Morgunblaðið - 15.03.1986, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR15. MARZ 1986
Með foreldrum sínum hjá Arthur Rubinstein tveimur mánuðum fyrir andlát hins aldna snillings.
unar þegar þú ert ekki að læra
eða spila á píanó?“
„Sjmdi. Það finnst mér frábært.
Maður verður að hreyfa sig, skil-
urðu.“ Hann klappar á magann á
sér. „Ég þarf að passa upp á holda-
farið. Eg held ég hafi tilhneigingu
til að fitna og mig langar ekki til
þess að verða feitur ka.ll. En það
er ekki bara af því sem ég fer sund.
Líkamleg hreyfíng er nauðsynleg
ef maður ætlar að ná árangri á
einhverju sviði. Heilbrigð sál í
hraustum líkama, skilurðu," segir
hann og hlær enda uppalinn í
grennd við Spörtu. „Svo fer ég líka
stundum á diskótek."
„Hlustarðu á popp?“
„Já, stundum, en ég hef bara svo
lítinn tíma til þess því að ég er
eiginlega alltaf að spila á píanóið
eða hlusta á sígilda tónlist af plöt-
um.“
„Hvaða tónlist hefurðu mestar
mætur á?“
„Rómantískri. Nítjándu aldar."
„Hvaða tónsmið hefurðu mest
dálæti á?“
„Liszt. Ég held að hann hljóti
að hafa verið mesti píanósnillingur
sem uppi hefur verið. Á ég að segja
þér, ég held að djöfullinn hafi verið
í honum," hvíslar hann og heldur
víst að hann gangi fram af viðmæl-
andanum sem lætur sér hvergi
bregða. „En hann var engill líka,“
bætir hann svo við og okkur kemur
saman um að Liszt hafí verið svo
stór að hann hafi hæglega rúmað
þessar andstæður. En Dmitris vefst
tunga um tönn þegar hann er spurð-
ur hvort ekki geti verið að flest í
heiminum og þar með talið mann-
fólkið sé sambland af góðu og illu
og spumingin sé fyrst og fremst
sú hvort verði ofan á. ,,Ég veit það
ekki,“ segir hann. „Ég hef ekki
hugsað um það.“
Við förum að tala um hljómleika-
hald víðsvegar um heiminn. Hann
hefur leikið með helztu hljómsveit-
um og mörgum hljómsveitarstjórum
sem eru stórstjömur. „Það er svo
stórkostlegt að fá að kynnast þessu
fólki og vinna með því. Ég læri svo
mikið af því. Það er erfitt að koma
fram á sviðið og verða að standa
sig en það er æðisleg tilfínning
þegar maður skynjar að það er í
lagi. Tónleikaferðimar eru mjög
mikilvægur þáttur í þeim þroska
sem ég þarf að taka út sem tónlist-
armaður, þótt ekki væri nema af
þeirri ástæðu að í Grikklandi er
ekkert tónlistarhús sem hægt er
að kalla því nafni. Maður verður
bara að spila í kvikmyndahúsum
þar. Það er ekki í önnur hús að
venda og það er eiginlega alveg
ófært," segir hann og lætur í ljós
27
undmn þegar hannheyrir að þannig
sé nú ástandið á íslandi líka þótt
að vísu standi það til bóta.
En hvað er það sem Dmitris
getur og aðrir músíkalskir ungl-
ingar geta ekki?
„Það er nú margt og mikið,"
segir hann blátt áfram. „Ég hef
nánast óbrigðult minni og ég er
skotfljótur að lesa nótur og læra
utanað. Og svo er ég með alveg
ofsalega liðuga putta," segir hann
og sveigir hvem fingurinn af öðram
svo langt langt aftur að þeir mynda
45 gráðu hom við handarbakið og
glottir þegar hann sér að þessar
kúnstir hafa tilætluð áhrif.
„En áheyrendurnir, hvaða
máli skipta þeir fyrir þig?
„Miklu. Mjög miklu. Þeir gefa
mér svo ótrúlega mikið og ég vildi
að ég gæti komið því til skila hvað
þeir hafa mikið að segja fyrir mig.
Ég finn mikið fyrir þessu samspili
sem er á milli mín og fólksins í
salnum. Ég nærist á því á meðan
ég er á sviðinu og líka þegar ég
er að undirbúa tónleika. Og þá
hugsa ég. Fólkið gefur mér svo
mikið. Eg verð að gefa því enn
meira.“
Það er alvara og einbeitni í þess-
um orðum en svo slær hann óðara
á aðra strengi um leið og hann
snarast í leðurjakkann og stekkur
á strigaskónum á undan móður
sinni og Karolos til að athuga hvort
bíllinn sé kominn sem á að flytja
þau í gistihúsið eftir langan og
strangan dag.
enndu við í reynsluakstur og þú sannfœrist
um að COROLLA DX SPECIAL SERIES er hverrar krónu virði.
COROLLA er hönnuð til að vera fremst meðai jafningja og gœðaflokki ofar en
verðið segir til um.
Hún er framhjóladrifin, með fyrsta flokks fjöðrunar- og stýrisbúnaði. Léttbyggð 12 ventla
vélin er í senn kraftmikil og sparneytin.
Farþega- og farangursrýmið stenst allan samanburð ó nýtingu, þœg-
indum og hagkvœmni.
COROLLA DX SPECIAL SERIES er sérbúinn bíll, þar sem saman fara
aukin þœgindi og útlit sem vekur athygli.
TOYOTA^,