Morgunblaðið - 19.04.1986, Side 2
M ORGU MáJX jpft Ð, LÁ tfG ÁjlÝÐ ÁGTJft Íá.AékJtL M6; í I
2V.
Hlutabréf Arnarflugs:
Helgi Þór tilbúinn
til að leggja fram
tugi milljóna króna?
ÓFORMLEG fundarhöld stóðu
yfir í gærdag milli lögfræðinga
Helga Þórs Jónssonar, hins nýja
hluthafa í Arnarflugi, og þeirra
níu aðila sem sýnt hafa áhuga á
að auka hlutafé Arnarflugs um
60 milljónir króna. Eftir því sem
Morgunblaðið kemst næst mun
Helgi Þór fús til að leggja fram
umtalsvert fé til hlutafjáraukn-
ingar Arnarflugs, jafnvel tugi
milljóna.
Aðilar veijast frétta af gangi
viðræðnanna, en talið er að þær
snúist annars vegar um hvernig
meta beri hlutabréf Helga Þórs eftir
hlutaQáraukninguna, og hve mikið
hann sé tilbúinn til að leggja af
mörkum til hlutafjáraukningarinn-
ar. Líklegt er talið að nímenning-
amir hviki ekki frá því skilyrði sínu
að núverandi hlutafé verði fært
niður eða selt þeim á 10% af nafn-
verði. Sem kunnugt er keypti Helgi
Þór hlutabréf Flugleiða í Amar-
flugi, 44% félagsins, á 14% af nafn-
verði, eða á 3 milljónir króna. Ef
þeir halda fast við skilyrði sitt, lítur
út fyrir að Helgi Þór eigi þann
kost vænstan að færa niður bréf
sín i 10% af nafnverði og tapa
þannig nokkru fé.
Amarflugsmenn, sem Morgun-
blaðið ræddi við í gær, kváðust
vongóðir um að samkomulag tækist
með Helga og nímenningunum.
Annar ráðgjafi Helga Þórs, Þor-
steinn Guðnason hjá Fjárfestingar-
félagi Islands, sagðist ekkert geta
sagj; um viðræðumar, en línur
myndu skýrast um helgina.
Þota Arnarf lugs í Líbýu
hefur flutninga á ný
BOEING 707-þotu Arnarflugs,
sem verið hefur í vöruflutning-
um fyrir líbýska ríkisflugfélagið
undanfarið, var flogið i fyrsta
sinn í gærmorgun eftir árás
Bandaríkjamanna á miðnætti á
mánudag. í fyrstu stóð til að hún
flytti vörur til Ankara í Tyrk-
Iandi, en því var breytt á síðustu
stundu og var vélin þess í stað
send til Shannon á írlandi. Hún
var væntanleg aftur til Trípólí,
höfuðborgar Lýbíu, í gærkvöldi.
Að sögn Ómars Ólafssonar flug-
stjóra og stjómarmanns Amar-
flugs, hefur ekki verið tekin ákvörð-
un um að rifta samningi við Libyan
Arab Airlines vegna ástandsins í
landinu. „Við erum bundnir samn-
ingi við líbýska ríkisflugfélagið
fram í ágúst, og reynum að standa
við hann ef ástandið versnar ekki.
Hins vegar hefur verið ákveðið að
að flytja höfuðstöðvar þeirra
tveggja áhafna sem við flugið starfa
frá Líbýu til Evrópu," sagði Ómar.
Átta starfsmenn eru í Líbýu á
vegum Amarflugs, þar af sjö Is-
lendingar. Einn þeirra er Guðmund-
ur Jón Helgason stöðvarstjóri. í
spjalli við Morgunblaðið í gærdag
sagði Guðmundur að menn væru
enn nokkuð spenntir vegna ástands-
ins, og reyndu að halda sig sem
mest inni á hóteli. Guðmundur
sagðist hafa skoðað flugvöllinn þar
sem Amarflugsvélin var þegar árás
Bandaríkjamanna var gerð, og ekki
orðið var við neinar skemmdir.
„Menn voru að tala um að tvær
rússneskar þotur hefðu laskast í
árásinni, en ég sá engin merki
þess,“ sagði hann.
Guðmundur sagði að almenning-
ur í landinu væri smám saman að
ná sér eftir árásina og safna kjarki
til mótmæla. „Það eru víða útifundir
þar sem ársin er fordæmd. En það
er eins og fólk hafi ekki réttar
upplýsingar um gang mála. Það
trúir því til dæmis statt og stöðugt
að 20-30 bandarískar þotur hafí
verið skotnar niður í árásinni,"
sagði hann.
Hinir sex íslendingamir í Líbýu
eru Lárus Atlason, Gunnar Þor-
valdsson, Óskar Sigurðsson, Ant-
óný Svavarsson, Stefán Jónsson og
Bjöm Þverdal.
Morgunblaðið/Júlíus
Mikill mannfjöldi safnaðist saman í Brautarholti í Reykjavík i gærkvöldi. Kyiknað hafði í geymslu-
húsi bak við hús Vörukaups í Skipholti og lagði mikinn reyk yfir nágrennið.
Mikið Ijón í eldsvoða
í Skipholti í gærkveldi
MIKIÐ tjón varð í gærkvöldi er kviknaði í skúrbyggingu
bak við hús Vörukaups við Skipholt í Reykjavík. Er
slökkviliðið kom á staðinn var skúrinn alelda og mikinn
reyk lagði um nágrennið. Engin slys urðu á fólki.
Slökkviliðinu barst tilkynn-
ing um að eldur væri laus í
skúrbyggingu við Skipholt um
klukkan 21.30 í gærkvöldi.
Þegar það kom á staðinn var
skúrbyggingin alelda. Eld-
tungur stóðu út um glugga á
skúmum og sleiktu veggi
skrifstofubyggingar Vöm-
kaups. Eldur logaði einnig upp
úr þakinu.
Að sögn Matthísar Jónsson-
ar varðstjóra voru allir
gluggar á skrifstofubygging-
unni lokaðir og kom það í veg
fyrir að eldur kæmist í húsið.
Hann sagði að annars hefði
þetta getað farið verr. Reyk
lagði inn í nokkur hús í ná-
grenninu og var skemmtistað-
urinn Þórscafé eitt þeirra.
í skúmum var lager Vöm-
kaups. Talið er að miklar
skemmdir hafi orðið á vömm
sem þar vom geymdar, en það
vom ýmsar byggingavömr,
plaströr o.fl.
Slökkviliðinu tókst að ráða
niðurlögum eldsins á tæpri
klukkustund. Eldsupptök em
ókunn.
Mikinn mannfjölda dreif að
til að fylgjast með slökkvi-
starfinu og þurfti lögreglan
að girða svæðið af.
Iceland Seafood kaupir hlut í
bandarískum samvinnubanka
ICELAND Seafood Corporat-
ion, fisksölufyrirtæki Sam-
bandsins í Bandaríkjunum,
hefur keypt hlut í bandariska
samvinnubankanum National
Co-operative Bank, sem
stofnaður var árið 1980. Að
sögn Guðjóns B. Ólafssonar
framkvæmdastjóra Iceland
Seafood, hóf fyrirtækið við-
skipti við bankann í byijun
þessa árs, og var það skilyrði
fyrir viðskiptunum að Iceland
Seafood gerðist hluthafi í
bankanum. Sagði Guðjón að
arðgreiðslur bankans myndu
Tekjur framhjá skatti:
Um 90% fólks 18—24 ára
segjajá og 70% aðspurðra
ÞAÐ er fyrst og fremst ungt fólk
sem vill taka á móti tekjum sem
ekki þarf að gefa upp til skatts.
Um 90% þeirra sem eru á aldrin-
um 18 til 24 ára segja já við
spurningu um þetta en aðeins
lítill hluti neitar. Eftir því sem
aldurinn færist yfir fólk minnkar
hlutur þeirra er vilja taka á móti
óskattlögðum tekjum, fer þó ekki
niður fyrir 55,8%.
Þessar niðurstöður nefndar íjár-
málaráðherra, er vann að könnun
á umfangi skattsvika eru sýndar á
meðfylgjandi töflu. í heild sögðust
70,3% aðspurðra myndu taka á móti
tekjum sem ekki þurfí að gefa upp
til skatts, 11,1% svara kannski og
14% neita.
Hlutfallslega flestir þeirra er
hafa skyldunáms- eða háskóla-
menntun svara þessari spumingu
með afdráttarlausu jái eða 64% og
53%. Hins vegar svara 80,5% þeirra
sem eiga að baki iðnnám, vélstjóra-
nám eða stýrimannaskóla spuming-
unni játandi. Flestir þeirra er neita
em með skyldunám að baki og
fæstir iðnmenntun. Afstaða há-
skólamenntaðra er mjög sveiflu-
kennd. 32,7% þeirra segjast myndu
kannski taka á móti óskattlögðum
tekjum.
Um 37% þeirra sem viðurkenna
að hafa keypt vöm/þjónustu utan
skattkerfísins hafa háskólapróf, en
liðlega 7% hafa lokið skyldunámi.
lækka verulega vaxtakostnað
á lánum frá honum, og þvi
séu þessi viðskipti í heild
mjög hagstæð fyrir Iceland
Seafood.
Guðjón vildi ekki skýra frá því
hve stóran hlut Iceland Seafood
ætti í bankanum, né hver upp-
hæðin væri sem farið hefði til
hlutafjárkaupanna. „Við hófum
viðræður við National Co-operative
Bank á síðari hluta síðasta árs um
að hann tæki þátt í fjármögnun
og fyrirgreiðslu til fyrirtækisins
ásamt Citibank, sem er okkar
aðalviðskiptabanki, “ sagði Guðjón.
„Samningar tókust til að byija með
um fyrirgreiðslu fyrir fyrstu þijá
mánuði þessa árs. Samkvæmt
reglum sem bankinn starfar eftir
verða viðskiptavinir hans að kaupa
hlut í bankanum, sem nemur einu
prósenti af lánsfjárhæð. Að þessu
urðum við að ganga, en á móti
kemur að arður sem við fáum
greiddan í árslok verður það mikill
að nettóvextir þessa banka eru
hagstæðari en fást hjá öðrum
bandarískum bönkum," sagði
hann.
Að sögn Guðjóns er National
Co-operative Bank ekki stór
bankastofnun á bandarískan mæli-
kvarða, en ráðstöfunarfé hans
nemur um 200 milljónum dollara.
Iceland Seafood er með stærstu
viðskiptavinum bankans hvað láns-
§árhæð snertir. Guðjón sagði að
nú stæðu yfir samningaviðræður
við bankann um áframhaldandi
viðskipti. Hann átti ekki von á
öðru en þeir samningar tækjust,
og gæti þá bankinn annað allt að
20% af fjárþörf Iceland Seafood
Corporation.
*
Utvarpsráð:
Vilji til að taka á móti óskattlögðum tekjum
Aldurshópur Hlutfall er svar: Já E.t.v. Nei
18—19ára 90,6 6,3 3,1
20—24 ára 90,0 4,0 6,0
25 29 ára 77,8 11,1 11,1
30—39 ára 74,2 12,4 13,4
40 49 ára 14,2 12,7
50 59 ára 14,1 24,2
> 60 ára 16,3 27,9
Reglugerð um frétta-
flutning send dagblöðum
Á ÚTV ARPSFUNDI í gær óskaði
Magnús Erlendsson eftir að bók-
að yrði eftirfarandi og var það
gert án þess að nokkur hreyfði
andmælum:
„Leyfi ég mér að óska eftir að
„Reglur um fréttaflutning í Ríkisút-
varpi" verði sendar dagblöðum til
kynningar.
Ósk þessi er fram sett til að
auðvelda forráðamönnum félaga og
félagasamtaka að gera sér grein
fyrir hvaða rétt og möguleika þeir
hafa varðandi kynningar á mann-
fundum í fréttatímum hins ríkis-
rekna hljóðvarps og sjónvarps,
samanber 6. grein reglugerðar þar
að lútandi.“