Morgunblaðið - 21.01.1986, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 21.01.1986, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANtJAR 1986 Draumuriim um Ermarsunds- göngin fær loksins að rætast Hafist verður handa við tvöföld járnbrautargöng á næsta ári og á verkinu að verða lokið árið 1993 Lille, Frakklandi, 20. janúar. AP. FRANCOIS Mitterrand, Frakklandsforseti, og Marg- aret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, tilkynntu í dag, að löndin tvö yrðu tengd saman með tvöföldum járnbrautargöngum undir Ermarsund. Seinna verður göngum fyrir bUaumferð bætt við en ekki hefur verið ákveðið hvenær það verður. Bresk-franska fyrirtækjasam- steypan France-Manche bar sigur úr býtum í samkeppninni um verkið en hún leggur til, að göngin verði tvenn, önnur fyrir farþega- og vörulestir, en hin fyrir lestir sem eingöngu flytja bíla á milli. Sam- kvæmt þessari tillögu verða göngin samtals 49 km á lengd. Sagði Mit- terrand, að kostnaðurinn við ganga- gerðina væri áætlaður 165,5 millj- arðar ísl. kr. á núvirði en um 288,5 milljarðar ef tekið væri tillit til fjár- magnskostnaðar fram til þess tíma er göngin verða opnuð, en það verðurárið 1992. „Stórkostleg fram- tíðarsýn“ Mitterrand og Thatcher greindu formlega frá gangagerðinni í ráð- húsinu í Lille og var það fagurlega skreytt með frönskum og breskum fánum. Bar Mitterrand mikið lof á Thatcher fyrir „þessa miklu, þessa stórkostlegu framtíðarsýn" og sagði, að göngin yrðu „nýr liður í því að tengja saman Evrópu og raunar allan heiminn". Haft er fyrir satt, að Thatcher hafi lengst af hallast að annarri lausn á gangagerðinni og viljað fá bílagöng strax en í Lille sagði hún, að hin hefði verið valin vegna þess að hún hefði verið fjárhagslega skynsamlegust. Þau Thatcher og Mitterrand lögðu áherslu á, að um aldamótin yrði athugað hvort þörf væri fyrir sérstök bílagöng. Marcel Sarmet, forstjóri France-Manche, sagði hins vegar fréttamönnum, að þeir hjá fyrirtækinu sæju ekki nauðsyn á bflagöngum fyrir árið 2020. Hefði það verið reiknað út, að kostnaðurinn við þau tvöfaldaði heildarkostnað gangagerðarinnar en umferðin ykist hins vegar ekki nema um 10%. France-Manche hefur einkarétt á rekstri ganganna fram til 2020. Mitterrand sagði, að þegar göng- in kæmu, opnaðist leið fyrir hrað- skreiðu, frönsku lestimar til Lund- úna en um þessar mundir er einmitt verið að semja um að þær gangi til Briissel, Amsterdam, Kölnar og Stuttgart. Franska hraðlestin fer með 260 km hraða á klst. og tæki það þá aðeins rúma þrjá tíma að fara milli Lundúna og Parísar í stað fímm nú. Göngin frá 1880. Þau ná um milu vegar út undir sjóinn hjá Dover. Við þau var hætt af ótta við að byltingarsinnar streymdu eftir þeim til Bretlands. Danska þjóðþingið: Atkvæðagreiðsla um EB-tillögumar í dag Kaupmannahöfn, 20. jan. Frá fréttaritara Morgunblaðsins, Ib Björnbak. Á MORGUN, þriðjudag, mun danska þjóðþingið taka afstöðu til þess, hvort Danmörk eigi að samþykkja fram komnar tillögur um umbætur á skipulagi Evr- ópubandalagsins. Þrátt fyrir það að einstaka þingmaður úr flokki jafnaðarmanna kunni að hlaup- ast undan merkjum flokksins og greiða atkvæði með tillögunum, þá leikur enginn vafi á því, að meirihluti þingmanna á eftir að greiða atkvæði gegn þeim. Það hefði í för með sér, að fara verður fram þjóðaratkvæða- greiðsla um málið. Kjami þessara breytinga er á þá leið, að völd Evrópuþingsins í Stras- bourg verða aukin og í sumum málum verður neitunarvald ein- stakra aðildarríkja afnumið. Danskir jafnaðarmenn leggja mikla áherzlu á það í afstöðu sinni til málsins, að þeir séu ekki andvígir aðild að EB, heldur séu það aðeins tillögumar um breytingar á EB, sem greiða eigi atkvæði um. Uffe Ellemann-Jensen utanríkisráðherra segir hins vegar, að í reynd verði kosið um aðild Danmerkur að EB, enda þótt opinberlega sé aðeins verið að greiða atkvæði um umbóta- tillögumar. Sennilega eiga úrslit atkvæða- greiðslunnar í dag eftir að enda með því, að Ellemann-Jensen verður Uffe Ellemann-Jensen sendur í skyndiferð til sex aðildar- landa EB. Tilgangurinn yrði að gera hinum aðildarlöndunum grein fyrir ástandinu í Danmörku og kanna með tilliti til úrslitanna á þjóðþinginu, hvort vilji sé fyrir hendi hjá hinum löndunum til þess að falla frá einhveijum af áformuð- um breytingum á EB. Danski utan- ríkisráðherrann hefur látið þá skoð- un í ljós, að möguleikamir á slíku séu afar litlir. Framkomnar tillögur fela í sér málamiðlun af hálfu hinna aðildar- landa EB, sem telja sig hafa gengið langt til móts við kröfur Dana. Þannig em Hollendingar, sem fara með formennsku innan EB fyrstu sex mánuði þessa árs, mjög óánægðir með afstöðu Dana. Utan- ríkisráðherra Ítalíu, Guilio Andre- otti segir það dapurlegt, ef vanda- mál, sem snerta stjómmálaumræð- una innanlands í Danmörku, ættu eftir að hafa afgerandi áhrif á afstöðu Dana í þessu máli. Með þessum umælum sínum hefur ítalski utanríkisráðherrann vakið máls á atriði, sem stjómar- flokkamir munu ömgglega notfæra sér rækilega í umræðunum á þjóð- þinginu, en það er að afstaða jafn- aðarmanna til EB-tilagnanna sé fyrst og fremst sönnun um innan- flokksvandamál jafnaðarmanna hvort heldur í þingflokknum eða flokknum sjálfum, en byggist ekki á málefnalegu mati. Danska alþýðusambandið er mjög hikandi í afstöðu sinni en hefur þó lyst yfír samstöðu með þingflokki jafnaðarmanna. Blaðið Málmur (Metal), sem er málgagn hins öfluga sambands málmiðnað- armanna, hefur hins vegar varað við því, að EB-tillögumar verði felldar, sökum þess að það verði til þess að einangra Danmörku innan bandalagsins, sem Danir geti þó ekki verið án. „í þessu máli hafa tilfínningar náð að hafa all mikil áhrif á kostnað hins málefnalega," segir blaðið. AP/Símamynd Þessi mynd er tekin í Guatemalaborg á sunnudagskvöld, er komið var með lík þeirra, sem fórust með Caravelle-þotunni skammt frá flugvellinum i Santa Elena á laugardag. Guatemala: 93 fórust er far- þegaþota hrapaði AP. Guatemalaborg, Guatemala, 20. janúar. YFIRVÖLD sögðu í dag, að búið væri að finna lík allra farþeg- anna 93, sem fórust á laugardag, er farþegaþota hrapaði við Santa Elena-flugvöll, um 240 km fyrir norðan Guatemalaborg. Flugvél- in var á leið með ferðamenn, sem ætluðu að skoða rústir frá timum hinnar fornu Maya-menningar. Ekki hefur verið kveðið upp úr um, hveijar hafi verið orsakir slyssins. Þotan, sem var tveggja hreyfla af gerðinni Caravelle, var að koma inn til lendingar á Santa Elena- flugvelli, er hún hrapaði. Fórust allir, sem með vélinni voru. • Embættismenn sögðu, að reyndir flugmenn hefðu verið við stjóm- völinn, auk þess sem þotan hefði verið skoðuð kvöldið fyrir slysið. Fólk, sem flaug yfír slysstaðinn, sagði, að flugvélin hefði komið niður á skógarsvæði og brotnað í smátt. Hefði brak úr henni, svo og iík farþega og áhafnar, dreifst yfír tæplega 300 metra langt svæði um 13 km norðvestur af flugvellinum í Santa Elena.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.