Morgunblaðið - 15.03.1986, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR15. MARZ1986
fclk f
fréttum
Roger
Moore
er fluttur
til Sviss
HNETUBARINN:
Þar fást ótal tegnndir
af hnetum og meðal annars þær
dýrustu í heimi
Oðru hvoru spretta upp nýjar
verslanir og á ferð niður
Laugaveginn fyrir skömmu rakst
umsjónarmaður „Fólks í fréttum" á
búð með nýstárlegu sniðu. Þessi
verslun ber nafnið Hnetubarinn.
Þama er á ferðinni nýjung fyrir
landann, þó eflaust hafl íslenskir
ferðamenn rekist á slíkt í útlandinu.
Einn eigandi Hnetubarsins orðaði
það svo:
„Ég er töluvert á ferðinni og rakst
á þetta í Kaupmannahöfn fyrir
nokkrum árum. Hugmyndin varð
eiginlega til þar, ég smakkaði sæl-
gætið og hef síðan ávallt kippt með
mér heim poka af því, þegar ég hef
verið erlendis.
Smám saman fór ég að athuga
möguleikann á því hvort ég gæti
ekki orðið mér úti um umboð fyrir
þetta góðgæti og leyft löndum mín-
um að kynnast þessu af eigin raun.“
Hnetubarinn selur að sjálfsögðu
hentur af öllum hugsanlegum gerð-
um og þar á meðal hefur verslunin
til sölu dýrustu hnetur í heimi, sem
eru ættaðar frá Hawaii.
Þá eru á boðstólum saltaðar og
ristaðar hnetur og hnetur sem er
ýmist er velt upp úr jógúrt, hunangi
eða þá súkkulaðihjúpaðar. Það eru
þó ekki einungis hnetur sem fást í
búðinni, heldur er hægt að kaupa
ávexti sem annaðhvort eru súkkul-
aði- eða jógúrthjúpaðir, rúsínur og
ekki má gleyma því að minnast á
japanskt ævafornt sælgæti, sem er
talið hagstætt fyrir þá sem eru að
spá í línumar. Góðgætið heitir hrís-
flögur og er búið til úr hrísgijónum
sem eru meðhöndluð á marga vegu
og krydduð ýmist með þangi, sesam-
fræjum, sjávarsalti eða öðru slíku.
Það er ótal margt fleira sem
vegfarendum stendur til boða og
verslunarhættir eru sérkennilegir.
Morgvinblaðið/Emilía
Hnetubarinn við Laugaveg 33 en eigendur verslunarinnar eru
Kristján Baldvinsson, Halldóra Kristbergsdóttir, Linda
Haraldsdóttir og Viktor Urbancic.
Viðskiptavinimir ganga um með
poka, taka sér litla skóflu í hönd og
moka í pokann sinn því sem hugur-
inn girnist. Að lokum er „gotteríið"
viktað og að sjálfsögðu greitt.
„Þetta hefur gengið með eindæm-
um vel og fólk tekið þessari til-
breytni með glöðu geði,“ sagði við-
mælandi Fólksins.
„Upphaflega kynntum við þetta á
heimilissýningunni „Heimilið 85“ og
þá fengum við það mikinn meðbyr
að við ákváðum að láta til skara
skríða um leið og viðeigandi húsnæði
fengist. Þetta er ekki bara keypt sem
sælgæti heldur hefur fólk verið að
kaupa þetta til að hafa út á súrmjólk-
ina sína á morgnana, í kökubakstur-
inn, á eftirréttinn og svo framvegis,"
sagði hann að lokum.
Roger Moore og Luisa
konan hans eiga
veglegt hús í Sviss, nánar
tiltekið þar sem ríka fólkið
fer í vetrarleyfi sín, í Gsta-
ad. Þau hjónin kynntust
annars fyrir rúmlega 25
árum og hafa haldið saman
í gegnum súrt og sætt.
Fjölskyldan hyggst nú búa
alfarið í Sviss og þá aðal-
lega vegna skattanna og
ætla að eyða mestum tíma
sínum í Gstaad. bömin
þeirra þijú ganga þar í
skóla og Geoffrey sem er
tvítugur hefur tekið þá
ákvörðun að leggja leiklist-
ina fyrir sig.
Fjölskyldan elskar snjó
og skíði og núna á milli jóla
og páska hyggst hún eyða
tímanum í að hitta vini,
skíða ogtaka lífinu með ró.
„Þetta er okkur fjöl-
skyldunni heilagur tími. Að
vísu þurfa bömin mín að
sinna sínu skólanámi,"
segir Roger en þar fyrir
utan emm við í fríi ég ekki
að leika og við öll heimavið.
Þetta er okkar unaðstími
og við elskum að vera til.
Liv og Don
Allt leikur í lyndi hjá
Liv Ullman og fjölskyldu
Nýlega vom lesendur þessarar
síðu upplýstir um að Liv
Ullman væri í Noregi að leika hjá
„Det Norske Theater".
Liv gifti sig á síðasta ári og þegar
norskur blaðamaður hitti hana að
máli fyrir nokkm sagði leikkonan.
„Mér líður afskaplega vel. Við Don
emm hamingjusöm. Hann á tvö
I Gstaad nar
Roger Moore
och hans Luisa
en magnlfik vii-
la och de ár
ocksá skrivna i
Schweiz av
skatteskái.