Morgunblaðið - 19.04.1986, Side 13
Fólk staldrar við
og bíður eftir við-
brögðum Khadafis
— segir Signrður Helgason forstjóri Flugleiða
um hugsanleg áhrif árásarinnar
á Líbýu á Norður-Atlantshaf sflugið
„VIÐ HÖFUM miklar áhyggjur af þessu ástandi og fylgjumst vel
með gangi mála. Bókanir frá Bandaríkjunum til Evrópu hafa dreg-
ist saman um 10—15% frá því í fyrra, en á sama tíma hafa bókanir
frá Evrópu til Bandarikjanna aukist" sagði Sigurður Helgason for-
stjóri Fiugleiða í samtali við Morgunblaðið er hann var spurður um
hugsanlegar afleiðingar árásar Bandaríkjamanna á Líbýu á Norður-
Atlantshafsflug Flugleiða.
Sigurður Helgason sagði að
vegna þess hve Flugleiðir væru lítið
og óþekkt flugfélag hefði ekki orðið
eins mikið vart við samdrátt í bók-
unum hjá því og hjá stóru banda-
rísku félögunum. Skrifstofa Flug-
leiða í New York hefði til dæmis
fengið um fjögur þúsund símhring-
ingar í gær frá fólki sem spurðist
fyrir um ferðir til Evrópu. Sigurður
sagði að eflaust hefði það einnig
áhrif að flugvöllurinn í Luxemborg
væri ekki með þekktustu flugvöllum
í Evrópu.
„Bókanir koma seinna inn en oft
áður“ sagði Sigurður. „Fólk virðist
ætla að staldra við og sjá hver
viðbrögð Khadafís verða, áður en
það tekur ákvörðun um að ferðast
til Evrópu.
Þetta ástand hefur aukið eftir-
spurn Bandaríkjamanna eftir ferð-
um til íslands, eða viðkomu á ís-
landi. Áhugi fólks beinist nú til
norðlægari landa. Nú eru til dæmis
öll hótel í Reykjavík að verða upp-
bókuð fyrir sumarið."
Okurmálið:
Hermann kemur
heim eftir mánuð
HERMANN G. Björgvinsson,
aðalsakborningur og aðalvitni
ákæruvaldsins í okurmálinu svo-
nefnda er væntanlegur til lands-
ins eftir um það bil mánuð, að
því er hann sagði í símtali við
Olöfu Pétursdóttur, héraðs-
dómara í Sakadómi Kópavogs. i
gær.
Ólöf Pétursdóttir sagði í samtali
við Morgunblaðið að hún hefði leit-
að eftir því að Hermann hefði
samband við sig og gerði grein fyrir
ferðum sínum. „Hann hefur nú
haft samband við mig og ég fékk
það staðfest að hann væri í fríi og
væri væntanlegur heim eftir rúman
mánuð,“ sagði Ólöf. Hermann fór
af landi brott vestur um haf til
Bandaríkjanna síðastliðinn laugar-
dag.
•jrJT-
Sigurvegarar í myndbandasamkeppninni. Talið frá vinstri: Orri Árnason, Bergur Geirsson, Þorgils
Björgvinsson og Markús Jósefsson.
Myndbandasamkeppnin „Hraði og skynsemi“:
Fyrstu verðlaun fékk
„Asbjörn og Magnús“
Umferðarnefnd Reykjavíkur
og íþrótta- og tómstundaráð
efndu til myndbandasamkeppni
meðal ungs fólks á landinu í
tengslum við umferðarviku í
Reykjavik sl. haust. Yfirskrift
samkeppninnar var „Hraði og
skynsemi“. Markmiðið með
myndbandinu var að auka
umferðaröryggi ungs fólks og
vekja það til umhugsunar um
umferðina.
Fyrstu verðlaun hlaut myndin
„Ásbjöm og Magnús", sem gerð
er af ungu fólki í félagsmiðstöðv-
unum Agnarögn og Ekko í Kópa-
vogi, þeim Orra Arnasyni, Bergi
Geirssyni, Þorgils Björgvinssyni
og Markúsi Jósefssyni.
Dómnefnd skipuðu Guttormur
Þormar frá Umferðamefnd
Reykjavíkur, Karl Jeppesen kvik-
myndagerðarmaður og Gunnar
Örn Jónsson frá Iþrótta- og tóm-
stundaráði.
í umsögn dómnefndar um
myndimar segir m.a. að „Ásbjöm
og Magnús" hefði náð best þeim
markmiðum sem sett vom.
„Myndin er í léttum dúr og boð-
skapur hennar kemst auðveldlega
til skila. Hljóðupptaka myndarinn-
ar er þokkaleg en önnur tæknileg
vinnubrögð em mjög einföld. Það
hefði bætt þessa mynd ef aðalleik-
arar hennar hefðu verið sýndir í
nærmynd í upphafí auk þess sem
fjölbreyttari myndatöku hefði
verið beitt."
Dómnefndin treysti sér ekki til
að gera upp á milli myndanna í
2. og 3. sæti en það voru mynd-
bönd, sem krakkar úr Álftamýrar-
skóla og Æfingaskólanum fram-
leiddu.
Atvinnumálasamþykkt þings Landssambands iðnverkafólks:
Á vöxtur í iðnaði að
gerast sjálfkrafa?
„ÍSLENSK verkalýðshreyfing
hefur verið frumkvæðislítil í
atvinnumálum og starfsfólk
flestra fyrirtækja sýnir takmark-
aðan áhuga á því, sem framund-
an er i fyrirtækinu, sem það
starfar hjá, enda er því ekki
gefinn kostur á að hafa áhrif á
mótun og stefnu þess. Á þessu
þarf að verða breyting og verka-
lýðshreyfingin verður að láta
atvinnumálin meira til sín taka
en verið hefur.“
Svo segir m.a. í ályktun um
atvinnumál, sem samþykkt var á
7. þingi Landssambands iðnverka-
fólks, sem haldið var í Reykjavík
11. og 12. apríl. Þar segir einnig
að í íslenskum iðnaði starfi nú
nærri sex þúsund manns. Það svari
til þess að sjöundi hver maður
stundi atvinnu í iðnaði, næst
stærstu atvinnugrein landsmanna.
Síðan segir: „í yfirlýsingum um
atvinnumál er iðnaði oftast ætlað
stórt hlutverk en sjaldnast er skil-
greint með hvaða hætti iðnaðurinn
geti búið sig í stakk til þess að taka
á móti þeim þúsundum manna, sem
streyma munu út á vinnumarkaðinn
á næstu árum. I reynd skortir skýra
stefnumótun í málefnum íslensks
iðnaðar. Áform um uppbyggingu
eru næsta óljós og á stundum er
gengið út frá því, að vöxturinn
gerist sjálfkrafa og án undirbún-
ings.“
Þá segir einnig m.a. í ályktun-
inni: „Það öryggisleysi, sem stórir
hópar iðnverkafólks búa við, er með
öllu óviðunandi. Fjöldauppsagnir
starfsfólks, sem unnið hefur í ullar-
og fataiðnaði, sýnir það best. Flótt-
ann frá innlendri framleiðslu yfir í
innflutning verður að stöðva og
tryggja iðnverkafólki atvinnu með
öllum tiltækum ráðurn."
I ályktun um verkmenntunarmál
segir m.a.: „Ljóst er að krafan um
Akureyri.
MAÐUR, sem fannst meðvitund-
arlaus á götu á Dalvík, aðfarar-
nótt laugardagsins og fluttur var
í sjúkrahús til Reykjavíkur, er
nú á batavegi en hann lá á gjör-
gæslu um tíma.
Maðurinn, sem fæddur er 1939,
fannst meðvitundarlaus kl. 3.20
aðfararnótt laugardags. Hann var
fluttur ?. Fjórðnngssjúkrahúsið , á
stóraukna iðnfræðslu og verk-
menntakennslu fyrir starfsfólk í
verksmiðjuiðnaði er eitt brýnasta
hagsmunamál iðnverkafólks í dag.
Framvindan í þessum málum á
næstu misserum og árum mun án
efa hafa afgerandi þýðingu í bar-
áttu okkar fyrir því, að skapa
almennan skilning og viðurkenn-
ingu á mikilvægi og þýðingu þeirra
starfa, sem iðnverkafólk hefur með
höndum. Um leið hlýtur aukin verk-
menntakennsla að verða mikilvægt
tæki í baráttu iðnverkafólks fyrir
stórbættum kjörum þeirra, sem við
iðnað starfa.“
Akureyri og síðan til Reykjavíkur.
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
hefur unnið að rannsókn málsins
og var að störfum á Dalvík í gær.
Skv. heimildum Morgunblaðsins er
ekkert sem gefur vísbendingu um
það að eitthvað saknæmt hafi gerst.
Svell var á götunni og allt bendir
til þess að um slys hafí verið að
ræða - maðurinn hafi dottið á
götunni.
Dalvík:
Fannst meðvitundarlaus
Tónlistarunnendur
Á næstunni mun íslenska hljómsveitin og Kór Langholtskirkju
flytja tónverkið Messías eftir George F. Hándel, ásamt einsöngvur-
unum Ólöfu K. Harðardóttur, Sólveigu Björling, Garðari Cortes og
Halldóri Vilhelmssyni. Stjórnandi verður Jón Stefánsson. Verkið
verður flutt sem hér segir: ( íþróttahúsinu á Akranesi 19. april kl.
14.00, í Selfosskirkju þriðjudaginn 22. apríl kl. 20.30 i íþróttahúsinu
í Keflavik miðvikudaginn 23. apríl kl. 20.30 og í Reykjavik í Lang-
holtskirkju fimmtudaginn 24. apríl kl. 20.30.
Aðgangseyrir er kr. 600. Forsala aðgöngumiða er hafin: Á Akra-
nesi í Tónlistarskólanum, á Selfossi í versluninni Höfn og Vöru-
húsi KÁ, i Keflavík i Tónlistarskólanum, i Reykjavík i Bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar, Bókabúð Lárusar Blöndals og ístóni.
í slenska Hljómsveitin
HOSTfi
Störf viðferðamannaþjónustu Hótel-
og ferðaþjónustuskóli, stofnaður árið
1959 í Leysin, frönskumælandi Sviss.
Prófskírteini í lok námskeiðs.
Kennsla fer fram á ensku.
1. 2ja ára fullnaðarnám í hótelstjórn (möguleiki á að innrita
sig annaðhvort á 1. árið á stjórnsýslunámskeið eða á
2. árið í framhaldsnám í hótelstjórn).
2. 9 mánaða alþjóðlegt ferðamálanámskeið, kjarnanám, viður-
kennt af Alþjóða flugmálastofnuninni og UFTAA, sem lýkur
með prófi.
Fullkomin íþróttaaðstaða einkum til skíða- og tennisiðkunar.
Næsta námskeið hefst 24. ágúst 1986.
Skrifið til að fá upplýsingar til:
HOSTA; CH-1854, Leysin
Tel: 9041/25-34-18-14 Telex: 456-152 crto ch.