Morgunblaðið - 01.02.1986, Side 36

Morgunblaðið - 01.02.1986, Side 36
'-*v'ý-*t»****r; :.MtmmifSfc-z' 36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986 1 „Þættirnir verða með mjög nýstárlegu sniði.. — sögðu þeir félagar Gísli og Ævar w* að eru þeir Ævar Öm Jós- epsson og Gísli Snær Erlingsson sem birtast sjónvarpsáhorfendum á skerminum á morgun sem nýir umsjónarmenn Poppkoms (Skon- rokks). Þeir félagar voru valdir úr hópi liðlega hundrað umsækjenda. Gísli er nemandi í Fjölbrautaskól- anum f Breiðholti, en Ævar starf- ar í augnablikinu hjá Landsbank- anum. „Okkur fundust Skonrokks- þættimir í daufara lagi og við vomm oft að tönglast á því að hægt væri að gera miklu meira i kringum kynningamar á lögun- um. Þegar staða umsjónarmanna var svo auglýst í blöðunum fór fólk að ýta á okkur að sækja nú um og framkvæma eitthvað af því sem við hefðum verið að stagl- ast á. Svona að gamni ákváðum við að gera það, vera nú dálítið frumlegir í okkur og senda inn myndbandsspólu. Það tók okkur heilt kvöld að standa í upptökum, en við skemmtum okkur alveg konung- lega. Það hentaði okkur miklu betur að senda hugmyndimar inn á spólu því á prenti hefðu þær vægast sagt orðið ömurlegar og illskiljanlegar. Að vísu sendum við svo líka inn venjulegar umsóknir. Á þessari myndbandsspólu vom eins og beðið var um þrjár kynn- ingar og þrjú lög. LÍklega datt okkur aldrei í hug að við myndum fá umsjón þáttanna heldur vorum við í og með að þessu til að geta sprellað dálítið. Inntir eftir því hvort þeir ætl- uðu að breyta þáttunum mikið litu þeir bara hvor á annan, skelltu upp úr og sögðu að þættimir yrðu með mjög svo nýstárlegu formi en vildu svo ekkert frekar tjá sig um málið. Þeir gátu þess þó að það væri viðbúið að fólk myndi annaðhvort vera fegið tilbreyting- unni eða hafa lítið gaman af því sem þeir hefðu fram að færa. Þeir bentu á að enn sem komið væri réðu þeir litlu um iagaval, því spólumar kæmu frá íslenskum plötudreifingaraðilum en hinsveg- ar væri þessa dagana unnið að því hörðum höndum að fá efnið sent beint að utan. Þá upplýstu þeir að þriðji hver Poppkoms- þáttur yrði í umsjá þriðja aðilans og þá yrði sérstök hljómsveit ætíð tekin fyrir. Gísli og Ævar sem vora hinir hressustu sögðust aldr- ei hafa komið nálægt sjónvarpi áður, en fannst þetta ákaflega spennandi viðfangsefni og vora lítið kvíðnir að birtast landsmönn- um á skjánum. Sjón er sögu ríkari. COSPER Robin Borg- í Bandaríkjunum va;: l'kki > loftinu Rol R.» hann for að fcrðast heimsálft Nssar rnynd,.- cru tc-knar í Randar faðirinn Björn Borg átti ,ri„,jj '’g t<>k nattúndega fjölskylduna moð j ‘•n>,n hoppnaðist aðsögn vol „g,| |‘‘gaði sor skikkanloga oins « 'i,o ’a!'a °hr »>««» sínu Ufðas 1 nnlli, oða að nunnsta oftast. Prince í nýtt húsnæði I 1 okkarinn Princo koypti fyrir skömmu Inis Muhamods Ali í I>,s Angolos. Ekki fylgdi sögunni hvo mikið drongurinn þurfti að borga fyrir brúsann, on hinsvogar kom fram að Prinoo hyggst, gora töluverðar breytingar á húsoign þessari. w fclk í fréttum k I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.