ekki
væri lengur í gildi milli Keflavíkur
og New York og þaðan af siður
milli New York og Los Angeles.
Hann sagðist sjá ástæðu til að
gagnrýna að verið sé að hampa
fréttum af slíkum fargjöldum sem
ekki em á rökum reistar. Hann
sagði Útsýn einu ferðaskrifstofuna
sem hefði selt Delta-fargjöld hér á
landi en ekki á því verði sem aug-
lýst hefur verið hjá Samvinnuferð-
um.
„Við seljum ferðir á mjög lágu
verði innan Bandaríkjanna líka,
ekki aðeins með Delta heldur líka
öðmm flugfélögum. Það em ákveð-
in fargjöld í gildi innan Bandaríkj-
anna, sum em bundin við ákveðin
flugfélög og háð því að farþeginn
komi inn í landið með tilteknu flug-
félagi, en önnur em óháð því. Við
emm alltaf með lægstu fargjöld til
sölu innan Bandaríkjanna, þó far-
þegar komi inn í landið með Flug-
leiðum þá era afsláttarfargjöld til
sölu þó þau séu ekki jafn lág og
þetta."
Uppvíst um smygl
á Djúpavogi
NOKKRIR skipveijar á Lagar-
fossi hafa viðurkennt að hafa
smyglað 360 hálfflöskum af
vodka á Djúpavogi. Grunsemdir
vöknuðu þegar mikið áfengis-
magn komst þar í umferð í des-
ember. Embætti sýslumanns á
Eskifirði hóf rannsókn málsins
og var fjöldi manna yfirheyrður
á Djúpavogi.
Fyrir helgi tók Rannsóknarlög-
regla ríkisins við rannsókn málsins.
Tveir lögreglumenn fóm upp á
Akranes og yfírheyrðu skipveija á
Lagarfossi, sem lá þar við festar.
Játning liggur fyrir, en aðeins
nokkrar flöskur af vodkanu komust
í hendur yfírvalda.
Fjölskyldu hans leyft að yfirgefa Sovétríkin
FIMMTÁN ára gamall sonur sovézka kvikmyndaleik-
stjórans Andreis Tarkovsky og 85 ára gömul tengdamóð-
ir komu til Frakklands á sunnudag. Með því var lokið
á farsælan hátt fjögurra ára tilraunum Tarkovskys til
þess að fá þau til Vesturlanda.
Samkvæmt heimildum í þess að taka á móti syni sínum
Stokkhólmi á Francois Mitter- ogmóður.
rand Frakklandsfroseti að hafa
skorizt í leikinn persónulega og
rætt þetta mál við sovézka ráða-
menn til þess að Tarkovsky fengi
vegabréfsáritun fyrir son sinn og
tengdamóður. Leitaði Tarkovsky
til Mitterrands í þessu skyni 7.
janúar sl. Olof Palme, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar hafði einnig
heitið Tarkovsky því að ljá honum
aðstoð sína.
Tarkovsky á tvö önnur böm,
son, sem er 23 ára og dóttur, sem
er 25 ára. Þau hafa bæði ákveðið
að vera um kyrrt í Sovétríkjun-
um.
Andrei Tarkovsky.
Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra ræðir við frú Larissu
Tarkovsky á skrifstofu ráðherrans i fyrra.
Ánægjulegt að fjölskyldan sameinast
Tarkovsky al-
varlega sjúkur
er samdóma álit íslendinga sem beittu sér í málinu
Tarkovsky, sem er 54 ára að
aldri, er á sjúkrahúsi og sagður
alvarlega sjúkur af lungna-
krabbameini. Rúmenski rithöf-
undurinn og útlaginn Astalos,
sem er náinn vinur leikstjórans,
staðfesti þetta í símtali við Morg-
unblaðið fi*á París í dag. Tarkov-
sky var því ekki viðstaddur er
sonur hans og tengdamóðir komu
með reglulegu áætlunarflugi
sovézka flugfélagsins Aeroflot
frá Moskvu. Kona leikstjórans,
Larissa, var þar hins vegar til
„ÉG LÝSI tnikilli ánægju yfir
þessum fréttum. Ég tók mál
Tarkovskys upp við Shev-
ardnadze utanríkisráðherra
Sovétrikjanna er hann kom
hingað til lands síðastliðið
haust og lagði áherslu á að
fjölskyldan gæti sameinast. í
viðræðunum var einnig drepið
á mannréttindammál í þessu
sambandi og nauðsyn þess að
faríð væri eftir Helsinkisátt-
málanum. Vonandi er þetta
brottfararleyfi vitnisburður
um breytt viðhorf valdhafa í
Sovétríkjunum i þessiun efn-
um,“ sagði Geir Hallgrímsson
utanríkisráðherra.
„Ég er óskaplega glöð að heyra
þetta," sagði Guðrún Gísladóttir
leikari. Hún leikur í nýjustu mynd
Tarkovskys, Fóminni, sem frum-
sýnd verður í vor. „Ég veit að
Tarkovsky batt vonir við nýjan
leiðtoga Sovétríkjanna, en ég held
að enginn hafí átt von á að þetta
leystist strax. Ég er mjög ánægð
að heyra þetta og held að allir
hljóti að vera það.“
„Maður verður afskaplega
gláður og hamingjusamur að sjá
þama að það stoðar að beita sér
og reyna að samfylkja réttsýnum
mönnum í þágu mannúðar og
málfrelsis. Frelsis til að skapa list,
skáldskap, sem í dæmi Tarkov-
skys nær svo hátt og seilist svo
djúpt að hann á erindi við fólk
um allan heim. Ég vona að þessi
málalok boði meiri mildi stjóm-
valda gagnvart manneskjunni,"
sagði Thor Vilhjálmsson rithöf-
undur, formaður Tarkovsky-
nefndarinnar.