Morgunblaðið - 21.01.1986, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR1986
Pramminn Soffía í Hornafjarðarhöfn.
Nýjung í dýpkunar-
dælingu á Homafirði
Soffía dælir 50—70 rúmmetrum
á klukkustund
VÉLSMIÐJA Homafjarðar lauk
fyrir nokkru við endursmiði
dýpkunarprammans Soffiu á
Homafirði, en vélsmiðjan hann-
aði allan dælingarbúnað pramm-
ans og hafa afköst aukist fímm-
falt við hina nýju dæluaðferð
vélsmiðjunnar, en dælan afkast-
ar 50—70 m 8 af jarðvegi á
klukkustund.
Að sögn Ara Jónssonar fram-
kvæmdastjóra Vélsmiðju Homa-
Qarðar hefur búnaðurinn á Soffíu
rejmst vel en búið er að dæla um
20 þúsund rúmmetrum af sandi úr
höfninni á Homafírði með nýja
búnaðinum. Sagði Ari að þeir vél-
smiðjumenn teldu sig fyllilega
samkeppnisfæra við erlend innflutt
tæki í sama tilgangi og kvaðst hann
álita að þeir gætu skilað svipuðum
dýpkunarpramma og Soffíu til-
búnum fyrir 20—25 millj. kr. Sagði
hann fyrirtækið leita leiða til að
nýta þá þekkingu og reynslu sem
nú væri fyrir hendi.
Sogdælan sem fer niður í jarð-
veginn er á enda 9 m langs rana,
þar er um að ræða eins konar
kringlu sem skóflar upp jarðveginn
og sogrör inni 'kringlunni sogar
jarðveginn upp í gegn um dælukerfi
Kringlan sem skóflar upp jarð-
veginum og dælir 50—70 rúm-
metrum á klukkustund. Tækið
hefur skilað meiri árangri en
menn reiknuðu með.
prammans og getur dælt efni
500—1000 metra. Á Homafírði er
efninu dælt á land til uppfyllingar.
Fjórar vökvaknúnar vindur eru á
Soffíu, ein til að stjóma kringlunni,
en aðrar til að færa búnaðinn til.
Tveir menn vinna á prammanum.
Samvinnuferðir—Landsýn á Selfossi;
„Umferð verður beint á Selfoss“
Kostar 54 milljónir að gera félagsheimilið klárt
Selfossi, 16. janúar.
Helgi Jóhannsson, framkvæmdastjóri Samvinnuferða-Landsýnar, og
Auður Ingólfsdóttir i hóteldeild fyrirtækisins ásamt bæjarstjóranum
á Selfossi, Stefáni Ómari Jónssyni (í miðið), eftir að samningurinn
Samningur Selfosskaupstaðar
og Samvinnuferða-Landsýnar
um rekstur þess síðarnefnda á
félagsheimili Selfossbúa, var
staðfestur á fundi bæjarráðs í
gær, 15. jan. Samningurinn tekur
gildi 1. júní þegar Samvinnuferð-
ir hefja hótel- og veitingarekstur
í húsinu fullfrágengnu til rekst-
urs, með öllum búnaði. Er áætlað
að það muni kosta 54 milljónir
að gera húsið klárt fyrir rekstur-
inn.
Framkvæmdastjóri Samvinnu-
ferða, Helgi Jóhannsson, bæjar-
stjórinn á Selfossi, Stefán Ómar
Jónsson, og Auður Ingólfsdóttir frá
Samvinnuferðum hittust miðviku-
daginn 15. jan sl. og gengu form-
lega frá undirskrift samnings um
rekstur Samvinnuferða á félags-
heimilinu. Samningurinn var síðan
staðfestur á fundi bæjarráðs þá um
kvöldið.
Auður Ingólfsdóttir sem hefur
jrfírumsjón með hótelrekstri Sam-
vinnuferða, sagði að stefnt væri að
því að byggja upp goft hótel á
Selfossi og hafa þjónustuna þar sem
íjölbrejrttasta og besta. „Þetta er
skemmtilegt hús sem býður upp á
hafði verið undirritaður.
margt. Þama er hægt að vera með
ráðstefnur og taka á móti farþegum
beint af Keflavíkurflugvelli. Þetta
hús fellur vel að starfsemi Sam-
vinnuferða og innanlandsdeildinni
sem er mjög stór," sagði Auður í
samtali í dag. „Umferðinni frá
okkur verður beint á Selfoss auk
þess sem aðrar ferðaskrifstofur
■
verða boðnar velkomnar með sína
farþega til dvalar á hótelinu," sagði
Auður.
Nú er unnið af kappi við að
standsetja félagsheimilið og góður
skriður á framkvæmdum. Unnið er
við loft, flísalagningu og undir-
búning að uppsetningu tréverks.
SÍg. JÓDB
Friðrik Sæmundsson múrara-
meistari strýkur faglega af burð-
arsúlum hússins.
Félagsheimilið á Selfossi. Hótelherbergi eru á efstu hæðinni, sam-
komusalir á miðhæð og þjónusta við farþega sérleyfísbifreiða á
neðstu hæð.
Stykkishólmur:
Umbætur í hafnarmál-
um mjög aðkallandi
Stykkishólmi, janúar.
Á FUNDI í Lionsklúbbi Stykkis-
hólms sl. fimmtudag 8. þ.m. hafði
Sturla Böðvarsson sveitarstjóri
framsögu um sveitarstjórnarmál
hér i Hólminum. Rakti hann i
stórum dráttum framfarir lið-
inna ára og minntist sérstaklega
stærstu áfanganna sem náðumst
á seinasta ári að allra dómi. Það
má segja að síðan Sturla gerðist
hér sveitarsljóri fyrir rúmum 11
árum að hér hafa verið stórstígar
framfarir á öllum sviðum og
Stykkishólmur hefir gjörbreyst,
bæði hafa ný hverfi risið hér upp
og snyrtileiki vaxið í hverju
hverfi.
Á eftir framsögu sveitarstjóra
komu frá klúbbfélögum fjöldi fyrir-
spuma og auðvitað snérust þær að
mestu leyti um framtíðina eða
hvaða framkvæmdir væru fyrir-
hugaðar. Sturla sagði að atvinnu-
málanefnd staðarins hefði fundað í
dag um flölþættari atvinnurekstur
hér í plássinu og ýmsum hug-
mjmdum hefði verið hrejrft og væri
ákveðið að halda fund mjög fljótt
aftur og athuga þá nánar hvað
skynsamlegast væri að gera.
Þá sagði sveitarstjóri að næsta
mál og mest áríðandi væri að halda
áfram umbótum í hafnarmálum og
sérstaklega þyrfti að ganga frá
aðstöðu smábáta í höfninni. Ýmsar
skoðanir hefðu komið fram í þeim
efnum og væru þær nú allar í
athugun því þetta mál þyrfti lausn
á þessu ári. íþróttahúsið væri einnig
efst á framkvæmdalista því gamla
húsið sem nú er meir en 40 ára er
alltof lítið og þjónaði ekki viðfangs-
efnum í dag svo sem krafíst væri.
Sagði hann að sérstakur hópur
hefði farið um Suðurland í haust
til að kynna sér íþróttamiðstöðvar
og rekstur þeirra. Ýmislegt áhuga-
vert hefði komið út úr þeirri ferð.
Þá var minnst á ný hverfí sem
hefðu verið eða væru í hönnun. Það
eru nægar lóðir til bygginga hér í
dag, sagði Sturla. Við úthlutuðum
12 lóðum í fyrra en ekki hafa nærri
allar komist í gang. Bygging íbúð-
arhúsa hefír verið með minna móti
áður og eftirspum virðist vera lítil
eftir lóðum í dag, enda hafa bygg-
ingar sl. 10 ár verið miklar.
Þá var rætt um stöðu aldraðra
hér í bæ hvað húsnæði viðvíkur.
Dvalarheimilið hefír gengið vel.
íbúðir aldraðra hafa verið fyrir-
hugaðar, en bæði vegna mikils
kostnaðar og svo eins, að ýmsir
aðrir kostir hafa verið athugaðir,
hefír þessu verið frestað.
Nú stendur fyrir að hafíst verði
handa um könnun á aðstæðum
aldraðra og er verið að vinna að
því. Munu spumingalistar verða
látnir í té öldruðu fólki og leitað
álits á hvað það telji sér best og
hagkvæmast. Er hugmyndin að
hefjast sem fyrst handa í þessum
efnum sagði sveitarstjóri.
Þá var mjög rætt um föndur
aldraðra og vinnu þeirra að munum
fyrir ferðamenn, og aðstöðu handa
þeim til slíkrar vinnu. Bent var á
nauðsyn þess að slík aðstaða væri
mikils virði því verst fyrir aldraða
væri athafnaleysi. Kvað sveitar-
stjóri að þetta myndi hreppsnefnd
íhuga.
Ýmiss kostnaður sveitarfélagsins
barst í tal og meðal annars var
upplýst að útiljós í kauptúninu væru
nú á 245 staurum og þarf sveitar-
sjóður að greiða fyrir þá þjónustu
3 þúsund kr. á ári fyrir hvert ljós.
Lögbundin þjónusta væri fjárfrek
og því athafnafé hreppsins ekki eins
mikið í ár eins og æskilegt væri.
Athafnaféð undanfarin ár hefir nýst
vel og með aukinni hagræðingu
segðu krónumar ekki allt. Nýi
Grunnskólinn hefði tekið til starfa.
Þrið átak kostaði mikið og varð
hreppurinn að taka þar lán, því rík-
issjóður leggur ekki nema visst á
ári til skólabyggingar og á hreppur-
inn stórar fjárhæðir inni hjá ríkinu.
Sveitarstjóra var þökkuð greinar-
góð skýrsla og erindi um hrepps-
málin og viðhorfín framundan og
fóm menn fróðari af fundi.
Árni
Eskifjörður:
Sést til sólar í
fyrsta sinn á nýju ári
Eskifirði, 18. janúar.
ATVINNULÍFIÐ er komið í full-
an gang hér eftir jólahald. Skipin
fóru að týnast út strax eftir ára-
mót og hafa togararnir báðir
landað afla tvívegis eftir áramót.
Vertíðarbátamir hafa einn af
öðrum farið til veiða. Tveir eru
byijaðir á línu, einn er á netum.
Loðnuskipin þijú hafa einnig
hafið veiðar. Héðan verða gerð
út 10 skip í vetur — tveir togarar,
fimm skip á netum og trolli og
þijú loðnuskip.
Atvinna er næg og var allt síðast-
liðið ár. Aflinn er verkaður hjá
þremur fiskverkunarstöðvum, hjá
Hraðfrystihúsi EskiQarðar, Frið-
þjófí hf. og Þór hf. Það er sólardag-
ur hjá okkur á Eskifirði í dag. Nú
skín hún í fyrsta sinn á árinu.
Reyndar hefði sól fyrst átt að sjást
13. janúar, en skýjað hefur verið
þar til í dag og verða því sólar-
pönnukökumar væntanlega víða á
borðum Eskfirðinga í dag. Veður
er mjög fallegt, stafalogn og heið-
skírt. Tvö norsk loðnuskip liggja
úti á fírðinum og em Norðmenn í
óða önn að frysta ioðnu. Þetta em
stór skip, um 1200 og 2000 tonna
skip.
Skíðalyftumar verða opnar í
fjallinu í dag og gera væntanlega
margir sér ferð í fjallið í góða
veðrinu.
Ævar