Morgunblaðið - 21.01.1986, Side 6

Morgunblaðið - 21.01.1986, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986 Bubbi & Megas Ferskir vindar blása þessa dagana í sjónvarpssölum. Er skemmst að minnast brennufagnað- ar gamlárskveldsins og hins lit- skrúðuga þáttar Omars á miðviku- dögum og enn veltist ferskur hnjúkaþeyrinn ofan af sjónvarps- tindum þar sem er: Kvöldstund með listamanni á sunnudags- kveldi. Að sjálfsögðu valdi Hrafn þá félaga Megas og Bubba Morth- ens í fyrstu kvöldstundina. Pönkið er Hrafni að skapi og hann hefir líkt og ýmsir ’68 kynslóðareinstakl- ingar er vaxa úr borgaralegu umhverfi lúmskt gaman af að gæla við pönkið. Samt stendur Hrafn traustum rótum í hinu borgaralega samfélagi margverðlaunaður mað- urinn. Hitt er svo aftur annað mál að þegar menn finna ekki lengur til- gang í lífinu nema í bamalegu andófi gegn gildum hins borgara- lega samfélags — þá vaknar sú spuming hvort menn hafí ekki breyst í smáborgara og á ég þá við að Bubba Morthens nægði ekki í fyrrgreindri kvöldstund að seiða fram í liprum textum og ljúfum söng ranghverfu hins borgaralega samfélags eins og til dæmis þann fasisma er birtist í umgengni dyra- varða við kynhverfa á skemmtistöð- um borgarinnar, nei hann varð að enda þáttinn á bamalegri kynlífs- fræðslu slíkri er kveikir í húsmæðr- um í Vesturbænum. Já það er svo sannarlega mikilsvert að falla ekki í áliti hjá genginu. En ég spyr: hvor er meiri smáborgari sá er setur sér siðræn mörk eða hinn er klæm- ist vísvitandi af þeirri ástæðu einni saman að hann er hræddur við að falla í áliti hjá hinum „frjálslyndu" vinum og aðdáendum? Að mínu mati er sá maður smáborgari er horfír stöðugt til hópsins. Heims- borgararnir búa sér til sinn eigin heim og setja sér þar sín eigin siðrænu mörk er náttúrulega taka ætíð nokkurt mið af siðrænum gild- um samfélagsins. Heimsborgarinn hefir jú ekki mikinn áhuga á að særa náungann að óþörfu hann kann að velja stað og stund til flestra hluta. Smáborgarinn er hins vegar svo þjakaður af hegðunar- mynstri þess hóps er hann tilheyrir að hann níðist gjaman óvart á til- finningum þeirra er standa utan hópsins. Megi sjónvarpið bera gæfu til að horfa fram á veginn óheft af kröfum klíkunnar. Frekari fréttir Ég vil annars ekki skilja þá Bubba og Megas eftir í lausu lofti með einhvetju vandlætingarsvipu hangandi á veggnum. Þessir menn eru vissulega listamenn. Þeir hafa náð að snerta fólk með tónlist sinni og textasmíð, þótt stundum hafí nú textar Megasar ekki ratað rétta boðleið á tónleikum. En nú er Bubbi kominn á spenann hjá erlendu hljómplötufyrirtæki og þarf ekki að slá víxla næstu fímm árin. Til hamingju Bubbi, þú ert í hópi hinna útvöldu þrátt fyrir að þú hafír beint spjótum þínum óhikað að fasisma vors áferðarfallega samfélags. Og mikið þótti mér vænt um að heyra að bróðir þinn Tolli hefði bjargað þér frá því að lenda á Litla Hrauni. Þín braut hefír verið þymum stráð en nú hefír sum sé hið borgaralega samfélag tekið þig í sátt og valið þig til að kitla smáborgarana í Evrópu. Ég skora á þig að gleyma ekki öllum litu verksmiðjuþrælun- um og atvinnuleysingjunum er eigra um fijálshyggjugötumar. Nú og ef svo ólíklega vildi til að þú kæmist austur yfir múrinn þá skaltu ekki spara kveðjumar frem- ur en þegar þú ortir um þúsund þorskana á færibandinu forðum daga- ÓlafurM. Jóhannesson ÚTVARP/SJÓNVARP ÚTVARP ÞRIÐJUDAGUR 21.janúar 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. . Bæn. 7.16 Morgunvaktin 7.20 Morguntrimm. 7.30 Fréttir. Tilkynningar. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15 Veðurfregnir. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barn- anna: „Stelpurnar gera uppreisn" eftir Fröydis Guldahl. Sonja B. Jónsdóttir les þýðingu sína (12). 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál. Endurtek- inn þáttur frá kvöldinu áður sem Margrét Jónsdóttirflyt- ur. 10.10 Veðurfregnir. 10.25 Lesið úr forystugreinum dagblaðanna. 10.40 „Ég man þá tíð“ Her- mann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.10 Úr söguskjóðunni - „Móðir, kona, meyja", við- horf til kvenna á fyrri hluta aldarinnar. Umsjón: Margrét Guð- mundsdóttir. Lesari Halla Kjartansdóttir. 11.40 Morguntónleikar. „Sieg- fried Idyll" eftir Richard Wagner. St. Martin-in-the- Fields-hljómsveitin leikur; Neville Marriner stjórnar. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar.Tónleikar. 13.30 I dagsins önn - Heilsu- vernd. Umsjón: Jónína Benedikts- dóttir. 14.00 Miödegissagan „Ævin- týramaður," - af Jóni Ólafs- syni ritstjóra. Gils Guð- mundsson tók saman og les (14). 14.30 Miðdegistónleikar. a. Flautusónata í e-moll eftir Friedrich Kuhlau. Frantz Lemsser og Merete West- ergaard leika. b. „Úr jurtagarðinum min- um" eftir Ib Nörholm. Danski kvartettinn leikur. 15.15 Barið að dyrum. Einar Georg Einarsson sér um þáttfrá Austurlandi. 15.45 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Hlustaðu með mér - Edvard Fredriksen. (Frá Akureyri.) 17.00 Barnaútvarpið. Stjórn- andi: Kristín Helgadóttir. 17.40 Úr atvinnulífinu - Iðnað- arrásin. Umsjón: Gunnar B. Hinz, Hjörtur Hjartar og Páll Kr. Pálsson. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 19.00 Aftanstund Endursýndur þáttur frá 13. janúar. 19.25 Ævintýri Olivers þangsa Fimmti þáttur Franskur brúðu- og teikni- myndaflokkur um viðförlan bangsa og vini hans. Þýðandi Guðni Kolbeins- son, lesari með honum Bergdís Björt Guðnadóttir. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.45 Daglegt mál. Sigurður G. Tómasson flytur þáttinn. 19.50 Úr heimi þjóðsagnanna - „Ekki er kyn þó keraldið leki". (Gamansögur.) Anna Einarsdóttir og Sólveig Halldórsdóttir sjá um þátt- inn sem er lokaþáttur. Les- ari meö þeim: Arnar Jóns- son. Knútur R. Magnússon og Sigurður Einarsson velja tónlistina. 20.25 Frá Þýskalandi til (s- lands Elke Gunnarsson í Mar- teinstungu segir frá í viötali við Jón R. Hjálmarsson. 20.50 „Humáttir" Aðalsteinn Ásberg Sigurðs- son les þýðingar sínar á Ijóðum eftir norska skáldið Paal Helge Haugen. 21.05 íslensk tónlist Sónata eftir Þorstein Hauks- son. (Raftónlist gerð í Stokk- 20.40 Sjónvarpiö(Television) Þriðji þáttur Breskur heimildamynda- flokkur í þrettán þáttum um sögu sjónvarpsins, áhrif þess og umsvif um víða veröld og einstaka efnis- flokka. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 21.35 Kolkrabbinn (La Piovra) Þriðji þáttur (talskur sakamálamynda- flokkur i sex þáttum um baráttu lögreglumanns við hólmi 1980.) 21.30 Útvarpssagan: „Hornin prýða manninn" eftir Aksel Sandemose. Einar Bragi les þýðingu sína (9). 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Frá tónleikum (slensku hljómsveitarinnar í Lang- holtskirkju í Reykjavík 24. október í vetur. Stjórnandi: MarcTardue. Einsöngvari: Sigriður Ella Magnúsdóttir. a. „Trittico Botticelliano" (Þrjár myndir eftir Botticelli), hljómsveitarverk eftir Ottor- ino Respighi. b. „Now and then" eftir Frederick Fox. c. Þjóðlög frá ýmsum lönd- um í útsetningum eftir Luc- iano Berio. Kynnir: Ásgeir Sigurgests- son. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. mafíuna á Sikiley. Leikstjóri: Damiano Dam- iani. Aðalhlutverk: Michele Placido og Barbara de Rossi. Þýðandi Steinar V. Árnason. 22.40 Upphaf nýrrar útvarps- aldar Umræðuþáttur í beinni út- sendingu. Umsjónarmaður Einar Sig- urösson. 23.35 Fréttirídagskrárlok. álf 10.00 Kátirkrakkar Dagskrá fyrir yngstu hlust- endurna í umsjá Helgu Thorberg. 10.30 Morgunþáttur Stjórnandi: Páll Þorsteins- son. 12.00 Hlé 14.00 Blöndunástaönum Stjórnandi: Sigurður Þór Salvarsson. 16.00 Sögurafsviöinu Þorsteinn G. Gunnarsson kynnir tónlist úr söngleikjum og kvikmyndum. 17.00 Útrás Stjórnandi: Ólafur Már Björnsson. 18.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagöar i þrjár mínútur kl. 11.00, 15.00, 16.00 og 17.00. SVÆÐISÚTVÖRP Svæðisútvarp virka daga vikunnar frá mánu- degitilföstudags. AKUREYRI 17.03—18.00 Svæöisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni — FM 90,1 MHz. REYKJAVÍK 17.03—18.30 Svæöisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz. SJÓNVARP ÞRIÐJUDAGUR 21.janúar Ur sögu- skjóðunni — viðhorftil kvenna á fyrri hluta aldarinnar ■■■■ „Úr söguskjóð- nlO unni“, þáttur — sem félagar úr Félagi sagnfræðinema sjá um, er á dagskrá rásar 1 í dag kl. 11.10. Umsjónar- maður að þessu sinni er Margrét Guðmundsdóttir og lesari Halla Kjartans- dóttir. Þátturinn í dag ber yfirskriftina „Móðir, kona, meyja“ og er um viðhorf til kvenna á fyrri hluta aldarinnar. Þáttaröð þessi hófst á haustdögum og eru við- fangsefnin margvísleg. Eftir umtalsverða sigra í réttindabaráttu kvenna á árunum 1882—1920 kom bakslag í kvennahreyfíng- una. A þriðja áratugnum fór að bera á vaxandi andspymu gegn auknu frelsi kvenna og jafnvel gegn þeim árangri sem konur höfðu þegar náð í réttindabaráttu sinni. Avæningur af þessu andófí kom m.a. fram í nokkrum tímaritsgreinum sem birt- ust á árunum 1926—1945. Þessar greinar fjalla allar meira eða minna um hlut- verk og eðli kvenna og snerta auk þess flestar starf kvennahreyfíngarinn- ar og stefnu hennar. Meg- inhluti þáttarlns er upplest- ur úr þessum greinum. Þær sýna vel ríkjandi viðhorf samfélagsins til kvenna en eru auk þess talandi dæmi um andófíð gegn kvenna- hreyfíngunni. Upphaf nýrrar útvarpsaldar ■■■■ „Upphaf nýrrar OO 40 útvarpsaldar" nefnist um- ræðuþáttur í beinni útsend- ingu í kvöld í sjónvarpi. Hann hefst kl. 22.40 og er umsjónarmaður hans Einar Sigurðsson fréttamaður. Eins og kunnugt er tóku ný útvarpslög gildi um sl. áramót og er ætlunin að ræða þau í sjónvarpi í kvöld, rétt og ábyrgð nýju stöðvanna og hlutverk Öt- varpsréttamefndar, sem kemur til með að úthluta leyfum til nýrra útvarps- ogsjónvarpsstöðva. í þáttinn koma þeir Kjartan Gunnarsson for- maður Útvarpsréttar- nefndar, Ólafur Hauksson ritstjóri, en hann hefur mjög beitt sér fyrir breyt- ingu útvarpslaganna á undanfömum ámm, Þor- bjöm Broddason lektor, sem fjallað hefur mikið um flölmiðlamál, og Júlíus Sól- nes sem hefur verið fram- arlega í umræðu um að endurvarpa gervihnatta- efni á Seltjamamesi. Kol- krabbinn ■■■■ Þriðji þáttur ít- 01 35 alska sakamála- ^ A myndaflokksins „Kolkrabbinn" er á dag- skrá sjónvarps kl. 21.35 í kvöld, en alls em þættimir sex. Myndaflokkurinn fjallar um baráttu lögreglumanns við mafíuna á Sikiley. Leik- stjóri er Damiano Damiani og í aðalhlutverkum em Michele Placido og Barbara de Rossi. Kjartan Gunnarsson Ólafur Hauksson Þorbjöm Broddason Júlíus Sólnes Maf iumenn ræðast við i „Kolkrabbanum“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.