Morgunblaðið - 19.04.1986, Page 53

Morgunblaðið - 19.04.1986, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19: APRÍL1986 Minning: AuðurErla Alberts- dóttir — Erla Björk Pálmarsdóttir Auður Erla Albertsdóttir Fædd 15. september 1958 Dáin 5. apríl 1986 Erla Björk Pálmarsdóttir fædd 16. apríl 1985 Dáin 5. apríl 1986 Dýpsta sæla og sorgin þunga svífa hljóðlaust yflr storð þeirramáleitalartunga tárinerubeggiaorð. Höf. ókunnur. í dag, laugardaginn 19. apríl, kveðjum við í hinsta sinn elskulega vinkonu, Auði Erlu Albertsdóttur, og litlu dóttur hennar, Erlu Björk. Á slíkum stundum setur mann hljóðan og minningamar um hin stuttu kynni streyma gegnum hug- ann. Við hjónin kynntumst þeim mæðgum ekki fyrr en í nóvember sl. en þá kom Auður með litlu dætumar sínar, þær Erlu Björk þá 7 mánaða og Kristínu Sveineyju 4 ára, á heimili okkar og var tilgangur Auðar með komu sinni að fá pössun fyrir telpumar, þannig að hún gæti stundað vinnu með heimilishaldinu. Var slík umleitun auðsótt, þar sem sýnt var að mikil persóna var á ferð. Auður var einstaklega hlýleg og jákvæð í viðmóti og þurfti ekki langar viðræður til að sjá að þar fór góð persóna. Frá þessari stundu varð góð vinátta milli fjölskyldn- anna og erum við hjónin þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast Auði Erlu og Erlu Björk og hefðum óskað að þau kynni hefðu getað varað lengur. Auður var listræn og myndarleg í höndunum og bar heimili hennar því augljós merki. Auður og eftirlifandi unnusti henn- ar, Pálmar Smári Gunnarsson, höfðu búið sér og litlu telpunni einstaklega fallegt heimili á ísa- fjarðarvegi 4 í Hnífsdal. Þegar við komum inn á heimili þeirra fundum við að þar ríkti það jafnvægi og öryggi sem einkenna ætti hvert heimili. Auður var Pálmari meira en unnusta, hún var honum einnig besti vinur og var auðfundið að þau bám fulla virðingu hvort fyrir öðm. Síðasta heimsókn þeirra mæðgna á heimili okkar var fimmtudaginn 3. apríl sl. og var þá ákveðið að hittast í Reykjavík á mánudaginn næsta á eftir og vom ýmis áform úppi um hvað gera skyldi þá næstu viku og var tilhlökkunin mikil. Hörmuleg fregn barst svo um miðjan laugar- dag; lítillar flugvélar frá ísaflrði var saknað og meðal farþega voru Pálmar, Auður og Erla Björk og var ákvörðunarstaðurinn Reykja- vík. Þær hörmungar sem þá urðu þarf ekki að rita hér, þeim hafa verið gerð skil. Nú sitjum við hljóð og sem lömuð og spytjum hvers vegna? En fátt verður um svör. Það er erfitt að átta sig á því að Auður kemur ekki oftar, hlý og brosandi, til okkar og ekki getum við notið gestrisni hennar á heimiii þeirra Pálmars og litli sólargeislinn þeirra, Erla Björk, hleypur ekki lengur um4 hjá okkur né tekur upp símtólið til að babla í og ekki skoðar hún oftar blómin, sem virtust vera hennar yndi, en við þá iðju ljómaði hún eins og sól í heiði. Samband þeirra Pálmars og Auðar var einlægt og gott og bar heimili þeirra því best vitni hvað þau voru samhent og samstillt. Missir Pálmars er mikill, að sjá á eftir elskulegri unnustu og einlægum vini og elskulegu litlu dótturinni. Enginn getur sefað slik- an harm nema góður Guð. Ekki er missir Kristínar litlu, sem tregar ástríka móður og litla systur, minni. Megi algóður Guð styrkja þau og styðja í söknuði þeirra svo og um alla framtíð. Við hjónin vottum öll- um aðstandendum Auðar Erlu og Erlu Bjarkar okkar dýpstu samúð og biðjum góðan Guð að milda þann harm sem þessu er samfara. Auði Erlu og Erlu Björk þökkum við samfylgdina, sem hefði mátt vera lengi. Ingileif G. Ögmundsdóttir, Bragi Benteinsson. Gunnar M. Björns son — Kveðjuorð Fæddur 18. nóvember 1930 Dáinn 24. mars 1986 Garðabær hefur misst einn af sínum þrautseigustu þolendum. Tel ég á engan hallað þótt bent sé á einstaka tryggð, lífstrú og sam- heldni Gunnars og Erlu, bama þeirra og fjölskyldna, þau veittu liðsinni og fordæmi til hags fyrir alla. Fyrir um það bil fimmtán ámm lá leið til vinnu yfir einhvetja hættu- mestu götu sem skólaböm þurftu að fara en það var Hafnarfjarðar- vegurinn á mörkum Lækjarflts og Lyngáss en langflestir nemendur Gagnfræðaskóla Garðabæjar þurftu að fara þessa leið til og frá skóla. Það hafði verið ekið á ein- hvern. Ég fór að huga að hver það væri því sem starfandi skólahjúkr- unarkona þekkti ég öll börn og unglinga og flesta aðra íbúa í sjón. í götunni lá Ársæll Gunnarsson með áverka. Við fómm í sjúkrabíln- um inn á slysadeild og boð vom látin ganga um hver og hverra manna hann væri. Er við höfðum beðið um stund á slysadeildinni birtust í dyrunum hávaxin og myndarleg kona og maður. Þau vom alvarleg og kvíðin á svip en áberandi stillt. Þetta vom Erla og Gunnar. Hann með stærstu og svip- mestu mönnum sem fyrir augu ber. Hann átti þá þegar erfitt um gang með eina hækju. Geigvænlegur, þungbær og ólæknandi sjúkdómur var byrjaður að vinna á stómm og sterkum líkama. Andinn, skapið og sálarþrekið urðu þó ekki buguð. Hjá engu þeirra. Þannig bar fundum mínum og þessara hjóna saman, á alvöru- stundu og öll okkar samskipti vom af alvöm eftir þetta, þótt bros skinu títt og gamanyrði féllu. Ársæll reyndist lítið meiddur og fékk að fara heim. Erla bað mig um fagleg viðvik fyrir Gunnar því læknir taldi að ef til vill myndu sprautugjafír geta styrkt og hjálpað. Engin heima- hjúkmn var fyrir hendi héma á þeim ámm og íbúar því háðir undir- tektum einhverra hjúkmnarkvenna sem hér bjuggu og þeir vom svo heppnir að vita um eða vera bent á. Allan kostnað þurftu þeir að bera sjálfir. Þörf fyrir slíka þjónustu var brýn. Engum var það ljósara en okkur sem leitað var til. Ekkert gat hindrað Erlu í að leita eftir öllum hugsanlegum úrbótum fyrir Gunnar. Umhyggjan var henni svo einlæg að hún snart það besta í manni. Við komu á heimili þeirra kynntist ég þeim betur. Hann sýndi mér frímerkjasafnið og póstkorta- safnið sem hann kunni margar sögur tengdar. Það var mikið af áætlunum á takteinum, stækkun hússins, möguleikar á áframhald- andi vinnu með breytingum, aðlög- un, þrotlausri elju og bjartsýni og undirstrikuðum góðvilja yfirmanna, góðvilja og hjálpfysi sem þau bæði þreyttust aldrei á að benda á í allra manna fari, sem þau áttu samskipti við. Þau voru samhent um að standa fyrir sínu. Síðar kom áætlun um lyftubúnað á tröppuhandriðið, hug- myndir fæddust, voru ræddar og framkvæmdar, vinir og ættingjar gengu til liðs. Við ræddum mikilvægi þess að geta leitað eftir heimahjúkrun þar sem þörfln var víða svo brýn og ég bað þau að leyfa mér að reyna að leggja fram reikning hjá sjúkrasam- laginu fyrir unnin verk hjá þeim. Með rólegri yfirsýn féllust þau á að ef það mætti verða öðrum að liði, flýta fyrir skilningi ráðamanna á þörfinni fyrir heimahjúkrun, en ekki svo að þau slyppu undan skyldu. Raunsæi þeirra beggja var skýrt og samstaðan alger. Það komst á heimahjúkrun í samvinnu við Hafnarfjörð og mikið létti Gunnari að mega leita eftir þjón- ustu sem var fyrir hendi, ævinlega fúslega veitt, vel metin og þökkuð. Fyrir rúmu ári vorum við sam- sjú-tdingar fáa daga. Við sátum og sp,ölluðum og ég innti hann eftir Ei'lu og með sínu skínandi brosi svaraði hann: „Hún kemur alltaf.“ Þannig var það. Hann vissi að hún myndi alltaf vera þar sem hann þarfnaðist hennar mest og áreiðan- legt er það, að þegar Erla var heimt úr helju í sínum alvarlegu veikind- um var þörf hennar fyrir að reynast honum til hinstu stundar ekki minna lífsafl en máttur læknavís- indanna þó mikill reyndist með blessunarlegum árangri. Gunnar spurði mig líka hvort hurðin fyrir aðaldyrum Vífilsstaða- spítala væri ekki merkt framleið- endum. Hann taldi hana smíðaða af ættingjum sínum sem og er. Ennfremur spurði hann hvort ekki héngi málverk af afa sínum, Guð- mundi Bjömssyni landlækni, í dag- stofunni þar. Hann langaði að vita hvað væri letrað á skjöldinn og hverjir hefðu verið gefendur að því. Þannig hélt hann hugsuninni við og jók við lífíð. í hvert sinn er fundum okkar Erlu bar saman og talið bar að gangi mála svaraði hún: „Þetta gengur allt. Það eru allir svo hjálplegir og hann Gunnar er líka svo sérstakur maður.“ Þannig var viðhorf þeirra, öll þeirra lífstrú sem börn þeirra sviphrein og bjartleit, Dagmar, Ársæll og Jóhanna hafa svo dyggilega tekið við af foreldrun- um og skilað af í blíðu og stríðu. Vegna mikillar vinnu var ég sein fyrir með þessi minningarorð og þegar hér er komið hef ég fyrir stundu hlýtt á hógvær kveðjuorð séra Braga þar sem hann sagði meðal annars: „Gull skal í eldi prófa en trúaðan mann í nauðurn." Sem bam naut ég þess að fylgja föður mínum í smiðju þar sem hann bræddi gull í deiglu. Mér fannst ég því skynja líkinguna í dýpt sinni, líkinguna við gullklumpinn sem er yfirlætislítill, nánast mattur, en við bráðnunina öðlast hann ótrúlegt líf, þenslu, litadýrð, blæbrigði og fín- leika sem engum skartgrip verður við jafnað. Það hrífur, heillar, göfg- ar smekkinn, laðar skynjunina og skilur eftir sig óskýranlega tilfínn- ingu, sem maður býr að. Vísir menn hafa sagt að þjáning- in sé af hinu góða, sé til varnaðar og leiði til réttra aðgerða. Ekki veit ég allt um það. Hitt tel ég rétt og satt að hæfileikinn til að nema þjáningu og þarfir annarra geti - laðað fram sanna göfgun, hið eðl- asta í skaphöfn og viðbrögðum manna. Sé svo hafa Erla og böm þeirra Gunnars sýnt það og sannað svo af ber ásamt Ijósgeislunum sem stafaði af bamabömunum. Eins munu þau Erla og bömin saman standast tómið sem nú myndast og ávallt er þeim mun stærra og virðist óyfirstígánlegra, sem nándin hefur verið sterkari, elska og skyldan dyggar ræktar. Við eigum margt, sem aldrei, aldrei deyr, þótt okkur brygðist Qögralaufa-smárinn. Að sorg og auður sannast vita þeir, er sjá hið liðna bezt í gegnum tárin. Og jafnvel þótt við mættum bijóta blað og byija að nýju ævi vora að skrifa, þá myndi oss á svipstund sannast það, að sorgin gistir þá, er fegurst lifa. (Hjörtur Gíslason) Minningin um mætan mann mun í minnum höfð. Jóna Valg. Höskulds- dóttir hjúkrunarkona. Aslaug Arnar- dóttir - Kveðja Fædd 15. mars 1968 Dáin 7. apríl 1986 Lífið er hin mikla gáta sem öllum er ofvaxið að ráða. Þegar lítið barn fæðist í heiminn er framtíð þess eins og óskrifað blað og enginn veit hver saga þess verður eða hvort hún verður lengri eða skemmri. En yfir vöggu bamsins svífa óskir og vonir ástvinanna og fylgja því áleið- is um ójöfnur þroskabrautarinnar og svo langt sem auðið er. Eitt árið kom unglingsstúlka til starfa í versluninni Torginu. Hún hét Áslaug Arnardóttir og dvaldi með okkur þar um nokkurt tímabil. Hún var enn á þroskaskeiði, og framtíð hennar eins og svo margra annarra ungmenna, óráðin gáta. Þessi stúlka var falleg og rík af gleði æskunnar og átti sín áhuga- mál og drauma. Hún ætlaði svo margt að gera og lýsti áformum sínum af bjartsýni og lifandi trú á möguleikana, þeirri bjartsýni sem enginn fær staðist án þess að hríf- ast með og trúa því að allt sé fram- kvæmanlegt, þegar eindreginn vilji og heilbrigði fara saman. Eftir að Áslaug fór til annarra starfa og síðar skólagöngu í Reyk- holti, hélt hún áfram að hafa sam- band við vinnufélaga og vini í Torg- inu þegar tækifæri gáfust og þann- ig gátum við áfram fylgst með þroska hennar og áhugamálum. En svo, allt í einu slitnaði þráður- inn fyrirvaralaust. Við fengum þá köldu fregn að Áslaug væri dáin. Það var ótrúlegt. Hvernig var hægt að trúa því að þessi glaða og hressa stúlka væri ekki lengur í lifenda tölu og mundi ekki framar líta inn til okkar og heilsa, með sínu fallega brosi. Um leið og við kveðjum Áslaugu og sendum henni blessunaróskir yflr móðuna miklu, vottum við móður hennar, systur og öðrum ástvinum innilega samúð. Starfsfólk í Torginu. Hún elskulega Áslaug okkar er nú farin frá okkur og komin í heim hinna látnu. Þegar ég hugsa um svo elskulega og fallega stúlku eins og hún Áslaug okkar var, er erfitt að þerra tár. En minningin um hana mun ávallt sitja fast f huga okkar allra. Hún var persónuleiki sem erfitt er að gleyma, svo fjörug og full af lífsvilja og krafti. En stundum þegar maður hugsar um vilja guðs þá er nú svo að þeir út- völdu eru teknir óvænt frá okkur. En huggun mín er sú að þegar svo gott fólk fer, þá hljóti að vera meiri þörf fyrir það einhvers staðar í öðrum heimi. Mín stuttu kynni við Áslaugu voru mér mikils virði og mun hún ávallt sitja fast í huga mér. Að síðustu vil ég þakka henni hlýtt viðmót ogöll fallegu brosin. Elsku Jenetta mín, ég votta ykkur foreldrum, systkinum og hennar nánustu mínafyllstu samúð. Megi guð blessa ykkur og styðja í ykkar miklu sorg. Ragnhildur Kristjánsóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.