Morgunblaðið - 21.01.1986, Side 54

Morgunblaðið - 21.01.1986, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986 Pramminn Soffía í Hornafjarðarhöfn. Nýjung í dýpkunar- dælingu á Homafirði Soffía dælir 50—70 rúmmetrum á klukkustund VÉLSMIÐJA Homafjarðar lauk fyrir nokkru við endursmiði dýpkunarprammans Soffiu á Homafirði, en vélsmiðjan hann- aði allan dælingarbúnað pramm- ans og hafa afköst aukist fímm- falt við hina nýju dæluaðferð vélsmiðjunnar, en dælan afkast- ar 50—70 m 8 af jarðvegi á klukkustund. Að sögn Ara Jónssonar fram- kvæmdastjóra Vélsmiðju Homa- Qarðar hefur búnaðurinn á Soffíu rejmst vel en búið er að dæla um 20 þúsund rúmmetrum af sandi úr höfninni á Homafírði með nýja búnaðinum. Sagði Ari að þeir vél- smiðjumenn teldu sig fyllilega samkeppnisfæra við erlend innflutt tæki í sama tilgangi og kvaðst hann álita að þeir gætu skilað svipuðum dýpkunarpramma og Soffíu til- búnum fyrir 20—25 millj. kr. Sagði hann fyrirtækið leita leiða til að nýta þá þekkingu og reynslu sem nú væri fyrir hendi. Sogdælan sem fer niður í jarð- veginn er á enda 9 m langs rana, þar er um að ræða eins konar kringlu sem skóflar upp jarðveginn og sogrör inni 'kringlunni sogar jarðveginn upp í gegn um dælukerfi Kringlan sem skóflar upp jarð- veginum og dælir 50—70 rúm- metrum á klukkustund. Tækið hefur skilað meiri árangri en menn reiknuðu með. prammans og getur dælt efni 500—1000 metra. Á Homafírði er efninu dælt á land til uppfyllingar. Fjórar vökvaknúnar vindur eru á Soffíu, ein til að stjóma kringlunni, en aðrar til að færa búnaðinn til. Tveir menn vinna á prammanum. Samvinnuferðir—Landsýn á Selfossi; „Umferð verður beint á Selfoss“ Kostar 54 milljónir að gera félagsheimilið klárt Selfossi, 16. janúar. Helgi Jóhannsson, framkvæmdastjóri Samvinnuferða-Landsýnar, og Auður Ingólfsdóttir i hóteldeild fyrirtækisins ásamt bæjarstjóranum á Selfossi, Stefáni Ómari Jónssyni (í miðið), eftir að samningurinn Samningur Selfosskaupstaðar og Samvinnuferða-Landsýnar um rekstur þess síðarnefnda á félagsheimili Selfossbúa, var staðfestur á fundi bæjarráðs í gær, 15. jan. Samningurinn tekur gildi 1. júní þegar Samvinnuferð- ir hefja hótel- og veitingarekstur í húsinu fullfrágengnu til rekst- urs, með öllum búnaði. Er áætlað að það muni kosta 54 milljónir að gera húsið klárt fyrir rekstur- inn. Framkvæmdastjóri Samvinnu- ferða, Helgi Jóhannsson, bæjar- stjórinn á Selfossi, Stefán Ómar Jónsson, og Auður Ingólfsdóttir frá Samvinnuferðum hittust miðviku- daginn 15. jan sl. og gengu form- lega frá undirskrift samnings um rekstur Samvinnuferða á félags- heimilinu. Samningurinn var síðan staðfestur á fundi bæjarráðs þá um kvöldið. Auður Ingólfsdóttir sem hefur jrfírumsjón með hótelrekstri Sam- vinnuferða, sagði að stefnt væri að því að byggja upp goft hótel á Selfossi og hafa þjónustuna þar sem íjölbrejrttasta og besta. „Þetta er skemmtilegt hús sem býður upp á hafði verið undirritaður. margt. Þama er hægt að vera með ráðstefnur og taka á móti farþegum beint af Keflavíkurflugvelli. Þetta hús fellur vel að starfsemi Sam- vinnuferða og innanlandsdeildinni sem er mjög stór," sagði Auður í samtali í dag. „Umferðinni frá okkur verður beint á Selfoss auk þess sem aðrar ferðaskrifstofur ■ verða boðnar velkomnar með sína farþega til dvalar á hótelinu," sagði Auður. Nú er unnið af kappi við að standsetja félagsheimilið og góður skriður á framkvæmdum. Unnið er við loft, flísalagningu og undir- búning að uppsetningu tréverks. SÍg. JÓDB Friðrik Sæmundsson múrara- meistari strýkur faglega af burð- arsúlum hússins. Félagsheimilið á Selfossi. Hótelherbergi eru á efstu hæðinni, sam- komusalir á miðhæð og þjónusta við farþega sérleyfísbifreiða á neðstu hæð. Stykkishólmur: Umbætur í hafnarmál- um mjög aðkallandi Stykkishólmi, janúar. Á FUNDI í Lionsklúbbi Stykkis- hólms sl. fimmtudag 8. þ.m. hafði Sturla Böðvarsson sveitarstjóri framsögu um sveitarstjórnarmál hér i Hólminum. Rakti hann i stórum dráttum framfarir lið- inna ára og minntist sérstaklega stærstu áfanganna sem náðumst á seinasta ári að allra dómi. Það má segja að síðan Sturla gerðist hér sveitarsljóri fyrir rúmum 11 árum að hér hafa verið stórstígar framfarir á öllum sviðum og Stykkishólmur hefir gjörbreyst, bæði hafa ný hverfi risið hér upp og snyrtileiki vaxið í hverju hverfi. Á eftir framsögu sveitarstjóra komu frá klúbbfélögum fjöldi fyrir- spuma og auðvitað snérust þær að mestu leyti um framtíðina eða hvaða framkvæmdir væru fyrir- hugaðar. Sturla sagði að atvinnu- málanefnd staðarins hefði fundað í dag um flölþættari atvinnurekstur hér í plássinu og ýmsum hug- mjmdum hefði verið hrejrft og væri ákveðið að halda fund mjög fljótt aftur og athuga þá nánar hvað skynsamlegast væri að gera. Þá sagði sveitarstjóri að næsta mál og mest áríðandi væri að halda áfram umbótum í hafnarmálum og sérstaklega þyrfti að ganga frá aðstöðu smábáta í höfninni. Ýmsar skoðanir hefðu komið fram í þeim efnum og væru þær nú allar í athugun því þetta mál þyrfti lausn á þessu ári. íþróttahúsið væri einnig efst á framkvæmdalista því gamla húsið sem nú er meir en 40 ára er alltof lítið og þjónaði ekki viðfangs- efnum í dag svo sem krafíst væri. Sagði hann að sérstakur hópur hefði farið um Suðurland í haust til að kynna sér íþróttamiðstöðvar og rekstur þeirra. Ýmislegt áhuga- vert hefði komið út úr þeirri ferð. Þá var minnst á ný hverfí sem hefðu verið eða væru í hönnun. Það eru nægar lóðir til bygginga hér í dag, sagði Sturla. Við úthlutuðum 12 lóðum í fyrra en ekki hafa nærri allar komist í gang. Bygging íbúð- arhúsa hefír verið með minna móti áður og eftirspum virðist vera lítil eftir lóðum í dag, enda hafa bygg- ingar sl. 10 ár verið miklar. Þá var rætt um stöðu aldraðra hér í bæ hvað húsnæði viðvíkur. Dvalarheimilið hefír gengið vel. íbúðir aldraðra hafa verið fyrir- hugaðar, en bæði vegna mikils kostnaðar og svo eins, að ýmsir aðrir kostir hafa verið athugaðir, hefír þessu verið frestað. Nú stendur fyrir að hafíst verði handa um könnun á aðstæðum aldraðra og er verið að vinna að því. Munu spumingalistar verða látnir í té öldruðu fólki og leitað álits á hvað það telji sér best og hagkvæmast. Er hugmyndin að hefjast sem fyrst handa í þessum efnum sagði sveitarstjóri. Þá var mjög rætt um föndur aldraðra og vinnu þeirra að munum fyrir ferðamenn, og aðstöðu handa þeim til slíkrar vinnu. Bent var á nauðsyn þess að slík aðstaða væri mikils virði því verst fyrir aldraða væri athafnaleysi. Kvað sveitar- stjóri að þetta myndi hreppsnefnd íhuga. Ýmiss kostnaður sveitarfélagsins barst í tal og meðal annars var upplýst að útiljós í kauptúninu væru nú á 245 staurum og þarf sveitar- sjóður að greiða fyrir þá þjónustu 3 þúsund kr. á ári fyrir hvert ljós. Lögbundin þjónusta væri fjárfrek og því athafnafé hreppsins ekki eins mikið í ár eins og æskilegt væri. Athafnaféð undanfarin ár hefir nýst vel og með aukinni hagræðingu segðu krónumar ekki allt. Nýi Grunnskólinn hefði tekið til starfa. Þrið átak kostaði mikið og varð hreppurinn að taka þar lán, því rík- issjóður leggur ekki nema visst á ári til skólabyggingar og á hreppur- inn stórar fjárhæðir inni hjá ríkinu. Sveitarstjóra var þökkuð greinar- góð skýrsla og erindi um hrepps- málin og viðhorfín framundan og fóm menn fróðari af fundi. Árni Eskifjörður: Sést til sólar í fyrsta sinn á nýju ári Eskifirði, 18. janúar. ATVINNULÍFIÐ er komið í full- an gang hér eftir jólahald. Skipin fóru að týnast út strax eftir ára- mót og hafa togararnir báðir landað afla tvívegis eftir áramót. Vertíðarbátamir hafa einn af öðrum farið til veiða. Tveir eru byijaðir á línu, einn er á netum. Loðnuskipin þijú hafa einnig hafið veiðar. Héðan verða gerð út 10 skip í vetur — tveir togarar, fimm skip á netum og trolli og þijú loðnuskip. Atvinna er næg og var allt síðast- liðið ár. Aflinn er verkaður hjá þremur fiskverkunarstöðvum, hjá Hraðfrystihúsi EskiQarðar, Frið- þjófí hf. og Þór hf. Það er sólardag- ur hjá okkur á Eskifirði í dag. Nú skín hún í fyrsta sinn á árinu. Reyndar hefði sól fyrst átt að sjást 13. janúar, en skýjað hefur verið þar til í dag og verða því sólar- pönnukökumar væntanlega víða á borðum Eskfirðinga í dag. Veður er mjög fallegt, stafalogn og heið- skírt. Tvö norsk loðnuskip liggja úti á fírðinum og em Norðmenn í óða önn að frysta ioðnu. Þetta em stór skip, um 1200 og 2000 tonna skip. Skíðalyftumar verða opnar í fjallinu í dag og gera væntanlega margir sér ferð í fjallið í góða veðrinu. Ævar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.