Morgunblaðið - 19.04.1986, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 19.04.1986, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. APRÍL1986 Þessir krakkar efndu til hlutaveltu fyrir nokkru i Ljósheimum 14—18 tíl ágóða fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar og söfnuðu 1.850 krónum. Krakkarnir heita: Gunnar, Þórir, Ársól og Ægir. Þessar hnátur, sem myndin sýnir á tröppum Siglufjarðarkirkju, efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar. Þær heita: Ólöf Salmannsdóttir, Hulda Magnúsdóttir, Þuríður Stefáns- dóttir og Halldóra Elíasdóttir. Fyrir allnokkru efndu þesar vinkonur til hlutaveltu til ágóða fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar. Þær söfnuðu 1360 krónum. Þær heita Herdís Matthíasdóttir, Bryndís Olsen og Ingunn Jónsdóttir. Stöllurnar Björk Jónsdóttir og Þóra Björk Bjarnadóttir efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Reykjavíkurdeild Rauða krossins og söfn- uðu 1135 krónum. Þingeyri: „Syngjandi páskar“ Þingeyri. SÁ MIKLl söngáhugi, sem er rikjandi með fólki í Þingeyrarhreppi í Dýrafirði, verður að teljast með ólikindum. Þar er nú starfandi karlakór, kirkjukór, blandaður kór og páskakór, fyrir utan alla smákórana. Það er Tómas Jónsson bankastjóri Brandarabankans, sem rekur allt þetta lið áfram með harðri hendi og bros á vör. A nýliðnum páskum hélt þetta söngglaða fólk sína árlegu skemmt- un, sem það kallar „Syngjandi páska". Undir stjóm Tómasar hefur verið æft baki brotnu í allan vetur og ekkert til sparað að slípa radd- imar eins og kostur hefur verið. Svo heppilega vildi til, að heiðurs- maðurinn Sigurður Friðfinnsson bóndi á Ketiiseyri varð sjötugur þann 26. mars. Var þá notað tæki- færið og haldin „generalprufa" fyrir „Syngjandi páska“ á heimili hans og konu hans, Bjamfríðar Magnús- dóttur. Var þar mikill fagnaður að fomunt sið. Mátti heita, að sungið væri stanslaust langt fram á nótt og verður að geta þess, að upp undir helmingur af þessu söngliði em böm og bamaböm þessara áð- umefndu heiðurshjóna, en nákvæm tala héfur ekki verið staðfest svo kunnugt sé. Aðeins var gert hlé á söng þegar hleypa þurfti ræðu- mönnum að. Aðalræðumenn kvölds- ins vom þeir Matthías Guðmunds- son, hinn landskunni vélsmíða- meistari, og Gunnar Sigurðsson kaupmaður, meistari og yfirsmiður frá Hiíð. Fóm þeir báðir á kostum í veislu þessari. eins og hann er vanur. Kom þar m.a. fram, að engin kauphækkun hefði orðið hjá kórfélögum á árinu sem leið, enda kaup aðeins greitt í svokallaðri ánægju. Hallgrímur Sveinsson Verandi víðs fjarri um páska fékk ég leyfi Hallgríms til að birta þessi tilskrif. Félagslífið hér hefur verið svipað og undanfarin ár. Laugardaginn 1. febrúar gekkst Slysavamafélagið Vöm fyrir þorra- blóti en um tugi ára hefur blótið verið aðaltekjulind félagsins. Aldrei þessu vant vom gestir með færra móti og kennum við það ekki í hálk- unni sem var þó óskapleg þetta kvöld. Færð eða veður hefur ekki heft för manna hér á þorrablót, ekki einu sinni þótt rignt hafi eldi og brennisteini, eða rafmagnið svik- ið okkur. Kertaljós, bijóstbirta, söngur og dans hafa hingað til getað haldið okkur hressum og kátum. Andlegt fóður er aldrei af lakara tagi á þorrablótum, enda brást það ekki. Hirðskáldið okkar, Elías Þórarinsson, flutti okkur fmmorta drápu og nú um örlög ómaganna, sem boðnir vom upp, eða öllu heldur niður, af hrepps- nefndum fyrri tíma. Áhugavert umhugsunarefni okkur, sem í tíma og ótíma kvörtum og kveinum um „allsleysi". Grínleikaramir Sig- mundur Þórðarson og Sigþór Gunn- arsson fóm á kostum, kvartettar sungu, fluttar ræður, sungið og leikið á als oddi. Ingimundur Magnússon rekstr- arhagfræðingur úr Kópavogi og frú komu vestur til að blóta meé okkur en þau vom stödd hér fyrii ári á þorrablóti og skemmtu séi konunglega að hans sögn. Hanr færði Þingeyringum höfðinglegí peningagjöf vitandi að okkur vanta: flygil í félagsheimilið. En togaramir vom á veiðum o{ mannskapinn af þeim vantaði aul þeirra sem virtust sitja heima vegn: þess hve inngangseyririnn var há: að þeirra mati, 800 krónur. Alli: þeir, sem komið hafa nálægt fjáröfl un fyrir félagasamtök, vita að vi< fáum ekkert ókeypis, heldur greið um möglunarlaust okkar „rúllu gjald" og skemmtum okkur af lífs ins list. - Hulda Söngskemmtunin fór svo fram í tvennu lagi í félagsheimilinu á Þingeyri á annan í páskum. Líkja mátti fyrri skemmtuninni við það þegar Garðar Hólm hélt heilan konsert fyrir móður sína eina, svo fáir vom áheyrendur í það sinn, enda flestir uppteknir við skíðaiðk- anir og fleira. Þrátt fyrir fámenni var öll efnisskráin sungin með glæsibrag frá upphafi til enda. Um kvöldið var svo sungið fyrir fullu húsi með miklum tilþrifum. Alls ekki má gleyma að geta þess, að harmoníkukarlamir komu fram á báðum þessum skemmtunum við mikil fagnaðarlæti. Þeir hafa æft stíft í vetur undir stjóm Guðmundar Ingvarssonar oddvita og póst- og símamálaráðherra þeirra Dýrfirð- inga. Að vísu vom harmoníkukarl- amir með fæsta móti að þessu sinni, aðeins 7 talsins, en hafa komist allt uppí að vera 11 'h þegar mest hefur verið. Heiðursgestur á „Syngjandi páskum" að þessu sinni var blokkflautuhljómsveit gmnn- skólans. Spilaði hún af mikilli innlif- un öll lögin sem hún kunni, en þau vom 9. Olafur V. Þórðarson brúar- smiður og útgerðarmaður, sem er talsmaður allra kóranna á opin- bemm vettvangi, hélt í upphafi skemmtunarinnar kjammikla ræðu Norræna húsið: Dagskrá um Bjornson A SUNNUDAG 20. apríl kl. 16.00 verður dagskrá í fund- arsal Norræna hússins sem nefnist: „Bjornson í ljóðum, litum og tónum“. Dagskráin hefst með því að Sigríður Ella Magnúsdóttir óperusöngkona sjmgur nokkur lög við Ijóð Bjornstjeme Bjam- sons og Jónas Ingimundarson leikur undir á píanó. Síðan tekur dr. Per Amdam frá Noregi við og talar um skáldskap Bjornsons og les upp ljóð og sýnir litskvggnur frá hinni fögm heimabyggð Bjorn- sons, Raumsdal. Einnig verður leikin norsk tónlist af tónbandi. Dr. Per Amdam hélt sl., miðvikudagskvöld fyrirlestur um kynni Bjornstjerne Bjom- sons og Jóns Sigðurssonar. Hann hefur flutt þessa dagskrá víða í Noregi við mikla ánægju Bjamsterne Bjornsson áheyrenda og ér ekki að efa að þessi dagskrá höfðar til ís- lenskra áheyrenda. Aðgangseyrir verður kr. 200. (Fréttatilkynning) raðauglýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar | fundir — mannfagnaöir | Orðsending frá Félagi vinnuvélaeigenda Minnum á aðalfund félagsins í Síðumúla 35 kl. 14.00 í dag, laugardag. í lok fundar mun lögfræðingur ræða um frumvarp til laga um breytingu á lögum um söluskatt. Félag vinnuvélaeigenda. Aðalfundur Aðalfundur Hafnarfjarðardeildar Rauða kross íslands verður haldinn í fundarsal Slökkvistöðvarinnar við Flatahraun föstu- daginn 25. apríl 1986 kl. 17.30. Stjórnin. Rafvirkjar / rafvélavirkjar Félag íslenskra rafvirkja heldur félagsfund þriðjudaginn 22. apríl kl. 20.30 í félagsmið- stöð rafiðnaðarmanna á Háaleitisbraut 68. Fundarefni: Menntunarmál og löggilding til rafvirkjunarstarfa. Stjórn Félags íslenskra rafvirkja. til sölu Jörð á norðausturlandi til sölu Jörðin selst með áhöfn (loðdýr og fé) og vélum ef viðunandi tilboð fæst. Upplýsingar í síma 91-651077. Kartöfluframleiðendur Höfum til sölu úrvals eyfirskt útsæði viður- kennt af landbúnaðarráðuneytinu. Verð 28-33 mm á kr. 35. Verð 33-45 mm á kr. 45. Upplýsingar í síma 96-31183. Öngull hf., Öngulsstaðahreppi. húsnæöi öskast Verslunarhúsnæði óskast Óskum eftir verslunarhúsnæði í nýja Hagkaupshúsinu fyrir heimsþekkt franskt vörumerki. Tilboðum skal skilað á augldeild Mbl. fyrir 1. maí merkt: „F — 2580“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.