Morgunblaðið - 15.03.1986, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1986
Minning:
Guðrún Sigurgeirs-
dóttir Selfossi
Fædd 28. desember 1909
Dáin 6. mars 1986
Blessuð sértu, sveitin mín
sumar, vetur, ár og daga.
Engið, fjöllin, áinþín
—yndislega sveitin mín -
heilla migogheimtil sín
huga minn úr fjarlægð draga.
Blessuð sértu, sveitin mín,
sumar, vetur, ár og daga.
(Bjami Þorsteinsson.)
Þetta ljóð elskaði Gunna frænka,
eins og hún elskaði sveitina sína
og allt sem henni tilheyrði. Mig
langar að minnast með örfáum
orðum elsku afasystur minnar,
Guðrúnar Sigurgeirsdóttur, sem
lést í Borgarspítalanum hinn 6.
mars sl.
Nú ríkir sorg á Fossi, skarðið er
stórt, húsfreyjan góða kölluð burt,
falleg og fínleg kona, sem með reisn
rækti sitt heimili af ótrúlegu þreki
alla tíð. Söknuðurinn er sár, en
minningin um ljúfa og göfuga konu,
sem hafði að leiðarjósi að sælla er
að gefa en þiggja, lifir áfram í
hjörtum þeirra mörgu er þekktu
hana.
Eg er svo lánsöm að eiga ótal
minningar um Gunnu frænku, allt
frá því ég var lítil hnáta í löngum
eða stuttum heimsóknum hjá ömmu
og afa á Selfossi, ömmu mína
missti ég snemma, en Gunna var í
næsta húsi með útbreiddan faðminn
og veitti lítilli stúlku og ungum
bróður hennar alla sína ást og
umhyggju. Gunna var ein af þessum
traustu máttarstólpum, sem aldrei
brugðust, stóð alltaf sem hetja í
hverri raun, hún hafði dásamlega
eðlislæga eiginleika til að gefa af
sjálfri sér og var allt sitt líf líknandi
bæði mönnum og málleysingjum.
Hún var sönn góð kona, sem aldrei
ætlaðist til neins sjálfri sér til
handa. Hennar gleði í lífínu var að
gleðja aðra.
Ég veit að elsku frænka var orðin
þreytt, búin að skila miklu ævi-
starfí. Hún þráði hvfld, en fram á
hinstu stund var umhyggjan fyrir
hennar nánustu allsráðandi. Hún
sofnaði hljóðlega með þeirri rósemd
sem einkenndi allt hennar jarðneska
líf, inn í þá æðri tilveru sem hún
trúði á. Hjartans þökk fyrir allt sem
hún veitti okkur. Megi hún hvfla í
friði.
Elsku Bjami og Sigurgeir, ykkar
missir er mestur, ég og Asgeir ísak,
bróðir minn, sendum ykkur innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Anna Victoría Kristjánsdóttir
Þunga sigursöngva syngur elvan
mest á Fróni, þar sem hún steypist
á flúðunum við Selfoss, myndar
hringiður og breiðir síðan úr sér í
hægum straumi um Flóa og Olfus
til sjávar. Hún hafði brotist undan
jökulhettu Langjökuls á öræfum,
iljað sér við Fögruhlíð á Kili, speglað
skríðjöklana við Hítarvatn og
myndð friðartákn almættisins í
regnbogans litum í Gullfossi, þar
sem hún kyssir sunnlenskar byggð-
ir. Þá fléttast hún tæru bergvatninu
í Soginu úr Þingvallavatni, barma-
full af lífsbjörg og orku, en kennir
tregans í hringiðunum við Selfoss,
því senn kveður hún þennan dýrðar-
geym. „Þú Amesþing, ég elska
nafnið þitt", sagði skáldið á Hæli
og fljótið tekur undir á flúðunum
við Selfoss.
Hér á bakkanum verður í dag
lögð til hinstu hvflu Guðrún Sigur-
geirsdóttir frá Selfossi eða Fossi
eins og gamli bærinn er gjaman
nefndur. Hér var hún fædd og hér
ól hún alian sinn aldur við niðinn úr
fljótinu, vaxandi mannlíf og gæsku
hins undurfagra héraðs. Gunnu
þótti líka vænt um allt fólk, einstök
rausnarkona heim að sækja og þeir
voru margir, sem sóttu hana heim,
því Selfoss er í þjóðbraut.
Foreldrar Gunnu voru hjónin á
Selfossi Sigurgeir Ambjamarson
bóndi og Jóhanna Andrea Bjama-
dóttir. Bræður hennar voru þrír,
þeir Ambjöm kennari og kaup-
maður á Selfossi, Höskuldur Guðjón
starfsmaður Kaupfélags Ámesinga
og Bjami bóndi á Selfossi, sem nú
lifir einn systkina sinna. Föðurfor-
eldrar þeirra systkina fómst bæði
í landskjálftunum miklu þegar
bærinn á Selfossi hmndi. Sigurgeir
heitinn á Selfossi var meðal annars
ættaður frá Birtingaholti í Hmna-
mannahreppi. Jóhanna heitin var
af Bergsætt og í frændgarðinum
vom meðal annarra sr. Jón eld-
prestur Steingrímsson og Tryggvi
Gunnarsson, bankastjóri sem brúaði
elvuna miklu við Selfoss.
Árið 1925 fluttust móðurforeldr-
ar mínir að Tryggvaskála á Selfossi
með dætur sínar fímm og æ síðan
hefur verið órofa vinátta með fjöl-
skyldu minni og Fossfólkinu. Er
beðið fyrir innilegar þakkir til lát-
innar vinkonu og félaga.
Þá vom nákvæmlega fimm hús
á Selfossi og getur hver og einn
gert sér þá gífurlegu breytingu á
höfuðstað Suðurlands í lund, sem
fer um Selfoss núna. Þessi mikla
saga var lífíð hennar Gunnu minnar
á Fossi. Hún þekkti fólkið, tók þátt
í gleði þess og sorg, lífí og starfí.
Hún var gleðigjafí í vinahóp og
höfðingi heim að sækja. Sjálfsagt
skiptir það mörgum tonnum laxam-
ir, sem Gunna er búin að gefa um
ævina, og skipti þá engu hvar við-
takandinn var á landinu.
Bróðursyni sínum Sigurgeiri
Höskuldssyni var Gunna sem móðir
og hugsaði um báða foreldra sína
og bræður fram í andlátið ásamt
fleiri gamalmennum. Hún var mikil
húsmóðir og mátti aldrei neitt aumt
sjá. Frændfólki og vinum var hún
bjarg í stormbyljunum.
Bjami minn, Sigurgeir og Sigrún,
ég færi ykkur mína dýpstu samúð,
og ítreka saknaðarkveðjur frá móð-
ur minni og systmm hennar. Aigóð-
ur Guð geymi Gunnu mína á Fossi.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson
Guðrún fæddist að Selfossi við
Ölfusá, en þar bjuggu foreldrar
hennar, þau Jóhanna Bjamadóttir
og Sigurgeir Ambjamarson. Þóttu
þau hin mestu myndarhjón, af góðu
bergi brotin.
Nú, þegar ég og kona mín, Elín
S. Jakobsdóttir, kveðjum hina
tryggn °g sönnu vinkonu okkar,
Guðrúnu Sigurgeirsdóttur, verður
mér fyrst fyrir að reika í huganum
langt aftur í tímann, þar sem ég
var sem lítill drengur að alast upp
í nágrenni við Selfoss. Þá bjuggu
aðeins tveir bændur á Selfossi, og
bæir þeirra aðgreindir sem austur-
bær og vesturbær. Vom heimili
þeirra orðlögð sem myndar- og
sóma- heimili.
Minnist ég þess, að móðir mín
og fleiri í nágrenninu höfðu orð á
því, hve hin unga kona, Jóhanna í
austurbænum, væri mikil glæsi-
kona og mikil húsfreyja í alla staði.
Þetta riijast upp nú vegna þess,
að síðar í lífínu fékk ég reynslu og
mikla sönnun fyrir því, hve Guðrún,
sem við nú kveðjum, hafði hlotið
mikið að erfðum af eðliskostum
sinnar ágætu móður.
Áratugum eftir þessar bemsku-
minningar, lágu leiðir okkar Am-
bjamar, bróður Guðrúnar, saman í
samstarfí sem kennarar. Samstarf
og frændsemi okkar leiddi svo til
nánari kynningar og langvarandi
vináttu við flölskylduna alla í aust-
urbænum á Selfossi. Varð ég þar
tíður gestur og naut hinnar mestu
gestrisni og vinsemdar. Skildi ég
þá betur en fyrr, að ekki hafði verið
ofmælt um reisn og mannkosti hús-
freyjunnar.
Milli okkar hjóna og Ambjamar
og konu hans, Viktoríu, myndaðist
vinátta, sem hélst til dánardægra
þeirra og síðar hélst alveg sérstakt,
þroskandi og vinsamlegt samband
milli konu minnar og Guðrúnar.
Guðrún naut ekki mikillar skóla-
göngu, frekar en allur fjöldi ungra
kvenna á þeim tíma. En hún las
mikið og lagði sig fram um að læra
og þroskast sem mest og best með
eigin viljaþreki og framtakssemi.
Náði hún því langt á þroska- og
þekkingarbraut, enda piýðilega
gefín, jafnt til munns og handa.
Fannst mér ætíð, að hún hafí náð
furðu langt í að skilja margskonar
flækjur hins mannlega lífs. Umfram
allt lærði hún þó að vinna, jafnt í
smáu sem stóru, af hinni mestu
samviskusemi og trúmennsku.
Þessir eiginleikar komu líka í
góðar þarfír, er hún tók við bústjóm
af móður sinni. Nokkur hin síðustu
ár hefir hún svo haldið heimili með
Bjama bróður sínum og Sigurgeiri
bróðursyni sínum. Þau reistu sér
saman í nýju og glæsilegu húsi, hið
fegursta heimili, þar sem Guðrún
hefír neytt sinna sérstöku eiginleika
til þess að gera allt sem fegurst
og mest aðlaðandi. Þar virtist ætíð
opið hús fyrir gesti og gangandi,
enda sífelldur straumur vina og
kunningja, er notið hafa þar hinar
einlægu gestrisni, gleði, hlýju og
velvildar á allan hátt.
Fegurð heimilisins á ytra borðinu
hefír engum dulist, hún blasir svo
glæsilega við öllum þeim fjölda, er
þar hafa litið inn til skemmri eða
lengri dvalar. En hin innri fegurð
var mér þó ennþá meira virði, feg-
urð, sem mér fannst eins og hún
Guðrún hefði sérstaklega flutt með
sér úr gamla bænum, fegurð mann-
kærleika og fómfysi. En það voru
þeir eiginleikar, sem okkur hjónum
virtust vera sterkustu þættimir í
eðlisfari Guðrúnar. Þá eðlisþætti
hafði hún bæði hlotið að erfðum,
og síðan sjálf tvinnað saman, svo
að af þeim myndaðist hin sanna
vinátta, einlægni og velvild til alls
og allra, sem henni kynntust, og
þeir voru æði margir, er þess nutu
á margvíslegan hátt. Því það tel ég
mála sannast, að Guðrún væri
hvorttveggja í senn, vinamörg og
vinföst.
Við hjónin kveðjum svo Guðrúnu
með mikilli virðingu og innilegri
hjartans þökk fyrir allt og allt.
Jafnframt vottum við bróður
hennar, Sigurgeiri frænda hennar
og öðrum eftirlifandi skyldmennum,
svo og öllum hinum mörgu vinum
hennar okkar dýpstu samúð.
Fyrir hönd okkar hjóna,
Halldór Guðjónsson
Þegar Gunna á Fossi er kvödd í
hinsta sinn verður mér erfitt að tjá
hug minn, þvi honum verður ekki
lýst með orðum. Gunna á Fossi var
hún kölluð af vinum og ættingjum.
Fullu nafni hér hún Guðrún, nafn
ömmu sinnar bar hún, en það var
Guðrún Magnúsdóttir, kona Arin-
bjöms Þórarinssonar. Þau fómst í
landskjálftanum mikla 1896 þegar
bæjarhúsin á Selfossi hmndu. For-
eldrar Gunnu vom hjónin Jóhanna
Bjamadóttir og Sigurgeir Ambjam-
arson bóndi. Tveir bræður Gunnu
em látnir: Höskuldur og Ambjöm.
Eftir lifír Bjami, sem er yngstur
systkinanna. Gunna var ein af þeim
persónum sem gaf og fómaði sér.
Stærsta hlutverk hennar fínnst mér
vera þegar hún tók son minn, Sigur-
geir Höskuldsson, að sér, ungabam,
og ól hann upp sem besta móðir.
Gunna tók þá tryggð við sínar
æskustöðvar, þaðan fór hún aldrei.
Hún undi sér á bakkanum við Ölf-
usá. Þar var hún fædd og ólst upp
í faðmi fjölskyldu foreldra sinna og 1
bræðra. Síðustu árin hélt hún heim-
ili með Bjama bróður sínum og
Sigurgeiri syni mínum í hinu fallega
húsi þeirra sem stendur í túninu.
Starf Gunnu verður seint fullþakk-
að. Kröftum sínum fómaði hún í
annarra þágu. Foreldmm sínum
þjónaði hún af sannri tryggð. Öldr-
uðum föðurbróður sínum veitti hún
aðhlynningu. Hann var á heimili
foreldra hennar til æviloka. Bræðr-
um sínum hjúkraði hún í veikindum
þeirra síðustu stundimar. Ég á
Gunnu mikið að þakka fyrir það
hvernig hún reyndist mér og syni
mínum. Á vináttu okkar bar aldrei
nokkurn skugga. Ég get aldrei að
fullu þakkað þá ást og umönnun
serp Gunna veitti honum, því þar
var sönn móðurást að verki.
Sárt er að kveðja Gunnu þegar
sólin fer hækkandi á lofti og gefur
lífínu yl sinn og birtu. Gott er að
geta þakkað forsjóninni að hún
þurfti ekki að dvelja lengi fjarri
heimahögum sínum og glíma við
veikindi. Hún hafði skamma viðdvöl
í sjúkrahúsi áður en hún kvaddi
þenhan heim. Bjami bróðir hennar
og Sigurgeir hafa mikið misst. Lífí
góðrar konu er lokið. Blessuð sé
minning hennar.
Hulda Stefánsdóttir
Hún Gunna á Fossi er dáin. Mig
setti hljóðan er mér bámst þessar
fréttir símleiðis að morgni sunnu-
dagsins 9. mars sl. Nú er fallin frá
fómfús og góð kona, vom fyrstu
hugsanir sem flugu um huga minn.
Kynni mín af Gunnu, eins og hún
var oftast kölluð, hófust fyrir um 8
ámm er ég vann um tíma með bróð-
ursyni hennar.
Strax fyrsta skiptið sem ég sat
í eldhúsinu hjá henni og þáði góðan
kaffisopa og spjallaði við hana um
daginn og veginn, fann ég að hún
bjó yfír mikilli hlýju og einlægni.
Það var engum í kot visað sem átti
Gunnu að vini. Hún var alltaf góð
viðræðu og vel inni í flestum málum
sem bám á góma. Hún bjó einnig
yfír mikilli þekkingu um gömlu
dagana og hvernig lífið gekk fyrir
sig þá. Oft þegar hún sagði mér
frá hlutum sem gerst höfðu í gamla
daga, eins og sagt er, þá talaði hún
tæpitungulaust og dró fátt undan
sem máli skipti. Margt af því sem
ég veit um heimabæ minn, Selfoss-
kaupstað, sem þróaðist í túnfætin-
um hennar Gunnu, hef ég gegnum
spjall mitt við hana.
Gunna átti marga góða vini og
ég held að allir geti þeir verið
sammála um að hana var alltaf
sérlega gott að heimsækja. Stund-
um kom það fyrir að brúnin var
þung á manni vegna einhvers per-
sónulegs vandamáls eða áhyggju-
efnis þegar maður heimsótti Gunnu,
en þegar haldið var heim á leið var
43
brúnin alltaf léttari, jafnvel þó
vandamálið hafí ekki verið til lykta
leitt. Gunna var fljót að setja sig í
spor annarra og sýndi þeim sem
átti bágt mikla hluttekningu. Þessir
eiginleikar öðrum fremur hafa
áreiðanlega aflað henni allra þeirra
vina sem hún átti.
Ég þakka fyrir að hafa fengið
að kynnast henni og minningin um
góða konu mun lifa í huga mér.
Bjami, bróðir Gunnu, og Siggeir,
bróðursonur hennar, sem Gunna
hugsaði um heimilið fyrir og bar
fyrir bijósti í hveiju efni, hafa nú
misst mikið.
Um leið og ég votta þeim tveimur
samúð mína svo og öðrum eftirlif-
andi ættingjum hennar bið ég al-
góðan Guð að styrkja þau í sorginni.
Lárus Þór Kristjánsson
Erhelífangi
minn hollvin ber
þásaknaégeinhvers
afsjálfummér.
Elskuleg vinkona, hún Gunna á
Fossi, er dáin. Við eigum svo bágt
með að trúa því, að hún sé horfín
okkur, því hún var svo samofín lífi
okkar í uppvextinum, þar sem for-
eldrar okkar reistu sér hús í túninu
í næsta nágrenni við Selfossbæina.
Því var daglegur samgangur á milli
heimilanna „á hólnum“, sem við
kölluðum svo, og alltaf var þar allt
í sátt og samlyndi.
Gunna fæddist á Selfossi þann
28. desember 1909, dóttir hjónanna
Jóhönnu Bjamadóttur og Sigur-
geirs Arinbjamarsonar í Austur-
bænum á Selfossi. Eftir þeirra dag
tók hún við búi þeirra, ásamt bræðr-
um sínum Höskuldi og Bjama, en
Arinbjöm bróðir hennar rak versl.
Addabúð, mörgum að góðu kunnur.
Hann var kvæntur Viktoríu Jóns-
dóttur og em þau og Höskuldur
látin. Á heimilinu ólst upp sonur
Höskuldar, Sigurgeir, og sannlega
má segja að hún hafí reynst honum
sem besta móðir.
í minningu okkar er hún Gunna
alltaf gæðakonan góða, hlý, um-
burðarlynd og örlát í okkar garð,
svo sem allra annarra. Margan bar
að garði og öllum var tekið með
vinsemd og einstakri gestrisni.
Um leið og við systkinin og móðir
okkar minnumst Gunnu með þakk-
læti og söknuði, vottum við Bjama,
Sigurgeiri, Sigrúnu og bömum
hennar, Ömu Viktoríu og Ásgeiri
Isak, okkar innilegustu hluttekn-
ingu við fráfall hennar.
I fullvissu þess að ef einhver á
góða heimkomu á hún Gunna okkar
hana.
Veri svo vinkona okkar kært
kvödd.
Systkinin frá Selfossi IV.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma,
MARGRÉT BJARNADÓTTIR,
Ystu-Vík,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 13. mars.
Hólmgrfmur Sigurðsson,
Sigurður Hólmgrímsson, Guðrún Eirfksdóttir,
Kristin Hólmgrímsdóttir, Magnús Vilhjólmsson,
Bjarni Hólmgrimsson, Sigríður Guðmundsdóttir,
Bergljót Hólmgrímsdóttir, Einar Sigfússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför
TÓMASAR GÍSLASONAR
frá Melhóli, Meðallandi,
Reykjamörk 12,
Hveragerði.
Jytta Eiberg og börn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför manns-
ins míns,
EIÐS FINNSSONAR
frá Skriðuseli.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks á 14G og gervinýrnadeild
Landspítalans.
Bergþóra Magnúsdóttir.