Morgunblaðið - 19.04.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAU G ARD AGUR 19. APRÍL1986
25
Sovétmönnum fjölg-
ar enn í Eþíópíu
Skemmdirnar á Benina flugvelli AP/SImamynd
Pentagon, bandaríska hermálaráðuneytið, lét fréttamönnum í té þessa mynd á fimmtudag og á
hún að sýna skemmdir þær sem loftárásir Bandaríkjamanna á Benina flugvöllinn í Líbýu ollu.
sagði í tilkynningunni. Jafnframt
voru Sovétmenn sakaðir þar um að
„auka afskipti sín“ af málefnum
Eþíópíu.
Frá rann-
sókn á morði
Palme
Stokkhólmi. AP.
LÖGREGLAN lét í dag lausan
miðaldra mann, sem sænsk dag-
blöð höfðu haldið fram að gæti
ef til vill tengst morðinu á Olof
Palme, forsætisráðherra Sví-
þjóðar. Hans Holmer, lögreglu-
stjóri í Stokkhólmi, sem er yfir
rannsókn málsins, dró úr fyrri
yfirlýsingum á fundi með frétta-
mönnum, að um atvinnumorð-
ingja hefði verið að ræða.
Þá kom í fyrsta skipti fram á
fundinum lýsing á morðingjanum í
smáatriðum. Holmer sagði að það
væri samdóma álit sjónarvotta að
morðinginn væri á fertugsaldri,
dökkur yfirlitum, um 1,80 á hæð
og hefði haldið ró sinni eftir morðið.
Sagði Holmer að svo virtist sem
maðurinn væri vanur skotmaður,
en óvanur morðum.
Holmer sagði á fundinum að
hann væri sannfærður um að morð-
ingi Palmes myndi nást að lokum.
Eftir sjö vikna langa rannsókn
hefur ennþá ekkert komið fram sem
bendir til þess að lögreglunni hafi
miðað mikið áleiðis.
DAMAGED MI-8/HtP
OESTROYED MI-8 HIP
Khartoum. AP.
UPPREISNARMENN í Eþíópíu
halda því fram, að 3.000 til 5.000
sovézkir hernaðarráðgjafar og
tæknisérfræðingar hafi nýlega
komið til landsins í því skyni að
aðstoða marxistastjórnina þar
við að hefja nýjar sóknaraðgerð-
ir gegn uppreisnarmönnum i
Eritreuhéraði. Kom þetta fram i
tilkynningu, sem Frelsisfylking
Eritreumanna (EPLF) lét frá sér
fara í gær.
í tilkynningunni sagði ennfrem-
ur, að stjórn Mengistu Haile Mar-
iam áformaði miklar hernaðarað-
gerðir gegn uppreisnarmönnum á
næstu mánuðum. EPLF er ein af
mörgum hreyfingum í Eritreu, sem
barizt hafa gegn stjórnarhernum í
Eþíópíu fyrir aðskilnaði nyrsta hér-
aðs landsins.
Á meðal hinna nýkomnu sovézku
hemaðarráðgjafa eru tæknimenn
og flugmenn og er talið, að þeir
muni hafa aðsetur í borginni
Asmara, höfuðborg Eritreu. Með
þeim er fjöldi sovézka herliðsins í
Eþíópíu orðinn 6.500 til 8.500
manns.
„Mengistu er að undirbúa alls-
herjarsókn gegn íbúum Eritreu,"
Sprengjan sem fannst á Heathrow-flugvelli;
Lögreglan hefur hand-
tekið tilræðismanninn
London. AP.
BREZKA lögreglan handtók
í gærkvöldi Palestínumann-
inn Nezar Hindawi, sem
eftirlýstur var fyrir áform
um að sprengja júmbóþotu
ísraelska flugfélagsins E1
A1 í loft upp. Hindawi laum-
aði sprengju í handtösku
kærustu sinnar og sagðist
ætla að taka hana með sér
til Israels og giftast henni.
Hindawi er sagður hafa blekkt
konuna, sem handtekin var á
fimmtudag á Heathrow-flugvelli
með sprengju í farangrinum, til að
halda að hún færi með honum til
Israels til að giftast honum, að
því er haft er eftir bæði móður
hennar og lögreglu.
Konan heitir Anne-Marie
Murphy, er þijátíu og tveggja ára
og írsk. Hún vann á Hilton-hótelinu
í London og er ólétt. Hún er miður
sín yfír þessum atburði og reynir
eftir megni að vinna með lögregl-
unni. Hún ætlaði ásamt vini sínum
Nezar Hindawi er eftirlýstur um
allt Bretland. Hann laumaði
sprengju í handtösku kærustu
sinnar og sagðist ætla að taka
hana með sér til ísraels og giftast
henni.
að fljúga til ísraels með farþega-
þotu ísraelska flugfélagsins E1 Al.
Nezar Hindawi, sem er 35 ára,
er gefíð að sök að hafa komið
sprengiefninu fyrir í handtösku
Murphyar án þess að láta hana vita
og sent hana um borð í vélina til
Tel Aviv.
Talið er að Hindawi sé Palestínu-
maður. Fyrrum vinnuveitandi hans
segir að hann sé frá þorpi í norður-
hluta Jórdaníu og eigi þar háttsetta
ættingja.
Sprengjan átti að springa á leið-
inni til Tel Aviv og hefðu þijú
hundruð og sjötíu farþegar og átján
manna áhöfn farist um borð í
Boeing 747-þotunni.
Móðir Anne-Marie Murphy, Kat-
hleen, sagði á heimili sínu í Sally-
noggin við Dyflini að hún vissi að
Hindawi hefði gert dóttur sína
ólétta.
Sagði Kathleen að Anne-Marie
hefði hringt í systur sína og sagst
ætla að giftast þessum strák í ísrael
á laugardag (í dag). Hindawi sótti
Anne-Marie á hótelið í leigubíl, fór
með henni á flugvöllinn og skildi
við hana þar. Hann kvaðst ætla að
fara og skrá sig út af hótelinu sínu,
sem hann gerði fímmtán mínútum
áður en öryggisverðir á flugvellin-
um fundu sprengjuna falda undir
fölskum botni handtöskunnar. Þeg-
ar var gert viðvart á flugvöllum og
höfnum Bretlands.
Aðstoðarritstjóri blaðsins Al-
Arab, sem kemur út á arabísku og
er gefið út í London, kveðst hafa
ráðið Hindawi sem sendil fyrir fjór-
um árum og rekið hann tveimur
mánuðum síðar vegna þess að hann
hafi verið ósvífínn hrokagikkur.
Frú Murphy sagði að Hindawi
hefði sagt dóttur sinni að hann
væri blaðamaður og skrifaði um
stjórnmái.
Hún sagði að hún hefði næstum
dáið þegar hún sá myndina af
Hindawi í sjónvarpinu: „Þetta var
hræðilegt áfall. Faðir hennar hefur
grátið linnulaust og ég hef ekki
mikið álit á þessum kærasta dóttur
minnar. Ég held að hann hafí logið
hana fulla,“ sagði frú Murphy.
Costa Rica:
Sprenging við
bandaríska
sendiráðið
San Jose. AP.
SPRENGJA sprakk á fimmtu-
dagskvöld fyrir utan sendiráð
Bandaríkjanna í Costa Rica með
þeim afleiðingum að fimm veg-
farendur særðust.
Lögreglan sagði að fjórir menn,
þar af einn frá Nicaragua, hefðu
verið teknir í gæsluvarðhald þegar
eftir sprenginguna í miðborg San
Jose. Talið er að um handsprengju
hafi verið að ræða. Þeir sem særð-
ust voru að bíða eftir strætisvagni
rétt hjá sendiráðinu þegar sprengj-
an sprakk.
íbúar Scilly eyja og Hollendingar semja um frið:
300 ára styriöld lokið
MqpÍii Q/<illvairium
St. Maríu, Scillyeyjum. AP.
STRÍÐINU milli Hollendinga og
eyjarskeggja á Scillyeyjum lauk
á fimmtudag um 335 árum eftir
að friður tókst. Fulltrúar beggja
aðilja voru skeiðbrosandi enda
ekki ástæða til annars þar sem
ekkert manntjón var í styrjöld-
inni og opinberlega var lýst yfir
friði í ráðhúsinu á eyju Heilagrar
Maríu.
„Það er mér einstök ánægja að
geta heimsótt eyjarnar og sagt íbú-
um þar að stríðinu sé loksins lokið,“
sagði Jonkeer Huydecoper, sendi-
herra Hollendinga.
Til að færa sönnur að máli sínu
færði sendiherrann eyjaskeggjum
orðskrúðuga friðaryfirlýsingu
skráða á mikinn vafning. ibúar
Scillyeyja, sem eru um 45 km undan
suðvesturhorni Englands, hafa ætíð
haldið því fram að Hollendingar
hafi lýst stríði á hendur þeim árið
1651 og þessu stríði hafi aldrei
verið aflýst þar til nú.
Roy Duncan, sagnfræðingur og
formaður ráðsins, sem stjórnar
eyjunum 140 og 1.950 íbúum
þeirra, sagði fyrir athöfnina að
Lundúnum. AP.
GENGI Bandaríkjadals gagn-
vart nokkrum helstu gjald-
miðlum heims var í gær er
gjaldeyrismarkaðir lokuðu,
sem hér segir. Gengið frá því
á fimmtudag innan sviga.
Dalur kostaði:
2,2200 vestur-þýsk mörk (2,2275)
eyjaskeggjar hefðu málið í flimting-
um, en „tæknilega eigum við enn
í stríði.“ Stríði, sem nú er lokið.
Hollendingar lýstu yfír stríði við
eyjarnar 1651, eins og áður segir,
til þess að þvinga sjóræningja, sem
höfðu þar bækistöðvar, til þess að
hætta að ræna skip
1,8635 svissnesska franka (1,8580)
7,0800 franska franka, (7,0915)
2,5110 hollensk gyllini (2,5100)
1.523,00 ítalskar lírur (1.530,50)
1,3870 kanadíska dali, (1,39055)
175,80japönsk yen, (175,40).
Pundið kostaði 1,51425 dali, en
kostaði í gær 1,5200.
GENGI GJALDMIÐLA
FERÐAMÁLASKÓLI ÚTSÝNAR
10 daga námskeið i samvinnu
við Verzlunarskóla íslands
22. apríl — 6. maí
Kennslan fer fram í nýja Verzlunarskólanum,
Ofanleiti 1 kl. 19.15—22.00 virka daga (nema
23. apríljogtvolaugardagakl. 14.15—17.00.
Kennslugreinar: 1. Uppbygging fargjalda
og útgáfa farseðla.
2. Fararstjórn erlendis I.
3. Fararstjórn erlendis II.
Upplýsingar, innritun og staðfesting þátt-
töku í Útsýn, Austurstrœti 17 kl. 2—4
síðdegis í dag, laugardag.