Morgunblaðið - 19.04.1986, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.04.1986, Blaðsíða 32
fc32 MORGUNBLADIÐ.'LAUGARDAGUR Í9. APRÍL1986 y Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra: Skatttekjur ríkis- íns hafa mínnkað um 3.800 milljónir króna — í tíð núverandi ríkisstjórnar „Veruleg’ umskipti hafa orðið í skattamálum. Beinir skattar hafa verið lækkaðir um 1.400 milljónir króna, sem er um það bil helmingur af nettótekju- skatti einstakling-a. Skattabyrði einstaklinga til ríkisins vegna beinna skatta hefur lækkað um því sem næst fjórðung frá árinu 1982.“ Þannig komst Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra, að orði i útvarpsumræðum (eld- húsi) í fyrrakvöld. — Fjármála- ráðuneytið vinnur nú að heild- aruppstokkun á skattakerfinu og tillögugerð um nýtt tekjuöfl- unarkerfi, m.a. til þess að ná tökum á dulinni atvinnustarf- semi og skattsvikum. Fjármálaráðherra sagði að óbeinir skattar og tollar hefðu og lækkað verulega. Launaskattur hefur verið afnuminn í fiskvinnslu og iðnaði. Verðrjöfnunargjald af- numið í verði raforku. Samtals hafa skatttekjur ríkissjóð verið færðar niður um rúmlega 3.800 m.kr. í tíma núverandi ríkisstjóm- ar. Fjármálaráðherra sagði að þessar umfangsmiklu skattalækk- anir, sem og aukin fjárframlög til húsnæðismála, hafi með öðru valdið hallarekstri ríkissjóðs. í undirbúningi er heiidarupp- Þorsteinn Pálsson stokkun á skattakerfínu og til- lögugerð til breytinga. Ástæðan er fyrst og fremst sú að upplýsing- ar nefndar, sem ríkisstjómin fól að meta dulda atvinnustarfsemi og skattsvik, gera það óhjá- kvæmilegt að „byggja hér upp nýtt tekjuöflunarkerfi, bæði beinna og óbeinna skatta, eins og unnið hefur verið að að undan- fömu“. Umsvif skattsvika: Niðurstöður nefndar Stuttar þingfréttir Skriður á stjórnar- frumvörpum Fundir vóru i báðum þingdeild- um í gær, föstudag, og þingstörf halda áfram í dag, iaugardag, enda styttist nú óðum í þing- lausnir, sem enn eru tímasettar síðasta vetrardag, 24. þessa mán- aðar. Ein lög vóru samþykkt í efri deild, um talnagetraunir, en fjölmörg stjómarfrumvörp „skriðu" hratt áfram í báðum þingdeildum. Lög um talnagetraunir Hin nýju lög um talnagetraunir heimila dómsmálaráðherra að veita Iþróttasambandi Islands, Ung- mennafélagi íslands og Öryrkja- bandalagi Islands ieyfí til þess að starfrækja saman, í nafni félags, sem samtök þessi stofna, getraunir, er fram fara „með þeim hætti, að á þar til gerða miða er skráð eða valin röð talna og eða bókstafa". Nokkur rimma stóð um þetta frumvarp. Breytingartillögur vóru felldar. Frumvarpið var samþykkt með 14:4 atkvæðum í efri deild. og tillögnr til úrbóta ÞORSTEINN Pálsson, fjármála- ráðherra, hefur lagt fyrir Al- ’ þingi skýrslu um störf nefndar sem kannaði umfang skattsvika, samkvæmt þingsályktun þar um frá því í maí 1984. Hér á eftir fara samandregnar niðurstöður og tillögur til úrbóta, sem nefnd- in hefur skilað. Albert Guð- mundsson, fyrrverandi fjármála- ráðherra, skipaði nefndina. For- maður hennar var Þröstur Ólafs- son, hagfræðingur. Samandregnar niður- stöður • 1) „Niðurstaða starfshópsins er sú að umfang dulinnar starfsemi hérlendis sé á bilinu 5—7% af VLF. 1 Ef miðað er við 6% sem meðaltal nemur þetta um 6,5 milljörðum króna árið 1985 m.v. áætlaða verga landsframleiðslu. Tap hins opinbera vegna van- goldinna beinna skatta og sölu- skatts má áætla um 2,5—3,0 millj- arða króna árið 1985 (sjá kafla 4.2). • 2) Samkvæmt niðurstöðu skoð- anakönnunarinnar (4.4.5) og mats- aðferðarinnar (4.3) eru mestar líkur fyrir dulinni starfsemi og skattsvik- um í eftirtöldum greinum, raðað eftir áhættustigi: a. Byggingarstarfsemi, b. Persónuleg þjónustustarfsemi (s.s. bílaþjónustugreinar, gúmmíviðgerðir, hjá hár- greiðslu- og snyrtistofum o.s.frv.), c. Iðnaður, verslun, veitinga- og hótelrekstur. • 3) Engar óyggjandi leiðir eru til að áætla söluskattssvik. Samkvæmt þeirri aðferð sem lýst er í kafla 5 má gera ráð fyrir að umfang sölu- skattssvika hér á landi sé um 11% af skiluðum söluskatti. Þetta jafn- gilti um 1,3 milljörðum kr. 1985. • 4) Helstu ástæður skattsvika teljum við vera þessar: a. Flókið skattkerfi með óljósum mörkum milli hins löglega og ólöglega. Frádráttar- og undan- þáguleiðir íþyngja mjög fram- kvæmd skattalaga og opna margvíslegar sniðgönguleiðir. b. Skattvitund almennings er tví- bent og verður óljósari eftir því sem einstök skattaleg ívilnun- arákvæði einstakra hópa aukast og skatteftirlitið versnar. Þetta grefur undan réttlætiskennd skattgreiðenda. c. Há skatthlutföll hafa áhrif á umfang skattsvika. Þau hvetja til þess að nýta sér sniðgöngu- möguleika og það þeim mun meira sem hlutföllin eru hærri. d. Auk þessa ber að nefna að eflaust á tilhneigir.g til lagasetn- ingar og opinberra hafta á ákveðnum sviðum sinn þátt í örvun til skattsvika." Tillögnr til úrbóta #1) „Skattalög og skattafram- kvæmd (kafli 8.1) a. Einfalda þarf skattalögin, fækka undanþágum og afnema margs konar frádráttarliði þannig að skattstofnar verði skýrir og afmarkaðir og greiðsluskylda auðreiknanleg. Einföldun skattalaga og fækkun undan- þága og frádráttarliða auðveldar öll skattskil virkara skatteftir- lits. Um leið þarf að fækka skatttegundum og gæta þess að einstakir skattstofnar séu ekki ofnýttir. b. Endurskoða þarf ák.væði um refsingu og álag. Setja þarf nýtt refsiákvæði um stórfelld skatt- svik inn í almenn hegningarlög þar sem fangelsi (allt að sex árum) yrði lagt við brotum. • 2) Bókhaldslög og fram- kvæmd þeirra (kafli 8.2) a. Herða þarf bókhaldseftirlit og viðurlög við brotum bókhalds- skyldra aðila. Feia ætti skatt- rannsóknarstjóra bókhaldseftir- litið með lögum og veita honum ýmsar auknar heimildir, s.s. sektarheimild vegna bókhalds- brota. b. Lögfest verði ótvíræð lagaheim- ild fyrir ríkisskattanefnd til þess að úrskurða sektir fyrir hrein bókhaldsbrot svipuð þeirri sem hún hefur vegna skattabrota. c. Sjálfstæð refsiákvæði komi í bókhaldslög. Brot verði þar skil- greind sjálfstætt eftir atvikum með mismunandi refsimörkum. Setja þarf í lögin ákvæði um heimild til sviptingar starfsrétt- inda að því leyti sem almenn ákvæði hegningarlaga eru talin ófullnægjandi. d. Endurskoða þarf ákvæði í al- mennum hegningarlögum um „stórfellda óreglusemi" í færslu bókhalds. Verknaðarlýsing ákvæðisins er óljós og refsimörk mjögvæg. e. Lögfest verði hlutræn refsi- ábyrgð lögaðila svipuð þeirri sem nú er að finna um skattabrot. • 3) Skattaeftirlit (kafli 8.3) a. Embætti ríkisskattstjóra verði breytt í stofnun er fari með heildarstjómun skattamála bæði faglega og verkstjómarlega. Það býður upp á mun meiri mögu- leika til bættrar verkaskiptingar og samræmdra vinnubragða sem bæta munu skatteftirlit. Öll úr- vinnsla og allt eftirlit með fram- tölum færi fram á einum stað þar sem sérhæft, menntað starfsfólk er fyrir hendi í nægi- legum mæli. Skattstofur í núver- andi mynd legðust niður, en eftir yrðu aðilar sem myndu veita upplýsingar til almennings og hugsanlega afla gagna vegna framtala. b. Til vara er lagt til að verkstjórn- arvald ríkisskattstjóra verði eflt og öll atvinnurekstrarframtöl verði unnin hjá embættinu svo og álagning og eftirlit með sölu- skatti. Skattstofunum verði fækkað en haldi þó áfram fyrr- verandi störfum að undanskild- um atvinnurekstrarframtölum, undir beinni verkstjóm ríkis- skattstjóra. c. Gera þarf verulegt átak í mennt- unarmálum starfsfólks á skatt- stofum. Endurvekja þarf skatt- skólann og festa hann betur í sessi. d. Komið verði á fót sérstakri eftir- litssveit sérhæfðra skattrann- sóknarmanna sem geri skyndi- kannanir á bókhaldi fyrirtækja og taki til rannsóknar flókin og erfíð framtöl. e. Endurskoðuð verði ákvæði um skattalega meðferð hlunninda- greiðslna." Skriður á síjórnar- frumvörpum Frumvarp um (verndar)toll á innfluttar kartöflur kom til annarr- ar umræðu í efri deild og frumvarp um lögvemdun á starfsheiti kenn- ara til annarrar umræðu í neðri deild. Nokkrar umræður urðu um bæði þessi mál, en skoðanir þing- manna um þau eru skiptar. Bæði þessi mál eiga eftir að fá meðferð í síðari þingdeild. Búizt er við að þau fái framgang fyrir þinglausnir. Meðal mála sem vóm á dagskrá neðri deildar vóm: Stofnlánadeild landbúnaðarins, fmmvarp um ríkis- borgararétt, fmmvarp um varnir gegn mengun sjávar og fmmvarp um lyfjafræðinga. Alexander Stef- ánsson, félagsmálaráðherra, mælti fyrir stjómarfmmvarpi um Hús- næðisstofnun ríkisins (húsnæðis- lánakerfið), sem flutt er í tengslum við nýgerða kjarasamninga, og samkomulag er um að fái fullnaðar- afgreiðslu á þessu þingi. A dagskrá efri deildar vóm m.a. fmmvarp um selveiðar (komið frá neðri deild), fyrsta umræða, fmm- varp um Seðlabanka íslands (einnig komið frá neðri deild), fyrsta um- ræða, fmmvarp um verðbréfamiðl- un, fmmvarp um sakadóm í ávana- og fíkniefnum (komið frá neðri deild) og fleiri mál. Þjóðaratkvæði um bjór? Fmmvarp þingmanna um þjóðar- atkvæði um bjór er enn í efrí deild. Talið er líklegt að það mál geti komizt til neðri deildar. Fmmvarp um bjór var samþykkt í neðri deild í fyrra en strandaði í efri deild. Fmmvarp um þjóðáratkvæði um bjór hefur líkur á samþykki í efri deild en jafn sterkar líkur standa til þess að það strandi, m.a. á tíma- skorti, í neðri deild. Tveir á móti lögverndun FRUMVARP um lögverndun á starfsheiti kennara var sam- þykkt með 24 atkvæðum gegn 2 í neðri deild alþingis. Mótatkvæði greiddu Karvel Pálmason og Pálmi Jónsson. Frumvarpið gengur nú til efri deildar. Tvö fmmvörp vom samþykkt í þingdeildinni, um Sakadóm í ávana- og fíkniefnum og Stofnlánadeild landbúnaðarins. Afmælisrit Kvenfélags Olafsvíkur komið út ólafsvfk. KVENFÉLAG Ólafsvíkur, sem varð 35 ára á síðasta ári, hefur nú gefið út vandað afmælisrit af þvítilefni. Afmælisritið sem er eingöngu skrifað af félagskonum, hefur að geyma margar greinar og frá- sagnir í lausu máli og bundnu. Nokkrar greinar em um fyrrver- andi forystukonur, lifandi og látn- ar, svo sem um Jóhönnu í Bifröst, Sigrúnu í Baldurshaga, Lám Bjamadóttur kaupkonu, Mettu Kristjánsdóttur og Magneu Böðv- arsdóttur. María Sveinsdóttir ritar afmælisgrein um félagið og skrá er um stjómir félagsins frá upp- hafí. Einnig er skrá um gjafír og Qárframlög um árin. Fjöldi mynda prýðir ritið sem er eins ojg fyrr sagði hið vandaðasta. Olsarar Qarri heimabyggð geta pantað ritið hjá stjóm félagsins, en hana skipa Ragnheiður Helgadóttir, sem er formaður, og aðrar konur í stjóminni em Sóley Halla Þór- hallsdóttir og Metta Guðmunds- dóttir. Helgi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.