Morgunblaðið - 15.03.1986, Qupperneq 20
20
jHleööuc
á morgun
DÓMKIRKJAN: Laugardag:
Barnasamkoma í kirkjunni kl.
10.30. Sr. Agnes M. Sigurðar-
dóttir. Messa kl. 11. Sr. Hjalti
Guðmundsson. Messa kl. 14.
Jónas Haralz bankastjóri préd-
ikar. Guðmundur Jónsson
óperusöngvari syngur einsöng.
Leikmenn lesa bænir og ritn-
ingartexta. Eftir messu verður
Kvenfélag kirkjunnar með kaffi-
sölu á Hótel Loftleiðum til
ágóða fyrir Orgelsjóð Dómkirkj-
unnar. Sr. Þórir Stephensen.
ÁRBÆJARPRESTAKALL:
Barnasamkoma í Foldaskóla í
Grafarvogshverfi laugardag 15.
mars kl. 11 árdegis. Barnasam-
koma í safnaðarheimili Ár-
bæjarsóknar sunnudag ki.
10.30 árdegis. Guðsþjónusta í
safnaðarheimilinu kl. 14. Sr.
Ingólfur Guðmundsson mess-
ar. Sr. Guðmundur Þorsteins-
son.
ÁSKIRKJA: Kirkjudagur safn-
aðarfélags Ásprestakalls:
Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. Ingibjörg
Marteinsdóttir syngur einsöng.
Veislukaffi safnaðarfélagsins
eftir messu. Miðvikudaginn 19.
Guðspjall dagsins: Jóh.
8.: Hví trúið þér ekki?
mars: Föstumessa kl. 20.30.
Sr. Árni BergurSigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL:
Laugardag: Barnasamkoma kl.
11. Sunnudag: Messa kl. 14.
Sr. Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir. Guðsþjón-
usta kl. 14.00. Organisti Guðni
Þ. Guðmundsson. Helgistund á
föstu miðvikudag 19. mars kl.
20.30. Sr. Ólafur Skúlason.
Bræðrafélagsfundur mánu-
dagskvöld. Flutt verða erindi.
Æskulýðsfélagsfundur þriðju-
dagskvöld. Félagsstarf aldr-
aðra miðvikudagseftirmiðdag.
DIGRANESPRESTAKALL:
Barnasamkoma í safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg kl.
11. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 11. Kirkjufélagsfundur
í safnaðarheimilinu fimmtu-
dagskvöld kl. 20.30. Sr. Þor-
bergur Kristjánsson.
FELLA— OG HÓLASÓKN:
Laugardag: Kirkjuskóli verður í
kirkjunni við Hólaberg 88 kl.
10.30. Barnasamkoma í Hóla-
brekkuskóla kl. 14. Sunnudag:
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir prédikar.
Organisti Guðný Margrét
Magnúsdóttir. Fundur í æsku-
lýðsfélaginu mánudaginn 17.
mars kl. 20.30. Sr. Hreinn
Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Messa kl. 14.
Fyrirbænir eftir messu. Organ-
isti Árni Arinbjarnarson.
Fimmtudaginn 20. mars:
Messa í Furugerði 1, kl. 19.30.
Sr. HalldórGröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Sunnu-
dag: Messa kl. 11. Sr. Karl
Sigurbjörnsson. Barnasam-
koma á sama tíma í safnaðar-
heimilinu. Messa kl. 17.00fellur
niður. Mozart-tónleikar List-
vinafélags Hallgrímskirkju kl.
20.30. Fyrirbænaguðsþjónusta
þriðjudag kl. 10.30. Miðviku-
dag: Föstumessa kl. 20.30. Sr.
Karl Sigurbjörnsson. Laugar-
dag 22. mars: Samvera ferm-
ingarbarna kl. 10.00. Kvöld-
bænir eru í kirkjunni alla virka
daga nema miðvikudaga kl. 18.
HATEIGSKIRKJA: Messa kl.
10. Barnaguðsþjónusta kl. 11.
Sr. Tómas Sveinsson. Messa
kl. 14. Sr. Arngrímur Jónsson.
Föstuguösþjónusta miðviku-
dag 19. mars kl. 20.30.
KÁRSNESPRESTAKALL:
Barnasamkoma kl. 11 í félags-
heimilinu Borgum. Messa í
Kópavogskirkju kl. 14. Organ-
isti Guðmundur Gilsson. Sr.
GuðmundurÖrn Ragnarsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Óska-
stund barnanna kl. 11. Söngur
— sögur — myndir. Þórhallur,
Jón og Sigurður Haukur sjá um
stundina. Guðsþjónusta kl. 14.
Prestur sr. Sigurður Haukur
Guðjónsson. Organisti Jón
Stefánsson. Aðalfundur Lang-
holtssafnaðar kl. 15. Rætt um
sóknargjöld. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Laugar-
dag: Guðsþjónusta í Hátúni
10b 9. hæð kl. 11. Altaris-
ganga. Sunnudag: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Messa kl. 14.
Eftir messu verður kökusala á
vegum kvenfélags Laugarnes-
sóknar. Þriðjudag: Bænaguðs-
þjónusta á föstu kl. 18. Píslar-
sagan, passíusálmar, altaris-
ganga og föstutónlist. Kvöld-
vaka kl. 20.30 fyrir fermingar-
börn. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Laugardag: Sam-
verustund aldraðra kl. 15. Spil-
að verður bingó. Sr. Guðmund-
ur Óskar Ólafsson. Sunnudag:
Barnasamkoma kl. 11. Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Frank M.
Halldórsson. Þriðjudag og
fimmtudag kl. 13—17. Opið
hús fyrir aldraða. Fimmtudag:
Föstuguðsþjónusta kl. 20. Sr.
Frank M. Halldórsson.
SEUASÓKN: Barnasamkoma í
Seljaskóla kl. 10.30. Barnasam-
koma í Ölduselsskóla kl. 10.30.
Guðsþjónusta í Ölduselsskóla
kl. 14. Fyrirbænasamvera
þriðjudag kl. 18.30 í Tindaseli
3. Fundur í æskulýðsfélaginu
þriðjudag kl. 20.00 í Tindaseli
3. Sóknarpestur.
SELTJARNARNESSÓKN:
Barnasamkoma í kirkjunni kl.
11. Sóknarnefndin.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK:
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti
Pavel Smid. Bænastund í kirkj-_
unni alla virka daga nema
mánudaga kl. 18. Sr. Gunnar
Björnsson.-
KIRKJA ÓHÁÐA SAFNAÐAR-
INS: Barnamessa kl. 10.30. Á
dagskrá eru t.d. hreyfisöngvar,
sálmar, bænakennsla, sögur,.J
myndasögur, útskýringar á
biblíutextum í myndum, kvik-
myndir og margt fleira. Sr. Þór-
steinn Ragnarsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fila-
delfía: Sunnudagaskóli kl.
10.30. Safnaðarguðsþjónusta
kl. 14. Ræðumaður Einar J.'
Gíslason. Almenn guðsþjón--
usta kl. 20. Ræðumaður Allon
Horby frá Kanada. Fórn til inn-
anlandstrúboðs.
DÓMKIRKJA Krists konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Lágmessa
kl. 14. Rúmhelga daga er lág-
messa kl. 18 nema á laugar-
dögum, þá kl. 14.
MARÍUKIRKJA Breiðholti: Há-
messa kl. 11. Lágmessa mánu-
dag—föstudag kl. 18.
HJALPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 14. Almenn sam-
koma kl. 20.30. Har. Reinholdt-
sen talar. Hermannavígsla.
MOSFELLSPRESTAKALL:
Mosfellskirkja: Barnasam-
koma kl. 11. Lágafellskirkja:
Messa kl. 14. Gideonfélagar
kynna starfsemi félagsins og
aðstoða í guðsþjónustunni. Sr.
BirgirÁsgeirsson.
HORF ÞU
INNÍ
SKÁPANA
Í DAG
HVAÐ ER ÞAÐ SEM BARNIÐ SÉR?
Kemst það í hættuleg efni og lyf í eldhúsi, baðherbergi eða
bílskúr?
Hreinsaðu burt allt slíkt sem ekki er geymt á barnheldum stað.
EN MENGAÐU EKKl UMHVERFIÐ MEÐ ÞVÍ.
Láttu það ekki í öskutunnu eða klósettskál.
í DAG!
Verðum við allar helstu bensín-
stöðvar landsins í dag kl. 1—6.
Tökum við hættulegum efnum
og eyðum þeim á öruggan og
skaðlausan hátt.
SLYSAVARNAFÉIAG ÍSIANDS
Hams flugforingi o g
ránið á týndu örkinni
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Sagan er óneitanlega kunnug-
leg. Ævafomri steintöflu fylgir
gríðarlegur kraftur, sem hægt er
að nota bæði til góðs og ills. Sá
sem hefur steintöfluna í hendi sér
ræður yfir öllum jarðneskum
mætti og þekkingu. Taflan hefur
eitthvað að gera með verur utan
úr geimnum, sem gistu jörðina
fyrir þúsundum ára, en þegar við
komum til sögunnar hefur hún
brotnað í þrennt og hlutimir
dreifst á ólíka staði. Sá sem nær
öllum brotunum í sínar hendur
öðlast meira vald en nokkur annar
í heimi hér. Savage (Max Phipps)
heitir vondur maður sem ætlar sér
að ná í brotin og beita mætti
þeirra til illverka. Indiana ... nei
fyrirgefið. Harris flugstjóri (John
Hargreaves) er góði maðurinn
sem ætlar að koma í veg fyrir að
Savage takist ætlunarverk sitt.
Þetta er söguþráðurinn í ástr-
ölsku myndinni Leynifarmurinn
(Sky Pirates), sem sýnd er í A-sal
Laugarásbíós. Myndin á að gerast
í lok seinni heimsstyijaldarinnar
og hún sver sig í ætt við ævintýra-
myndir á borð við Ránið á týndu
örkinni. Ástralskar myndir era
alltaf athyglisverðar og þessi líka
en gallinn er bara sá að hún er
alltof lík öðram ævintýramyndum,
sem gerðar hafa verið undanfarin
ár til að hægt sé að hafa nógu
gaman að henni.
Leikstjóranum, Colin Eggles-
ton ferst betur að leikstýra hasar
atriðum en leikurum. Hann er líka
greinilega undir áhrifum frá Spi-
elberg í Ameríku og landa sínum
George Miller, sem nú hefur gert
þijár Mad Max-myndir, en einn
Harris flugforingi
í myndinni Leynifarmurinn.
ákveðinn bflaeltingaleikur í Leyni-
farminum gæti alveg eins verið
atriði úr myndum Millers.
Eggleston gætir þess að láta
ekki líða langt á milli hasaratrið-
anna. Harris flugstjóri er sífellt
að lenda í hættum hvort sem er
um borð í flugvélinni sinni eða á
jörðu niðri með elskunni sinni
Melanie (Meredith Philipps).
Hann er ódrepandi og almáttugur:
ekkert ólíkur teiknimyndafígúrum
á borð við Tinna eða Benna flug-
mann.
Þótt fátt greini þessa mynd
frá öðram nýlegum ævintýra-
myndum, örlar stundum á þeim
frúmleika sem gert hefur ástr-
alskar myndir svo sérstakar á
umliðnum áram. En það er bara
ekki nægur frumleiki í Leynifarm-
inum. Leikurinn er óraunveraleg-
ur og söguþráðurinn laus í reipun-
um með fullt af dularfullum at-
hugasemdum um verar utan úr
geimnum og tímagat, sem óvíst
er hvaða hlutverki gegnir.
Stjömugjöf ★ V2