Morgunblaðið - 21.01.1986, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986
19
„Einar í Betel“
nefndum viðurlögum og hæstu
dráttarvöxtum, sem vitaskuld
leggjast líka á, beitir ríkið lög-
regluvaldi til að innheimta skatt-
inn. Hvar var hugsunin um jafn-
rétti, um jöfiiuð og réttlæti milli
aðila í þjóðfélaginu, þegar ríkið tók
sér þennan ofur- og nánast ógnar-
rétt í söluskattsinnheimtu? Hvemig
yrði þjóðfélagið, ef aðrir fengju
sama rétt gagnvart skuldurum sín-
um? Hvar vom samtök verzlunar
og atvinnurekstrar í landinu, þegar
ríkið innleiddi þá ósvinnu, sem þessi
söluskattsinnheimta er? Hér er mál
að jinni.
í Finnlandi er atvinnurekstrinum
líka gert að innheimta söluskatt,
en það er, eftir því sem undirritaður
bezt veit, eina landið í Evrópu, þar
sem söluskattur er enn í gildi, fyrir
utan ísland. Þar er skatturinn 19%
ofan á söluverð, en hér 25%. Inn-
heimtuaðferðir eru þar líka nokkuð
ólíkar því, sem hér gerist, svo að
ekki sé meira sagt.
í Finnlandi eru tvö söluskatts-
tímabil; janúar—júní og júlí—des-
ember. Má skila skattinum fijáls-
lega innan þessara tímabila, þó falla
á 2% mánaðarvextir, sé uppgjör
dregið fram yfír einn mánuð frá
sölumánuði. Eru það litlu hærri
mánaðarvextir en t.a.m. vextir á
afborgunarviðskiptum þar. Sölu-
skattsskýrslum er skilað tvisvar á
ári; í síðasta lagi 15. ágúst fyrir
fyrra tímabilið og í síðasta lagi 15.
febrúar fyrir seinna tímabilið. Við
afborgunarviðskipti skapast ekki
skilaskylda hjá sejjanda fyrr en
eftir því sem söluandvirði og
skatturinn skilar sér. Þá fyrst, er
seljandi dregur skil út fyrir ramma
6 mánaða tímabilanna, geta skatt-
yfírvöld beitt álagi, sem í fram-
kvæmd mun vera 9—24%.
í Finnlandi hefur ríkið engan rétt
til innheimtu söluskatts umfram
þann rétt, sem aðrir lánadrottnar
og kröfuhafar hafa í sinum inn-
heimtumálum. Gildir þar jöfnuður
í þessum efnum milli aðila í þjóð-
félaginu.
Fréttaflutningur
almennt
Allir eru sammála um, að mál-
frelsi og ritfrelsi eru meðal hom-
steina lýðræðisins og þess frelsis,
sem við njótum. Þessum réttindum
verða þó að fylgja miklar og skýrar
skyldur um heiðarleika, mannúð og
vöndun, mikil ábyrgð, ekki sízt á
þeim miklu fjölmiðlatímum, sem við
lifum, þar sem helztu flölmiðlar ná
nánast beint inn á hvert heimili
landsins og áhrifamáttur þeirra er
gífurlegur.
Á seinni tímum hafa ennfremur
komið til sögunnar Qölmiðlar, sem
byggja tilveru sina og afkomu að
miklu leyti á lausasölu, verða þeir
að bjóða upp á eitthvað fréttnæmt
hverju sinni, hvemig svo sem á
stendur. Býður þetta hættu heim.
Er því afar nauðsynlegt, að lög-
gjafínn setji greinargóð og alhliða
lög um þær skyldur og þá ábyrgð,
sem fylgja verður mál- og ritfrelsi.
Er þetta ugglaust eitt mikilsverð-
asta og brýnasta verkefnið, sem
bíður meðferðar og úrlausnar Al-
þingis. Það hefur verið talið grund-
vallaratriði í íslenzku réttarfari, að
menn teljist og séu saklausir þar
til sekt hefur verið sönnuð. Verða
þetta að teljast frummannréttindi.
Þróun í fjölmiðlun og fréttaflutn-
ingi hin síðari ár hefur hins vegar
gert þetta að hjómi einu. Áfellis-
dómar eru nú kveðnir upp og menn
úthrópaðir af flölmiðlum, jafnvel
meðan mál eru enn á frumrann-
sóknarstigi, í bezta falli við útgáfu
ákæru ríkissaksóknara. Þess er oft
í engu gætt, að þjóðfélagið og allar
leikreglur þess em orðnar afar
margslungnar og flóknar, og geta
oft komið upp ágreiningsefni, þar
sem mál eru engan veginn skýr eða
afdráttarlaus. Hafa sleggjudómar
fjölmiðla oft valdið miklu tjóni,
stundum óbætanlegu, bæði á mann-
lífi — og er það sárast — en eins
á hagsmunum, verðmætum og
eignum, og er það líka illt, Hvar
er nú réttarríkið komið?
— eftirPál
Pálsson
Um jólin bárust mér nokkrar
góðar jólabækur og þar á meðal
Einar í Betel, æviminningar Einars
J. Gíslason. Um þá bók og höfund-
inn langar mig að fara hér nokkrum
orðum. Einar J. Gíslason forstöðu-
mann Hvítasunnusafnaðarins þarf
ekki að kynna. Hann er m.a. löngu
þjóðkunnur af útvarpsguðsþjón-
ustum safnaðaríns. Þar hefur Einar
komið fram sem einn kröftugasti
og mælskasti prédikari landsins.
Hann hefur sínar ákveðnu skoðanir
og er með öllu óhræddur við að
setja þær fram. Honum lætur eink-
ar vel að bera sannleikanum vitni.
Hann þykir djarfur prédikari og ást
hans á Frelsaranum fer ekki fram
hjá fólki. Einari hefur löngum verið
það gefið að vera réttur maður á
réttum stað.
í bókinni slær Einar bæði á létta
og alvarlega strengi og lætur hvort
tveggja vel. Bók Einars er hin
vandaðasta: Band og pappfr hvort
tveggja gott. Prentun og stafagerð
með ágætum, stafír mátulega stórir
o.s.frv. Útgefandi er Fíladelfía for-
lag. Prentun: Prentstofa G. Bene-
diktssonar. Bókband: Amarberg.
Útgáfuár 1985. Það gefur bókinni
mikið aukið gildi, að í henni er
ijöldi merkilegra ljósmynda. Stíll
höfundar er sérstaeður — eins og
vera ber — léttur og lipur og málfar
gott. Minni Einars virðist vera frá-
bært og fróður er hann í meira lagi.
Það sérkennilega við stíl Einars er,
hve hann er skemmtilegur og
óþvingaður. Húmorístinn kemur oft
fram, en alvðrumaðurinn ekki síður.
Einar kann þá list, sem um getur
í Ritningunni, að fagna með fagn-
endum og gráta með grátendum
enda maðurinn lífsreyndur í meira
lagi. Þetta var löngu vitað, en bók
hans áréttar þetta.
Bók Einars J. Gíslasonar er góð
og einarðleg lesning, sem engan
svíkur. En bókin er ekki sfst ævi-
minningar Einars. Þær eru
skemmtilegar, fróðlegar og spenn-
andi enda koma þar margir við
sögu, bæði lífs og liðnir. Hæst finnst
mér ritverkið rísa, þar sem höfund-
ur fjallar af næmum skilningi um
hin alvarlegustu málin. Hann kann
Einar J. Gfslason
að umgangast sorgina og gleðina
og ekki síst kann hann að umgang-
ast leyndardóma trúarinnar. Og það
gerir hann með lotningu og af hátt-
vísi. Þar hefur ekki verið stundað
„andlegt flakk“, svo notuð séu orð
bókarinnar.
M.a. lýsir bókin því glöggt,
hvemig höfundur bar ást til dýra,
ekki síður en manna. Þá lýsir bókin
vel ýmsu í starfsemi Hrítasunnu-
hreyfíngarinnar á íslandi. Er það
athyglisvert og rösklega skrifað.
Og margt annað efni mætti vitan-
lega upp telja, en verður ekki gert
hér svo neinu nemi. Vænt þótti mér
um kaflann: Sigurður Sigvaldason.
Þeim sérstæða og ágæta manni
kynntist ég aldrei, en man vel eftir
honum frá því að ég var krakki og
hafði ég alltaf ríka samúð með
þessum einlæga gamla manni. Sat
þá Sigurður löngum á tröppum
verslunar einnar í Austurstræti og
seldi Biblíur. Sá ég þá stundum,
hvemig svokallað „fínt fólk“ þóttist
hafa ráð á því að gera gys að gamla
manninum. En í bók Einars kemur
glöggt fram, hve sérstæður og
merkur guðsmaður Sigurður var.
Vonandi fáum við meira að lesa
síðar af æviminningum Einars.
Þetta virðist aðeins vera byijunin.
Eitt sinn mætti Einar þeim mæta
manni séra Siguijóni Þ. Ámasyni
(bls. 28). Séra Siguijón spurði:
„Ertu alltaf að prédika?" „Já“,
svaraði Einar. Séra Siguijón sagði
þá: „Haltu því áfram". Og það hefur
svo Einar gert og verður vonandi
ekkert lát á því í bráð.
í bókarlok em ýtarlegar ættar-
skrár.
Höfundur er prestur að Bergþórs-
hvoli.
Skíðaskór frá
I Nordica Junior. / Nordica Junior. / Nordica J2 Competition. / Nordica Unisex.
Stærðir 24—39 / Stærðir 33—39 IStærðir35—42 Stærðir41—45
Veró frá kr. 1.580—2.080 Verð kr. 2.900 / Veró kr. 3.700 / Verð kr. 6.800
irj130 iTjI40 iíj/60 /fn955
I Nordica Lady. / Nordica Lady. / Nordica Unisex. / Nordica Unisex.
Stærðir 37—42 Stærðir37—42 Stærðir38—43 Stærðir42—44
Verð kr. 4.100 / Verð kr. 4.660 / Verð kr. 2.410 / Verð kr. 3.200
IÍL720 ifi370 iíb500 . ifs520
V-
I Nordica Unisex. / Nordica Unisex / Nordica keppmsskór / Nordica Unisex
Stærðir 41—46 /m/stillanlegum framhalla / mikið stillanlegir /m/ioftpúðum.
Veró kr. 4.100 / Stærðir 42—45 / Stærðir 39—45 / Stærðir 37—45
/Js720 Verð kr. 6.100 iTr960 Verð kr. 7.600 /Tr980 Verð kr. 6.800 TRÍDENT
UTILIF
Póstsendum samdægurs
Opió laugardaga frá 9—12
GLÆSIB/E SÍMI 9182922
Höfundur er foratjóri Nesco.