Morgunblaðið - 21.01.1986, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.01.1986, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986 Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra Gagnrýni á frestun tekjuskattslækkunar: Breytingartillaga kom ekki fram í þingflokknum ÞETTA mál var rætt í þing- flokknum á sínum tíma en þar flutti enginn þingmaður breyt- ingartillögu í þá veru sem þarna er nefnt,“ sagði Þor- steinn Pálsson fjármálaráð- herra þegar leitað var álits hans á gagnrýni Gunnars G. Schram alþingismanns Sjálf- stæðisflokksins í Reykjanes- kjördæmi á frestun tekjuskatts- lækkunar einstaklinga. Gunnar sendi sjálfstæðisfólki á Reykjanesi bréf fyrir skömmu þar sem hann segir það mikil von- brigði að ríkisstjómin hafi talið sig knúna til að fresta um eitt ár fyrirheitinu um afnám tekjuskatts af almennum launatekjum. Segir hann að með því að auka aðhald og spamað í ríkisrekstrinum hefði þó verið í lófa lagið að standa við þau áform. „Hefí ég í því sam- bandi undirstrikað í þingflokki okkar sjálfstæðismanna að nær hefði verið að fresta m.a. fram- kvæmdum í vegamálum um eitt ár en fé til þeirra var aukið í yfír 2 milljarða króna. Jafnframt hefði mátt draga úr niðurgreiðslum á landbúnaðarvörum, sem verða munu um einn milljarður króna á þessu ári, svo aðeins tvö atriði séu nefnd," segir í bréfí Gunnars. Þorsteinn sagði að engin tillaga hefði komið fram um þetta í þing- flokknum. „Ég geri ráð fyrir að fyrst ríkisstjóminni hafí verið í lófa lagið að gera þessar breyting- ar þá hafí einstökum þingmönnum verið það í lófa lagið að flytja tillögur þar um. Annað hef ég ekki um þetta að segja," sagði Þorsteinn þegar þessi ummæli vom borin undir hann. Tillaga um afnám vísitölubindingar skammtímalána: Tekm upp þegar um- sagnir bankanna berast BANKARNIR hafa enn ekki sent fjármálaráðherra umsagn- ir sínar um tillögu hans um afnám vísitölubindingar skammtímalána. Sagði Þor- steinn Pálsson fjármálaráð- herra að tillögumar yrðu tekn- ar aftur upp í rikisstjóminni þegar umsagnir bankanna hefðu borist og að hann teldi rétt að láta þær þá koma til framkvæmda. Þorsteinn sagði að bankamir hefðu óskað eftir fresti til að segja álit sitt á tillögunni, en hún felur í sér afnám heimildar til að nota lánskjaravísitölu á skuldir til skemmri tíma en þriggja ára. Það hefði hins vegar dregist úr hömlu að þeir gæfu umsögn sína. „Eftir því sem ég best veit hafa þeir sent umsagnir sínar til fjölmiðla, en ég hef ekki enn fengið þær í hendur. Þetta sýnir vinnubrögð þeirra," sagði Þorsteinn. Eldvarmr í sjúkrahúsum: • • Onnur verkefni hafa forgang hjá heilbrigðisyfirvöldum HeilbrigðisyfirvÖld hafa aldrei sett eldvarair í sjúkra- húsunum á forgangslista við fjárveitingabeiðnir og alltaf vikið óskum um fjárveitingar til þeirra til hliðar fyrir öðrum verkefnum, að sögn Þorsteins Pálssonar fjármálaráðherra. Sagði ráðherrann að allt tal heilbrigðisyfirvalda um að þau hafi gert fjárveitingarbeiðni um eldvamarkerfi að for- gangsverkefni við síðustu fjár- lagagerð hefði ekki við nein rök að styðjast. Sagði Þorsteinn að ef heilbrigð- isyfírvöld væru þeirrar skoðunar nú að eldvamimar væm for- gangsverkefni kæmu þau sjálf- sagt með tillögu um það hvað eigi að víkja í staðinn. „Aðalatriðið er það að nauðsynlegt er að fínna lausn á þessum málum, þau eru í óviðunandi ástandi og þarf að koma þeim í gott horf. í þeim viðræðum sem fram fara um þessi mál mun fjármálaráðuneytið stuðla að því að svo geti orðið," sagði Þorsteinn. 0 Fráfarandi stjórn Stúdentaráðs HI: * Abyrgðin þeirra sem stóðu að vantraustinu MORGUNBLAÐINU hef ur borist eftirfarandi ályktun fr'fráfar- andi stjóm Stúdentaráðs Há- skóla ísland: „í tilefni af áburði þeim á fráfar- andi stjóm Stúdentaráðs Háskóla íslands, sem fram hefur komið í Qölmiðlum þess efnis að stjómin hafín neitað að starfa áfram þar til ný stjóm hafi verið mynduð, vill hin fráfarandi stjóm taka fram að skv. 48. grein laga SHÍ á sú stjóm sem lýst er vantrausti á, ekkert val um það hvort hún fer frá eða ekki. Ábyrgðin á því að Stúdentaráð hefiir nú verið gert stjómlaust er því þeirra, sem stóðu að samþykkt vantraustsins. Ennfremur vill fráfarandi stjóm koma því á framfæri að fundur sá er haldinn var í hagsmunanefnd SHÍ þann 15. janúar sl. var fullkom- lega löglegur og til hans boðað að frumkvæði Félags vinstri manna, en fulltrúar félagsins gengu af fúndi er ljóst var að um samþykkt stuðningsyfirlýsingar við stjóm SHÍ.“ Stjóra Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar á sextugsafmælinu. Frá vinstri til hægri: Guðrún Finn- bogadóttir ritari, Guðm. Vignir Óskarsson, Ása Clausen ritari, Hulda Ólafsdóttir, Pétur Kr. Pétursson varaformaður, Haraldur Hannesson formaður, Sigriður Axelsdóttir, Hjörleifur Friðleifsson, Sjöfn Ing- ólfsdóttir og Ingimar Karlsson gjaldkeri. Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar 60 ára. Eðli ldarabaráttunn- ar hefur breyst mikið Rætt við Harald Hannesson, formann félagsins STARFSMANNAFÉLAG Reykjavíkurborgar varð sextíu ára sl. föstu- dag, 17. janúar. Efnt var til veglegs afmælisfagnaðar á tveimur veitingahúsum í borginni, Broadway og Hótel Borg. Húsfyllir var á báðum stöðum og komust færri að en vildu. I tilefni þessara tíma- móta var rætt við Harald Hannesson, formann félagsins, að loknum afmælisfundi stjómarinnar á föstudaginn. „Félagið var stofnað 17. janúar baráttunnar hefur vissulega breyst 1926, nokkru seinna, en verkalýðs- félögin í Reykjavík, og ástæðan fyrir því að stofnun félagsins dróst á langinn var fyrst og fremst sú, að borgarstarfsmenn töldu sig ekki eiga samleið með verkalýðnum í borginni," sagði Haraldur um upp- hafsár Starfsmannafélags Reykja- víkurborgar. „Stofnfélagar voru 58 og þar af 2 konur. Lögreglumenn voru fjölmennasta starfsstéttin en þeir voru þá 14 talsins. Þróunin fyrstu árin var hæg hvað varðaði samninga við borgina. Það var að vísu í gildi einhver vísitala en borgaryfírvöldum bar engin skylda til að fara eftir henni. Síðan kom að því að borgin viðurkenndi starfsmannafélagið sem samnings- aðila með samningsréttarlögunum frá 1963. Þá um leið varð það skylda að borgarstarfsmenn á föst- um mánaðarlaunum væru í starfs- mannafélaginu og það er svo enn í dag. Veruleg þáttaskil verða svo að sjálfsögðu árið 1977 þegar félag- ið fær verkfallsrétt ásamt öðrum opinberum starfsmönnum. Félagar í dag eru 2.800, þar af 2.500 á launaskrá. Þar af eru 1.500 konur og þar vegur heilsugæslan þyngst á metunum, en við þau störf eru nú á milli 600 og 700 manns." Haraldur var spurður um brýn- ustu mál félagsins nú á þessum tímamótum: „Það er auðvitað kjara- baráttan, sem nú er framundan. Borgin hefur sagt skilið við launa- nefnd sveitarfélaga þannig að nú er við borgina eina að eiga í kom- andi kjarasamningi. Það olli tals- verðum úlfaþyt í fyrra að launa- málanefnd og borgarstjóri skrifuðu undir kjarasamninginn. Nú semjum við beint við borgina án nokkurs milliliðar, og við væntum einhvers árangurs af því. Það má segja að eftir að opin- berir starfsmenn fóru að vera í þessum stóru samflotum, þá hefur sá munur sem var á borgarstarfs- mönnum og öðrum opinberum starfsmönnum horfið. Hér á árum áður voru borgarstarfsmenn alltaf heldur betur launaðir en ríkisstarfs- menn. Við gerum okkur hins vegar ljóst að það getur orðið erfítt að vinna upp þann launamun sem er hjá okkur opinberum starfsmönnum og á hinum frjálsa vinnumarkaði. Hér í gamla daga fengum við í staðinn verðtryggðan ellilífeyri og við höfðum æviráðningu. Við höfð- um atvinnuöryggi. Með verkfalls- réttinum misstum við hins vegar æviráðninguna þannig að eðli kjara- mikið. Annað helsta málið hjá okkur núna er uppbygging orlofsheimila að Ulfljótsvatni. Geir Hallgrímsson, þáverandi borgarstjóri, afhenti okkur þar mikið land árið 1967, um 260 hektara. Þar hefur ekkert verið gert fyrr en í fyrra, að við reistum 4 orlofshús og fleiri eru í byggingu. Við samþykktum á stjórnarfundi hjá okkur í dag að fara út í gróðursetningarherferð á þessu ári og gróðursetja eina plöntu fyrir hvem starfsmann. Og það er von okkar að það verði upphafið af stóru átaki í uppgræðslu á þessu landi við Úlfljótsvatn." Um hátíðahöldin varðandi sex- tugsafmælið sagði Haraldur meðal annars: „Okkur þykir það vel við hæfí að afmælisár borgarinnar skuli bytja með þessum veglegu hátíða- höldum starfsmannafélagsins. Undirbúningur hófst fyrir um það bil ári, en þá tókum við Broadway á leigu þennan dag. Miðamir seld- ust hins vegar upp á tæpum klukku- tíma. Þá voru góð ráð dýr og okkur tókst að fá Hótel Borg á leigu, fyrir 260 manns í viðbót, en þeir miðar seldust einnig upp áður en hátíða- höldin voru auglýst. Það er því ljóst að áhugi borgarstarfsmanna fyrir að heiðra félagið á þessum tíma- mótum er mikill." Að brosa tennt- ur eða tannlaus Helmingfur reyking-amanna tannlaus um sjötugt EF ÞÚ vilt brosa breitt við baraa- böraunum um sjötugt og láta skina í eigin tennur þá ætturðu að hætta að reykja I dag. Reykingar viðhalda nefnilega sýkingum í munninum og mýkja upp kjálkabeinið segir í fréttatil- kynningu frá Tóbaksvaraa- nefnd. Nýlega lauk í Gautaborg at- hugun sem gerð var af Guy Heiden, prófessor í munnmeinafræði, og Tor Ósterberg, dr. í odontologíu. Niður- stöður þeirra félaga sýndu í stuttu máli að meðal þeirra, sem aldrei höfðu reykt, vom enn 84% með eigin tennur um sjötugt. Hjá fyrr- verandi reykingamönnum voru 67% ennþá með eigin tennur. Helmingur þeirra sem verið höfðu reykinga- menn alla ævi og reyktu enn voru hins vegar orðnir algerlega tann- lausir. Ef menn vilja ganga úr skugga um eigin stöðu geta þeir opnað munninn fyrir framan spegil og leitað að rauðum, hvítum og brún- um blettum í munninum og tann- holdinu. Það er ekki svo kyndugt, að slíkir blettir myndast. í munnin- um eru mörg viðkvæm lífkerfí, sem skaðast af völdum efnanna í tóbaks- reyknum sem m.a. eru blý, nikkel, arsenik, kadmium, cyanvetni, brennisteinsvetni, köfnunarefnisox- íð, nitrósamin, aromatísk kolvetni, formaldehýð, acetaldehýð, akrolein, ammóníak og þar að auki kolsýrl- ingur sem tekur upp sæti súrefnis á rauðu blóðkomunum. Þá er ótalið nikótín sem hefur víðtæk áhrif á taugakerfíð og hormónakerfíð og veldur ávana og fíkn í tóbak. Erlendis hefur munntóbak orðið síðasta skjól margra reykinga- manna, en það er skammgóður vermir segja þeir Heiden og Oster- berg. Áhættan á lungnakrabba minnkar vissulega, en áhættan er óbreytt á munnkrabba og kok- krabba auk þess sem munntóbak tærir og þurrkar upp munnvatns- kirtlana ekkert síður en tóbaksreyk- urinn. Línur f éllu niður í viðtali við þijá pilta úr Haga- skóla í þættinum Fólk í fréttum sl. sunnudag féllu niður tvær lín- ur þannig að merking breyttist. Rétt er málsgreinin svona:„ ...- heldur sé þetta gert á kostnað allra þeirra tískusýninga sem í gangi eru. Þeir eru allir þátttak- endur S leiklistarnámskeiði sem boðið er upp á í Hagaskóla fyrir utan skólatíma." Beðist er vel- virðingar á þessu. Týndi seðlaveski Ungur piltur týndi dökkrauðu seðlaveski með skilríkjum við bens- ínstöðina í Hafnarstræti um klukk- an 1 síðastliðna fimmtudagsnótt. Var hann þar að taka bensín, en ók að svo búnu rakleiðis heim til sín í Amames. Finnandi veskisins er vinsamleg- ast beðinn að hafa samband við lögregluna. Heitið er fundarlaun- um.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.