Morgunblaðið - 21.01.1986, Síða 42

Morgunblaðið - 21.01.1986, Síða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986 Kveðjuorð: Karólína Stefáns- dóttirfrá Sigtúnum Fædd 18. maí 1891 Dáin 7. janúar 1986 Kynslóðir koma, kynslóðir fara allarsömu ævigöng. Gleymist þó aldrei eilifa lagið við pílagrímsins gieðisöng. (MJ.)—- Kjmslóðir koma og kynslóðir fara. Einn er að kveðja, ljúka sinni ævigöngu, annar er að heilsa og he§a sfna göngu. Mörg eru ævikjör- in, einum bíður farsæld og ham- ingja, öðrum erfiðleikar og harmar, en allt rennur þó áfram að einum ósi. Eftir því sem maður eldist, sér maður á bak æ fleiri samtíðar- manna sinna, þeirra sem mörkuðu spor í það umhverfí, sem maður ólst upp í. Þeir sem ólu upp mína kyn- slóð eru senn á förum. Karólína f Sigtúnum var ein þeirra. Allt frá bemsku minni man ég eftir Karólínu og hennar §öl- skyldu, sem bjó í næsta húsi við okkur, fjölskylduna í Efra-Nesi. Þá báru öll hús á Akranesi sín nöfn og fólkið sem í þeim bjó var kennt við þau. Enn er Karólfna kennd við Sigtún. Allt frá því að ég gat ekki borið nafnið hennar rétt fram og kallaði hana Kanínu eða eitthvað álíka og eldri krakkamir hlógu að mér og stríddu mér, var hún alltaf jafn góð við mig. Þegar vinir kveðja eins og núna verður eftir einhver ljúfsár tregi, þó maður fagni því að langri og strangri vegferð sé lokið. Karólína Stefánsdóttir fæddist 18. maí 1891 að Sólheimagerði í Blönduhlíð í Skagafírði. Foreldrar hennar voru þau hjónin Stefán Pét- ur Magnússon bóndi þar og Soffía Guðbjörg Bjömsdóttir. Systkinin voru þijú auk hennar. Sveinn, sem drakknaði ungur maður í Héraðsvötnum. Guðbjörg, dó ung úr berklum og Ambergur, sá eini sem nú er eftir, var lengi bifreiðastjóri í Borgamesi, auk þess var Sigurbjörg í Deildartungu í Borgarfírði hálfsystir þeirra. Sigur- björg var aftur á móti hálfsystir þeirra nafnkunnu bræðra Andrésar Bjömssonar, fyrram útvarpsstjóra, og Andrésar Bjömssonar sem kall- aður var eldri. Foreldrar Karólínu bragðu búi í Sólheimagerði snemma á öldinni og vora þá ýmist í húsmennsku eða bjuggu stuttan tíma á nokkram bæjum í Blönduhlíðinni. í þessu basli deyr Stefán og móðir Karólínu flytur sig suður yfír heiðar til Sigur- bjargar í Deildartungu og þau með henni Karólina og Ambergur, og hjá þessari dóttur sinni er móðir hennar til æviloka. Karólfna var skarpgreind kona, vel iesin og skáldmælt, þó ekki flík- aði hún því. Sem ung stúlka hugði hún á nám og settist í Kennaraskól- ann veturinn 1916—17. Og sótti meira að segja myndlistamám hjá Þórami B. Þorlákssyni, listmálara. Ekki gat orðið framhald að nám- inu. Fátæktin sagði til sín, veikindi steðjuðu að, kannski vegna fæðu- skorts, en hún fékk brjósthimnu- bólgu og var lengi veik. Einnig hefur aldarandinn síst hvatt al- múgastúlku til náms á þessum tíma. Karólína bar alltaf lítinn gullhring, jafnvel eftir að steinninn var týndur úr honum, og hún átti líka ljóð Jón- asar Halfgrímssonar f rauðu skinn- bandi. Þetta vora henni helgidómar, en skólasystkini hennar höfðu sleg- ið saman af fátækt sinni, þegar þessi veika og fátæka skólasystir þeirra varð að hætta námi, áletrað bókina og gefíð henni hvorttveggja. Árið 1918 gerist hún ráðskona við mötuneyti skólans á Hvítár- bakka og þar kynnist hún manni sínum sem þar var við nám, Sæ- mundi Eggertssyni frá Leirárgörð- um í Leirársveit. Árið 1922 giftast þau og byrja að búa í Leirárgörðum, og þar fæðist fyrsta bam þeirra, Sveinn Þorsteinn. 1924 flytja þau á Akranes og 1927 byggja þau sér hús, sem þau nefna Sigtún. Þar ala þau upp bömin sín þijú, en þau era auk Sveins, Auður Ásdís og Eggert Stefán. Karólína og Sæmundur slitu samvistum, en Karólína átti alltaf heima í Sigtúnum, meðan þrekið entist, en nú nær flórtán ár hefur hún verið á Sjúkrahúsi Akraness, þar sem hún andaðist södd lífdaga. Yngsti sonur Karólínu, Eggert Stefán hefur alltaf búið á Akranesi, kvæntur Unni Leifsdóttur og eiga þau tvö böm. Eggert er smiður og starfar í Sementsverksmiðjunni. Auður Ásdís er bóndakona, býr að Ási í Melasveit, gift Þórami Einarssyni bónda þar. Þau eiga flóra syni. Sveinn er fulltrúi hjá Flugleiðum og hefur auk þess skráð nokkrar bækur, nú síðast hefur hann skráð bækur eftir Guðmundi Kjæmested f.v. skipherra. Hans kona er María Jónsdóttir, þau eiga tvo sjmi. Sveinn átti tvö böm með fyrri konu sinni, Hrefnu Guðmunds- dóttur. Þar sem næsta hús við Sigtún var hús foreldra minna, Efra-Nes, urðu þessar fjölskyldur nánir nágrannar og við bömin leik- félagar og vinir. Ég sótti mikið í Sigtún. Þangað var alltaf gott að koma. Aldrei man ég eftir því að amast væri við mér, nema þegar Auður fékk bamaveik- ina. Þá mátti ég ekki koma þar inn fyrir dyr. Heimilið var sett í sóttkví, sem var eina vömin sem þá þekkt- ist. Það var beðið milli vonar og ótta, hvort hin bömin, fyrst og fremst bræður hennar og síðan við bömin í nágrenninu fengjum veik- ina. Það var enginn sem fékk hana nema Auður. Við hin sluppum og hún hafði það af. Það var mikil ógn sem fylgdi þessum bamasjúkdómum, og stundum barði dauðinn að dyram. Nokkra eftir að Auður fékk bama- veikina, var næsta hús við Sigtún sett í sóttkví, nú var það skarlats- sótt sem heijaði á, og stuttu seinna var lítil ksta látin út um glugga á húsinu, og enginn af fjölskyldunni mátti fylgja Sigrúnu litlu til grafar, en svo hét litla stúlkan, sem dauðinn hremmdi. Þá grétum við bömin í hverfinu. Og lítill drengur dó af afleiðingum kíghósta. Svona gekk lífið. Skin og skuggar skiptust á og við tókum þátt í kjöram hvors annars, á einn eða annan hátt. I Sigtúnum var afkoma heimilis- ins byggð upp á svipaðan hátt og á öðram alþýðuheimilum. Einhvers- konar verkamannavinna þeirra sem ekki vora sjómenn og stuðningur af búskap með kýr og kindur, hænsni og stóra kartöflugarða. Það var þess vegna alltaf nógur og góð- ur matur þar sem bömin vora ekki þeim mun fleiri. Húsnæði þætti kannski heidur lítið nú til dags, og fábrotinn húsbúnaður, en mér fannst alltaf fínt í stofunni í Sigtún- um. Sérstaklega man ég eftir kringl- óttu borði á miðju gólfí, með stórri og fallegri skál, sem í vora kort og myndir. Mikið þótti mér alltaf gaman að fá að skoða þessi kort. Þetta vora kort með húsum og tijám í útlöndum og fallegu og fínu fólki sem lét vel hvort að öðra. Kelirísiskortin frægu. En eitt var í stofunni sem ekki var algengt á öllum heimilum. Það var bókaskápur með mörgum bók- um. í Sigtúnum vora alltaf kejrptar bækur. Sæmundur las upphátt fyrir fjölskylduna. Mikið var nú gaman að sitja í eldhúsinu og hlusta, því alltaf mátti ég vera með, ylurinn frá eldavélinni vafði sig um okkur. Karólína kannski nýkomin úr §ós- inu frá því að mjólka, og spenvolg nýmjólkin freyddi enn um barmana á fötunni. Svo var mjólkin síuð og við fengum mjólk í bolla og kannski kleinu eða eitthvað annað gott. í Sigtúnum komst ég fyrst í kjmni við sögur Halldórs Laxness. Ég man eftir því þegar Sjálfstætt fólk var að koma út, og var keypt í Sigtúnum. Alla þá bók heyrði ég Sæmund lesa upphátt, en svo verk- aði þessi bók sterkt á mig sem bam, að ennþá bið ég Ástu Sóllilju vægð- ar. Sæmundur sat alltaf á sama stað og við bömin í nálægð og drakkum í okkur hvert orð, þó að bækumar væra kannski ekki allar við bamahæfi. Sæmundur var af- bragðs upplesari og síðan rökræddu hjónin fram og aftur um efni bók- anna. Karólína sagði okkur bömunum líka mikið af sögum. Hún var ekki aðeins fljúgandi greind, heldur lika stálminnug. Hún sagði okkur sögur eftir mömmu sinni og ömmu, sem t.d. höfðu verið nágrannar Bólu- Hjálmars. Þetta vora sögur um líf og starf genginna kynslóða. Á hvem hátt fólkið reyndi að bjarga sér og sínum. Ég man eftir að hún sagði okkur að í staðinn fyrir bama- púður og krem hefðu mæður notast við húsaskúm og ösku. Auðvitað var huldufolk í hveijum hól og klettum, og ekki langt frá heimili hennar var Miklibær, þar sem sagan um Miklabæjar-Sólveigu gerðist. Þá vora Héraðsvötnin fyrir neðan, sem ógnuðu lífi þeirri sem jrfír þau þurftu að komast. Stundum var ég orðin of hrædd til að fara ein heim og þá fylgdi hún mér gjaman jrfír lóðina á milli húsana að djrranum heima og klappaði mér á kinnina um leið og hún kvaddi mig. Hjónin í Sigtúnum vora miklir aðdáendur Jónasar frá Hriflu. Það voru foreldrar mínir lika á þessum tíma, og fylgdu Framsóknarflokkn- um. Við bömin voram auðvitað sama sinnis, og Tíminn var keyptur og iesinn. Einu sinni rétt fyrir kosningar var Sveinn eldri sonurinn Vilborg Sverris- dóttir — Minning Fædd 5. marz 1912 Dáin 13. janúar 1986 Mig langar að minnast tengda- móður minnar, Vilborgar Sverris- dóttur, þegar hún er kvödd að leið- arlokum eftir langa vanheilsu og þakka henni þær samverastundir, sem við áttum. Vilborg Sverrisdóttur fæddist á Kaldrananesi í Mýrdal 5. marz 1912, dóttir hjónanna Sverris Ormssonar og Halldóra Einars- dóttur. Vilborg giftist 14. október 1933 Einari Bjamasjmi rafvirkjameist- ara, sem andaðist 23. október 1976. Þau eignuðust einn son, Sverri, sem á tvo sjmi með látinni eiginkonu sinni, Guðlaugu Ólöfu Gunnlaugs- dóttur, en hún andaðist árið 1980. Það vora ekki mörg ár, sem ég átti samleið með tengdamóður minni, en þessi stutti tími er mér mikils virði. Ég kjmntist heil- stejrptri, áreiðanlegri og hjarta- hlýrri konu, sem bar umhyggju fyrir sínum nánustu. Fann ég það bezt, er ég kom á heimili sonar hennar, hve mikla ástúð hún sýndi mér og var mér góð. Þá má ekki gleyma sonarsonunum, en við fráfall móður þeirra var Vilborg amma stoðin þeiira stóra. Öll nutum við þess að búa í sama húsi og Vilborg. Hún var fyrst allra til að bjóða aðstoð sína, ef hún taidi, að einhvers þyrfti með, en aftur á móti var allt óþarfí, sem viðkom henni sjálfri. Hún var hlé- dræg, en þrátt fyrir hlédrægnina var hún gamansöm og glaðværðin einkenndi hana. Síðustu tvö árin vora Vilborgu erfíð vegna þungbærs sjúkdóms, sem hún vissi sjálf, að ekki var hægt að ráða bót á og kallið gæti komið, hvenær sem væri. Þrátt fyrir langar sjúkrahúslegur gat hún haft fótavist og verið í íbúð sinni alit síðastiiðið ár og séð að mestu um sig sjálf, þar til hún lagðist inn á Borgarspítalann 5. janúar sl., en þaðan átti hún ekki afturkvæmt og andaðist að morgni 13. janúar sl. Ég veit, að henni þótti vænt um að geta séð um sig sjálf fram undir hið síðasta, því að einhver ríkasti þátturinn í lífí hennar var að vera sjálfbjarga og ekki upp á aðra komin. Hún lifði með það að mark- miði, að það væri sælla að gefa en aðþiggja. Ég veit, að Vilborg þráði að fá hvíld frá jarðneskum þrautum sín- um. Ég veit líka, að henni er búin góð heimkoma hjá góðum Guði. Ég og sonarsynir hennar, Gunn- laugur og Einar Þór, þökkum tengdamóður og ömmu alla hennar góðvild og hjartahlýju og biðjum henni Guðs blessunar. Guðríður Guðmundsdóttir Hinn 13. þ.m. lézt í Borgarspítal- anum frændkona mín, Vilborg Sverrisdóttir eftir allianga sjúk- dómsþraut, tæplega 74 ára að aldri. Var henni því hvíldin örugglega kærkomin. Segja má, að iítill hér- aðsbrestur verði, þótt öldrað kona, sem alla ævi hefur gengið hljóðlega um dyr, hverfí af sjónarsviðinu. En engu að síður snertir slíkt alltaf nána ættingja og vini, og því er það, að ég set saman fáein orð til að þakka þessari frænku minni samfyigdina að ieiðarlokum. Hún lifði vammlausu lífí og mælti aldrei styggðaryrði til nokkurs manns. Af sjálfu sér leiðir, að ekki er unnt að segja margt um þann lífsferil, sem genginn er utan við skarkala heimsins og á þann hátt, að fáir urðu hans varir nema vandamenn og nánir vinir. En þeim mun dýr- mætari er minningin þeim, sem kynntust þessari mætu konu. Vilborg Sverrisdóttir var fædd 5. marz 1912 á Kaldrananesi í Mýrdal. Voru foreldrar hennar Halldóra Einarsdóttir frá Holti í Mýrdal og Sverrir Ormsson á Kald- rananesi. Bjuggu þau á jörðinni á móti foreldrum Sverris, Gudrúnu Ólafsdóttur og Ormi Sverrissyni, er flutzt höfðu í Mýrdal úr Meðaliandi árið 1905. Stóðu að Viiborgu kunn- ar ættir austan Mýrdalssands og vestan, sem hér verða ekki raktar nánar. Hún bar nafn langömmu sinnar, Vilborgar Stígsdóttur, sem látizt hafði rúmri viku áður en hún fæddist og þá var elzta kona á landinu, tæplega 99 ára gömul. Hefur Vilborgar-nafnið haldizt vel og lengi á konum í þeirri ætt. Vilborg var elzt bama þeirra Halldóra og Sverris, sem á legg komust, en yngri systkinin era þau Einar, sem hefur alla ævi átt heima á Kaldrananesi, og Ormheiður, sem nú býr á Eyrarbakka, en rak áður um langt árabil búskap á Hjallanesi á Landi. Vilborg ólst þannig upp með foreldram sínum og systkinum á Kaldrananesi og eins með ömmu sinni og afa. Vilborg hlejrpti heimdraganum 17 ára gömul og hélt til Reykjavík- ur, bæði til að leita sér atvinnu og einhverrar menntunar til munns og handa. Þetta var í upphafi heims- kreppunnar miklu og því ekki auð- hlaupið að fá vinnu eða öðlast ein- hveija þekkingu umfram venjulegt bamaskólanám. Frá þessum áram man ég Vilborgu eða Borgu, eins og hún var kölluð, fyrst. Hún kom í vist til foreldra minna haustið 1929 og var síðan hjá þeim næstu fjóra vetur, en hélt heim í átthagana á sumrin. Um það leyti, sem Borga kom til okkar, vann hjá föður mínum við rafvirkjastörf ungur maður, Einar Bjamason ættaður frá Þing- eyri; Vestfírðingur í föðurætt, en af Bergsætt í Amessýslu í móður- ætt. Lærði hann rafmagnsiðn hjá Bræðranum Ormsson og fylgdi föður mínum, er hann setti á fót eigin rekstur 1931. Fluttist Einar einnig fljótlega í húsið að Sjafnar- götu 1. Þar var þá fyrir hjá foreldr- um mínum Borga frænka mín, og mun Einar fljótt hafa litið hana hýra auga. Slíkt var ekki undarlegt, því að þessi mýrdælska blómarós var bæði myndarleg í sjón og hlý í raun. Gengu þau Vilborg og Einar í hjónaband 14. okt. 1933 og hófu búskap í húsi í næsta nágrenni við okkur. En árið 1934 settust þau að í kjallaraíbúð að Sjafnargötu 1 og bjuggu þar næstu 16 árin. Þar fæddist einkasonurinn, Sverrir, árið 1936, en hann er nú sakadómari í Reykjavík. Að líkum lætur, að daglegur samgangur var milli heimila okkar og Borgu og Einars, enda vora hún og móðir mín mjög samrýndar, og Einar var önnur hönd foður míns við rafvirkjastörfín. Er vissulega margs og góðs að minnast frá þessum sambýlisáram á Sjafnar- götu 1, enda þótt það verði ekki rakið hér. Árið 1950 urðu þáttaskil, þegar þau Borga og Einar fluttust úr húsinu og settust að í nýju húsi í Úthlíð 5. Engu að síður var alltaf ágætt samband á milli heimilanna um Qölmörg ár. Borga hugsaði einvörðungu úm allt innanstokks og bjó manni sínum og sjmi einkar kyrrlátt og hlýlegt heimili. En lítt hafði hún sig í frammi utan djra og þvf minna sem árin færðust yifír. Af því leiddi aftur það, að sam- fundum milli vina fækkaði, enda tóku þeir að heltast úr lestinni. Sonurinn, Sverrir, gekk að eiga Guðlaugu Ó. Gunnlaugsdóttur árið 1967, og settust þau að á efri hæðinni í Úthlíð 5, en Borga og Einar bjuggu um sig í lítilli, en notalegri íbúð í risi. Svo fæddust sonarsjmimir, Gunnlaugur og Einar Þór, og urðu ömmu sinni og afa miklir sólargeislar. En nú tóku erfíðleikar að steðja að. Heilsa Einars tók að bila, og lézt hann árið 1976, 72 ára að aldri. Eftir það bjó Borga ein í íbúð sinni, en dreng- imir ungu áttu þar alltaf öraggt athvarf og veittu ömmu sinni mjkla lífsfyllingu eftir lát afa þeirra. Árið 1980 féll húsfreyjan unga frá, og þá sýndi Borga vel, hvað í henni bjó. Hún tók að sér umsjá heimilis- ins með syni sínum og móðurhlut- verkið með sonarsonunum. Var svo, þar til Sverrir kvæntist í annað sinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.