Morgunblaðið - 15.03.1986, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR15. MARZ1986
Mikil sala í fjölbreytt-
ar ferðir hjá Utsýn
- Rætt við Ingólf Guðbrandsson um sumaráætlun Utsýnar
„NÝGERÐUR samningur Útsýnar við Flugleiðir, um leiguflug á
hveijum fimmtudegi með flaggskipi íslenska flugflotans, Boeing
727-200, gerir það að verkum að við getum í ár boðið meiri
þægindi í leigufluginu en oftast áður, þar sem sætarými i vélinni
er mjög gott og veitingar eins og best gerist í áætlunarflugi,"
sagði Ingólfur Guðbrandsson, forstjóri Utsýnar, er blaðamaður
Morgunblaðsins ræddi við hann um sumaráætlun Útsýnar, sem út
kom í febrúar sfðastliðnum. Boðið er upp á ferðir tíl að minnsta
kosti 12 landa og að sögn Ingólfs gerir rekstraráætlun Útsýnar
ráð fyrir allt að 500 milljón króna veltu á yfirstandandi ári.
Hann sagði að verð á sólarlandaferðum væri nú hlutfallslega
hagstæðara en á síðasta ári og samningurinn við Flugleiðir væri
meðal annars grundvöllur þess, að Útsýn getur boðið ferðir í ár
til Ítalíu, Spánar og Portúgals á sambærilegu verði við sfðasta
ár, þrátt fyrir miklar verðhækkanir milli ára. Jafnframt hefði
Útsýn gert sérsamning við Flugleiðir um lækkuð fargjöld á áætl-
unarleiðum til London, Kaupmannahafnar, Luxemburg og Salz-
burg.
Ingólfur sagði að undanfamar
vikur hefði eftirspum eftir sólar-
landaferðum verið meiri en dæmi
væru til um langt árabil. Hann
var spurður hvert eftirspumin
beindist helst af þeim stöðum, sem
boðið er upp á í sumaráætlun
Útsýnar:
„Eftirspumin er mest til Costa
Del Sol enda er mest sætaframboð
þangað. Þar er hægt að velja um
dvöl í eina, tvær, þijár eða flórar
vikur, og nærri upppantað I allar
ferðir þangað fram á haust. Við-
skipti Útsýnar á Costa Del Sol
standa á gömlum merg, en nýir
gististaðir hafa bæst í hóp hinna
sem fyrir voru. Má þar nefna
Benal Beach, sem nú verður aðal
gististaður Islendinga á sólar-
ströndinni. Af einstökum ferðum
á Costa Del Sol tel ég sérstaka
ástæðu til að vekja athygli á ódýr-
ustu ferðinni þangað, þar sem fólk
getur dvalist f 33 daga á vönduð-
um gististað fyrir um 25 þúsund
krónur, að ferðum og þjónustu
meðtalinni. Ferð þessi hefst hinn
6. apríl og stendur til 8. maí og
þykir það mjög ákjósanlegur tími
fyrir þá sem ekki sækjast eftir
miklum hitum.
Fyrir þá vandlátustu, sem vilja
vera lausir við eril og nábýli við
landa sína hefur Útsýn á leigu
nokkrar glæsiíbúðir í Marbella,
sem er nú einn glæsilegasti bað-
staður í Evrópu. Þar er allt miðað
við hæstu kröfur, en verðið þó
ótrúlega lágt. Og reynslan heftir
sýnt, að vissara er að panta
snemma til að tiygga sér dvöl í
Marbella."
Nýjimgar í Portugal
og a Ítalíu
„Óhætt er að segja, að vinsæld-
ir Portúgals meðal íslenskra
ferðamanna aukast hröðum skref-
um,“ sagði Ingólfur, er hann var
spurður um aðra eftirsótta staði
í sumaráætlun Útsýnar. „Við
verðum með beint leiguflug til
Faró á suðurströndinni á þriggja
vikna fresti, frá 8. maí, en fyrsta
ferðin er 2 vikur. A Algarve í
Portúgal tekur Útsýn nú til notk-
unar splunkunýja, vandaða gisti-
staði, svo sem Alfonso III í bænum
Albufeira. Eins má neftia íbúðar-
samstæðuna Portobello, sem er
alveg við ströndina í þorpinu Vil-
amoura. Það er andspænis Hotel
Atlantis, sem mjög hefur verið
rómað af Útsýnarfarþegum. Al-
fonso III verður aðalgististaður
Útsýnar í Portúgal í ár.
Á Ítalíu mun Útsýn enn auka
á fjölbreytnina með aðstöðu í
Lignano, bæði í hinum vistlegu
og rúmgóðu íbúðum Olimpo og
Sabbiadoro. En nú bætast við
ferðir til Gardavatnsins, með gist-
ingu í sjálfum bænum Garda, við
austanvert vatnið. Þaðan er stutt
í kynnisferðir til margra áhuga-
verðra staða í nágrenninu þar sem
náttúrufegurðin er einstök. Fyrsta
ferðin, 14. maí í 3. vikur, er seld
á sérstöku kynningarverði, sem
ekki mun bjóðast aftur.
Önnur nýjung í Ítalíuferðum er
dvöl í heilsulindabænum Abano
Terme. Ummæli farþega Útsýnar,
sem þar dvöldust í fyrra er öll á
sama veg, að jafngóðri aðstöðu
til afslöppunar, endurhæfmgar og
heilsubótar hafi þeir hvergi
kynnst. Þama nýtur Útsýn sér-
staks kynningartilboðs fyrir
næsta sumar, sem stórlækkar
verðið."
SérfargjÖld Útsýnar
„Segja má, að samningur Út-
sýnar við Flugleiðir sé heildar-
samningur, þar sem farþegar í
áætlunarflugi njóta sérstakra
fargjalda í tengslum við dvöl í
Þýskalandi og á Englandi, annað
hvort í sumarhúsum, íbúðum við
ströndina eða ferðir með bílaleigu-
bíl á meginlandi Evrópu eða um
Bretland. Þessum samningi teng-
ist einnig framhaldsflug frá Eng-
landi til annarra áfangastaða, svo
sem Mallorca, Ibisa, Korsíku,
Frönsku rivierunnar eða grísku
eyjanna Corfu og Krít. Reyndar
er of langt mál að telja hér upp
alla þá möguleika, sem sérfar-
gjöldin fela í sér, enda einstakl-
ingsbundið hvemig hver og einn
kýs að haga sínum ferðum.
Þó má minna á, að aðstaða
Útýnarfarþega I vínbænum
Bemkastel við Mosel hefur notið
mikillar hylli. Nú bjóðast einnig
ódýrir gististaðir f einum fegursta
hluta Þýskalands, Austur-Bayem.
Bílaleigubílar á lágu verði em til
reiðu handa þeim sem halda á
þessar slóðir. Eins má nefna, að
farþegar Útsýnar í fyrra urðu
mjög hrifnir af bænum Torquay
í_ Suður-Englandi og þar hefur
Útsýn enn aukið og bætt gistiað-
stöðu sína.“
Fríklúbburinn
Ingólfur var að lokum spurður
um starfsemi Fríklúbbsins, sem
notið hefur sívaxandi vinsælda
meðal Útsýnarfarþega:
„Fríklúbburinn, sem stofnaður
var fyrir 2 ámm hefur að margra
dómi breytt sumarleyfishugmynd-
inni. í augum þeirra, sem ekki
þekkja til, gengur sumarleyfíð
fyrst og fremst út á sólböð og
bjórdrykkju. Sú mjmd er mikil
skmmskæling á vemleikanum. í
tengslum við sumarleyfísferðir
Útsýnar er boðið upp á fjölda
margt til fróðleiks og skemmtun-
ar. Sumarleyfíð þarf að vera alls-
heijar endurhæfíng og með starf-
semi Fríklúbbsins var brotið blað
hvað þetta snerti.
Allir viðskiptavinir Útsýnar
eiga aðild að Fríklúbbnum og
geta notið þeirra fríðinda er hún
veitir f formi afsláttar við nærri
300 fyrirtæki innanlands og er-
lendis. Og sífellt bætast fleiri í
hópinn. Félagar klúbbsins njóta
afsláttar í skipulögðum ferðum
Útsýnar og nam sú upphæð
samtals um 6 milljónum króna á
sfðastliðnu ári. Spamaður farþega
er þó margfaldur ef afsláttar-
möguleikar em fullnýttir í við-
skiptum við fjölda fyrirtækja og
stjómendur Útsýnar telja að hann
hafí leitt til 30 til 40 milljón króna
spamaðar samtals fyrir þá sem
ferðuðust á vegum fyrirtækisins.
Þessa dagana er verið að undir-
búa og endurvekja Fríklúbbsstarf-
ið fyrir sumarið. Sérstakir Frí-
klúbbsfararstjórar verða starfandi
á aðaláfangastöðum Útsýnar og
em í senn leiðbeinendur, ráðgjafar
og skemmtanastjórar. Óg í þeirri
starfsemi, sem klúbburínn hefur
með höndum, skiptir aldur ekki
máli. Þar geta allir fundið eitthvað
við sitt hæfi,“ sagði Ingólfur
Guðbrandsson að lokum.
Heimilispósturinn
- þriðja bindi skrifa Gísla Sigurbjörns-
sonar um málefni aldraðra komið út
20. árgangur
af „Orðinu"
kominn út
ÚT ER komið Orðið, rit Félags
guðfræðinema. Þetta er 20,
árgangur. Efni ritsins er fjöl-
breytt að vanda og böfðar til
allra sem láta sig málefni kirkj-
unnar varða.
Meginefni ritsins er svokölluð
hlaðvarpa- eða eignarfallsguð-
fræði þ.e. guðfræði svartra,
kvennaguðfræði og frelsunarguð-
fræði. Einnig em ljóð, frumort og
þýdd, frásagnir og prófþrédikun.
Itarleg skrá yfír sérefnis- og kjör-
sviðsritgerðir er í ritinu svo og
yfírlit yfír fyrstu tuttugu árganga
þess.
Margt fleira er í Orðinu, enda
hafa nemendur, kennarar, prestar
og fleiri góðir menn lagt sitt. af
mörkum til að það mætti vera sem
fróðlegast og fjölbreyttast.
Nú á sunnudag, 16. mars,
verður Orðið til sölu í kirkjum
Reykjavíkurprófastsdæmis. Eftir
helgi verður svo hægt að nálgast
það í helstu bókabúðum borgar-
innar.
(FrétUtilkynniiig)
ÚT ER komið þríðja og síðasta
bindi Heimilispóst8Íns, gefið út
af útgáfunni Grund. í heimilis-
póstinum eru skríf Gisla Sigur-
björnssonar, forstjóra Elli- og
hjúkrunarheimilisins Grundar,
sem hann hefur skrásett síðast-
liðin21 ár.
Heimilispósturinn er ritaður af
guðfræðingnum Pétri Þorsteins-
syni og segir hann meðal annars
$ formálsorðum, að viðfangsefni
þessa sfðasta bindis sé hið sama
og fyrr; máleftii ellinnar. Þessi
skríf séu ekki aðeins hvatning til
að huga að málefnum ellinnar f
tíma áður en menn eru orðnir of
aldraðir til að áorka einhveiju í
þeim efnum, heldur einnig sagn-
fræðileg heimild um þróun elli-
mála í landinu á þessum tíma.
Gísli Sigurbjömsson ritar nið-
urlagsorð þessa bindis og segir
þar meðal annars, að ýmsar grein-
ar, sem hann hafí skrifað f Heimil-
ispóstinn sfðastliðin 21 ár, séu nú
komnar út sérprentaðar í þremur
bindum. Hann segir svo: „Þegar
ég las þessar greinar, sem eru
margar sffelld endurtekning, rætt
er um elli, vandræði fólksins,
þegar á efri ár er komið, barátta
við skilningsleysi, að mér fínnst
úrræðaleysi og hin eilífa þögn og
svampurinn frægi, þá datt mér í
hug, hvort einhver læsi þessar
greinar og gæti ef til vill eitthvað
af þeim lært - þá væri tilganginum
náð.
Björtu hliðamar era samt
margar, þrátt fyrir allt. Hagur
alls þorra fólks er allur annar, en
hann var, þegar Grand var að
hefla störf árið 1922. Breyting-
amar hafa verið stórkostlegar, á
flestum ef ekki öllum sviðum -
því má ekki gleyma.
Enda þótt mér sé tíðrætt um
andstreymið, þá hefur margt
áunnist með aðstoð framsýnna
dugnaðar- og hugsjónamanna og
er þeim af alhug þakkað."