Morgunblaðið - 19.04.1986, Page 5
MORftUNBLAÐIÐ, LAUGARDAQUR 19. APRÍL1986
5
Nordjobb:
Fjögur hundruð um-
sóknir um sumarvinnu
á Norðurlöndunum
550 óskuðu eftir vinnu hér á landi
UM ÞESSAR mundir eru um-
sækjendur um störf á Norður-
löndunum að fá svör við umsókn-
um sínum i gegnum atvinnumiðl-
unina Nordjobb. Atvinnumiðlun-
in tók til starfa í fyrra, þá fóru
um 50 ungmenni héðan til starfa
á Norðurlöndunum og 50 Norð-
urlandabúar komu hingað til
lands. í ár voru umsóknir þeirra
sem vildu koma hingað til lands
um 550 í 80 stöður og 400 íslend-
ingar sóttu um að komast í 100
stöður á Norðurlöndunum, að
sögn Péturs Hafsteins verkefnis-
Morgunblaðinu hefur borist eft-
irfarandi fréttatilkynning frá
Skotveiðifélagi Islands:
„Nú fer í hönd sá tími er farfugl-
ar koma til landsins. Skotveiðifélag
Islands vill hér með vekja sérstaka
athygli á því, að gæsa og anda-
veiðar eru bannaðar á vorin. All-
ar gæsir eru friðaðar frá 15. mars
til 20. ág. Allar andategundir eru
stjóra.
Forgöngu að þessari starfsemi
hafði nefnd athafnamanna sem
starfað hefur á vegum forsætisráð-
herra Norðurlanda, nefndin er
kennd við formanninn Per Gyllen-
hammer, forstjóra Volvo. Sjálfs-
eignarstofnun hefur verið set.t á fót
á vegum Norrænu iðnþróunarstofn-
unarinnar og norrænu félaganna,
og hafa starfsmenn ráðnir af nor-
rænu félögunum séð um stjóm
þessa verkefnis. Umsækjendur eiga
að vera á aldrinum 18-25 ára og
sagði Pétur að í hópi hinna 550 sem
friðaðar frá 1. apríl til 1. sept.
Þá vill félagið benda landeigend-
um, sem stuðla á einhvem hátt að
því að slíkar veiðar fari fram, að
þeir geti hugsanlega orðið hlutdeild-
armenn í lögbroti samkv. 22. gr.
laga nr. 19, 1940. Einnig er hér
vakin athygli manna á að öll sinu-
brenna verði framkvæmd samkv.
gildandi lögum.“
hefðu óskað eftir störfum hér á
landi væri talsvert af langskóla-
gengnu fólki. Laun eru í samræmi
við kjarasamninga í hveiju landi,
hér á landi hefur verið gerður sér-
stakur ráðningarsamningur svo
tryggt sé að þetta sumarvinnufólk
njóti sömu kjara og aðrir launþegar
vinnumarkaðarins. Af þeim 550
sem sótt hafa um vinnu hér á landi
em 340 frá Svíþjóð og um 100 frá
Finnlandi. Þeir fara að vinna í
frystihúsum, við verslunarstörf,
skrifstofustörf og lagerstörf. Flestir
fá vinnu hjá Sambandinu, íslensk-
um aðalverktökum, Landsbankan-
um, Hagkaup, Eimskip og Velti,
en auk þess verður fjöldi annarra
vinnustaða með einn til tvo Norður-
landabúa í vinnu hjá sér í sumar,
35 verða hér á höfuðborgarsvæðinu
en 45 úti á landi.
Flest störfín krefjast engrar
starfsmenntunar, en þó em undan-
tekningar á því. „Við emm t.d. að
reyna að fínna vélvirkja fyrir þá á
ísafirði."
Hann var spurður hvemig reynsl-
an af þessari atvinnumiðlun hefði
verið í fyrra. „Um 90% af krökkun-
um sem fóm út vom ánægðir með
dvöl sína og vinnustað, og yfír 80%
fyrirtækjanna, sem okkur fínnst
mjög gott. Þau koma heim reynsl-
unni ríkari og hafa kynnst ung-
mennum frá hinum Norðurlöndun-
um.“
Um 400 íslensk ungmenni sóttu
Skotveiðifélag íslands:
Vekur athygli
á veiðibanni
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Pétur Hafstein verkefnisstjóri Nordjobb.
um sumarstörf á hinum Norður-
löndunum og Pétur var spurður
hvort ekki hefði verið erfítt að velja
milli umsókna. Hann svaraði að
valið hefði verið úr umsækjendum
innan þeirra landa sem umsóknim-
ar beindust að. Flestir þeirra sem
fá vinnu í sumar em búnir að fá
jákvætt svar við umsóknum sínum,
en Pétur sagði að öllum umsækj-
endum yrði svarað hvort sem þeir
fá vinnu eða ekki. Hjá Pétri á skrif-
stofunni í Norræna húsinu var
sænsk stúlka, Anna-Caren Fem-
ström, en hún kom hingað á vegum
Nordjobb í fyrrasumar, vann á
skrifstofu Heklu hf. Hún er komin
aftur hingað til lands, segir að hér
sé gott að vera, hún er að ljúka
háskólaprófí í leiklistarfræði og
upplýsingamiðlun og er hér að
safna heimildum í sambandi við
námið. Hún talar ágæta íslensku,
og segist ekki hafa verið í neinum
erfíðleikum með tungumálið, sam-
starfsfólk hennar hafí verið henni
innan handar, talað við hana ensku
ef annað dugði ekki. Launin segir
hún vera lægri hér en í Svíþjóð og
nauðsynjar dýrari, en þrátt fyrir
það hafi hún ákveðið að koma
hingað öðm sinni.
Pels í mis-
gripum
ÞAÐ gerðist í afmælisveislu í Borg-
artúni 17 á pálmasunnudag, að
brúnn pels var tekinn í misgripum
og annar minni skilinn eftir í stað-
inn. Eigandi pelsins, sem tekinn
var, hafði samband við Morgun-
blaðið og bað um að þessu væri
kómið á framfæri og bað jafnframt
um, að pelsinum væri skilað og hins
vitjað. Nánari upplýsingar er að fá
ísíma 39591.
RÝMINGARSALA
Á REGNFATN AÐI
Mikið úrval fyrir börn og fullorðna. Mikið lækkað verð.
Kaffi á könnunni
Laugardagur 19. apríl kl. 9
SVR leið 2
16
E
EUROCARD
V/SA
iUMit
Ánanaustum sími 28855