Morgunblaðið - 19.04.1986, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.04.1986, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. APRÍL1986 Þjóðar- skútan Þegar ég hlustaði á eldhús- dagsumræður alþingismann- anna okkar blessaðra á fimmtu- dagskveldið var, þá flugu inn um glugga vinnustofunnar ljóðlínur úr nýjustu bók Gunnars Dal: Undir Skilningstrénu. Þjóðarskútan er undarlegt skip. Þegar hún siglir í strand eru sett undir hana ný hjól. Þegar henni er ekið fram af hengifluginu, dettur hún ekki niður í hyldýpið. Hún fellur upp. Henni vaxa vængir. Og hún flýgur á ný, eitthvað út í bláinn. Stefán Ben Einn þingmanna Stefán Bene- diktsson frá Bandalagi jafnaðar- manna vék í eldhúsdagsræðu sinni að því sérstæða fyrirbæri er nefnist eldhúsdagsumræður ... þetta leik- hús sem er fært upp tvisvar til þrisvar á ári, sýnir ekki veruleika þingstarfa ... hvers vegna má ekki hafa sérstaka útvarpsrás opna á þingfundum, í stað þess að leiða stjómarsinna fram á leiksviðið tvisvar þrisvar á ári svo þeir geti gumað af afreksverkum sínum og síðan koma stjómarandstæðingar með sinn bölmóð ... Slíkar umræð- ur em vita náttúrulausar því menn skiptast ekki á skoðunum, en kepp- ast þess í stað við að gefa há- stemmdar yfirlýsingar í þejrri von að einhver sé að hlusta. Eg lít á tölu Stefáns Benediktssonar sem áskorun til þeirra er nú stýra ríkis- fjölmiðlunum og þá kannski ekki síður til þeirra er nú stýra ljósvaka- Ijölmiðlum utan ríkisgeirans. Nú og hvert er viðhorf hins háa Alþingis? Er nokur von til þess að hinn almenni kjósandi fái glögga mynd af starfsháttum alþingis- manna, nema hann eigi þess kost að fylgjast með daglegu sýsli þeirra í n'efndum og ráðum? Þar með er ekki sagt að eldhúsdagsumræður eigi ekki rétt á sér, þingmenn verða að fá að sletta við og við úr klaufun- um fyrir framan alþjóð enda margir hveíjir alveg prýðilegir leikarar. Fílabeinsturninn Mér fannst mega ráða af fyrr- greindri ádrepu Stefáns Ben að hann teldi þingmenn lokaða inní eins konar fílabeinstumi. Má vera að svo sé á stundum til dæmis fundust mér persónulega yfirlýsing- ar Steingríms Hermannssonar for- sætisráðherra um vanda húsbyggj- enda ákaflega einkennilegar. Það er rétt hjá þér Steingrímur að Ráð- gjafaþjónusta húsbyggjenda er öll- um opin og ég er einmitt einn þeirra er hefí leitað þangað og notið ákaf- lega góðrar þjónustu Olafs Jensson- ar, slíkt ber að virða. En ég get ekki sagt að hin svokölluðu „neyð- arlán“ bæti okkur húsbyggjendum er urðum fyrir hnefahöggum stjóm- valda á ámnum ’81-’85 mikið tjón- ið. Er til dæmis nokkuð einasta réttlæti í því Steingrímur, að okkur beri að greiða niður „neyðarlánin" á 16—20 árum á sama tíma og sú kynslóð er næst byggir fær að greiða risalánin sín niður á 40 árum? Þú lýstir því yfir Steingrímur að ... engum sem er í venjulegri vinnu ætti að vera ofviða að greiða hin nýju risalán. En hvað um þá ríflega tvöþúsund húsbyggjendur er lentu í þumal- skrúfum stjómvalda, heldur þú að „venjuleg vinna“ losi um kverkatak- ið hjá þessu fólki á næstu ámm og áratugum? Ætli endi ekki með því að þessi hópur verði að ná undir sig sérstakri útvarpsrás til að ná inní fílabeinsturninn. _ Ólafur M. Jóhannesson. ÚTVARP / SJÓNVARP Lx)kaþátturinn um Árna í Hraunkoti: Leyndarmálið í litlu öskjunni ■■■■ Leyndarmálið í 1 700 öskjunni heitir áttundi og síðasti þáttur framhalds- leikrits Ármanns Kr. Ein- arssonar um Áma í Hraun- koti sem verður á dagskrá rásar eitt síðdegis í dag. í 7. þætti sagði frá því þegar unglingarnir í Hraunkoti, Hringborðið: Spjallað við Pálma, Helgu og Eirík MHB Þátturinn 1 7 00 Hringborðið er á 1 i — dagskrá rásar tvö síðdegis í dag. I þættin- um fara fram hringborðs- umræður á léttari nótunum um tónlist og ýmislegt er henni tengt og fær stjóm- andinn, Ema Amardóttir, að jafnaði þtjá gesti í heim- sókn sem rabba sín á milli um músík af ýmsu tagi, skiptast á skoðunum og velja óskalög. Að þessu sinni verða gestir Emu þau Pálmi Gunnarsson, Helga Möller og Eiríkur Hauksson, þjóð- kunnir tónlistarmenn sem senn halda til Björgvinjar og keppa þar fyrir hönd íslands í Söngvakeppni sjónvarpsstöðva. Þrenning- in hefur haft æði mikið að gera undanfarið, m.a. við gerð myndbands um „Gleðibankann", sem sýnt verður í sjónvarpi á sunnu- dagskvöld. Ekki er að efa að gestimir hafi frá ýmsu að segja varðandi fyrir- hugaða þátttöku sína í söngvakeppni og fróðlegt verður að fylgjast með hvers konar tónlist þau Eiríkur, Helga og Pálmi setja á fóninn heima hjá sér á síðkvöldum. Olli ofviti og Gussi á Hrauni hittu Sófus heild- sala við Hraunsá þar sem hann hafði ekki haft erindi sem erfiði við laxveiðamar. Olli ofviti fann þá upp á nýstárlegri veiðiaðferð sem bar þann árangur að öllum var boðið til laxaveislu hjá Sófusi. Er veislan stóð sem hæst bar þar að Kela kalda og í slagtogi með honum voru tveir allskuggalegir náungar. Fyrir tilviljun tókst þeim Árna og Olla að koma í veg fyrir áform þeirra um að nota sprengi- efni til veiða í laxahylnum við Hraunsá. Leikendur í 8. þætti em: Hjalti Rögnvaldsson, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Valgerður Dan, Jón Júlíus- Ármann Kr. Einarsson, rithöfundur. son, Þórhallur Sigurðsson, Ámi Tryggvason, Bryndís Pétursdóttir, Sigurður Karlsson og Guðbjörg Þor- bjamardóttir. Sögumaður er Gísli Alfreðsson og leik- stjóri Klemenz Jónsson. Monsjör Kíkóti ■■■■ Á dagskrá sjón- O"! 30 varPs 1 kvöld er 1 ““ ný bresk sjón- varpsmynd sem gerð er eftir samnefndri skáldsögu Graham Greene, Monsjör Kíkóti. Saga þessi er allsér- stæð og fjallar um tvo heiðursmenn, prestinn föð- ur Kíkóta og bæjarstjórann Sancho Zancas en þeir em báðir frá þorpinu Tóbósó á Spáni. Þeir fara í ferðalag á fíatinum Rósinante og lenda í ýmsum ævintýmm. Þó þeir félagar hafi ekki sömu lífsskoðun, annar sannkristinn en hinn kommúnisti, tekst með þeim traust vinátta. Vin- irnir tveir sverja sig í ætt við hinar heimsþekktu sögupersónur M. Cer- vantez, Don Quixote og Sancho Panza, en em þó nútímalegri. Félagamir tveir, faðir Kíkóti og Sancho Zancas bæjarstjóri. UTVARP LAUGARDAGUR 19. apríl 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.1 E Tónleikar, þulur velur og kynnir. 7.20 Morgunteygjur. 7.30 Islenskir einsöngvarar og kórar syngja. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Tónleikar. 8.30 Lesiö úr forystugreinum dagblaðanna. Tónleikar. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynn- ir. 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál. Endurtek- inn þáttur frá kvöldinu áður sem Örn Ólafsson flytur. 10.10 Veðurfregnir. Óskalög sjúklinga, fram- hald. 11.00 Á tólfta tímanum. Blandaður þáttur úr menn- ingarlífinu í umsjá Þorgeirs Ólafssonar. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.50 Hér og nú. Fréttaþáttur ívikulokin. 15.00 Evrópumót landsliða í körfuknattleik, C-riöill. Ingólfur Hannesson og Samúel Örn Eriingsson lýsa slðari hálfleik íslendinga og Norðmanna I Laugardals- höll. 15.50 íslenskt mál. Jón Aðal- steinn Jónsson flytur þátt- inn. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Listagrip. Þáttur um list- ir og menningarmál. Um- sjón. Sigrún Björnsdóttir. 17.00 Framhaldsleikrit barna og unglinga: „Árni í Hraun- koti“ eftir Ármann Kr. Ein- arsson. Leikstjóri: Klemenz Jónsson. Sögumaöur: Gísli Alfreðsson. Leikendur: Hjalti Rögvaldsson, Anna Kristín Arngrímsdóttir, Val- gerður Dan, Árni Tryggva- son, Jón Júliusson, Þórhallur Sigurðsson, Bryndis Péturs- dóttir, Siguröur Karlsson og Guðbjörg Þorbjarnardóttir. Áttundi og síðasti þáttur: „Leyndarmáliö i litlu öskj- unni". (Áður útvarpað 1976). 17.45 Síðdegistónleikar. Pianókvintett á a-moll op. 81 eftir Friedrich Kalkbrenn- er. Mary Louise Boehm, Arthur Bloom, Howard Howard, Fred Sherry og Jeffrey Levine leika. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.35 „Sama og þegiö". Umsjón: Karl Ágúst Ulfsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason. 20.00 Harmoníkuþáttur. Um- sjón: Högni Jónsson. 20.30 Þátturinn okkar. Handrit og umsjón: Pétur Eggerz og Erla B. Skúladótt- ir. Umsjónarmaður tónlistar: Edvard Fredriksen. Flytjend- ur auk þeirra: Sigríður Pét- ursdóttir, Ellert A. Ingimund- arson, Kristján Hjartarson og Birgir Karlsson. 21.00 „Ertu þreyttur og slæpt- ur?“, smásaga eftir Babette Rosmond og Leonard M. Lake. Jónina Leósdóttir þýddi. Edda V. Guömunds- dóttir les: 21.20 Vísnakvöld. Gísli Helga- son sérum þáttinn. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.15 Veöurfregnir. 22.20Í hnotskurn — Svarta perlan og hjartaknúsarinn. Sagt frá skemmtikröftunum Folies Bergere, Josephine Baker og Maurice Chevalier og leikin lög með þeim. Umsjón Valgaröur Stefáns- son. Lesari með honum: Signý Pálsdóttir. (Frá Akur- eyri). 23.00 Danslög. SJÓNVARP 16.00 Iþróttir og enska knatt- spyrnan (Umsjónarmaöur Bjarni Fel- ixson. 19.20 Búrabyggð (Fraggle Rock) Fjórtándi þáttur. Brúðu- myndaflokkur eftir Jim Hen- son. Þýðandi Guðni Kol- beinsson. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dag- skrá. 20.35 Glettur — Flosa Ólafs- sonar. Þjóðkunnur spaugari ■ og höfundur Vikuskammta slettir úr klaufunum. Stjórn ' upptöku Björn Emilsson. 21.00 Dagbókin hans Dadda (The Secret Diary of Adrian LAUGARDAGUR 19. apríl MoleAged 133A) Fjórði þáttur. Breskur myndaflokkur í sjö þáttum, gerður eftir bók Sue Towns- ends. Leikstjóri Peter Sas- dy. Aöalhlutverk: Gian San- marco, Julie Walters, Step- hen Moore og Beryl Reid. Þýðandi Kristmann Eiösson. 21.30 Monsjör Kíkóti (Monsignor Quixote) Ný bresk sjónvarpsmynd gerð eftir samnefndri skáld- sögu eftir Graham Greene sem komið hefur út á ís- lensku. Leikstjóri Rodney Bennett. Aðalhutverk Alec Guinness og Leo McKern. Monsjör Kíkóti er makalaus saga um tvo heiðursmenn frá þorpinu Tóbósó á Spáni, prestinn og Sancho bæjar- stjóra. Þeir lenda í ferðalög- um á fiatinum Rósinante, ekki ólíkt forfeðrum sínum Don Quixote og Sancho Panza. Með þeim félögum tekst mikil vinátta þótt þeir séu ekki á einu máli um kristindóm og kommún- isma. Þýðandi Ragna Ragn- ars. 23.25 EricClapton Breks-bandarískur sjón- varpsþáttur frá tónleikum Eric Claptons og félaga í Bandaríkjunum á síðasta ári. í þættinum leikur Clap- ton og syngur mörg sin þekktustu lög. 00.35 Dagskrárlok 24.00 Fréttir. 00.05 Miðnæturtónleikar. Umsjón: Jón Örn Marinós- son. 01.00 Dagskrárlok. Næturútvarp á rás 2 til kl. 03.00. LAUGARDAGUR 19. apríl 10.00 Morgunþáttur Stjórnandi: Sigurður Blön- dal. 12.00 Hlé 14.00 Laugardagurtillukku Stjórnandi: SvavarGests. 16.00 Listapopp Stjórnandi: Gunnar Salvars- son. 17.00 Hringborðið Erna Arnardóttir stjórnar umræðuþætti um tónlist. 18.00 Hlé 20.00 Línur Stjórnandi: Heiðbjört Jó- hannesdóttir. 21.00 Milli stríöa Jón Gröndal kynnir dægur- lög frá árunum 1920-1940. 22.00 Bárujárn Þáttur um þungarokk í umsjá Siguröar Sverrisson- ar. 23.00 Svifflugur Stjórnandi: Hákon Sigur- jónsson. 24.00 Ánæturvakt með Pétri Steini Guð mundssyni 03.00 Dagskrárlok.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.