Morgunblaðið - 15.03.1986, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR15. MARZ 1986
31
arstefnu að stuðla í gegnum opin-
berar aðgerðir að jafnræði og ör-
yggi,“ sagði hann.
I lokakafla ræðu sinnar fjallaði
Steingrímur Hermannsson um mál-
efni Framsóknarflokksins, stöðu
hans og framtíð. Hann sagði, að
menn yrðu að horfast í augu við
þær grundvallarbreytingar sem
orðið hefðu á þjóðlífí hér á landi á
síðustu áratugum hvað varðar
byggð, atvinnuhætti, samgöngur
og viðskipti við aðrar þjóðir. „Hraði
breytinganna hefur stöðugt farið
vaxandi og mun enn vaxa á næstu
árum. Hátæknin mun halda innreið
sína á öllum sviðum. Nú geta ein-
staklingar náð 7 til 8 erlendum sjón-
varpsstöðvum beint með tiitölulega
litlum kostnaði. Eftir fá ár verða
slíkar stöðvar orðnar margfalt fleiri
og móttakan auðveldari," sagði
hann.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, flytur ræðu sína á aðalfundi miðstjórnar flokksins í gær.
Steingrímur Hermannsson á aðalfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins;
Samningarnir marka ein stærstu
tímamót í íslensku efnahagslífi
I
Atvinnuvegir og einstaklingar þola ekki til lengdar hina háu vexti
F ramsóknarflokkurinn lagi sig að breyttum tímum og hefji sókn í þéttbýli
STEINGRÍMUR Hermannsson, forsætisráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins, sagði í setningarræðu sinni á aðalfundi miðstjórnar
Framsóknarflokksins, sem hófst í Reykjavík í gær, að þvi yrði ekki
neitað að framsóknarmenn hefðu Iengi verið tortryggnir í garð
samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn. Það væri ekki undarlegt, þegar
þess væri gætt, að þessir flokkar hefðu verið höfuðandstæðingar í
íslenskum stjórnmálum í áratugi. Sumt af slíkri gagnrýni ætti eflaust
rétt á sér, en annað þætti sér á litlum rökum reist. „Ég nefni sem
dæmi þá fuUyrðingu flokksmanna, að sjálfstæðismenn hafi óeðlilega
mikil áhrif í stjórnarsamstarfinu. Þetta er áróður, sem málgögn
Sjálfstæðisflokksins hamra stöðugt á, og virðist ná inn í raðir fram-
sóknarmanna, þótt alrangur sé,“ sagði forsætisráðherra.
Steingrímur vék sérstaklega að leg.“ Um sjávarútveginn kvað hann
landbúnaðar-, sjávarútvegs- og svipað að segja. Framsóknarmenn
húsnæðismálum, sem heyra undir
ráðherra Framsóknarflokksins.
Hann sagði, að það hefði komið f
hlut framsóknarmanna að taka á
hinu gífurlega vandamáli í land-
búnaði. „Við hlupum ekki frá þeirri
ábyrgð," sagði hann. „Mér er það
fullkomlega ljóst, að þessi aðlögun
verður erfíð, en hún er óhjákvæmi-
Afleiðing mjólkur-
kvótans:
Bændur halda
að sér höndum
BÆNDUR virðast halda að sér
höndum i framkvæmdum í hinnm
hefðbundnu búgreinum um þess-
ar mundir. Er það vafalaust af-
leiðing mjólkurkvótans margum-
talaða.
Magnús Sigsteinsson bygginga-
og bútækniráðunautur Búnaðarfé-
lags íslands segir að framkvæmdir
hjá bændum virtust almennt í bið-
stöðu. Mjólkurframleiðendur biðu
eftir úthlutun á því sem eftir er að
útdeila af mjólkurframleiðslunni til
að sjá hvað þeir megi í raun fram-
leiða og sauðfjárbændur ættu líka
von á kvóta næsta haust og vildu
vita um framleiðslurétt sinn, áður
en þeir færu út í framkvæmdir.
Sagði Magnús að loðdýrabændur
virtust halda sfnu stríki f fram-
kvæmdum, þrátt fýrir verðfall á
skinnum, enda væri að sumu leyti
hagstæðara að byggja upp loð-
dýrabúin í lægðunum sem alltaf
væru í þessari grein.
hefðu tekið við þeim málaflokki
þegar miklir erfíðleikar blöstu við
vegna aflabrests. „Frá því verki var
heldur ekki hlaupið," sagði hann.
Forsætisráðherra kvaðst leyfa
sér að fullyrða, og vita raunar með
vissu, að vandamál fjölmargra hús-
byggjenda hefðu verið leyst með
skuldbreytingum og hagkvæmum
viðbótarlánum. „Hitt er svo rétt,
að sumir voru það djúpt sokknir,
að þessi aðstoð hefur ekki nægt.
Enn aðrir reistu sér hurðarás um
öxl, eða hafa af öðrum óskyldum
ástæðum lent f fjárhagserfíðleikum
og hætt húsnæði sínu í þvf sam-
bandi. Slfk dæmi hafa iðulega verið
gerð að einskonar vitnisburði um
erfíðleika heildarinnar," sagði hann.
Þá fjallaði forsætisráðherra um
hækkanir á húsnæðislánum í tíð
núverandi ríkisstjómar. Hann
sagði, að árið 1982 hefðu útlán
Húsnæðisstofnunar numið 2% af
þjóðarframleiðslu, en árið 1985
3,6%.
Aukið frelsi er eitt,
fijálshyggja annað
Steingrímur vék síðan að tali um
fíjálshyggju. Hann kvaðst ekki fá
séð, að rétt væri, að hin raunveru-
lega fíjálshyggja eða öfgar mark-
aðskerfísins hefðu aukist svo
nokkm næmi á undanfömum ámm.
í því sambandi mættu menn ekki
mgla saman auknu frelsi og fíjáls-
hyggju. Innflutningshöft hefðu t.d.
verið afnumin fyrir áratugum, og
stærsta skrefíð í átt til fíjáls inn-
flutnings verið tekið 1971 er ísland
gerðist aðili að EFTA og tók upp
viðskiptasamband við Efnahags-
bandalagið. „Innflutningur á ýmiss
konar óþarfa, sem oft er nefndur í
þessu sambandi, hefur því ekkert
með fíjálshyggjuna að gera, heldur
er afleiðing af viðskiptasamningum
okkar íslendinga. Við getum ekki
einfaldlega stöðvað innflutning á
slíku, ef við viljum halda tollftjáls-
um innflutningi á sjávarafurðum
o.fl. til viðkomandi landa, en það
er okkur lífsnauðsyn," sagði hann.
„Helst er það á sviði peninga-
mála, að ftjálsræði hefur farið
nokkuð úr böndum," sagði forsætis-
ráðherra. Einkum hefði sala skulda-
bréfa á verðbréfamörkuðum bent
til þess. Fijálsræði á þessu sviði
væri þó miklu minna en af væri
látið. Það væri hins vegar rétt, að
vextir væm of háir, en um lækkun
raunvaxta gilti, að oft væri hægara
um að tala en í að komast. Hann
sagðist ekki hafa heyrt neinn and-
mæla því, að vextir þyrftu að vera
jákvæðir. Aðeins með því móti væri
unnt að gera ráð fyrir spamaði, sem
væri afar mikilvægt. Hann kvaðst
vona, að með hjaðnandi verðbólgu
og auknum spamaði innanlands
myndi reynast unnt að ná smám
saman jafíivægi á innlendum ijár-
magnsmarkaði og lækka raunvexti
fljótlega. „Reyndar munu atvinnu-
fyrirtæki og einstaklingar ekki þola
til lengdar þá háu vexti, sem nú
em,“ sagði hann. í framhaldi af
þessum orðum sagðist forsætisráð-
herra hafa verið því fylgjandi að
undanfömu, að innlendum fyrir-
tækjum yrði leyft að taka lán er-
lendis á eigin ábyrgð, þ.e. án ríkis-
eða bankaábyrgða. Það myndi
verða til þess að draga úr þrýstingi
á innlenda peningamarkaðinn og
því verða til þess að vextir lækkuðu
fyrr.
Stærstu tímamót í ís-
lensku efnahag'slífi
Forsætisráðherra sagði, að efna-
hagsmálin hefðu verið meginvið-
fangsefni ríkisstjómarinnar. Þar
hefði ríkt alvarlegt ástand vorið
1983 og framsóknarmenn ekki talið
sæma að hlaupa frá vandanum og
því myndað stjóm með Sjálfstæðis-
flokknum. Hann sagði, að fram-
sóknarmenn hefðu lagt höfuð-
áherslu á markviss afskipti stjóm-
valda af kjarasamningum og um
það hefði náðst samstaða. „Eg vil
einnig leggja á það áherslu, að svo
fljótt og vei tókst til ekki síst vegna
þess, að fullkomin samstaða var í
ríkisstjórninni um þessi mál og
samstarf við fjármálaráðherra
ágætt,“ sagði hann.
Steingrímur fjallaði síðan um
samningana og aðdraganda þeirra.
Hann sagði, að samningamir mörk-
uðu ein stærstu tímamót, sem orðið
hefðu í íslensku efnahagslífí. í kjöl-
far þeirra væri ríkissjóður hins
vegar kominn í afar þrönga og
erfíða stöðu. „Það er sannfæring
mín, að þeir sem vilja viðhalda
velferðarkerfínu og hafa einnig
nokkurt Qármagn til nauðsynlegra
framkvæmda, sem er grundvöllur
byggða víða um land, verði fljótlega
að gera það upp við sig að auka
tekjur ríkissjóðs á ný, eða hverfa
að öðrum kosti frá þeirri grundvall-
Áhyggjm* af Fram-
sóknarflokknum
Forsætisráðherra kvaðst rekja
þessar breytingar vegna þess að
þær hlytu að hafa gífurleg áhrif á
starfsemi stjórnmálaflokkanna.
„Eg er þeirrar skoðunar, að enginn
íslenskur stjómmálaflokkur hafí til
fulls gert sér grein fyrir þeim áhrif-
um. Hver sá flokkur, sem vill vera
lifandi og sterkur, verður þó að
skilja þessar breytingar og laga sig
eftir þeim,“ sagði hann og kvaðst
hafa áhyggjur af því, að Framsókn- ^ .
arflokkurinn í heild brygðist ekki '
skynsamlega við.
„Við eigum að ræða um breyting-
amar, óskir fólksins og kröfur, með
opnu og jákvæðu hugarfari. Við
verðum að hefja nýja og sterka sókn
í þéttbýlinu. Við megum aldrei
halda fram hlut stijálbýlisins á
kostnað þéttbýlisins. Við eigum að
leggja áherslu á sameiginlega hags-
muni. Við eigum að hætta andstöðu
gegn breytingum, sem era óhjá-
kvæmilegar, en undirbúa menn til ^
að þola þær, og stuðla að þeim, sem
era jákvæðar."
Loks lagði Steingrímur áherslu á
nauðsyn þess að ungt fólk og konur
kæmu til starfa fyrir Framsóknar- j
flokkinn. „Okkur sem eldri eram
ber að hvetja þá yngri til þess að
taka þátt í stjómmálum og víkja
svo að þeir megi komast til áhrifa,"
sagði hann. Og einnig: „Konum ber
meiri aðild að forystusveit. Eftir
næstu þingkosningar skulu þær
verða nokkrar í þingliði flokksins."
15. mars - alþjóðadagur neytendaréttinda:
7 meginkröfur
neytendafélaga
Alþjóðadagur neytendarétt-
inda er í dag, 15. mars. Frá þvi
1983 hafa Alþjóðasamtök neyt-
endafélaga (IOCU), haldið dag-
inn hátíðlegan ásamt neytenda-
félögum um allan heim.
Neytendasamtökin hafa reynt að
velqa athygli íslenskra neytenda á
sjálfsögðum lágmarksréttindum
neytenda og styðja eindregið þær
7 meginkröfur sem neytendafélög
um allan heim hafa sett fram
sameiginlega um árabil. Upphaf-
lega var um 4 atriði að ræða, sem
Kennedy, Bandaríkjaforseti, setti
fram í frægu ávarpi til þjóðþings
Bandaríkjanna, þann 15. mars
1962. Síðan hefur 3 verið bætt við.
Hin 7 atriði sem hér er talað um
eru 1) Öryggi, 2) Upplýsingar, 3)
Val, 4) Áheym, 5) Bætur, 6)
Fræðsla, og 7) Umhverfí.
Mikill sigur vannst í réttindabar-
áttu neytenda þann 9. apríl 1985.
þann dag samþykkti allsheijarþing
Sameinuðu þjóðanna, samhljóða,
stefnumörkun í neytendavemd,
(Guidelines on Consumer Protec-
tiort). Þessar meginreglur, sem full-
trúar allra aðildarríkja SÞ þar á
meðal Islands, samþykktu, öðlast
að sjálfsögðu ekki lagagildi fyrr en
hvert þjóðþing hefur samþykkt þær
sem lög. Neytendasamtökin ætla
ríkisstjóm íslands, að óreyndu, ekki
þá skinhelgi, að samþykkja eitthvað
á vettvangi Sameinuðu þjóðanna,
sem ekki er fullur vilji til að lögfesta
hér heima. Það er þó ljóst að til
þess að svo megi verða þurfa neyt-
endur að knýja á um efndir.
FLOKAMARKAÐUR FLOAMARKADUR FLÓAMARKADUR
ÁHALLVEIGARSTÖÐUM í DAG, LAUGARDAG, 15. MARS, — OPNUM KL. 13.00. ÚRVAL EIGULEGRA MUNA MA:
Fatnaður, skótau, búsáhöld, skrautmunir, lampar, leikföng, metravara íúrvali, húsgögn, o.m.f. NÝTT OG NOTAÐ.
Kaffi og heitar vöfflur með rjóma fýrir vægt gjald. .
ALLERVELKOMNIR J.C.VK