Morgunblaðið - 15.03.1986, Side 6
6
MOfíÖUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR15. MARZ1986
ÚTVARP / SJÓNVARP
Njóla
brandarar
Ekki er öll vitleysan alveg eins.
Þannig var fímmtudagsleikritinu
lýst svo í dagskrárkynningu leiklist-
ardeildar ríkisútvarpsins: Leikritið
„Á sumardegi í jurtagarði" eftir
breska leikskáldið Don Harworth
gerist í heimi plantnanna á heitum
sumardegi í jurtagarði. Allt virðist
friðsælt á yfirborðinu en ef dýpra
er skyggnst má sjá að plöntumar
beijast fyrir tilveru sinni. Þær veik-
byggðu víkja fyrir þeim sterkari,
sem aftur á móti óttast að maðurinn
útrými þeim.
Hafa lesendur barið augun aðra
eins þvælu, ég bara spyr, í það
minnsta hef ég sjaldan hlýtt á aðra
eins þvælu og þama var borin á
borð fyrir útvarpshlustendur. Virt-
ist mér helst að höfundurinn hafí
ætlað sér að semja fræðsluleikþátt
fyrir bresk gmnnskólaböm. Dæmi:
Njólinn ungi er Sigrún Edda Bjöms-
dóttir leikur: Afi, hvers vegna
hreyfa mennimir sig úr stað? Afinn
sem ber latneskt heiti og Þorsteinn
Ö. Stephensen leikur, svarar: Það
er til þess að þeir geti forðað sér
undan uxunum. Eitthvað á þessa
leið hljómaði texti þessa volaða
leikverks en annars snérist verkið
um lífsbaráttu plantnanna eins og
áður gat og þá fyrst og fremst um
baráttu þeirra gegn eiturhemaði
mannsins. Má vafalaust færa gild
rök fyrir því að höfundurinn Don
Harworth sé einlægur náttúm-
vemdarmaður og því hafi leik-
þættinum ekki aðeins verið ætlað
það hlutverk að fræða skólaböm
um lífshætti njólans heldur og að
benda á þau óþægindi er njólar
verða fyrir er mannskepnan dælir
yfir þá skordýraeitri. Göfugt mark-
mið hjá Don Harworth og vafalaust
á leikþáttur þessi erindi í breskt
kennsluútvarp en hitt er vandséð
hvaða erindi slíkur leikþáttur á inná
stærsta leiksvið íslands. Nærtæk-
asta skýringin er vafalaust sú að
leiklistarstjóra Ríkisútvarpsins hafi
þótt verkið svona óskaplega fyndið.
Því miður höfðar sá „njólahúmor"
er hér birtist ekki til undirritaðs.
Mér finnst ósköp lítið sport í að
hlýða í 60 mínútur á alþekkta leik-
ara streitast við að lesa upp úr
breskum náttúmfræðikennslubók-
um. Eini maðurinn sem naut sín í
þessum skrípaleik var Aðalsteinn
Bergdal er sá um leikhljóð en þar
bar mest á flugnasuði og bauli í
fjarlægum kúm.
Lausn vandans
Ég er svolítið hissa á leikarastétt-
inni hversu auðsveip hún er á stund-
um. Em leikarar bara dúkkur sem
er stillt upp eftir dyntum og dutl-
ungum misviturra skriffínna eða á
leikarinn að hafa einhver áhrif á
listræna stefnumótun þess leikhúss
er hann starfar hjá? Ég fæ ekki séð
að einræðið á leiklistardeild Ríkisút-
varpsins gangi öllu lengur. Verk á
borð við leikverk Don Harworth á
ekki að hljóma í leikhúsi allra lands-
manna. Ég álít brýnt að listamenn-
imir sjálfír, þeir er bera uppi út-
varpsleikhúsið, hafi hönd í bagga
um val útvarpsleikrita, því geri ég
að tillögu minni að sérstök leik-
ritavalsnefnd verði skipuð hið
fyrsta og ráði hún alfarið vali á
útvarpsleikritum og jafnvel leik-
stjórum. í samræmi við lýðræðis-
hefð okkar væri ekki úr vegi að
skipa í þessa nefnd auk leiklistar-
stjórans, einn fulltrúa frá Leik-
stjórafélaginu, annan frá Félagi ís-
lenskra leikara, þann §órða frá
samtökum áhugaleikhópa, hinn
fímmta frá Félagasamtökum rit-
höfunda og síðast en ekki síst einn
úr röðum tæknimanna en þeir
ágætu menn hafa nú einu sinni
mikil áhrif á gengi útvarpsleikrita.
Hvað segir hinn dugmikli útvarps-
stjóri um þessa hugmynd?
Oiafur M.
Jóhannesson
Utför Olofs Palme
í beinni útsendingu
■B Vakin er athygli
45 á breytingu á
— dagskrá sjón-
varpsins í dag. Kl. 12.45
hefst bein útsending frá
útför Olofs Palme, fyrrum
forsætisráðherra Svíþjóð-
ar, í Stokkhólmi. Stefán
Jóhann Stefánsson frétta-
maður útvarpsins í Svíþjóð
lýsir athöfninni.
Utsendingin hefst með
fímmtán mínútna inngangi
þar sem gestir eru kynntir
og það sem fram fer. Kl.
13 hefst minningarathöfn
í ráðhúsinu í Stokkhólmi.
Aðalræðu flytur Ingvar
Carlsson nýskipaður for-
sætisráðherra Svía. Síðan
verður fylgst með líkfylgd-
inni um götur Stokkhólms
til Adolf Frederiks-kirkju
þar sem Olof Palme verður
jarðsettur.
Þeir fræða okkur
um Portúgal —
Þorgeir Ólafsson
(t.v.) og Ólafur
Angantýsson.
Heimshom
Portúgal
nokkuð um stjómmálaþró-
un þar síðustu áratugi. Þá
verður' talað við Jón Ár-
mann Héðinsson fyrrver-
andi alþingismann, m.a.
um viðskipti Portúgala og
íslendinga, og fræðst um
hvemig best sé að ferðast
um landið. Einnig verður í
þættinum litið í sjónhend-
ingu yfír sögu Portúgals,
spjallað um þarlendar bók-
menntir o.fl.
■■■■ Á dagskrá út-
nOO varpsins, rásar
— 1, í dag er þátt-
urjnn Heimshom í umsjá
Ólafs Angantýssonar og
Þorgeirs Olafssonar. Fjall-
að verður um Portúgal,
þjóðlíf, menningu og listir
þar í landi á líðandi stund.
Rætt verður við Jóhönnu
Kristjónsdóttur blaðamann
um menningar- og listalíf
í landinu og m.a. fjallað
Pálmi Gunnarsson rennir raustum. Stórsveitin og Þórir Baldursson í baksýn.
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva
Pönkið tíu ára
■1 Loksins! Það
05 sem allir hafa
— beðið eftir: Úr-
slit íslensku keppninnar um
lag til þátttöku í söngva-
keppni sjónvarpsstöðva í
Evrópu 1986. Flutt verða
í beinni útsendingu þau tíu
lög sem kynnt hafa verið
að undanfömu. Stórsveit
sjónvarpsins, Björgvin,
Eiríkur, Ema og Pálmi
flytja. Gunnar Þórðarson
og Þórir Baldursson útsetja
og stjóma. Og rúsínan í
pylsuendanum: Bobby-
socks hinar norsku, sem
unnu Evróvision-keppnina
í fyrra, koma og syngja
þijú lög. Fimm manna
dómnefnd velur sigurlagið
og verðlaun verða afhent.
Kynnir er Jónas R. Jónsson
og Egill Eðvarðsson stjóm-
ar útsendingunni.
■I Bylgjur, þáttur
00 um framsækna
rokktónlist, em
á dagskrá rásar 2 í kvöld.
Umsjónarmenn em Ás-
mundur Jónsson og Ámi
Daníel Júlíusson. Að sögn
þeirra verður þátturinn
helgaður 10 ára afmæli
pönksins. „Við fáum þær
Ellý úr Q4U og Björk úr
Kuklinu í heimsókn. Þá
verður spiluð tónlist þeirra
karla og kvenna sem vom
í fylkingarbijósti í pönkinu.
Konur vom til dæmis ekki
teknar fullgildar sem hljóð-
Nina Hagen.
færaleikarar í rokkinu fyrr
en pönkið kom til sögunn-
ar,“ sögðu þeir félagar.
Þessi þáttur er hinn
fyrsti af þremur um pönkið.
ÚTVARP
LAUGARDAGUR
15. mars
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Tónleikar, þulur velur
og kynnir.
7.20 Morguntrimm.
7.30 íslenskir einsöngvarar
og kórar syngja.
8.00 Fréttir. Dagskrá.
8.15 Veðurlregnir. Tónleikar.
8.30 Lesiö úr forystugreinum
dagblaðanna. Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynn-
ir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtek-
inn þáttur frá kvöldinu áður
sem Örn Ólafsson flytur.
10.10 Veðurfregnir. Óskalög
sjúklinga, framhald.
11.00 Heimshorn — Portúgal.
Ólafur Angaritýsson og
Þorgeir Ólafsson taka sam-
an þátt um þjóðlif, menn-
ingu og listir í Portúgal á líð-
andi stundu.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar.Tónleikar.
13.50 Hér og nú. Fréttaþáttur
í vikulokin.
15.00 Miödegistónleikar. a.
„Rienzi", forleikur eftir Rich-
ard Wagner. b. Fiðlukonsert
op. 36 eftir Arnold Schön-
berg. Zwi Zeitlin leikur með
Sinfóníuhljómsveit útvarps-
ins í Munchen; Rafael Kube-
lik stjórnar.
15.50 Islenskt mál. Gunnlaug-
ur Ingólfsson flytur þáttinn.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.16 Veöurfregnir.
16.20 Listagrip. Þáttur um list-
ir og menningarmál. Um-
sjón. Sigrún Björnsdóttir.
17.00 „Framhaldsleikrit barna
og unglinga: „Árni í Hraun-
koti" eftir Ármann Kr. Ein-
arsson. Leikstjóri: Klemenz
Jónsson. Sögumaður: Gísli
Alfreðsson. Þriðji þáttur.
„Týndi pilturinn". Leikendur:
Hjalti Rögnvaldsson, Anna
Kristín Arngrímsdóttir og
Steindór Hjörleifsson. (Áður
flutt 1976).
17.35 „Empire Brass" blás-
arakvintettinn leikur tónlist
eftir Tommaso Albinoni,
Wolfgang Amadeus Moz-
art, Viktor Ewald, Claude
Debussy o.fl. (Hljóðritun frá
tónleikum í Austurbæjarbíói
i fyrra.)
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 „Sama og þegið".
Umsjón: Karl Ágúst Úlfsson,
16.00 Iþróttir og enska knatt-
spyrnan. Umsjónarmaður
Bjarni Felixson.
19.25 Búrabyggð
(Fraggle Rock)
Tiundi þáttur.
Brúöumyndaflokkur eftir Jim
Henson.
Þýðandi Guöni Kolbeins-
son.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Staupasteinn (Cheers)
Lokaþáttur.
Bandarískur gamanmynda-
flokkur.
Þýðandi Guðni Kolbeins-
son.
21.05 Söngvakeppni sjón-
varpsstöðva í Evrópu 1986.
Úrslit íslensku keppninnar.
Bein útsending úr sjón- |
Sigurður Sigurjónsson og
Öm Árnason.
20.00 Leikrit: „Á sumardegi í
jurtagarði" eftir Don Hay-
worth. Þýðandi: Karl Guð-
mundsson. Leikstjóri: Karl
Ágúst Úlfsson. Leikendur:
Þorsteinn ö. Stephensen,
Róbert Arnfinnsson, Sigrún
Edda Björnsdóttir, Pétur
Einarsson, Guðrún Þ. Step-
hensen. (Endurtekið frá
fimmtudagskvöldi).
21.05 Söngvakeppni sjón-
varpsstöðva í Evrópu 1986
— Úrslit íslensku keppninn-
ar. Bein útsending úr sjón-
varpssal. Stórsveit sjón-
varpsins leikur þau 10 lög
sem kynnt hafa veriö að
undanförnu. Söngvarar:
Björgvin Halldórsson, Eirík-
ur Hauksson, Erna Gunn-
arsdóttir og Pálmi Gunnars-
varpssal.
I þessari dagskrá verða flutt
þau tiu lög sem kynnt hafa
veriö að undanförnu.
Stórsveit sjónvarpsins leik-
ur.
Söngvarar: Björgvin Hall-
dórsson, Eiríkur Hauksson,
Erna Gunnarsdóttir og
Pálmi Gunnarsson.
Útsetning og hljómsveitar-
stjórn: Gunnar Þórðarson
og Þórir Baldursson.
Gestir veröa Bobbysocks
sem sigruöu I söngva-
keppninni i fyrra. Þær koma
fram og syngja þrjú lög.
Fimm manna dómnefnd
velur sigurlagiö og höfund-
ur/höfundar taka viö verð-
launum sínum.
Kynnir Jónas R. Jónsson.
son. Utsetning og hljóm-
sveitarstjórn: Gunnar Þórð-
arson og Þórir Baldursson.
Gestir verða Bobbysocks
sem sigruöu I síðustu
söngvakeppni. Fimm
manna dómnefnd velur sig-
urlagið og afhent eru verð-
laun. Kynnir: Jónas R. Jóns-
son.
22.25 Veöurfregnir.
22.30 Fréttir. Dagskrá. Orð
kvöldsins.
22.45 Lestur Passíusálma (42)
22.55 Bréf frá Danmörku.
Dóra Stefánsdóttir segir frá.
23.25 Danslög.
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar.
Umsjón: Jón Örn Marinós-
son.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á rás 2 til kl.
03.00.
Utsendingu stjórnar Egill
Eðvarðsson.
22.30 Kærastinn
(The Boy Friend).
Bresk dans- og söngva-
mynd frá 1971.
leikstjóri Ken Russel.
Aðalhlutverk; Twiggy ásamt
Christopher Gable, Tommy
Une og MaxAdrian.
Myndin gerist á kabarett-
sýningu á þriöja áratug ald-
arinnar. Stjarnan hefur togn-
að á fæti og aðstoöarstúlka
leikstjórans, Twiggy, veröur
að hlaupa i skarðið. Henni
er það ekki óljúft hlutverk
þar sem mótleikarinn er
draumaprinsinn hennar.
Þýðgndi Baldur Hólmgeirs-
son.
00.25. Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR
15. mars
10.00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Sigurður Blön-
dal.
12.00 Hlé
14.00 Laugardagurtillukku
Stjórnandi: SvavarGests. i
16.00 Listapopp
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
17.00 Hringborðið
Erna Arnardóttir stjórnar
umræðuþætti um tónlist.
18.00 Hlé
20.00 Bylgjur
Ásmundur Jónsson og Ámi
Daníel Júlíusson kynna
framsækna rokktónlist.
21.00 Djassspjall
Stjórnandi: Vernharður
Linnet.
22.00 Bárujárn
Þáttur um þungarokk í
umsjá Siguröar Sverrisson-
ar.
23.00 Svifflugur
Stjómandi: Hákon Sigur-
jónsson.
24.00 Ánæturvakt
með Heiðbjörtu Jóhanns-
dóttur.
03.00 Dagskrárlok.
SVÆÐISÚTVÖRP
REYKJAVÍK
17.03—18.00 Svæðisútvarp .
fyrir Reykjavík og nágrenni,
— FM 90,1 MHz.
AKUREYRI
17.03—18.30 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,6 MHz.
SJÓNVARP