Morgunblaðið - 19.04.1986, Blaðsíða 3
MORgUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. APRÍL1986
3
Mótmæli frá íslensk-
um námsmönnum er-
lendis berast víða að
Frá Helgaf elii eftir Jón Stefánsson.
Listmunauppboð
á Hótel Borg
SJÖUNDA listmuna- og mál-
verkauppboð Gallerís Borgar í
samvinnu við Listmunauppboð
Sigurðar Benediktssonar fer
fram á Hótel Borg nk. sunnudag
oghefstkl. 15:30.
Á uppboðinu verða um og yfir
50 númer, og má þar nefna mynd
frá Helgafelli eftir Jón Stefánsson,
mynd frá Hvítá í Borgarfirði eftir
Ásgrím Jónsson, sem máluð var
1922 og fallega fantasíu eftir Jóh.
S. Kjarval, sem máluð var 1932 og
ber heitið Álfakroppurinn mjói.
Þá verða á uppboðinu myndir
eftir Engilberts, Gunnlaug Schev-
ing, Hring Jóhannesson, Höskuld
Björnsson, Jóhannes Geir, Gunn-
laug Blöndal, Magnús Jónsson, dós-
ent, Gísla Jónsson, Nínu Sæmunds-
son, Gunnar Orn, Jón Þorleifsson
og Örlyg Sigurðsson, svo eitthvað
sé nefnt.
Þá verður boðin upp brúðarkista
— kistili — frá 1848, skreytt völund-
arsmíð.
Eins og áður segir hefst uppboðið
kl. hálf fjögur á sunnudaginn, en
myndimar verða sýndar í Gallerí
Borg v/Austurvöll á föstudag og
laugardag milli kl. 10.00 og 18.00
á föstudaginn og frá kl. 14.00 til
18.00 álaugardag.
(Fréttatilkynning)
Kaupmannaliöfn. Frá fréttaritara Morgnnbladsins, Guðrúnu Láru Ásgeirsdóttur.
í GÆR afhentu SÍNE-deildir víða um lönd sendiráðum og
ræðismannsskrifstofum mótmæli og bréf til Sverris Her-
mannssonar menntamálaráðherra, þar sem námsmenn láta í
ljós áhyggjur vegna breytinga á reglugerð nr. 578 frá 1982
um lánamál námsmanna.
Hér í Kaupmannahöfn gengu
námsmenn á fund Birgis Möller
sendifulltrúa snemmma í gærmorg-
un. Kristjana Kjartansdóttir trúnað-
armaður SÍNE las upp bréfíð til
ráðherrans og afhenti sendifulltrú-
anum það. Vottuðu námsmenn síð-
an samúð sína vegna andláts Einars
Ágústssonar, hins vinsæla sendi-
herra okkar, og rituðu nöfn sín í
minningarbók. Móttökur sendiráðs-
starfsmanna voru hinar bestu og
þágu námsmennimar veitingar, en
höfðu stutta viðdvöl að þessu sinni
vegna aðstæðna. Síðan hafa ís-
lenskir námsmenn setið á skrifstofu
íslensku félaganna hér í Jónshúsi
og beðið svara, sem undir kvöldið
vom ókomin.
í bréfínu til menntamálaráðherra
segir að breytingar þær sem hann
hefur gert séu ógnun við jafnrétti
til náms í lýðræðisþjóðfélagi. Kröfur
námsmanna, sem eru algjört gmnd-
vallaratriði fyrir áframhaldandi
námi, em í fímm liðum. Farið er
fram á:
1. Að reglugerðin frá 3. janúar
1986 verði afnumin.
2. Að reglugerðin frá 2. apríl
1986 verði afnumin.
3. Að farið verði eftir núgildandi
lögum um lánamál.
4. Að fullt lán verði veitt til
fyrsta árs nema.
5. Að skerðingin sem þegar hefur
orðið verði bætt að fullu.
Eins og að ofan greinir em mót-
mælaaðgerðir í dag í öllum löndum
þar sem íslendingar stunda nám,
allt frá Tromsö til Barcelona og
frá Vesturströnd Bandaríkjanna til
Búdapest. Er alls staðar mikill
stuðningur við aðgerðimar og hafa
námsmenn haft samband við ýmsa
alþingismenn og beðið um stuðning
við kröfur sínar.
Þá sendu íslenskir námsmenn í
Danmörku formönnum allra þing-
flokka bréf þann 13. þessa mánaðar
þar sem þeir em beðnir um að
upplýsa afstöðu þingflokks síns
varðandi breytingar á ofangreindri
reglugerð um námslán og náms-
styrki og ennfremur um afstöðu
þingflokkanna til ofangreindra
spuminga úr bréfí til menntamála-
ráðherra. Þá er sagt frá tilvonandi
aðgerðum í dag. Aðeins formenn
tveggja þingflokka hafa svarað
bréfínu og em það formenn þing-
flokka Alþýðubandalagsins og
Framsóknarflokksins. Vænta
námsmennimir eindregið svara frá
hinum flokkunum hið bráðasta sem
og svars Sverris Hermannssonar
menntamálaráðherra við bréfínu
sem afhent var í gær.
í svari frá Alþýðubandalaginu
segir m.a. að þrír þingmenn þess
hafí flutt tillögu um að mennta-
málaráðherra verði falið að fella úr
gildi breytingar á reglugerðinni nr.
578/1982 frá 3. janúar og 2. apríl
þannig að ákvæði sem áður giltu
um útreikning á framfærslukostn-
aði námsmanna taki gildi að nýju.
Jafnframt verði ríkisstjóminni falið
að gera ráðstafanir með aukafjár-
veitingum og lántökum til að
tryggja eðlilega framkvæmd laga
nr. 72/1982 um námslán og náms-
styrkiútþettaár.
í svari Framsóknarflokksins
segir m.a. að þingflokkur Fram-
sóknarflokksins hafí haft úrslita-
áhrif um það að ekki verða gerðar
breytingar á lögum um námslán og
námsstyrki eins og menntamálaráð-
herra hafði í huga. í öðm lagi hafí
flokkurinn ekki í sjálfu sér mögu-
leika á að ráða reglugerðarákvæð-
um sem em á valdi ráðherra og ber
enga ábyrgð hvað varðar reglugerð-
arbreytingar ráðherra að undan-
fömu. Bent er á að þessar breyting-
ar séu í andstöðu við stefnu sem
Ingvar Gíslason framsóknarmaður
hafði sem menntamálaráðherra.
G.LIÁSG.
Morgunblaðið/Haukur Hauksson
Birgir Möller sendifulltrúi í íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn
tekur við mótmælum og bréfi til menntamálaráðherra úr hendi
Kristjönu Kjartansdóttur. Á bak við þau standa, talið frá vinstri,
Gunnar Guðmundsson, Jón Helgason, Þórhallur Sigurðsson og Edda
B.K. Kjartansson ritari í sendiráðinu.
Daihatsuumboðið s. 685870 - 681733
DAIHATSU
sýning
Frá kl. 1-5
Allir gæðabílarnir frá Daihatsu.