Morgunblaðið - 21.01.1986, Page 27

Morgunblaðið - 21.01.1986, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986 27 Svíþjóð: Enn deilt um kafbátamálin Stokkhólmi, 20. janúar. AP. TALSMAÐUR sænska hersins sagði í dag, að á síðasta hausti hefði orðið vart við ókunna kafbáta innan sænskrar lögsögu en ekki vOdi hann viðurkenna, að tekist hefði að greina á vélarhljóðunum hvaðan bátarair voru. Það kom fram í fréttaskýringa- þættinum Rapport í sænska sjón- varpinu sl. sunnudag, að ókunnir kafbátar hefðu verið á ferð í skeija- garðinum undan Stokkhólmi sl. haust og hefði þá tekist að taka upp vélarhljóðin og finna þannig út hvaðan kaflíátamir voru. Talsmað- ur hersins vill þó ekki fallast á þetta og segir, að hljóðin hafí ekki verið nógu greinileg. I Rapport-þættinum sagði, að atburðurinn hefði átt sér stað í október sl. og hefðu augljóslega nokkrir kafbátar verið saman á ferð. Var einnig sagt, að þetta kæmi fram í ársfjórðungsskýrslu yfírmanns sænska hersins um lög- sögubrot en hún verður birt í þess- ari viku. Svíar hafa ekkert sagt um þjóð- emi þeirra kafbáta, sem verið hafa á ferð innan lögsögunnar, síðan þeir fullyrtu, að sex sovéskir kaf- bátar hefðu verið í Hors-flóa við Stokkhólm árið 1982. Berlín: Flúði um Check Point Charlie Vestur-Berlln, 20. janúar. AP. UNGUR Austur-Berlínarbúi flúði á föstudag yfir til Vestur-Berlínar við Check Point Charlie, sem er ein af helstu eftirlitsstöðvunum með samgöngum milli borgarhlutanna og er stranglega gætt. Mannin- um tókst að hlaupa í einum spreng síðasta spölinn, áður en verðirnir áttuðu sig á, hvað var á seyði. Austur-Þjóðveijinn, sem heitir Andreas Bratke og er 23 ára gamall, var að vinna við símalínu- lagnir inni á eftirlitssvæðinu. Hann hljóp um 100 metra vegalengd fram hjá vopnuðum hermönnum inn á vestur-þýskt yfírráðasvæði. Sagði lögreglan, að þetta væri í fyrsta sinn, sem flótta vestur yfír hefði borið að með þessum hætti. Bratke sagði blaðamönnum, að hann hefði tekið á sprett, um leið og landamæraverðir hefðu lyft síð- asta vegatálmanum yfír til Vestur- Berlínar til þess að hleypa bíl í gegn. „Ég tók bara á rás,“ sagði Bratke, „og þegar um 20 metrar voru eftir, lá við, að ég hnigi niður af hræðslunni einni saman. Og þegar ég var kominn vestur yfír, átti ég bágt með að trúa því, að ég væri virkilega enn á lífí.“ í þann mund er Ratke fór yfír markalínuna, datt hann kylliflatur. Var hann fluttur á nálægt sjúkra- hús og sögðu læknar þar, að hann hafði fengið taugaáíall, en sloppið við alvarleg meiðsl. Skákmótið í Wijk aan Zee: Short með fullt hús eftir þijár umferðir Wyk aan Zee, Hollandi 20. janúar. AP. Hinn ungi og bráðefnilegi breski skákmaður, Nigel Short, er einn í forustu með fullt hús vinninga eftir þijár umferðir á hinu árlega skákmóti í Wiik aan Zee í Hollandi og hefur vinningsforskot á næstu menn. í þriðju umferð vann hann hoUenska meistarann Ree í 31. leik með svörtu og síðan vann hann biðskák sina úr fyrstu umferð við vestur-þýska stórmeistarann Robert Hiibner. í 2. til 4. sæti eru Hodgson frá Bretlandi, Júgóslavinn Lubomir Ljubojevic og van der Wiel frá Holiandi með 2 vinninga. í 5.-10. sæti eru De Firmian frá Bandaríkj- unum, Tékkinn Hort, Hiibner, Ni- kolic, Sosonko og van der með 1 V2 vinning, 11.-12. sæti Chemin og Seirawan með 1 vinning og í 13.-14. sæti Hellers og Ree með 1/2 vinning. Frakkland: Nýárskortið var sex ár á leiðinni Toure, Frakklandi, 20. janúar. AP. ROSKIN hjón, sem búa í Tours í Frakklandi, tæplega 200 km fyrir sunnan París, fengu fyrir skömmu nýárskort frá ættingja sínum í höfuðborginni. Hafði bréfið þá verið sex ár á leiðinni til þeirra, því að það hafði verið póstlagt árið 1980. „Við skoðuðum póststimpilinn í krók_og kring, áður en við vorum viss um, að ekki væri um gaman- semi að ræða,“ sagði Robert Boile- au, viðtakandi bréfsins, í viðtali við dagblað í Tours. Á bréfinu var frí- merki, sem búið er að taka úr umferð. Boileau sagðist hafa tekið upp símann, þegar hann fékk kveðjuna, og slegið á þráðinn tii frændans í P^rl^iþesaað þakka fyrir sig. frá 22. mars — 02. apríl Víkingaferðir bjóða nú upp á skíða- ferð um páskana til Austurríkis. Hér er m.a. um að ræða hinn óviðjafnanlega Kaprun-jökul (3.029 m) þarsem náttúrufegurðin birtist manni í formi ótrúlegustu andstæðna bergrisanna, sem bera við heiðbláan himininn, drif- hvítan jökulinn og fagurgrænan trjágróður. Stórkostlegt skíða- svæði. Samspil þessara náttúru- forma er ólýsanlegt með orðum, því er sjón sögu ríkari. Þá verður einnig verið á skíðum á hinu vel þekkta og vinsæla skíðasvæði Zell am See, sem er örstutt frá jöklinum. Dvalið er á 3, 4 og 5 stjörnu hótelum með hálfu fæði. Beint flug til Salzburgar, en þaðan er aðeins um 1 klst. akstur til Zell am See og Kaprún. íslensk fararstjórn, sem fer með farþega í skoðunarferðir t.d. til Salz- burgar. Verð frá kr. 27.400 í 2. m. herb. (gengi 3.1. 1986). Örfá sæti eru einnig laus ískíðaferðirnar til Zell am See 15.02—1.3. og til Finkenberg 01.—15. mars. VikingaTerðir Hafnargötu 27, 230 Keflavík. sími 92-2900. T0Y0TA 2FBE 15 3 HJÓLA RAFMAGNSLYFTARI Lyftigeta 1,5 tonn, lyftihœð 4,3 metrar, free lift 1,4 metrar. Hliðarfœrsla ó göflum. Rafgeymir 48V-400 ah. aa TOYOTA NÝBÝLAVEGI 8 200 KÓPAVOGI essemm sIa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.