Morgunblaðið - 19.04.1986, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 19.04.1986, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARQAGURlð. APRÍL1986 52 Sigríður Ólafsdóttir Narfakoti Fædd 8. október 1937 Dáin 11. apríl 1986 Föstudaginn 11. apríl barst mér sú sorgarfregn, að vinkona mín, hún Sigga, væri dáin. Maður stend- ur hljóður, og tómleikinn grípur mann, það er svo margt, sem maður skilur ekki, kona á besta aldri hrifin burt, burt úr hópi samheldinnar fjölskyldu, og skilið eftir skarð, sem ekki verður bætt. Sigríður fæddist á Húsavík 8. okóber 1937, dóttir Ólafs Pálssonar og konu hans, Kristínar Sigríðar Jónasdóttir, sem kennd eru við Skálabrekku, þau eru bæði látin fyrir nokkrum árum. Sigríður giftist árið 1958 eftirlif- andi manni sínum, Hrafni Svein- bjömssyni, Guð styrki þig Hrafn minn, og eignuðust þau 6 mann- - Minning vænleg börn, sem öllu eru vel af guði gerð og eru stoð og styrkur pabba á trega stundu nú. Alltaf var glatt á hjalla, er þau komu heim í Narfakot til mömmu og pabba, því þar mættu þau ástúð, glaðværð og öryggi á bemskuheimili sínu, og Sigga umvafði þau gleði brosi sínu og ástúð, sem stolt móðir ein á. Böm Siggu og Hrafns em: Óli fæddur 12.8. ’56, Ágúst fæddur 13.2. ’58, Margrét fædd 29.8 ’60, Sveinbjörg fædd 14.3. '62, Kristín fædd 10.8. ’67 og Bima fædd 30.4. ’72 og er hún ein bama eftir heima í foreldrahúsum, en hin systkinin em öll búsett í Keflavík. Ég kynnt- ist Siggu fyrir nokkmm ámm, og þau kynni verða seint eða aldrei full þökkuð, því hjá henni var vin- áttan og traustið svo hlýtt, maður var alltaf velkomin, á hvaða tíma t Móðir mín, systir okkar og mágkona, ELÍN GUÐMUNDSDÓTTIR, andaðist 4. apríl sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Styrktar- félag vangefinna. Sigurlín Sigurgeirsdóttir, Magnea Guðmundsdóttir, Magnús Guðmundsson, Marfa Guðmundsdóttir, Sigurmunda Guðmundsdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, Ólaffa Guðnadóttir. Guðrún Benediktsdóttir, Páll Ólafsson, Skarphóðinn D. Eyþórsson, Baldvin Sigurðsson, t Hjartkær móöir okkar, tengdamóðir, amma og systir, ÞÓRDfS JÓNSDÓTTIR HOLM, Grenimel 28, lést á Vífilsstaðaspítala 17. apríl. Emma K. Holm, Áslaug Holm Johnson, Paul S. Johnson, Jón H. Holm, Pia Kjerholt, barnabörn og systur. t Systir okkar og mágkona, KOLBRÚN JÓNSDÓTTIR, Laugavegi 133, andaðist 18. apríl í Landspítalanum. Bára Vilberg, Bjarni fsleifsson, Alda Acre, Sólveig Vilbergs, Reynir Vilbergs, Steinunn Þorsteinsdóttir, og frændsystkin. t Móðir okkar og dóttir, HELGA LÁRA ÓSKARSDÓTTIR, Skipholti 14, varö bráðkvödd að heimili sínu 16. þ.m. Óskar Sveinsson, Rakel Sveinsdóttir, Rakel Sæmundsdóttir, Óskar Haltgrímsson. t FRÍÐA GÍSLADÓTTIR Hjarðarhaga 46, Reykjavfk, lést í Borgarspítalanum 17. apríl. Halldór Haraldsson, Susan Haraldsson, Ragnheiður Haraldsdóttir, Hörður Arinbjarnar. Legsteinar gramt — marmari v/piO ðllct uayð) einnig kvöld Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi, og helgar. símar 620809 og 72818. sem var, alltaf var heitt á könnunni og hlýtt viðmót til. Nú á þessum tímamótum minnist ég margra góðra stunda er við áttum saman, vinkonumar, er við lékum okkur við saumaskap, en sú iðja að sauma og telja út tengdi okkur sterkum böndum, því um hannyrðir snérust áhugamál okkar, ég mun sakna þeirra friðsælu stunda, er ég átti með Siggu. Þær stundir á ég ein, og met þær mikils, þær eru mér sem helgidómur. Fátækleg eru þessi orð, sem ég skrifa á móti allri þeirri vinsemd og hlýju sem hún gaf mér, af auðnu sinni. Ég bið algóðan Guð að blessa og styrkja eftirlifandi mann, böm og alla vini hennar á þessari stundu sorgar og saknaðar. Ég kveð svo kæm vinkonu mína með þessum ljóðlínum: Drottinn, þegar þá raig kalla þessum heimi virðist frá, hvar sem loksins fæ ég falla fótskör þína liðinn á, hlífi sálu hjálpráð þitt hold í friði geymist mitt, unz það birtist engla líki ummyndað í dýrðar ríki. (Bjöm Halldórsson frá Laufási) Blessuð sé minning Siggu. Anna L.A. Jensen Kveðja frá Reykjanesanga Kvennalistans Þann 11. apríl sl. andaðist góð vinkona okkar, Sigríður Ólafsdóttir, Narfakoti, Innri-Njarðvík, í Landa- kotsspítala eftir stutt en erfið veik- indi. Það er ekki lengra síðan en um miðjan febrúar að við Kvennalista- konur komum saman í Keflavík eins og svo oft áður. Þar lét Sigríður sig ekki vanta frekar en endranær. Hálfum mánuði fyrr höfðum við hringt í hana og beðið hana að út- vega húsnæði fyrir fundinn. Ekkert var sjálfsagðara og ekki var að heyra að nokkuð amaði að. Okkur brá því mjög mikið þegar við hittum hana og sáum hversu veik hún var. Þetta var henni líkt, á fundinn kom hún, þó hún gæti varla gengið óstudd, ekkert aftraði henni frá að sinna þessu hjartans máli sínu. Sigríður fæddist 8. október 1937 á Húsavík. Hún ólst upp hjá foreldr- um sínum, Ólafí Guðna Pálssyni verkamanni, og konu hans, Kristínu Sigríði Jónasdóttur í Skálabrekku á Húsavík. Sigríður lauk gagnfræða- prófí frá Gagnfræðaskóla Húsavík- ur. Þann 26. ágúst 1958 giftist hún eftirlifandi eiginmanni sínum, Hrafni Sveinbjömssyni, blikksmið frá Akranesi. Þau hófu búskap í Keflavík, en hafa lengst af búið í Narfakoti í Innri-Njarðvík. Þeim varð 6 bama auðið: Óli Kristinn, stálskipasmiður, maki Marin Margrét Jónsdóttir, skrifstofukona, Ágúst Sigurður, sjómaður, maki Kristín Hauksdóttir, húsmóðir, Margrét Ámína, verslunarkona, maki Frímann Grímsson, vélvirki, Sveinbjörg, verslunarkona, maki Ámi Jens Einarsson, sjómaður, Kristín Mary, verkakona, og yngst er Bima. Það var Sigríði efst í huga þegar við heimsóttum hana á Borgarspít- alann tveim dögum áður en hún var skorin upp að vera viðstödd ferm- ingu Birnu á annan í páskum. Enn sýndi Sigríður óbilandi kjark og dugnað og var hjá fj'ölskyldu sinni á þessum hátíðisdegi. Auk þess að vera húsmóðir og móðir 6 bama starfaði hún við físk- vinnslu til ársins 1973. Síðan vann hún við ræstingar á Keflavíkurflug- velli. Sýndi Sigríður atorku og dugnað hvar sem hún var. Hún tók virkan þátt í verkalýðsbaráttu og var trúnaðarkona bæði í fískvinnsl- unni og í ræstingunum. Sigríður var félagslynd og tók virkan þátt í félagsmálum. Hún og Hrafn vom meðal stofnenda Björg- unarsveitarinnar Stakks í Keflavík-Njarðvík og störfuðu þau ötullega í þeim félagsskap. Einnig var Sigríður virk félagskona í Kvenfélagi Njarðvíkur og í Systra- félagi Innri-Njarðvíkur. Þijú sl. ár starfaði hún mikið með Samtökum um Kvennalista og var ein af styrk- ustu stoðum samtakanna á Suður- nesjum. Sigríður var ekki fýrir að vera í sviðsljósinu en var alltaf boðin og búin til góðra verka. Oft ýtti hún við okkur og benti á hvað betur mætti fara. Það vom ófáar ferðim- ar sem hún fór í Kópavoginn og víðar um kjördæmið vorið 1983 þegar undirbúningur fyrir Alþingis- kosningar stóð sem hæst. Þá vom ekki kílómetramir né stundirnar taldar, áhuginn réð ferðinni. Sama máli gegndi þegar við héldum kynningarfundi í öllum sveitarfé- iögum kjördæmisins fyrir ári. Þá kom Sigríður á þá flesta ásamt Bimu dóttur sinni. Þegar fram liðu stundir kom æ betur í ljós hversu góða og trausta konu við áttum að þar sem hún Sigríður okkar á Suðumesjum var. Við stöllur minnumst hennar með þakklæti og virðingu og vottum Hrafni, bömúm og bamabörnunum flómm okkar dýpstu samúð. Guðný, Sigrún og Ingibjörg Birting afmæl- is- ogminning- argreina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnar- stræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsbiaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki em tekin til birtingar fmmort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta Ijóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningar- greinar birtist undir fullu nafni höfundar. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför PÁLS EYJÓLFSSONAR, Eyjahrauni 12, Vestmannaayjum. Sérstakar þakklr til starfsfólks Hraunbúða fyrir frábæra umönnun íveikindum hans. Guðjón Pálsson, Eyjólfur Pálsson, Jón Pálsson, Guðlaug Pálsdóttir, Ásta Pálsdóttir, Erla Pálsdóttir, Tómas Pálsson, Fanný Guðjónsdóttir, Ásta Ólafsdóttir, Guðný M. Gunnarsdóttir, Már Lárusson, Brynjar Fransson, Óskar Ólafsson, Sigurrós Ingólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hugheilar þakkir til allra þeirra sem aðstoðuðu við leit, veittu okkur hjálp og vottuðu samúð við hvarf og útför sonar okkar, bróður, mágs og barnabarns, HAFÞÓRS MÁS HAUKSSONAR, Fjarðarási 28, Reykjavik. Guðs blessun fylgi ykkur. Sigrún Stelnsdóttir, Haukur Harðarson, Dagrún Helga Hauksdóttir, Bergþór Bjarnason, Vignir Bragi Hauksson, Katrfn Sif Ragnarsdóttir, Aðalheiður Hannibalsdóttir, Guðrún Benediktsdóttir, Steinn Guðmundsson, Hörður Tryggvason. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, AGNESAR GUÐNADÓTTUR, Neshaga12, Reykjavfk. Sérstakar þakkir til starfsfólks Landakotsspítala fyrir frábæra umönnun í veikindum hennar. Þórður Sigurgeirsson, Theodóra Þórðardóttir, Sigurgeir Þórðarson, Jóna K. Kristinsdóttir og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall móður okkar, tengdamóður og ömmu, LlNEYJAR SIGURJÓNSDÓTTUR frá Sauðárkróki. Lovísa Tómasdóttir, Hulda Tómasdóttir, Haukur Tómasson, Kárl Valgarðsson og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.