Morgunblaðið - 15.03.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 15.03.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR15. MARZ1986 25 Soyus T-15: Leggjast að geim- stöðinni Mir í dag Sjónvarpað var beint frá geimskotinu Moskvu, 14. mars. AP. SOVÉTMENN skutu í gær á loft geimfari, Soyusi T-15, með tveimur geimförum innanborðs, og gengur ferðin að óskum. Er það fyrsta mannaða geimfarið sem fer á loft frá þvi að banda- ríska geimferjan Challenger fórst með allri áhöfn 23. janúar sl. Geimskotinu var sjónvarpað beint og er það afar sjaldgæft í Sovétríkjunumn, þar sem mikil leynd hvílir venjulega yfír geim- ferðamálum. För geimfaranna er heitið til geimstöðvarinnar Mir (Friður), sem skotið var á loft í síðasta mánuði, og er þeim ætlað að vígja þessa fyrstu geimrannsóknastofu, sem verður varanlegur mannabústaður. Kl. 15.33 að staðartíma (12.33 að ísl. tíma) hóf geimfarið sig á loft frá Baikonur-geimferðamið- stöðinni í Kasakhstan með þá Leon- id Kizim fararstjóra og Vladimir Solovev véltæknifræðing innan- borðs. Þeir eru þrautreyndir geim- farar og settu m.a. úthaldsmet, er þeir dvöldust í 237 daga um borð í geimstöðinni Salyut-7 1984. Sovéskir sjónvarpsáhorfendur gátu fylgst með geimförunum að störfum inni í geimfarinu og hlýtt á ijarskipti milli þeirra og stjóm- stöðvar á jörðu niðri í u.þ.b. fjórar mínútur eftir að Soyuz tókst á loft og smó skýjaslæðumar á leið sinni út í geiminn. Sovéskir fíölmiðlar sögðu frá því í dag, að ferðin gengi að óskum og væru geimfaramir nú að sinna ýmsum undirbúningsstörfum fyrir tengir.guna við Mir á morgun, laug- ardag. Sex geimför geta legið við geimstöðina á sama tíma. Svíþjóð: Fyrirtækin verði ábyrg gerða sinna Stokkhólmi, 14. mars. Frá fréttaritara Morgunblaðsins. SÆNSKA þingið hefur samþykkt lög, sem vafalaust eiga eftir að hafa mikil áhrif á sænskt réttar- far. Samkvæmt þeim er hægt að draga fyrirtæki fyrir lög og dóm en tíl þessa hefur aðeins verið unnt að láta lifandi menn svara til saka fyrir afbrot. Stjómarflokkurinn, jafnaðar- menn, beittu sér fyrir þessum lögum með stuðningi kommúnista en borg- araflokkamir mæltu þeim ákaflega í mót. Sögðu talsmenn þeirra, að lögin græfu undan réttarvitund einstaklinga en á henni hvfldi rétt- arríkið sjálft. Lögin em mnnin undan rifjum nefndar, sem ijallar um efnahags- leg afbrot. Töldu nefndarmenn, að oft væri erfítt að fást við afbrot sem framin væm í skjóli fyrirtækja, vegna þess, að í raun fyndist enginn einn einstaklingur, sem bæri ábyrgðina. Af þessum sökum freist- uðust forsvarsmenn fyrirtækja stundum til að vera óheiðarlegir, þeir væm vissir um, að öllu væri óhætt. Samkvæmt nýju lögunum verður hegnt fyrir öll brot, sem fyrirtækin fremja, og er lágmarkssektin 10.000 s.kr., hámarkssekt þijár milljónir s.kr. Lögin taka til brota á öllum lögum og reglugerðum en þingmennimir höfðu þó fyrst og fremst í huga brot á lögunum um umhverfísvemd. Þetta er ein af síðustu myndunum, sem sendar voru frá geim- farinu Giotto af halastjömu Halleys áður en myndavél geim- farsins bilaði. AP/Símamynd Ylur á hrafnsvörtu yfirborði kjarnans — segja vísindamenn um halastjörnu Halleys Darmstadt, 14. mars. AP. VÍSINDAMENN í evrópsku geimvísindastöðinni í Darmstadt í Vestur-Þýskalandi segja að kjarni halastjörau Halleys sé hrafn- svartur á yfirborðinu og radíus hans sé að minnsta kosti tvisvar sinnum stærri en hingað til hefur verið talið. nótt og hefur ekki sent myndir síðan. Áður en myndavélin bilaði tóku vísindamenn á jörðu niðri á móti um þijú þúsund myndum og hafa hingað til ekki verið teknar myndir nær halastjömunni. Ryk- ský lenti á myndavélinni skömmu áður en henni var beint að kjama halastjömu Halleys. Vísindamenn kveðast hafa náð settu marki: Giotto hafí verið í 540 km fjarlægð frá halastjöm- unni þegar geimfarið komst næst og fjarlægist nú aftur. „Við bjuggumst ekki við að fá neinar upplýsingar eftir að Giotto komst næst halastjömunni og allar tilraunir okkar miðuðust við það sem gerðist fyrir þann tíma,“ sagði David Wilkins, sem stjómar fluginu af jörðu niðri í evrópsku geimferðamiðstöðinni í Darm- stadt. Til þessa hefur radíusinn verið talinn 2,5 til 3 km. Þessar niður- stöður fengust eftir að skoðaðar höfðu verið myndir og aðrar upplýsingar sem borist hafa frá evrópska geimfarinu Giotto til jarðar. Einn vísindamannanna í Darm- stadt sagði að yfírborð halastjöm- unnar væri svo svart að jafnaðist á við það svartasta, sem fyrirfynd- ist í geimnum: „Ég myndi segja hrafnsvart." Af þessu er ályktað að yfirborð halastjömunnar sé htýtt og ís fínnist í iðmm hennar. Vísindamenn segja að árangur- inn af ferð geimfarsins Giotto fari fram úr björtustu vonum manna. Myndavélin, sem Giotto hefur til að senda myndir til jarðar, bilaði skömmu eftir miðnætti í 1986 Opið laugardag og sunnudag frákl. 10—1 16 | VERÐSKRÁ: | LADA1200 LADA1500 skutbíll, 4ra gíra .. LADA1500 skutbíll 5 gíra .... LADASAFÍR LADA LUX j LADA SPORT LS, 5 gíra Uppseldur Var 249.694,- Uppseldur Var 229.794,- Var 259.888,- Var 426.915,- Nú 178.440,- Uppseldur Nú 189.869,- Nú 315.874,- Ný sending áætlun 182.955,- Ný sending áætluð 166.526,- Ný sending áætluð 189.896,- Ný sending áætluð 317.283,- Mikið úrval af notuðum bílum til sýnis og sölu Afar hagstæð greiðslukjör Ryðvörn innifalin íverði Allir okkar bílar eru árgerð 1986, ryðvarðir og tilbúnir til afhendingar strax. < BIFREIÐAR OG LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEELD: 31236
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.