Morgunblaðið - 15.03.1986, Qupperneq 1
56 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ1913
61.tbl. 72,árg.
LAUGARDAGUR15. MARZ1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Filippseyjar:
Barizt við
skæruliða
Manila, 14. mars. AP.
SVEITIK stjórnarhermanna og
skæruliða börðust í tveimur
þorpum á suðurhluta Filippseyja
f guer og féllu fjórir frá hvorum
tveggja, auk þess sem herforingi
og fleira fólk særðist, að sögn
opinberu fr éttastofunnar á
Filippseyjum.
Að sögn fréttastofunnar sátu vel
vopnaðir skæruliðar fyrir herflokki
í Midoro-héraði rúmlega 260 kíló-
metra suður af Manila. Áður hafði
fréttastofan skýrt frá því, að fimm
hermenn hefðu særst er bifreið
þeirra ók yfir jarðsprengju.
Corazon Aquino, hinn nýi forseti
landsins, hefur lagt sig fram við
að sannfæra skæruliða um, að nú
sé lag til að knýja fram félagslegar
umbætur í landinu og lagt hart að
þeim að leggja niður vopn.
New York:
Olíuverðið
lækkar á ný
New York, 14. mars. AP.
OIIUVERÐ lækkaði aftur í
New York í gær, þegar líða
tók á daginn, en það hafði
hækkað lítillega dagana á
undan.
„Verð hefur ekki hækkað
þijá daga í röð, frá því að
verðfallið hófst i nóvember,"
sagði Peter Beutel, sérfræðing-
ur í orkumálum, við Rudolf
Wolff-stofnunina í New York.
Eins dollara lækkun varð á
hráolíu, sem afhenda á í apríl-
mánuði, og kostar hún nú
12,65 dollara tunnan. Olfa til
húshitunar, til afhendingar í
apríl, lækkaði um 3—4 sent og
kostar r.ú 45,9 sor.t gallcnið.
VERKFALLIFINNLANDI
AP/Stmamynd
Nær 250.000 fínnskir launþegar í iðnaði, flutningum og raforkuframleiðslu eiga nú i verkfalli. Mynd þessi var tekin af útifundi verk-
fallsmanna í Helsinki i gær. Halda þeir á loft borða, þar sem krafizt er 35 klukkustunda vinnuviku, en það er ein aðalkrafa þeirra i verkfallinu.
Frakkland:
Mikíl eftirvænting- fyrir
kosningarnar á sunnudag
París, 14. marz. AP.
MIKIL eftirvænting ríkir nú
jafnt í París sem annars staðar
i Frakklandi vegna þingkosninga
þeirra, sem fram eiga að fara á
sunnudag. Hægri menn halda
þvi fram, að Francois Mitterrand
forseti verði jafnvel að segja af
sér. biði iafnaðarmenn mikinn
Efnahagsráðstafanir í Noregi.
Nýjar álögnr og út-
gjöld skorin niður
Ósló, 14. mara. AP.
NORSKA ríkisstjórnin greindi i
dag, föstudag, frá nýjum aðgerð-
um í efnahagsmálum. Felast þær
i þvi annars vegar að auka tekjur
rikisins um einn milljarð n.kr. og
hins vegar að lækka útgjöldin um
sömu upphæð. Það, sem knýr á
um þessar aðgerðir, er olíuverðs-
lækkunin að undanförnu en vegna
hennar hafa tekjur norska rflds-
ins minnkað mikið.
Tillögur ríkisstjómarinnar um
auknar tekjur eru helstar þær, að
bensínlítirinn hækki um 35 aura
norska, að hlutur rikisins af sölu
áfengis hækki um 3% og að breytt
verði afskriftarreglum fyrir versl-
unarhúsnæði og flugvélar. Hvað
niðurskurðinn varðar er um að
ræða, að niðurgreiðslur á matvörum
og mannflutningum verða minnk-
aðar og herútgjöldin lækkuð um
200 millj. norskar. Þessi niður-
skurður nemur þó ekki nema hálf-
um milljarði kr. og verður síðar
ákveðið hvar hinn helmingurinn
Rolf Presthus
verðurtekinn.
Tekjur Norðmanna af olíunni
hafa minnkað svo mjög, að verg
þjóðarframleiðsla verður líklega
15—20 milljörðum n.kr. minni en
spáð hafði verið. Þess vegna er talið
víst, að á hausti komanda verði að
koma til nýjar aðgerðir í efnhags-
málunum. Verkamannaflokkurinn,
sem er f stjómarandstöðu, mun lík-
lega styðja tekjuaukningartillögur
stjómarinnar en meiri óvissa er um
afstöðu hans til niðurskurðarins.
ósigur, en jafnaðarmenn hafa
vísað slikum getgátum algerlega
ábug.
Skoðanakannanir benda til þess,
að hægri flokkarnir hafi mikið
forskot fram yfir vinstri flok-
kanna. Skoðanakannanir hafa
hins yegar einnig ieitt í 'gós, að
persónulegar vinsældir forsetans
hafa farið vaxandi að undan-
förnu og að meirihluti Frakka
viþ'i, að hann verði áfram forseti
landsins, hver sem úrslit þing-
kosninganna verða.
Blaðið Le Monde kvaðst nú í vikunni
hafa það eftir nánum aðstoðar-
mönnum forsetans, að hann hefði
alls ekki útilokað það að segja af
sér, bíði flokkur hans afhroð í kosn-
ingunum. Forsetinn muni líta á slíkt
sem mikið vantraust á sig og stefnu
stjómar sinnar og kjósi heldur að
láta af embætti en verða háður
hægri flokkunum.
Ljóst er, að Mitterand og stuðn-
ingsmenn hans leggja nú á það
áherzlu síðustu daga fyrir kosning-
amar að sannfæra Frakka um það,
að stjómarsamvinna forsetans og
hægri flokkanna sé útilokuð þau tvö
ár, sem eftir em af embættistíð
hans. Er þetta gert til þess að skapa
óöryggi á meðal kjósenda, sem telji
þá þann kost vænstafi að tryggja
forsetanum þann stuðning á þjóð-
þinginu, sem þurfi til þess að koma
í veg fyrir stjómmálaglundroða í
landinu.
Útför Olofs Palme gerð í dag:
Geysilegar ör-
yggisráðstafanir
Stokkhólmi, 14. marz. AP.
MÖRG hundruð háttsettra stjórnmálaiwanna og embættismanna frá
meira en 100 löndum hvaðanæva í heiminum tóku i dag að streyma
til Stokkhólms til þess að vera þar viðstaddir útför Olofs Palme,
forsætisráðherra Svíþjóðar, en hún á að fara fram á morgun, laugar-
dag. Hafa geysilegar varúðarráðstafanir verið gerðar tíl þess að
gæta öryggis þeirra og er viðbúnaður sænsku lögreglunnar gífurleg-
ur.
Talið er víst, að þeir Nikolai I.
Ryzhkov, forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna, og George Shultz, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna, muni
eiga viðræður í Stokkhólmi, en þeir
verða báðir við útför Palme. Verða
það fyrstu viðræður jafti háttsettra
ráðamanna risaveldanna síðan
fundur þeirra Reagans og Gorbac-
hevs fór fram í Genf í nóvember sl.
Hans Holmer, lögreglustjóri í
Stokkhólmi, sagði I dag, að engin
tengsl hefðu enn fundizt milli
manns þess, sem handtekinn hefði
verið, og morðsins á Palme. Spáði
Holmer því, að fleiri menn jrrðu
handteknir og sagði: „Við leitum
nú sem ákafast að morðingjanum.“
Lögreglan hefði ekki enn „full-
komna ástæðu" til þess að höfða
refsimál á hendur manninum, en
samkvæmt sænskum lögum má
halda honum f gæzluvarðhaldi fram
á mánudag án frekari aðgerða.
„Ég get ekki gefíð frekari upplýs-
ingar um manninn," sagði Holmer.
Hann bætti því við, að engar frekari
handtökur hefðu átt sér stað, en
sagði síðan: „En ég er viss um, að
hann er ekki sá síðasti sem við
handtökum." Er hann var spurður
að þvf, hvort hann hefði einhverja
sérstaka menn grunaða, þá sagði
hann: „Já, það eru nokkrir menn,
sem við erum að leita að.“
Sjá: Peres setur öryggisgæzl-
una úr skorðum á bls. 24.