Morgunblaðið - 15.03.1986, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.03.1986, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR15. MARZ1986 t Kosningar í KRON: • * Frambjóðend- um meinað um kjörskrá „GRÓFT lögbrot til að hindra framboð félagsmanna KRON,“ er yfirskrift fréttatilkynningar sem Morgunblaðinu hefur borist frá aðstandendum framboðslista, sem verður í kjöri á aðalfundi Breið- holtsdeildar, deild fimm, Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis, sem fram fer næstkomandi mánudag, i kosningu um 19 fulltrúa deildar- innar á aðalfund kaupfélagsins í vor. Ástæða þessara ásakana er sú að frambjóðendum hefur verið neitað að fá afhentan félagahsta. Framboðslistinn er kenndur við hendinu félagaskrár: „Kjörstjóm Sonju Sigurðardóttur og fleiri, en efsti maður er Ásthildur Jónsdóttir. Ólafur Ragnarsson, hæstaréttar- lögmaður, sem á sæti í kjömefnd KRON, sagði að á fundi nefndarinn- ar í gær hefði umræddur listi verið samþykktur og er hann því kjör- gengur. Stjóm deildarinnar er skylt samkvæmt lögum að leggja fram lista 19 fulltrúa og hefur það verið gert að sögn Ingólfs Ólafssonar, kaupfélagsstjóra. í umræddri frétt frá aðstandend- um framboðslistans segir meðal annars: „Þrátt fyrir ákvæði laga KRON um framboð félagsmanna og gmndvallarreglur Samvinnu- hreyfingarinnar um að auðvelda skuli nýju fólki áhrif innan sam- vinnufélaga hafa stjómendur KRON gert allt sem þeir geta til að hindra framboð okkar. Meðal annars hafa þeir neitað aðstandend- um framboðsins, sem allir em félag- ar í Breiðholtsdeild KRON, um fé- lagaskrá deildarinnar, en það gerir þeim ókleift að vinna að framgangi síns framboðs. Stjóm deildarinnar hefur hinsvegar þetta félagatal undir höndum til að vinna að sínu framboði, auk þess sem launaðir starfsmenn KRON hafa hjálpað til við að smala stuðningsmönnum deildarstjómar á fundinn. Hér er því um grófa mismunun og lagabrot að ræða ... “ Þá er vitnað til þess að í 20. grein laga kaupfélagsins segi að fylgja skuli þeim reglum sem gilda við almennar sveitar- stjómarkosningar: „Magnús Óskarsson, borgarlögmaður, hefur staðfest að það hafi tíðkast allt frá árinu 1946 í bæjarstjómarkosning- um að frambjóðendur fái afhenta kjörskrá ef þeir óska þess.“ Ólafur Ragnarsson sagði þegar hann var spurður um það hvort ekki væri um mismunun að ræða ef skilningur á 20. grein laga KRON væri réttur, að kjörstjóm hefði á síðasta ári hafnað beiðni um af- afgreiddi beiðni þeirra nú með vísan til bókunar kjörstjómar í fyrra. Og bendir jafnframt á að kjörskrá hverrar deildar er í einni bók, sem samanstendur af öllum félögum KRON í stafrófsröð." Ólafur benti einnig á að margir félagsmenn hefðu kvartað undan því í fyrra að verða fyrir ónæði frá frambjóðend- um: „Þetta er einnig spuming um persónulegan rétt manna í fijálsum félögum." mím __S, Morgunblaðið/Bjami Sigurlagið valiðíkvöld Unnið af kappi við undirbúning „söngvakeppni sjónvarpsstöðva Evrópu 1986“ en sigurlag íslend- inga fyrir keppnina í Bergen verður valið í beinni útsendingu úr sjónvarpssal í kvöld. Hér er veriið að leggja síðustu hönd á sviðsmyndina í gær. Hagnaður Landsbankans 260 millj. kr. á síðasta ári HAGNAÐUR Landsbankans á siðasta ári reyndist 260 milljónir króna, að frádregnum áætluðum tekju- og eignaskatti að upphæð 157 millj- ónir króna. Halli var á rekstrinum árið 1984. í árslok 1985 reyndist eigið fé bankans vera 2.072 miUjónir króna, en hafði numið 1.126 mUljónum árið áður. Ársreikningur Landsbankans fyrir síðasta ár var í gær undirritaður af Matthíasi Bjarnasyni viðskiptaráðherra, að lokinni staðfestingu bankaráðs. í frétt frá Landsbankanum segir að við útreikning hagnaðar bankans hafði verið tekið tillit til afskrifta fjármuna, framlaga til afskrifta- reiknings útlána og gjaldfærslu vegna skuldbindinga við eftirlauna- sjóð starfsmanna, enda sé það í samræmi við reglur um reiknings- skil banka. í fréttatilkynningu Landsbankans segir ennfremur: „Heildareignir Landsbankans námu 32.000 millj. kr. í árslok 1985. Var þetta um 46% af eignum allra viðskiptabanka og sparisjóða. Hlutdeild bankans í heildarútlánum innlánsstofnana til sjávarútvegs var 68%, en 44% til iðnaðar og hin sama til landbúnaðar. í lok ársins námu útlán til einstaklinga 2.175 millj. kr. Var þetta liðlega fjórðungur allra útlána banka og sparisjóða til einstaklinga og hærri upphæð en nokkur annar einstakur banki, eða sparisjóðirnir sem heild, lánuðu einstaklingum. Samkvæmt lögum um viðskipta- banka, sem tóku gildi í ársbyijun 1986, má eigið fé banka ekki vera lægra en sem svarar 5% af heildar- eignum að viðbættum ábyrgðum en að frádregnu eigin fé, sjóðseign og innstæðum í Seðlabanka og öðrum innlánsstofnunum. í árslok 1984 var þetta hlutfali 4,6% hjá Lands- bankanum og hefði því ekki upp- fyllt skilyrði laganna. í árslok 1985 er hlutfallið hins vegar 7,2%, eða nokkuð umfram hið setta mark. Ástæðumar fyrir þessari bættu stöðu eru aðallega tvær. I fyrsta lagi góð afkoma ársins og í öðru lagi breytt meðferð fasteigna í bók- haldi í samræmi við reglur um reikningsskil banka. Eru fasteignir nú bókfærðar á framreiknuðu kostnaðarverði að frádregnum af- skriftum í stað fasteignamats áður. Bókfært virði fasteigna og búnaðar nam 56% af eigin fé. Var það vel innan þerra marka, sem bankalögin setja, að fasteignir og búnaður megi ekki nema yfir 65% af eigin fé. Ymsar ástæður liggja til góðrar afkomu Landsbankans á árinu 1985. Rekstrarkostnaður lækkaði miðað við umsvif. Vaxtamunur jókst á árinu. Stafaði þetta fyrst og fremst af tiltölulega miklum verðlagshækkunum, en verðtryggð- ar eignir bankans hafa verið meiri en verðtryggðar skuldir. Þá voru vaxtagjöld til Seðlabanka hlutfalls- lega minni en árið áður vegna samninga við hann um útlánamörk og skammtímalán. Horfur eru á því, að vaxtamunur minnki mjög á árinu 1986 og af- koma bankans versni af þeim sök- um. Á hinn bóginn er mikilvægt, að bankinn geti haldið traustri eiginfjárstöðu í samræmi við ákvæði bankalaga." Heimsmynd komið út: Móta eitthvað nýtt og spennandi - segir Herdís Þorgeirsdóttir ritstjóri „ÉG ER mjög ánægð með þetta fyrsta blað enda gott fólk sem vann að því með mér,“ sagði HerdSs Þorgeirsdóttir, en nýja tímaritið hennar „Heimsmynd" hefur nú litið dagsins Ijós. Herdís sagði að blaðið hefði verið í vinnslu siðan hún lét af störfum sem ritstjóri tímarits- ins „Mannlíf" í janúar siðast- liðnum og væri þetta fyrsta blað „Heimsmyndar" prentað í 12 þúsund eintökum. Nýtt útgáfufélag, Ófeigur hf., gefur blaðið út en stjómarformað- ur þess er Kristinn Bjömsson. Aðrir í útgáfustjóm em Sigurður Gísli Pálmason, Jóhann Páll Valdi- marsson, Helgi Skúli Kjartansson og Ólafur Þ. Harðarson auk Herdísar. Framkvæmdastjóri er Þómnn Þórisdóttir, sem áður starfaði hjá Fijálsu framtaki og auglýsingastjóri er Lilja Hrönn Hauksdóttir, sem áður var auglýs- ingastjóri „Mannlífs". Aðspurð um ritstjómarstefnu blaðsins kvaðst Herdís vilja leitast við að draga upp myndir úr heimi alþjóðamála, íslenskra stjómmála, bókmennta og lista, tísku og úr hugarheimi fólks. „Ég tel mig vera komna með talsverða reynslu á þessu sviði og þetta nýja blað gefur mér aukið svigrúm til að koma hugmyndum mínum í fram- kvæmd. Á grundvelli þeirrar reynslu hef ég nú tækifæri til að móta eittvað nýtt og meira spenn- andi,“ sagði Herdís. „Ég mun þó áfram byggja á viðtölum við at- hyglisverða Islendinga og fræga útlendinga. Okkur fannst mildll fengur í að fá viðtai við kvik- myndastjömuna Meiyl Streep, sem nú hefur verið tilne&id til Morgunblaðið/RAX Herdís Þorgeirsdóttir ritstjóri. Óskarsverðlauna í fjórða sinn, í þetta fyrsta blað okkar. Það er mikið lagt í þetta blað. Starfslið blaðsins fór til dæmis til New York til að taka tískumyndir ásamt Maríu Guðmundsdóttur ljósmyndara. Margir þekktir greinahöfundar fjalla um hin fjöl- breytilegustu málefni í blaðinu og það er prentað á vandaðan pappír í miklum lit.“ Þetta fyrsta tölublað „Heims- myndar" er 140 blaðsíður að stærð. Utlitsteiknari er Jón Oskar Hafsteinsson. Aætlaður komutími til Everett 23. mars DRÁTTARBÁTUR dregur nú Goðafoss, skip Eimskipafélagsin íslands sem stöðvaðist vegna vél- arbilunar hinn 6. þ.m., áleiðis tíl Everet í Bandaríkjunum og er komutími skipana þangað áætl- aður hinn 23. mars. Nokkuð hvasst er þar sem skipin eru stödd núna, 6-7 vindstig, en allt gengur þó vel og hefur drátt- arbáturinn haldið 9 sjómílna hraða með Goðafoss að undan- förnu. Kanadíski dráttarbáturinn Irving Cedar tók Goðafoss í tog hinn 12. þessa mánuðar en skipið hafði þá verið á reki í 6 sólarhringa. Eru skipin nú stödd 38.43 gráður vestur og 53.48 gráður norður. Athugasemd við Þjóðviljafrétt ISAL vill hér með leiðrétta augljós- ar rangfærslur um hlutfall launa- kostnaðar af heildarframleiðslu- kostnaði fyrirtækisins, sem fram kom í frétt í Þjóðviljanum fimmtu- daginn 13. mars um gang samn- ingamála ISAL og hlutaðeigandi verkalýðsfélaga. Þar er haft eftir trúnaðarmanni í steypuskála, að hlutfall launakostnaðar „ .. . hafi lækkað ur 15,3% af heildarkostnaði álversins 1979 í 10,5% af heildar- kostnaði, sé miðað við gengi dollar- ans“. Hið rétta er hins vegar, að hlutfall launakostnaðar af heildar- framleiðslukostnaði áranna 1979 og 1985 er sem hér segir: 1979 14,1% 1985 13,6% eða Iækkun um 0,5 prósentustig. Sömu prósentutölur fást, hvort sem reiknað er út frá bókfærðum kostnaði í íslenskum krónum eða honum breytt í bandaríkjadollar eða aðrar myntir á meðalgengi ofan- greindra ára. Hvemig trúnaðar- maður í steypuskála reiknar út lækkun upp á 4,8 prósentustig er ISALekkí kunnugt. íslenska álfélagið hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.