Morgunblaðið - 15.03.1986, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 15.03.1986, Blaðsíða 55
, MQRGUNI^LAÐIÐ, LAUfiARDAGUR 15. jtfARZ 1^86 tímabili. Það hefur hinsvegar vakið athygli hér í Noregi aö það skuli vera aðal keppinautur Stavanger, Fredriksborg SKI, sem virðist ætla að krækja í Helga. Þá er Ijóst að Sveinn Bragason mun ekki leika áfram með Stavang- er næsta vetur, en flest bendir hinsvegar til þess að Jakob Jóns- son leiki áfram með liðinu. Knattspyrnulandsliðið í Bahrain: Öruggur sigur í síðari leiknum Helgi til Fredriksborg? Frá Bjama Jóhannessyni, fróttamanni Morgunblaðsins í Noregi. NÚ STANDA yfir samningavið- I Helgi taki við þjálfun liðsins ræður milli Helga Ragnarssonar, næsta vetur. sem náð hefur frábærum árangri Eins og fram hefur komið í frétt- með lið Stavanger í norska hand- um munu hvorki Helgi Ragnarsson boltanum í vetur, og forráða- nó Gunnar Einarsson þjálfa lið sín manna Fredriksborg SKI um að I áfram að loknu þessu keppnis- Ormarr Örlygsson, Gunnar Gísla- son, Sævar Jónsson, Loftur Ólafs- son, Viðar Þorkelsson. Miðvallar- leikmenn: Pétur Ormsiev, Kristján Jónsson, Ágúst Már Jónsson. Framlínumenn: Halldór Áskelsson, Guðmundur Torfason. Eftir leikhlé kom Guðmundur Steinsson inná fyrir Guðmund Torfason, og Ólafur Þórðarson fyrir Ormarr Örlygsson. Skömmu fyrir leikslok kom svo Sveinbjörn Hákonarson inná fyrir Guðmund Steinsson, sem meidd- ist lítillega. Tuttugu og átta stiga hiti var á meðan leikurinn fór fram. Áhorfendur voru fáir, aðeins nokk- urhundruð. Landsliðið hefur notað tímann vel í Bahrain til æfinga og afslöpp- unar. Æft hefur verið tvisvar á dag að jafnaði undir stjórn Sigi Held^, og legið í sólinni þess á milli. I Bahrain er úrvalsloftslag um þess- ar mundir, 20—30 stiga hiti og glampandi sól. Landsliðið dvelur á Hilton-hótelinu í Bahrain í góðu yfiriæti. Það er væntanlegt aftur til Islands á mánudaginn. Stavanger meistari?: Nægir jafntefli í síðasta leiknurrv Frá Bjama Jóhannessyni, fróttamanni Geysileg spenna er nú í norska handknattleiknum fyrir lokaum- ferðina f fyrstu deildinni. f næst síðustu umferð, sem leikin var í fyrrakvöld, sigruðu bæði Stavan- ger og Fredriksborg SKI í sínum leikjum og eru efst og jöfn með 34 stig fyrir síðustu umferðina. Fredriksborg vann lið Fjell- hammer 22:26 á útivelli og átti Jakob Jónsson sériega góöan leik, skoraði sex mörk og átti fjölda línu- sendinga sem gáfu mörk. A sama Morgunblaðsins i Noregi. tíma vann Fredriksborg SKI Kol- botn 19:21 einnig á útivelli. Fyrir lokaumferðina stendur Stavanger betur að vígi en Fred- riksborg SKI, vegna þess að markahlutfall þeirra er mun betra. Stavanger nægir því jafntefli í síð- asta leiknum sem er á heimavelli þeirra á móti neðsta liði deildarinn- ar, Revsdal. En það er sýnd veiði en ekki gefin. Revsdal getur nefni- lega bjargað sæti sínu með sigfl*** og munu berjast til síðasta blóð- dropa. ÍSLENSKA knattspyrnulandsliðið vann öruggan sigur á landsliði Bahrain í leik liðanna í Bahrain í gær. Lokatölur urðu 2:0 eftir markalausan fyrri hálfleik. (slenska liðið lék mun betur í þessum leik en þeim fyrri, enda sat nú engin ferðaþreyta í mönn- um. Bæði mörkin voru skoruð í síðari hálfleik. Það fyrra skoraði Halldór Áskelsson með góðu skoti út teignum þegar tíu mínútur voru liðnar af hálfleiknum og Guðmund- ur Steinsson bætti öðru við þegar skammt var til leiksloka. Mark Guðmundar kom eftir góðan sam- leik íslenska liðsins þar sem Hall- dór Áskelsson var í aðalhlutverki — hann gaf góða þversendingu fyrir markið og Guðmundur skoraði auðveldlega af stuttu færi. Lið íslands var skipað eftirtöld- um leikmönnum: Markvörður: Frið- rik Friðriksson. Varnarmenn: Úthlutað úr sjóði íþróttaráðs Reykjavíkur ÚTHLUTAÐ var úr Styrktarsjóði íþróttaráðs Reykjavikur á mið- vikudaginn. Að þessu sinni hlaut handknattleiksdeild Víkings 200.000 fyrir góðan árangur í Evrópukeppni bikarhafa og bikar- meistaratitil í handknattleik 1985. TBR fókk 100.000 krónur fyrir árangur félagsins á EM og ungl- ingastarfs. Iþróttafólag fatlaðra hlaut 50.000 fyrir árangur á NM og unglingamóti í Finnlandi árið 1985. Fylkir fókk einnig 50.000 fyrir félags- og unglingastarf. Sundfélaginu Ægi var einnig veitt 50.000 fyrir árangur á sundmót- inu hérlendis og erlendis. Auk þessara verðlauna fékk Sigurður Einarsson spjótkastari sérstakan bikar fyrir frábæran árangur í spjótkasti á árinu en hann kastaði 87,80 metra og er það 20. besti árangur í heiminum á síðasta ári. Bjarndís Tómasdóttir og Björn Tryggvason fengu viðurkenningu fyrir iðkun almenningsíþrótta og þeir Hákon Bjarnason hjá ÍR og Róbert Jónsson fengur einnig við- urkenningu fyrir vel unnin störf hjá sínum félögum að íþróttamál- umog unglingastarfi. Á myndinni eru Magnús Guð- mundsson formaður handknatt- leiksdeildar Víkings, Björn Tryggvason, Daníel StefánssoBr- Sigurður Benjamínsson frá Ægi, Jóhannes Óli Garðarsson frá Fylki, Róbert Jónsson og Hákon Bjarna- son. Sitjandi fyrir framan eru þær Bjarndís Tómasdóttir og Edda Berman formaður íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík. • Þeir Viðar Þorkelsson (t.v.) og Kristján Jónsson hafa leikið vel f Bahrain. Villa kaupir og kaupir Frá Bob Hennessy, fréttarftara Morgunblaösins á Englandi. MIKIÐ hefur verið að gera varð- andi kaup og sölu á knattspyrnu- mönnum f Englandi að undan- förnu. Mest hefur þó verið að gera hjá forráðamönnum botnlið- anna WBA og Aston Villa. Ron Saunders stjóri WBA hefur verið iðinn við að kaupa og selja leikmenn þann stutta tíma sem hann hefur verið við stjórnvölinn íþróttir um helgina ÓVENJU róleg helgi er nú framundan hjá íþróttafólki. Aðeins handknattleikur hjá yngri flokkunum og sama er upp á teningnum hjá körfu- boltamönnum nema hvað einn leikur verður að auki í úrslitakeppninni f 2. deild en Snæfell og UMFS leika f Borgarnesi klukkan 14 fdag. Á mánudagskvöldið verður einn leikur í bikarkeppninni í handknattleik en þá leika HK og Þór frá Vestmannaeyjum í Digranesi klukkan 20. Síðari hluti íslandsmótsins í judo verður í íþróttahúsi Kennaraháskólans í dag og hefst keppnin klukkan 14. Fram og Neskaupstaðar Þróttur leika í neðri hluta úr- slitakeppninnar í blaki og verður leikur þeirra klukkan 16 ídag íHagaskólanum. Frjálsíþróttamót verður hjá öldungum f dag og á morgun. í dag hefst mótið í Baldurshaga en verður sfðan framhaldið í Ármannsheimil- inu á morgun. hjá félaginu. í vikunni keypti hann þriöja leikmannin frá því hann tók við og heitir sá Paul Dyson og er 26 ára gamall varnarmaöur. Hann kemur frá Stoke en þar hefur hann verið í tvö og hálft ár en var áður hjá Coventry. Saunders borgaði 60.000 pund fyrir kappann en þegar Stoke keypti hann kostaði kappinn 150.000 pund. Aston Villa hefur keypt tvo gamla leikmenn félagsins aftur. Andy Blair er kominn til baka frá Sheffield Wednesday. Hann var seldur þangað frá Villa fyrir tæpum tveimur árum og þá á 50.000 pund en nú var kaupverðið 120.000 pund. Hækkað mikið í verði, piltur- inn. Þetta er í annað sinn sem Blair kostar Villa stórfé því árið 1981 keypti félagið hann á 300.000 pund frá Coventry. Frá WBA hefur Aston Villa keypt Steve Hunt og var kaupverðið 120.000 pund en þeir létu Gordon nokkurn Bradley upp í kaupverðið. Hunt þessi lék í eina tíð með New York Cosmos og lék þar við hlið þeirra Beckenbauersog Pele. Sheffield Wednesday hefur gert tveggja ára samning við Shut, stráklinginn sem hefur leikið þrjá síðustu leiki liðsins og gert sex mörk. Hann er 21 árs gamall og Wilkinson skrifaöi undir tveggja ára samning við pilt eftir að hann skoraði eitt mark fyrir félagið í þriðja leik sínum en hann gerði tvö mörk í fyrsta leik sínum og þrjú í þeim næsta. Mark Hughes leikmaður Man- chester United mun ekki leika með liðinu í dag gegn QPR og ástæðan er sú að Ron Atkinson telur að allt tal um að Barcelona og Hughes hafi ruglað piltinn í rfminu og hann verði því að hvíla sig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.