Morgunblaðið - 21.01.1986, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986
Bubbi &
Megas
Ferskir vindar blása þessa
dagana í sjónvarpssölum. Er
skemmst að minnast brennufagnað-
ar gamlárskveldsins og hins lit-
skrúðuga þáttar Omars á miðviku-
dögum og enn veltist ferskur
hnjúkaþeyrinn ofan af sjónvarps-
tindum þar sem er: Kvöldstund
með listamanni á sunnudags-
kveldi. Að sjálfsögðu valdi Hrafn
þá félaga Megas og Bubba Morth-
ens í fyrstu kvöldstundina. Pönkið
er Hrafni að skapi og hann hefir
líkt og ýmsir ’68 kynslóðareinstakl-
ingar er vaxa úr borgaralegu
umhverfi lúmskt gaman af að gæla
við pönkið. Samt stendur Hrafn
traustum rótum í hinu borgaralega
samfélagi margverðlaunaður mað-
urinn.
Hitt er svo aftur annað mál að
þegar menn finna ekki lengur til-
gang í lífinu nema í bamalegu
andófi gegn gildum hins borgara-
lega samfélags — þá vaknar sú
spuming hvort menn hafí ekki
breyst í smáborgara og á ég þá við
að Bubba Morthens nægði ekki í
fyrrgreindri kvöldstund að seiða
fram í liprum textum og ljúfum
söng ranghverfu hins borgaralega
samfélags eins og til dæmis þann
fasisma er birtist í umgengni dyra-
varða við kynhverfa á skemmtistöð-
um borgarinnar, nei hann varð að
enda þáttinn á bamalegri kynlífs-
fræðslu slíkri er kveikir í húsmæðr-
um í Vesturbænum. Já það er svo
sannarlega mikilsvert að falla ekki
í áliti hjá genginu. En ég spyr:
hvor er meiri smáborgari sá er setur
sér siðræn mörk eða hinn er klæm-
ist vísvitandi af þeirri ástæðu einni
saman að hann er hræddur við að
falla í áliti hjá hinum „frjálslyndu"
vinum og aðdáendum? Að mínu
mati er sá maður smáborgari er
horfír stöðugt til hópsins. Heims-
borgararnir búa sér til sinn eigin
heim og setja sér þar sín eigin
siðrænu mörk er náttúrulega taka
ætíð nokkurt mið af siðrænum gild-
um samfélagsins. Heimsborgarinn
hefir jú ekki mikinn áhuga á að
særa náungann að óþörfu hann
kann að velja stað og stund til
flestra hluta. Smáborgarinn er hins
vegar svo þjakaður af hegðunar-
mynstri þess hóps er hann tilheyrir
að hann níðist gjaman óvart á til-
finningum þeirra er standa utan
hópsins. Megi sjónvarpið bera gæfu
til að horfa fram á veginn óheft
af kröfum klíkunnar.
Frekari fréttir
Ég vil annars ekki skilja þá
Bubba og Megas eftir í lausu lofti
með einhvetju vandlætingarsvipu
hangandi á veggnum. Þessir menn
eru vissulega listamenn. Þeir hafa
náð að snerta fólk með tónlist sinni
og textasmíð, þótt stundum hafí
nú textar Megasar ekki ratað rétta
boðleið á tónleikum. En nú er Bubbi
kominn á spenann hjá erlendu
hljómplötufyrirtæki og þarf ekki að
slá víxla næstu fímm árin. Til
hamingju Bubbi, þú ert í hópi hinna
útvöldu þrátt fyrir að þú hafír beint
spjótum þínum óhikað að fasisma
vors áferðarfallega samfélags. Og
mikið þótti mér vænt um að heyra
að bróðir þinn Tolli hefði bjargað
þér frá því að lenda á Litla Hrauni.
Þín braut hefír verið þymum stráð
en nú hefír sum sé hið borgaralega
samfélag tekið þig í sátt og valið
þig til að kitla smáborgarana í
Evrópu. Ég skora á þig að gleyma
ekki öllum litu verksmiðjuþrælun-
um og atvinnuleysingjunum er
eigra um fijálshyggjugötumar. Nú
og ef svo ólíklega vildi til að þú
kæmist austur yfir múrinn þá
skaltu ekki spara kveðjumar frem-
ur en þegar þú ortir um þúsund
þorskana á færibandinu forðum
daga- ÓlafurM.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
ÚTVARP
ÞRIÐJUDAGUR
21.janúar
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
. Bæn.
7.16 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Stelpurnar gera
uppreisn" eftir Fröydis
Guldahl. Sonja B. Jónsdóttir
les þýðingu sína (12).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar. Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur frá kvöldinu áður
sem Margrét Jónsdóttirflyt-
ur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forystugreinum
dagblaðanna.
10.40 „Ég man þá tíð“ Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.10 Úr söguskjóðunni -
„Móðir, kona, meyja", við-
horf til kvenna á fyrri hluta
aldarinnar.
Umsjón: Margrét Guð-
mundsdóttir. Lesari Halla
Kjartansdóttir.
11.40 Morguntónleikar. „Sieg-
fried Idyll" eftir Richard
Wagner. St. Martin-in-the-
Fields-hljómsveitin leikur;
Neville Marriner stjórnar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar.Tónleikar.
13.30 I dagsins önn - Heilsu-
vernd.
Umsjón: Jónína Benedikts-
dóttir.
14.00 Miödegissagan „Ævin-
týramaður," - af Jóni Ólafs-
syni ritstjóra. Gils Guð-
mundsson tók saman og
les (14).
14.30 Miðdegistónleikar.
a. Flautusónata í e-moll eftir
Friedrich Kuhlau. Frantz
Lemsser og Merete West-
ergaard leika.
b. „Úr jurtagarðinum min-
um" eftir Ib Nörholm.
Danski kvartettinn leikur.
15.15 Barið að dyrum. Einar
Georg Einarsson sér um
þáttfrá Austurlandi.
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Hlustaðu með mér -
Edvard Fredriksen. (Frá
Akureyri.)
17.00 Barnaútvarpið. Stjórn-
andi: Kristín Helgadóttir.
17.40 Úr atvinnulífinu - Iðnað-
arrásin. Umsjón: Gunnar B.
Hinz, Hjörtur Hjartar og Páll
Kr. Pálsson.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
19.00 Aftanstund
Endursýndur þáttur frá 13.
janúar.
19.25 Ævintýri Olivers þangsa
Fimmti þáttur
Franskur brúðu- og teikni-
myndaflokkur um viðförlan
bangsa og vini hans.
Þýðandi Guðni Kolbeins-
son, lesari með honum
Bergdís Björt Guðnadóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál. Sigurður
G. Tómasson flytur þáttinn.
19.50 Úr heimi þjóðsagnanna
- „Ekki er kyn þó keraldið
leki". (Gamansögur.) Anna
Einarsdóttir og Sólveig
Halldórsdóttir sjá um þátt-
inn sem er lokaþáttur. Les-
ari meö þeim: Arnar Jóns-
son. Knútur R. Magnússon
og Sigurður Einarsson velja
tónlistina.
20.25 Frá Þýskalandi til (s-
lands
Elke Gunnarsson í Mar-
teinstungu segir frá í viötali
við Jón R. Hjálmarsson.
20.50 „Humáttir"
Aðalsteinn Ásberg Sigurðs-
son les þýðingar sínar á
Ijóðum eftir norska skáldið
Paal Helge Haugen.
21.05 íslensk tónlist
Sónata eftir Þorstein Hauks-
son. (Raftónlist gerð í Stokk-
20.40 Sjónvarpiö(Television)
Þriðji þáttur
Breskur heimildamynda-
flokkur í þrettán þáttum um
sögu sjónvarpsins, áhrif
þess og umsvif um víða
veröld og einstaka efnis-
flokka.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
21.35 Kolkrabbinn (La Piovra)
Þriðji þáttur
(talskur sakamálamynda-
flokkur i sex þáttum um
baráttu lögreglumanns við
hólmi 1980.)
21.30 Útvarpssagan: „Hornin
prýða manninn" eftir Aksel
Sandemose. Einar Bragi les
þýðingu sína (9).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Frá tónleikum (slensku
hljómsveitarinnar í Lang-
holtskirkju í Reykjavík 24.
október í vetur.
Stjórnandi: MarcTardue.
Einsöngvari: Sigriður Ella
Magnúsdóttir.
a. „Trittico Botticelliano"
(Þrjár myndir eftir Botticelli),
hljómsveitarverk eftir Ottor-
ino Respighi.
b. „Now and then" eftir
Frederick Fox.
c. Þjóðlög frá ýmsum lönd-
um í útsetningum eftir Luc-
iano Berio.
Kynnir: Ásgeir Sigurgests-
son.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
mafíuna á Sikiley.
Leikstjóri: Damiano Dam-
iani.
Aðalhlutverk: Michele
Placido og Barbara de
Rossi.
Þýðandi Steinar V. Árnason.
22.40 Upphaf nýrrar útvarps-
aldar
Umræðuþáttur í beinni út-
sendingu.
Umsjónarmaður Einar Sig-
urösson.
23.35 Fréttirídagskrárlok.
álf
10.00 Kátirkrakkar
Dagskrá fyrir yngstu hlust-
endurna í umsjá Helgu
Thorberg.
10.30 Morgunþáttur
Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son.
12.00 Hlé
14.00 Blöndunástaönum
Stjórnandi: Sigurður Þór
Salvarsson.
16.00 Sögurafsviöinu
Þorsteinn G. Gunnarsson
kynnir tónlist úr söngleikjum
og kvikmyndum.
17.00 Útrás
Stjórnandi: Ólafur Már
Björnsson.
18.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagöar i þrjár
mínútur kl. 11.00, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVÖRP
Svæðisútvarp virka
daga vikunnar frá mánu-
degitilföstudags.
AKUREYRI
17.03—18.00 Svæöisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
— FM 90,1 MHz.
REYKJAVÍK
17.03—18.30 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5 MHz.
SJÓNVARP
ÞRIÐJUDAGUR
21.janúar
Ur sögu-
skjóðunni
— viðhorftil
kvenna á
fyrri hluta
aldarinnar
■■■■ „Úr söguskjóð-
nlO unni“, þáttur
— sem félagar úr
Félagi sagnfræðinema sjá
um, er á dagskrá rásar 1
í dag kl. 11.10. Umsjónar-
maður að þessu sinni er
Margrét Guðmundsdóttir
og lesari Halla Kjartans-
dóttir. Þátturinn í dag ber
yfirskriftina „Móðir, kona,
meyja“ og er um viðhorf
til kvenna á fyrri hluta
aldarinnar.
Þáttaröð þessi hófst á
haustdögum og eru við-
fangsefnin margvísleg.
Eftir umtalsverða sigra í
réttindabaráttu kvenna á
árunum 1882—1920 kom
bakslag í kvennahreyfíng-
una. A þriðja áratugnum
fór að bera á vaxandi
andspymu gegn auknu
frelsi kvenna og jafnvel
gegn þeim árangri sem
konur höfðu þegar náð í
réttindabaráttu sinni.
Avæningur af þessu andófí
kom m.a. fram í nokkrum
tímaritsgreinum sem birt-
ust á árunum 1926—1945.
Þessar greinar fjalla allar
meira eða minna um hlut-
verk og eðli kvenna og
snerta auk þess flestar
starf kvennahreyfíngarinn-
ar og stefnu hennar. Meg-
inhluti þáttarlns er upplest-
ur úr þessum greinum. Þær
sýna vel ríkjandi viðhorf
samfélagsins til kvenna en
eru auk þess talandi dæmi
um andófíð gegn kvenna-
hreyfíngunni.
Upphaf nýrrar útvarpsaldar
■■■■ „Upphaf nýrrar
OO 40 útvarpsaldar"
nefnist um-
ræðuþáttur í beinni útsend-
ingu í kvöld í sjónvarpi.
Hann hefst kl. 22.40 og er
umsjónarmaður hans Einar
Sigurðsson fréttamaður.
Eins og kunnugt er tóku
ný útvarpslög gildi um sl.
áramót og er ætlunin að
ræða þau í sjónvarpi í
kvöld, rétt og ábyrgð nýju
stöðvanna og hlutverk Öt-
varpsréttamefndar, sem
kemur til með að úthluta
leyfum til nýrra útvarps-
ogsjónvarpsstöðva.
í þáttinn koma þeir
Kjartan Gunnarsson for-
maður Útvarpsréttar-
nefndar, Ólafur Hauksson
ritstjóri, en hann hefur
mjög beitt sér fyrir breyt-
ingu útvarpslaganna á
undanfömum ámm, Þor-
bjöm Broddason lektor,
sem fjallað hefur mikið um
flölmiðlamál, og Júlíus Sól-
nes sem hefur verið fram-
arlega í umræðu um að
endurvarpa gervihnatta-
efni á Seltjamamesi.
Kol-
krabbinn
■■■■ Þriðji þáttur ít-
01 35 alska sakamála-
^ A myndaflokksins
„Kolkrabbinn" er á dag-
skrá sjónvarps kl. 21.35 í
kvöld, en alls em þættimir
sex.
Myndaflokkurinn fjallar
um baráttu lögreglumanns
við mafíuna á Sikiley. Leik-
stjóri er Damiano Damiani
og í aðalhlutverkum em
Michele Placido og Barbara
de Rossi.
Kjartan Gunnarsson
Ólafur Hauksson
Þorbjöm Broddason
Júlíus Sólnes
Maf iumenn ræðast við i „Kolkrabbanum“