Morgunblaðið - 19.04.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.04.1986, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 86. tbl. 72. árg. LAUGARDAGUR 19. APRIL 1986 Prentsmiðja Morgimblaðsins 0 Israelska leyniþjónustan: Líbýumenn undirbúa víðfeðm hryðjuverk Washington, Trípólí. AP. HAFT VAR EFTIR „hátt- settum og áreiðanlegum“ mönnum innan ísraelsku leyniþjónustunnar í gær að í Libýu væri nú verið að skipuleggja víðtæk hryðju- verk gegn brezkum og bandarískum skotmörkum í Evrópu og Miðausturlönd- um. Enginn greinarmunur verður gerður á skotmörk- um, samkvæmt heimildum leyniþjónustunnar, sem þyk- ir áreiðanleg. Hefur leyni- þjónustan aflað upplýsinga fyrir Bandaríkjamenn um Ijón af völdum loftárásar- innar í vikubyrjun. Ronald Reagan, Bandaríkjafor- seti, vísaði í gær á bug ásökunum um að ætlanin hafi verið að drepa Moammer Khadafy, Líbýuleið- toga, í árásinni. Hann sagði það aldrei hafa verið ætlunina að drepa nokkum mann ísraelska leyniþjónustan telur enga möguleika á því að Khadafy verði steypt af stóli í framhaldi af loftárásinni, jafnvel þótt and- Vextir lækkað- ir í Bretlandi London. AP. FJÓRIR stærstu bankar Bretlands lækkuðu forvexti sína um hálft prósentustig í gær, úr 11% í 10,5%, vegna batnandi stöðu brezka sterl- ingspundsins að undanförnu. Er þetta önnur vaxtalækkun bankanna í apríl. Brezka pundið hefur styrktst að undanfömu gagnvart Banda- ríkjadollar og í vikunni fór gengi þess upp fyrir 1,50 dollara í fyrsta sinn frá því í október 1983. Barclays lækkaði vexti sína fyrstur stóru bankanna í gær- morgun, en Lloyds, Midland og National Westminster voru fljótir að svara í sömu mynt. Bankamir fjórir lækkuðu vexti úr 11,5% í 11,0% 8. apríl sl. Vextimir, sem lækkaðir vom, eru viðmiðunar- vextir, sem allir vaxtaútreikningar bankanna byggjast á. Skýrt var frá því að verðbólga hafi lækkað í Bretlandi og miðað við verðlagsþróun í marz nemi hún nú 4,2% á ári. Er um verulega hjöðnun að ræða frá í febrúar er verðbólgan stefndi í 5,1% á árinu. Allar líkur eru taldar á því að Seðlabanki Japans lækki forvexti á morgun, laugardag, þar sem •bandaríski seðlabankinn lækkaði forvexti í gærkvöldi um hálft pró- sentustig, úr 7,0% í 6,5%. Suður Afríka: Botha afnemur vegabréfslögin Jóhannesarborg, Suður-Afríku. AP. P. W. Botha, forseti Suður- Afríku, lýsti yfir í gær, að hætt yrði að handtaka blökkumenn fyrir brot á vegabréfalögunum og ákær- ur á hendur þeim, sem gerst hefðu brotlegir við þessi lög, yrðu felldar niður. Botha sagði, að niðurfelling vegabréfalaganna, sem meina blökkumönnum að búa og starfa í borgunum, nema með sérstöku leyfi, tæki gildi á miðvikudaginn kemur. Sama dag mundi stjómin kynna það fyrirkomulag, sem koma ætti í staðinn fyrir lögin og mundi byggjast á „skipulegri byggðastefnu í borgunum", án tillits til litarháttar. Vegabréfalögin eru meðal þeirra þátta, sem blökkumenn í Suður-Afríku hafa haft hvað mesta andúð á í aðskilnaðarstefnu hvíta minnihlutans. Hafa þau vald- ið því, að milljónir blökkumanna hafa verið neyddar til að halda sig innan marka „heimalandanna" tíu. Á undanfömum ámm hafa yfir 200.000 blökkumenn verið hand- teknir á ári hveiju fyrir brot á vegabréfalögunum. Arið 1985 datt tala handtekinna þó niður um u.þ.b. helming. Sjá frétt á bls. 26. staða við hann hafi aukizt. Khadafy heimsótti í gær sjúkra- hús í Trípolí þar sem liggur fólk sem slasaðist í loftárásinni. Þús- undir manna fylgdu til grafar 20 mönnum, sem biðu bana í loftárás- unum. Mikill æsingur var í lfk- fylgdinni. Mannfjöldinn hrópaði hástöfum að Líbýumenn myndu leggja Bandaríkin í rúst og heimt- aði heilagt stríð. Khadafy var ekki viðstaddur útforina en syrgjend- umir kölluðu nafn hans margsinn- is og sögðu hann leiðtoga sinn. FVakkar ráku fjóra Líbýumenn úr landi í gær þar sem upp komst um áform þeirra um hryðjuverk, samkvæmt upplýsingum áhrifa- manna í franska innanríkisráðu- neytinu. í apríl byrjun var tveimur Líbýumönnum vísað frá Frakk- landi þegar upp komst um áform þeirra um vélbyssu- og hand- sprengjuárás á bandaríska sendi- ráðið í París. John C. Whitehead, aðstoðamt- anríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að það færi eftir við- brögðum og hegðan Khadafys, hvort framhald yrði á hemaðarað- gerðum gegn Líbýu. Tveir „útlendingar" vom hand- teknir rétt við samkomustað bandarískra liðsforingja í Ankara í gærkvöldi með öfluga sprengju í fómm sínum. Öryggisvörðum við samkomustaðinn þótti tveir menn, sem nálguðust, gmnsamlegir og báðu þá að nema staðar. Mennimir köstuðu þá frá sér tösku hlaðinni sprengiefni og reyndu að komast undan en vom eltir uppi. Sprengj- an var gerð óvirk. Tveirtugir manna, sem sagðir eru hafa látið lífið í loftárás Bandaríkja- manna á Líbýu, voru bornir til grafar í Tripólí í gær og var myndin tekin við það tækifæri. Þúsundir manna fylgdu hinum látnu til grafar og var mann- fjöldinn mjög æstur. AP/Símamynd AP/Símamynd Moammar Khadafy, Libýuleiðtogi, kyssir hönd ungrar stúlku á sjúkrahúsi í Trípólí í gær. Stúlkan er sögð hafa særst í Ioftárásinni á Trípólí aðfaranótt þriðjudags. Beirút: Einn myrtu gíslanna bandarískur Beirút. AP. STAÐFEST var í gærkvöldi að einn mannanna þriggja, sem hryðjuverkamenn myrtu í Lí- banon í fyrrakvöld, hafi verið bandarískur. Hinir tveir voru brezkir, en þremenningarnir voru gislar öfgamanna í Líban- on um skeið. Bandaríkjamaðurinn hét Peter Kilburn og var hann bókavörður í bandaríska háskólanum í Beirút. Honum var rænt árið 1984. Bret- amir vora kennarar að nafni Leigh Douglas og Philip Padfield. Á líkum þremenninganna fund- ust miðar þar sem á stóð að þeir hefðu verið njósnarar og verið iífl- átnir vegna loftárásarinnar á Líbýu. Þremenningarnir höfðu verið skotnir í höfuðið. Sjá frétt á bls. 26.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.