Morgunblaðið - 21.01.1986, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1986
51
Fækkum umferðarslysum
— látum menn hagnast á öruggum akstri
Heiðraði Velvakandi.
Athyglisverð hugmynd var sett
fram í dálkum Velvakanda á dögun-
um um bifreiðatryggingar. Þar var
sem sé stungið upp á því að eftir
því sem menn kæmust lengur hjá
umferðaróhöppum og slysum, því
lægra iðgjald þyrftu þeir að greiða.
Þannig mætti hugsa sér að menn
gætu orðið iðgjaldsfríir eftir s.s. 15
ára öruggan akstur. Ég hef grun
um að þetta myndi leiða til þess
að menn myndu verða gætnari í
umferðinni og vanda sig meira við
aksturinn. Sé slysatíðni hér borin
saman við það sem gerist í ná-
grannalöndunum komum við miklu
verr út. Það er því greinilegt að
ökumenn hér geta tekið sig á, og
myndu eflaust gera það fengju þeir
hvatningu sem þessa.
Hvað varðar ölvun við akstur tel
ég að of vægt sé á slíku tekið. Það
gefur auga leið að þeir sem eru
ölvaðir í umferðinni setja aðra í
mikla hættu og ætti refsing fyrir
slíkt athæfi að vera í samræmi við
það. Eins mættu sektir við of mikl-
um ökuhraða vera hærri — það
hefur verið sýnt fram á að það er
hraðinn sem slysunum veldur í
langflestum tilvikum. Fengjust
ökumenn til að draga úr ökuhraða
almennt, virða umferðarreglur og
temja sér að vanda sig við aksturinn
kæmumst við hjá tjóni sem nemur
hér árlega hundruðum milljóna —
og meirihlutanum af umferðarslys-
unum sem kalla ógæfu yfir svo
marga. Það er til mikils að vinna.
Bílstjóri
A
Þýzk borð fyrir:
★ Tölvuskjá og
lyklaborö.
★ Tölvuprentara
Vönduð
Ódýr
E. TH. MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUNI 10, HAFNARFIRÐI, SÍMI 651000.
Blaðburóarfólk
óskast!
Austurbær
Ingólfsstræti
Þingholtsstræti
Ártúnsholt
(iðnaðarhverfi)
Vesturbær
Ægissíða 44-78
Úthverfi
Rafstöð við Elliðaár
Þessir hringdu . .
Krítarkortavið-
skipti — sam-
bandsleysi
innanhúss
5658-8970 hringdi: „Ég tek undir
það sem Sigríður segir í Velvak-
anda sl. fimmtudag að það taki
alls ekkert meiri tíma að greiða
með krítarkortum en ávísunum.
Það er stundum verið að tala um
að kortaviðskiptin séu tímafrek,
en fólk ætti bara að athuga þetta
betur.
Annað sem ég uppgötvaði ný-
lega í sambandi við krítarkort sem
mér finnst einkennilegt. Við erum
með bankabók í bankaútibúi við
Langholtsveg og hefur greiðslan
alltaf verið tekin út af henni. En
svo gerðist það núna eftir jólin
að við höfðum eytt meiru en tekið
hafði verið út þannig að ég fór
með 18 þús. kr. í bankann. En
viti menn — núna fæ ég rukkun
um þessa upphæð og þegar ég
hrindi í bankann var mér sagt að
það sé ekki nóg að ég hafí lagt
inn á bókina, heldur hefði ég átt
að tilkynna bankanum það sér-
staklega að ég hefði lagt inn á
hana. Nú er þetta útibú ekki stórt
og finnst mér þetta sambandsleysi
þar innanhúss hið einkennilegasta
fyrirbæri."
Loftræsting
slæm í Iðnó
Leikhúsgestur hringdi: „Ég fór
í Iðnó fyrir nokkru og var mjög
ánægð með leikritið sem ég sá,
en loftræstingin í húsinu er alls
ekki nógu góð. í hléinu varð alveg
ólíft fyrir tóbaksreyk bæði í veit-
ingasalnum og ganginum niðri.
Langar mig til að spyija hvort
það sé leyfílegt að reykja í leik-
húsum samkvæmt nýju lögunum
um reykingar. — Þá fannst mér
leiðinlegt hvemig farið var með
íslenska fánann í leikritinu „Rauð-
hóla Ransí" sem sýnt var úr í sjón-
varpinu í síðustu viku. Svona
meðferð á íslenska fánanum ætti
ekki að líðast."
Athugasemd um
Kjarvalsvísur
Ein á Rangárvöllum hringdi:
„Guðmundur Sveinsson fer rangt
með f pistli þeim er hann skrifar
Velvakanda: „Kjarvalsvísur". Þar
eignar hann Lilju Sölvadóttur tvo
bræður en mér er vel kunnugt
um að hún var einkabam. Lilja
Sölvadóttir var fædd 1898 og bjó
lengst af hér á Ránargötu 23.
Faðir hennar var Sölvi Víglunds-
son, skipstjóri, en móðir hennar
Guðrún Friðriksdóttir. Lilja var
þekkt í bæjarlífinu hér í gamla
daga — hún var afskaplega falleg
kona, og hér áður fyrr voru seld
póstkort með mynd af henni í
skrautbúningi.
Þá fer Guðmundur Sveinsson
rangt með vísuna um Lilju en rétt
er vísan svona:
LiljamínSölva,
mérláviðaðbölva,
þegar ég heyrði þú værir gift
Gottáþinnmaki,
gjaldkerinn spaki
Guðmundur-
geturðuskipt?
Hvers vegna eru
fleiri 1 Sókn?
Bergljót Ólafsdóttir hringdi:
„Mig langar til að koma þessari
fyrirspum á framfæri: Hver er
ástæðan fyrir því að fjöldi kvenna
sem vinnur hjá ríki og bæ er í
verkakvennafélaginu Sókn en
ekki í BSRB. Nú er lengri upp-
sagnarfrestur hjá BSRB en Sókn
og einnig hagstæðari lífeyrissjóð-
ur. Samt er fjöldinn allur af kon-
um sem vinna t.d. á spítölum og
bamaheimilum f Sókn en ekki
BSRB. Getur einhver upplýst mig
um hvemig á þessu stendur?
KR0SSVIÐUR
T.d. vatnslímdur og
vatnsheldur - úr greni,
birki eða furu.
SPÓNAPLÖTUR
T.d. spónlagðar, plast-
húðaðar eða tilbúnar
undir málningu.
Vegg- og loftklæðningar, límtré og parket.
Einstök gæðavara á sérdeilis hagstæðu
verði
SPARIÐ PENINGA!
- Smíðið og sagið sjálf!
Þið fáið að sníða niður allt plötuefni
hjá okkur í stórri sög
- ykkur að kostnaðarlausu.
BJORNINN
Við erum í Borgartúni 28