Morgunblaðið - 21.01.1986, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986
r
»
SVIPMYNDIR ÚR BORGINNI/ÓlafurOrmsson
Um áramót
Þá er byijað nýtt ár. Nýja árinu
var fagnað hér á höfuðborgar-
svæðinu með áramótabrennum og
flugeldasýningum um miðnætti
og það gamla kvatt á viðeigandi
hátt og mörgum flugeldum skotið
á loft enda viðraði ólíkt betur til
áramótafagnaðar um þessi ára-
mót en um áramótin þar á undan
þegar gekk á með hávaðaroki og
ýmist var slydda eða rigning og
höfuðborgin eitt skautasvell, klaki
yfir öllu meira eða minna. Síðast-
liðinn gamlársdag var svolítil
gola, lítilsháttar frost og svo til
auð jörð og besta veður og þátt-
taka í hátíðarhöldunum mun meiri
en mig minnir að hún hafi verið
um áramótin þar á undan. Hér í
Norðurmýrinni byijaði hasarinn
um miðjan dag á gamlársdag með
hvellhettusprengingum, svo há-
værum að lá við að hús nötruðu
og þannig héldu þessar hvell-
hettusprengingar áfram með
stuttum hléum fram að miðnætti
þegar óróaseggimir hafa orðið
uppiskroppa með sprengjuefni og
að öllum líkindum hafa þeir §öl-
mennt í Laugardalshöllina á ára-
mótadansleikinn sem þar fór fram
aðfaranótt nýársdags og náði há-
marki þegar tuttugu og átta rúður
voru brotnar í húsinu í lok „hátíð-
arhaldanna".
Nýja árið heilsaði með veður-
blíðu hér í borginni. Á nýársdag
var örlítið frost, stillt veður og
bjart, tjómalogn og hefðu margir
þeirra sem fóru geyst í skemmt-
analífinu fyrr um nóttina haft
gott af því að taka daginn
snemma, koma út undir bert loft
og anda að sér hreinu og tæru
lofti. Það var varla nokkur maður
á ferli í borginni um hádegisbil á
nýársdag og umferðin svo til
engin. Leifar af flugeldum og
stjömuljósum á götum og gang-
stígum hvert sem litið var og
furðulegt hvað „þessi fátæka
þjóð“ sem stöðugt er að barma
sér vegna peningaleysis allt árið
um kring getur leyft sér að eyða
á hinni árlegu flugeldasýningu á
gamlárskvöld.
Það var frekar fámennt í mat-
salnum á Hótel Esju í hádeginu
á nýársdag og einungis setið við
þijú borð um klukkan eitt og kyrrð
og friður á staðnum. Tvær ungl-
ingsstúlkur á að giska fimmtán,
sextán ára sátu ekki langt frá þar
sem ég sat og ég heyrði á tali
þeirra að þær voru yfír sig hrifnar
af dagskrá sjónvarpsins á gaml-
ársdag, um kvöldið og ekki síður
af áramótadansleiknum sem stóð
til klukkan langt gengin í þijú,
aðfaranótt nýársdags, í beinni
útsendingu.
— Vá. Hann Hrafn er virkilega
góður söngvari, sagði önnur
þeirra, ljóshærð stúlka og hin,
dökkhærð stúlka, sennilega eitt-
hvað eldri en sú ljóshærða kvað
enn fastar að orði um frammi-
stöðu dagskrárstjóra innlendrar
dagskrárgerðar.
— Hann er alveg æðislegur.
Mér finnst hann betri en hann
Kobbi eða hann Egill, mágur hans
Hrafns.
Þegar umræðumar voru komn-
ar á þetta stig sótti ég meira
kaffí í bolla og mér er ókunnugt
um framhald umræðnanna á milli
vinkvennanna.
Um áramót er það nokkuð
algengt að fólk vinni áramótaheit,
ákveði að frá og með áramótum
muni það bæta ráð sitt, eða koma
einhveiju lagi á það sem betur
má fara. Kaþólskur kunningi
minn, maður rétt rúmlega þrítug-
ur sem ekki alls fyrir löngu gekk
í raðir kaþólskra manna og hefur
bætt við sig nokkrum aukakílóum
nú yfir hátíðimar ætlar í megrun
og er þegar farinn að neita sér
um stórsteikur og ýmsa fítandi
fæðu. Annan mann þekki ég sem
er kominn í tóbaksbindindi og
byijaði nú um áramótin. Hann
hafði áður reykt allt að tvo pakka
af sígarettum á dag, en segist nú
vera alveg hættur og enn sem
komið er hefur hann staðið við
sitt áramótaheit. Hann hefur að
vísu tekið upp á þeim ósið í stað-
inn að háma í sig sælgæti frá
morgni til kvölds og þá aðallega
konfekt og bijóstsykur. Þá er mér
kunnugt um mann sem ekki vill
láta nafn síns getið sem hefur
sagt sig úr félagsskap við Bakkus
frá og með siðasta Þorláksmessu-
degi og hefur staðið við það heit
þegar þetta er fest á blað, viku
af janúarmánuði. Hann hefur
lengi verið háður Bakkusi. og oft
drukkið dögum saman og er
vonandi að fleiri sem eiga við
áfengisvandamál að stríða fari að
hans dæmi.
Líklega heyrir það til hjátrúar
að vilja skipta um númer á happ-
drættismiða, hvað sem það kostar,
einmitt vegna þess að ekki hefur
komið vinningur á númerið síðast-
liðin fimm ár eða allt frá því að
miðinn var fyrst keyptur. Um
daginn hitti ég mann á fömum
vegi. Hann var á leiðinni í höfuð-
stöðvar happdrættis Háskóla ís-
lands í Tjamargötunni og hann
sagði í fréttum að sig hefði dreymt
það að hann ætti að skipta um
númer á miðanum sem hann á í
háskólahappdrættinu og það helst
sem allra fyrst og fá sér í staðinn
lægra númer. Það vitjaði hans í
draumi einhver persóna sem hon-
um þykir vænt um og gaf honum
upp númer á þessum ágæta miða
og kvað miðann eiga eftir að
skipta miklu máli í hans lífí í ná-
inni framtíð. Númerið væri enn
til í umboðinu í Tjamargötunni
og á þennan miða kæmi stór
vinningur næsta sumar um það
leyti sem hann fer í sumarfríið,
og Qölskyldan ætlar að dvelja í
sumarhúsi í Hollandi. Síðustu
fréttir af þessum manni em þær
að hann er búinn að hafa upp á
þessu númeri sem hann var látinn
vita af í svefni og er óhemju
bjartsýnn á framtíðina.
Svo eru það þeir sem hafa
gaman af öllum nýjungum og
tengja þær gjaman við einhver
tímamót, t.d. áramót. Þeir kaupa
kannski á sig nýjan alfatnað, eða
fara í nýja vinnu sem býður upp
á betri kjör.
Um miðjan desembermánuð
síðastliðinn hóf góður vinur og
frændi af Víkingslækjarættinni,
Steingrímur Kristjónsson, að
safna skeggi og er nú eftir ára-
mótin kominn með myndarlegt
alskegg sem fer honum vel og það
er á honum að skilja að hann
muni ekki raka sig á næstunni,
allavega ekki fyrr en fer að vora.
Það verður hver og einn að hafa
það eins og honum hentar_____
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
* >
Auglýsing um prófkjör
Ákveðið hefur verið prófkjör um val frambjóðenda sjálfstæðisflokks-
ins i Ólafsvík við næstu bæjarstjórnarkosningar. Prófkjörið fer fram
23. febrúar nk. Kjörnefnd tekur við framboðum og veitir upplýsingar
um prófkjörsreglur. Framboðum sé skilað til undirritaðs í síðasta
lagi 31. janúar nk.
Fyrir hönd kjörnefndar.
Helgi Krístjánsson,
Sandholti 7, Ólafsvik,
simar 6258 og 6561.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Vorboði Hafnarfirði
Almennur fólagsfundur verður mánudaginn 27. nk. kl. 20.30 stundvis-
lenga.
Dagskrá:
1. Skýrsla jólanefndar.
2. Konur og stjórnmál. Frummælendur: Sólveig Ágústsdóttir bæjar-
fulltrúi, Anna K. Jónsdóttir varaborgarfulltrúi og Þórunn Gestsdóttir
formaður landssambands sjálfstæðiskvenna.
3. Frjálsar umræöur, kaffiveitingar.
Mætið vel og takið með ykkur gesti.
Stjórnin.
Anna Sólveig
Sjálfstæðisfólk
Rangárvallasýslu
Sjálfstæðisfélag Rangæinga og Fjölnir
halda aðalfundi þriðjudaginn 28. janúar nk.
kl. 20.30 i Hellubíói.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Þorsteinn Pálsson flytur ávarp og ræðir
stjórnmálaviðhorfin.
Félagar fjölmennið.
Sjálfstæðisfélag Rangárvallasýslu
Formannsspjall
Fimmtudaginn 23.
janúar nk. mun
Heimdallur, félag
ungra sjálfstæðis-
manna í Reykjavík,
gangast fyrir spjall-
fundi með Þorsteini
Pálssyni formanni
Sjálfstæðisflokks-
ins. Verður fundur-
inn haldinn i neðri
deild Valhallar og
hefst hann kl. 20.00.
Spjallaö verður vítt
og breytt um þjóðmálin, sjálfstæðisstefnuna og sjálfstæðismenn —
„unga sjálfstæðismenn og sjálfstæðismenn" svo eitthvaö sé nefnt.
Boðið veröur upp á léttar veitingar.
Allir ungir sjálfstæðismenn eru velkomnir.
Stjórn Heimdallar.
Kópavogur — spilakvöld
Spilakvöld sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi verður í Sjálfstæðishús-
inu, Hamraborg 1, þriöjudaginn 21. janúar kl. 21.00 stundvíslega.
Mætum öli.
Stjórnin.
Garðabær
Fundur i fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ verður haldinn
fimmtudaginn 23. janúar nk. kl. 20.00, Lyngási 12.
Dagskrá:
1. Bæjarstjómarkosningamar. Ákvörðun tekin um tilhögun fram-
boðs.
2. Önnur mál.
Félagar hvattir til að fjölmenna.
Stjórnin.
Mývetningar
— Þingeyingar
Sverrir Hermannsson, menntamálaráð-
herra boðar til almenns fundar í Skjólbrekku
laugardaginn 25. janúar kl. 16.00.
Allir velkomnir.
Borgarnes — Mýrasýsla
Aðalfundur sjálfstæðisfélags Mýrasýslu verður haldinn í sjálfstæðis-
húsinu Borgarnesi, Borgarbraut 1, fimmtudaginn 23. janúarkl. 21.00
síðdegis. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Mosfellssveit —
Viðtalstími
Magnús Sigsteins-
son oddviti og Hilmar
Sigurðsson varaodd-
viti verða til viötals í
Hlégarði fimmtudag-
inn 23. janúar kl.
17.00-19.00.
Sjálfstæðisfélag Mosfellinga.