Morgunblaðið - 21.01.1986, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1986
45
Minning:
Gísli Sigurjóns-
son Bakkagerði
Fæddur 14. september 1904
Dáinn 29. desember 1985
Foreldrar Gísla voru Sigurjón
Gíslason, bóndi, Bakkagerði við
Reyðarfjörð, og kona hans Anna
Guðný Stefánsdóttir frá Jórvík í
Breiðdal. Gísli var í Eiðaskóla 1921,
síðan í Samvinnuskólanum í
Reykjavík.
Gísli kvæntist Guðnýju Rakel
Huldu Jónsdóttur frá Krossi á
Berufjarðarströnd. Þau hófu bú-
skap í Bakkagerði vorið 1929 og
bjuggu á móti foreldrum Gísla til
1937 og eftir það á móti Eðvaldi
bróður Gísla og konu hans Vil-
helmínu Jónsdóttur. Þau Gísli og
Guðný eignuðust fimm böm. Eist
var Anna Elín gift Sváfni Svein-
bjamarsyni prófasti á Breiðabóls-
stað í Fljótshlíð (böm þeirra eru
átta), Anna dó 20. febrúar 1974,
43 ára; Þá Guðbjörg, gift Ásgeiri
Ásgrímssyni flugvirkja, búa í Kópa-
vogi og eiga ijórar dætur; Siguijón
húsasmíðameistari, kvæntur Sig-
rúnu Brynjólfsdóttur, búa á Hlöð-
um, hafa eignast þrjú böm, tveir
synir á lífí; Bima, húsmóðir, gift
Einari Stefánssyni biffeiðastjóra,
búa á Reyðarfírði, eiga 4 böm;
Edda Vilhelmína, gift Jóhanni Þor-
steinssyni húsasmíðameistara, búa
á Reyðarfírði, eiga þijár dætur.
Gísli missti konu sína 31. des.
1976.
Systkini hans vom María, gift
Þórði Guðmundssyni, skipstjóra,
Reykjavík, og Eðvald sem áður er
getið. Gísli var formaður Verkalýðs-
félags Reyðarflarðar um skeið.
Formaður búnaðarfélagsins og
lengi formaður áfengisvamar-
nefndar. Virkur á mörgum sviðum,
meðal annars í félagsstarfí Sjálf-
stæðisflokksins. Gísli var oddviti
Reyðarfjarðarhrepps 1950—1958.
Meirihluta með honum skipuðu Páll
Hermannsson, fyrrverandi alþingis-
maður, og Þorsteinn Jónsson, kaup-
félagsstjóri. Þeir eru báðir látnir.
Miklar framfarir urðu á Reyðar-
fírði á nefndu tímabili. Gísli Sigur-
jónsson var nýtt afl í sveitarstjóm-
inni. Samstarfið gekk vel, unnið var
að byggingu félagsheimilis og
bamaskóla, Reyðarfjarðarheppur
varð eignaraðili að togaranum
Austfírðingi ásamt Eskifírði og
FáskrúðsQ arðarhreppi. Það var
mikil lyftistöng eins og á stóð í
nefndum byggðarlögum. Margt
fleira var unnið til góðs og fram-
fara, enda var það skoðun Gísla að
samfélagsmættinum, bæði hjá ríki
og sveitarfélögum, skyldi beitt fyrir
hinn almenna mann og ynni í ríkum
mæli og stuðlaði að atgervi og
framfarahug einstaklinga og félaga
þeirra. Gísli vildi að hagur sveitarfé-
lagsins og almennings færi saman.
í Bakkagerði var mannmargt heim-
ili. Er Héraðsmenn voru á ferð á
Reyðarfirði á þriðja og fjórða ára-
tugnum, gistu margir í Bakkagerði
í lestarferðum og öðrum erindum.
Búskapur var stundaður þar, bæði
með sauðfé, kýr og hesta. Sauðfé
var haldið til beitar frá beitarhúsum
er voru í mynni Svínadals. Einnig
stunduðu bændur í Bakkagerði sjó-
róðra og algenga vinnu er til féll í
kauptúninu. Kreppuárin voru mörg-
um erfíð en samt voru þeir feðgar
bjargálna og nutu ýmsir góðs af.
Jörðin Bakkagerði var allstór,
landið náði inn að Búðará og upp
til fjalls. Nú er mikil byggð á því
landi, enda var Gísli liðlegur í
samningum og fagnaði byggðinni
umhverfís sig.
Undirritaður þekkti Gísla um
árabil. Hann opnaði mér sýn inn í
fyrri tíð, á fólkið og byggðina við
Reyðarfjörð og kunni góð skil á
ýmsum umsvifum, sagði meðal
annars frá Eiríki á Karlsskála er
var mikill athafnamaður á þeirri tíð
og átti hlut að mörgu.
Það var unun að heyra Gísla
segja frá mönnum og málefnum,
enda þekkti hann söguna frá alda-
mótum og vissi skil á mörgu á síð-
ari hluta nítjándu aldarinnar. En
alltaf var byggðin við Reyðarfjörð
AgústHalls-
son — Minning
Fæddur 28. aprU 1924
Dáinn 10. janúar 1986
Kveðja frá afabörnum
Það er sárt og erfítt til þess að
vita að afí okkar er dáinn. En við
eigum góða minningu um hann
Allar heimsóknimar og gleðina sem
geislaði af honum þegar hann var
hjá okkur viljum við þakka honum,
og við vitum að amma, Dedda og
Jóhann litli taka vel á móti elsku
afa.
Blessuð sé minning elsku afa
okk^r
Dedda, Steini og Oddný
I dag, þriðjudaginn 21. janúar
1986, verður tengdafaðir minn,
Ágúst Hallsson, jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.
Ágúst fæddist í Reykjavík 28.
apríl 1924 sonur hjónanna Halls
Þorleifssonar og Guðrúnar Ágústs-
dóttur.
Enginn veit hver fær hvfldina
næst og ekki óraði mig fyrir því
þegar Agúst var hjá okkur hjónun-
um á annan dag jóla síðastliðinn
að það væri okkar síðasta kveðju-
stund.
Ágúst man ég sem einstaklega
þægilegan og hjálpsaman vin sem
ávallt var reiðubúinn til að hjálpa
hvenær sem á þurfti að halda. Ekki
get ég látið hjá líða að minnast
þess með hve miklum áhuga hann
fylgdist með þegar við hjónin vorum
að byggja hús okkar sumarið 1984,
ávallt var hann boðinn og búinn að
aðstoða eftir sinni bestu getu.
Ágúst hafði átt við lasleika að
stríða undanfama mánuði og varð
bráðkvaddur á heimili sínu föstu-
daginn 10. janúar síðastliðinn.
Eg kveð Ágúst tengdaföður minn
með söknuði og megi góður Guð
vemda hann og blessa.
Farþúifriði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir alit og allt.
Guð þér nú fýlgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Ingvar Kristjánsson
efst í huga hans, það var það svæði
sem hann unni.
Undirritaður kom stundum til
Gísla í Bakkagerði en mest á síðari
árum, gisti þá nokkrar nætur. Las
fágætar bækur og við ræddum um
lífið og tilveruna. Eitt sinn fórúm
við út í Sómastaði og litum á landið
þar sem fyrirhugaðri stóriðjuverk-
smiðju er ætlaður staður. Gísli var
eindregið fylgjandi stofnun slíks
fyrirtækis og virkjun Jökulsár á
Fljótsdal.
Gísli í Bakkagerði var af hinni
kunnu Nikulásarætt er átti rætur
á Héraði en varð öflug á Reyðarfirði
og víðar. Hann ól allan sinn aldur
í Bakkagerði, hann fór til dóttur
sinnar og tengdasonar í heimsókn
og lést þar 29. desember síðastlið-
inn.
Ég þakka Gísla viðkynninguna,
hann var hetja alla sína tíð. Eg bið
almættið að blessa minningu hans
og óska honum velfamaður á nýju
lífssviði. Séra Sváfnir Sveinbjamar-
son prófastur á Breiðabólsstað í
Fljótshlíð, tengdasonur Gfsla, flutti
minningarræðuna en sóknarprest-
urinn flutti bæn og jarðsöng. Jarð-
arförin fór ffam frá Reyðarfjarðar-
kirkju að viðstöddu fjölmenni 4.
janúar síðastliðinn.
Fjölskyldu hans sendi ég hug-
heilar samúðarkveðjur.
Einar Örn Björnsson,
Mýmesi.
Jarðarfarar-
skreytingar
Kistuskreytingar, krans-
ar, krossar.
Græna höndin
Gróðrarstðö viö Hagkaup,
símf 82895.
Wómastofii
Fnöfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,-einnig um helgar.
Skreytingar við öli tilefni.
Gjafavörur.
Guðmundur Guð-
mundsson — Kveðja
Fæddur 30. desember 1925
Dáinn 13. janúar 1986
Við vitum aldrei hver fær hvfld-
ina næst. í dag, 21. janúar, er það
vinur okkar Guðmundur eða Baddi
eins og við kölluðum hann, sem
borinn verður til grafar. Baddi átti
heimili hér á deild 8 í tæp 7 ár.
Hann var dagfarsprúður og vinnu-
samur og vildi hafa hlutina í röð
og reglu. Hans bestu stundir vom
hinar árlegu sumarbústaðaferðir,
þar naut hann sín vel og þá var
stutt í brosið, en brosið hans var
svo einlægt og fallegt og gaf okkur
svo mikið.
Með þessum línum viljum við
kveðja Badda og þakka honum fyrir
allar ánægjulegu stundimar sem
við áttum með honum.
Við vottum móður, systkinum og
öðmm ástvinum innilega samúð.
Blessuð sé minning hans.
Heimilisfólk og starfsfólk
á deild 8, Kópavogshæli.
t
Útför mannsins míns, fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa,
STEFÁNS ÞÓRHALLS STEFÁNSSONAR
verkstjóra,
Álftamýri 60,
sem lést 14. þessa mánaöar, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavik,
miðvikudaginn 22. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaöir
en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Blindrafélagiö,
Hamrahlíö 17, Reykjavík.
Unnur Torfadóttlr Hjaltalfn,
Ása Stefánsdóttir, Jón Björgvin Guðmundsson,
Vigdís Stefánsdóttir,
Skafti Sæmundur Stefánsson, Þórný Jónsdóttir,
Ásdís Stefánsdóttir, Óttar Helgason,
Torfhildur Stefánsdóttir, Björn Vernharðsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu viö andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóöur, ömmu og
langömmu.
óli'nu bæringsdóttur,
Völusteinsstræti 28,
Bolungarvfk.
Sigurður Guðbjartsson,
Pétur Runólfsson, Kristný Pálmadóttir,
Kristín Sigurðardóttir, Sverrir Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúð vegna fráfalls og útfarar bróöur
míns
SVERRIS EINARSSONAR.
Fyrir hönd vandamanna
Ragnheiður Einarsdóttir.
t
Þökkum auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför,
GRÉTARS ST. MELSTAÐ,
Bjarmastfg 2, Akureyri.
Karitas S. Melstað,
Valgerður Melstað,
Kara G. Melstað,
Sæmundur Melstað,
Margrót Melstað,
Guðrún Melstað,
Sverrir Ragnarsson,
Karítas E. Guðmundsdóttir,
Alfreð Gfslason,
Sigríður Jónasdóttir,
Guðmundur Bjömsson.
Legsteinar
Ýmsar gerðir
Marmorox
Steinefnaverksmiöjan
Helluhraunl 14«feni 54034
222 Hafnarffðröur.
-u-
---------- _i •ir'Mtíifn- idö
■ tauammesmœiiuí: