Morgunblaðið - 15.03.1986, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.03.1986, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR15. MARZ1986 Alþýðuflokkurinn á Siglufirði: Prófkjör um helgina PRÓFKJÖR Alþýðuflokksins á Sig’lufirði um skipan fjögurra efstu sæta listans í komandi bæjarstjórnarkosningum fer fram í Borgarkaffi í dag, laugar- daginn 15. mars, og á morgun, sunnudaginn 16. mars, kl. 13.00- 19.00. Frambjóðendur eru þessir: Jón Dýrfjörð sem býður sig fram í 3.-4. sæti, Kristján L. Möller í 1.-4. sæti, Ólöf Kristjánsdóttir í 1.-4. sæti og Regína Guðlaugsdóttir í 1.-4. sæti. Rétt til þátttöku í prófkjörinu hafa allir sem eiga lögheimili á Siglufirði og hafa náð 18 ára aldri fyrir árslok 1986 og ekki eru flokks- bundnir í öðrum flokkum eða stuðn- ingsmenn annarra flokka, segir m.a. í fréttatilkynningu frá Al- þýðuflokknum á Siglufírði. Wesper hitablásararnir hafa í 20 ár yljað landsmönnum, bæði til lands og sjávar við öll möguleg störf og aðstæður. Þeir henta allstaðar og eru þeir hljóðlátustu á markaðnum. Fáanlegir í eftirtöldum stærðum: 2250 k.cal., 5550 k.cal., 8050 k.cal. Væntan- legir 11740 k.cal. Væntanlegir 15380 k.cal., og 29600 k.cal., miðað við 80°/ 40° C. Afköstin eru frábær, enda sérbyggðir fyrir hitaveitu. Wesper umboðið Sólheimum 26,104 Reykjavík, sími 91 — 34932 við árin milli 1930 og 1940. Bítla- æði í kringum 1965 gagntók menntaskólanema sem aðra og loks lýkur sýningunni á því herrans ári 1986, þegar nemendur eru að bíða eftir leikstjóra og eru að æfa Húsið á hæðinni... Agæt sögulok. Og sögugyðjan og húsandamir tengja atriði og segja frá þegar farið er hratt jrfír sögu. Það er bara góð lausn hjá höfundi. Þórhildur Þorleifsdóttir hefur unnið mikið og gott starf með menntskælingjum. Mér skilst að hún hafí verið Ieiðbeinandi þeirra á leiklistarsnámskeiði sl. haust og skilar það sér vel, því framsögn er þjál og eðlileg svo að eftirtekt vekur. Allar staðsetningar vel unn- ar og tempó er til sóma og dettur hvergi niður. Margir taka þátt í sýningunni og flestir fara með fleiri en tvö hlutverk. Hér er umfram allt hóp- vinna eins og hún er bezt. Þó er ástæða til að geta um þá sem vöktu amk. sérstaka athygli mína. Þor- steinn Guðmundsson fór m.a. með hlutverk Gísla Thorlaciusar rektors og Theodórs skólapilts. Þorsteinn hefur ákaflega skemmtilega sviðs- framkomu, góða mímík og fram- sögn. Hlýtur að vera leikaraefni þar á ferð. Athygli mína vakti Thor Aspelund, einkum í hlutverki Stef- áns í fyrri hlutanum. Hefur skólað- an talanda, hæfilega viðkvæmnis- legt og töff útlit í senn og óþvingað fas. Ólafí Samúelssyni tókst dálítið misjafnlega með sín hlutverk, en senan milli hans og félaga hans Indriða var til sóma. Hróðmar Dofri Hermannsson er hress og frísklegur og bæði hreyfíngar og talandi til fyrirmyndar. Sæmundur Norðíjörð sýndi góða spretti, hann var til dæmis fyrirtaks góður í Hannesi Hafstein og seinna í Vikka. Astæða er til að nefna húsandana sem gerðu hlutverkum sínum skemmtileg skil, voru fyndnir og léku á als oddi. Góður hópur það. Nanna Briem lék af stakri kúnst tvö sérdeilis ólík hlutverk, hina viðkvæmu Ingunni, þar hafði nafn Nönnu reyndar fallið niður og síðar forkostulega móður Dísu í seinni hlutanum. Ingibjög Stephensen og Sigurrós Friðriksdóttir eru að verða reyndar í skólaleikjum og standa vel að sínu. Snæfínður Baldvins- dóttir átti meðal annars tvær öld- ungis frábærar danssenur ásamt Þórami Emi Sævarssyni. Og svona mætti áfram telja. Er óhætt að ítreka að allir hafa meira og minna unnið verk sín af kost- gæfni og margir sýna leikhæfileika sem án efa nýtast þeim og ég er illa svikin ef einhveijir af þessum krökkum feta ekki leiklistarbraut- ina síðar meir. Búningar Sigrúnar Guðmunds- dóttur hæfa hveijum tíma og em einfaldir og skemmtilegir og eins gott er það því stöðugt er verið að breyta um svið og búninga. Hvort við emm miklu nær um sögu MR er í sjálfu sér ekki aðalat- riðið, það er hins vegar ekkert áhorfsmál að sýningin stendur fyrir sínu. Textinn líka. Skemmtileg og fjömg sýning svo að til fyrirmyndar er. Tíminní hringdansi Leiklist Jóhanna Kristjónsdóttir Herranótt sýnir i Félagsstofnun stúdenta: Húsið á hæðinni eða hring eftir hring eftir Sigurð Pálsson. Lýsing: Egill Arnason. Tónlist: Bjarni Gunnarsson, Rut Kristinsdóttir, Ragnheiður Þor- steinsdóttir. Búningar: Sigrún Guðmunds- dóttir. Aðstoð við dans: Örn Guðmunds- son. Sýningarstjóri: Margrét Einars- dóttir. Leikstjóri: Þórhildur Þorleifs- dóttir. Það er vel til fundið hjá MR að láta semja „sögulegt" leikrit um þennan gamla virðulega skóla sem öðmm framhaldsskólum fremur hefur öðlast sérsakan sess. Flytja það sem afmælisgjöf til Reykjavík- urborgar og minnast í leiðinni 140 ára afmælis Reykjavíkurskóla. Guðni rektor segir í leikskrá að menn vænti þess að sýningin og það hugarþel sem að baki hennar búi seljist ekki minna vert en postu- lín, pell og purpuri. Herranótt hefur svo áratugum skiptir átt. slík ítök í hugum Reyk- víkinga og þó að taka megi undir orð formanns leiknefndar að hún sé kannski ekki lengur talin einn stórkostlegasti viðburður í bæjarlíf- inu leikur enn um sýningar Herra- nætur ákveðinn blær og sýningar MR eiga orðið traustari áhorfenda- hóp en nemendur og ættingja þeirra eina sér. Sýningin Húsið á hæðinni verð- skuldar að henni sé sýnd athygli. Leikverk Sigurðar Pálssonar er skemmtilega unnið, stiklað á sög- unni og farið einkar fijálslega með heimildir til að ljá verkinu þann búning sem höfði til nútíðar skír- skoti til fortíðar. Fyrsta atriði gerist í Hólavalla- skóla fyrir réttum tvö hundmð ámm, næsta ártal er í kringum 1850 sem vom viðburðaríkir tímar í skólanum. Þá var Sveinbjöm Egilsson rektor og gekk á ýmsu, enda skólapiltar ódælir nokkuð og eftir heimildum að dæma gægst full oft í glas. Gekk meira að segja svo langt, að sumir neituðu að ganga í bindindisfélag skólans. Þessi atriði em ágætlega gerð og þótt höfundur víki frá meginástæðu Pereatsins gerir það ekki stórt: í rauninni hefði þetta getað verið eins og í leikverkinu. Síðan er haldið áfram, greint frá skólalífí og skemmtunum á ámnum 1870—1980, farið fljótt yfír sögu næstu áratuga en staðnæmzt á ný Húsgagna- teppasýning og á morgun til kl. 19.00 pgn Armúla 44.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.