Morgunblaðið - 01.02.1986, Síða 48
TIL DAGLEGRA NOTA
LAUGARDAGUR1. FEBRÚAR1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Bensímð
lækkarí
- 34 krón-
ur í dag
VERÐLAGSRÁÐ samþykkti í
gær tillögu oliufélaganna um
lækkun á bensíni og svartolíu. í
dag lækkar því útsöluverðs hvers
bensinlítra um 1 krónu, úr 35
krónum í 34, og tonnið af svart-
oliu lækkar um 1.000 kr.
Verðlagsráð samþykkti þessa
lækkun til bráðabirgða og ákvað
jafnframt að koma til annars fundar
á næstunni til að flalla nánar um
olíumálin, að sögn Georgs Ólafsson-
ar verðlagsstjóra. Georg sagði að
þessi lækkun væri fyrst og fremst
tilkomin vegna bættrar stöðu inn-
kaupajöfnunarreiknings fyrir þess-
ar tegundir, áhrifa breytinga á
innkaupsverði væri lftið farið að
gæta. ___ _
Snorri Sturluson RE:
472 þúsund
kr. spöruðust
með olíu-
kaupum ytra
ÍSLENSKIR útgerðarmenn
spara sér verulegar fjárhæðir
með því að láta fiskiskipin kaupa
olíu erlendis í söluferðum.
Grandi hf. sparaði til dæmis 472
þúsund kr. með því að láta togar-
ann Snorra Sturluson fylla olíu-
geyma sína í Bremerhaven þegar
hann seldi þar á miðvikudag.
Sigurbjöm Svavarsson útgerðar-
stjóri Granda hf. sagði að keyptir
, hefðu verið 140 þúsund lítrar á
Snorra í Bremerhaven. Lítrinn hefði
kostað 8,53 kr. en hér heima er
hann 39% dýrari, kostar 11,90 kr.
Áfyllingin kostaði því 1.194 þúsund
kr., en hefði kostað 1.666 þúsund
kr. á íslandi, og munar þama 472
þúsund kr.
Sigurbjöm sagði að reynt væri
að kaupa olíu í söluferðunum, því
hún væri alltaf ódýrari erlendis.
Hann sagði að í þessari ferð hefði
munað þetta miklu þrátt fyrir að
olíuverðslækkunarinnar hafi ekki
verið farið að gæta hjá seljandanum
ytra. Hann sagði að samkvæmt
þessu ættu útgerðarmenn að eiga
kost á olíu á hagstæðu verði ytra
á næstu mánuðum.
FRA SLYSSTAÐIGÆRKVÖLDI
Fremst á myndinni eru veifur, sem afmarka staðinn, þar sem
flugvélin skall i hlíðina. Fjær sést flakið og hægra megin við
það hreyf illinn. í hlíðinni hinum megin sjást Ijós leitarmanna.
Morgunblaðið/Júlíus
TF-Zen. Myndin var tekin fyrir allnokkru. Flakið í Bláfjöllum.
Tveir menn fórust í flugslysi í Bláfjöllum:
Flugvélin skall í jörðina
tólf mínútum eftir flugtak
TVEIR menn létu lífið þegar lítil eins hreyfils flugvél, TF-ZEN,
fórst í fólkvanginum í Bláfjöllum laust eftir klukkan hálf fimm í
gær. Flugvélin hafði verið á lofti í um tólf mínútur þegar hún skall
í jörðina. Talið er víst að mennirnir tveir hafi beðið bana samstund-
is. Flugmaður vélarinnar, hálffimmtugur Reykvíkingur, var jafn-
framt annar eigandi hennar. Farþeginn var fimm árum yngri. Ekki
er hægt að greina frá nöfnum þeirra að svo stöddu.
Þeir fóru frá Reykjavíkurflugvelli
kl. 16:22 í gær og ætluðu að vera
í um hálfa klukkustund á æfínga-
flugi en vélin hafði tveggja og hálfs
tíma flugþol. Tólf mínútum síðar
sá gönguskíðamaður í Suðurgili í
Bláfjöllum vélina koma mjög bratt
út úr snjókafí og hverfa á bak við
ás. I sömu svifum heyrði hann vél-
ina skella í jörðina, skv. því sem
Karl Eiríksson, formaður flugslysa-
nefndar, sagði í samtali við blm.
Morgunblaðsins í Bláfjöllum
ASÍ, VSÍ og VMS senda ríkis-
stjóminni sameiginlegt bréf
ALÞÝÐUSAMBAND íslands, Vinnuveitendasamband íslands og
Vinnumálasamband samvinnufélaganna sendu ríkisstjórninni sam-
• eiginlegt bréf þar sem segir m.a. að viðræðunefndum sé nauðsynlegt
að fá skýra afstöðu stjórnvalda til stefnunnar í gengismálum, ríkis-
fjármáium, vaxta- og peningamálum, húsnæðis- og skattamálum. í
framhaldi af bréfinu hefur verið ákveðinn fundur með þessum
aðilum og ríkisstjórninni síðdegis á mánudag.
í bréfinu kemur fram að í desem-
ber hækkaði verðlag um tæp 3%
eða sem svarar 42% á heilu ári og
vegna gengissigs í janúar hefur
erlendur gjaldeyrir hækkað um 2%.
Lögð hafa verið á ný gjöld og fram
eru komnar miklar hækkanir á
opinberri þjónustu í samræmi við
áætlanir stjómvalda um 20—30%
verðbólgu. Bent er á að ytri aðstæð-
ur hafí að undanfömu verið lands-
mönnum hagstæðar og því ættu
forsendur að vera til þess að ná
auknum stöðugleika, en til þess að
ná honum þurfí stjómvöld að breyta
um stefnu og gera allt til að hamla
gegn verðbólgu, draga úr tilkostn-
aði og treysta kaupmátt.
Þá segir að tryggja verði stöðug-
leika í gengismálum svo unnt verði
að draga verulega úr verðbólgu.
En til þess að það sé hægt verði
að gæta ýtrasta aðhalds í vaxta-
og peningamálum og opinberum
fjármálum. Stjórnvöld verða því að
endurskoða fyrri ákvarðanir um
skattheimtu til ríkissjóðs og sveitar-
félaga.
Ef miðað er við fast gengi og
að ekki komi til launahækkana má
gera ráð fyrir 6,5—8% hækkunar á
vísitölu á árinu, segir í bréfinu, og
að fráleitt sé að samningsaðilar
sætti sig orðalaust við þá niðurstöðu
að það kosti 30—35% verðlags-
hækkun að viðhalda kaupmætti og
þaðan af meira til þess að auka
hann.
Þegar var látið vita til Reykjavík-
ur og skömmu síðar komu lögregla,
læknar og sjúkralið á vettvang.
Aðeins fáum mínútum eftir slysið
voru starfsmenn Bláfjallanefndar
komnir á slysstaðinn á snjótroðara.
Þá voru báðir mennimir látnir.
Vélin brotnaði mjög mikið við
lendinguna. Hún virðist hafa komið
niður á réttum kili, lent á nefínu
og runnið síðan um 100 metra niður
hlíðina suður af Suðurgili, um hálf-
an þriðja kílómetra SSV af Blá-
fjallaskálanum neðan við Kóngsgil.
Veður á svæðinu var milt en gekk
á með éljum og lá þokuslæða hér
og þar um fjöllin. Létu rannsóknar-
menn í Bláfjöllum í gærkvöld sér
detta í hug, að flugmaðurinn hafí
blindast af snjó og birtu.
Flugvélin sem þama fórst,
TF-ZEN, var svokölluð „tilrauna-
vél“ af gerðinni Zenith, tveggja
sæta lágþekja. Hún var keypt í
hlutum frá Bandaríkjunum fyrir
nokkmm árum og sett saman hér
af eigendunum tveimur. Henni var
fyrst reynsluflogið sumarið 1984,
að sögn Péturs Einarssonar, flug-
málastjóra.
Liðsmenn úr Flugbjörgunarsveit-
inni í Reykjavík unnu að því í
gærkvöld að fjarlægja flak vélar-
innar.