Morgunblaðið - 19.04.1986, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 19.04.1986, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. APRÍL1986 19 BM ÞESSA LEID Ife FER EINUNGIS FYRSTA FIOKKS STEINSTEYPA £% Innra eftirlit Það er fyrsta stigið í hinu þrefalda eftirliti B .M. Vallá með framleiðslunni. Innra eftirlit B.M. Vallá skiptist í: A) Daglegt eftirlit með steypunni og grunnefnum hennar. Tekin eru mörg sýni daglega sem prófuð eru m.a. með tilliti til styrks, sigmáls og loftinnihalds. B) Grunnprófanir sem gerðar eru á fylliefnum, íblöndunarefnum, steypu og tækjabúnaði. Innra eftirlit fyrirtækisins er í höndum eigin rannsóknarstofu, undir stjórn byggingarverkfræðings. A Ytra eftirlit Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins framkvæmir skipulegt, óháð eftirlit með steinsteypuframleiðslu B.M. Vallá. Stofnunin fylgist með innra framleiðslueftirliti B.M. Vallá og gerir prófanir, jafnt á hráefnunum sem framleiðslunni. Eftirlitsferðir Rannsóknastofnunar byggingar- iðnaðarins eru 20-25 á ári, fyrirvaralausar og óreglubundnar, til þess að fram náist skýr mynd af framleiðslu B.M. Vallá. Sjálfstætt eftirlit og ráðgjöf verkfræðistofu Þriðja eftirlitsstigið er ráðgjöf verkfræðinga Teiknistofunnar Óðinstorgi um ýmis mál er varða steinsteypuframleiðslu, svo og sjálfstætt eftirlit þeirra og upplýsingamiðlun. Með þessu þrefalda kerfi er kaupanda tryggð þrautkönnuð vara sem framleidd er samkvæmt ströngustu kröfum sem gerðar eru til steinsteypu hérlendis. B.M. Vallá hefur viðurkenningu Rannsóknastofnunar byggingariðnaðar- ins til steinsteypuframleiðslu í Framkvæmdaflokki A, sem er strangasti eftirlitsflokkur íslensks staðals um steinsteypu. Auk þessarar viðurkenningar hefur B.M. Vallá sams konar viðurkenningu byggingarfulltrúans í Reykjavík. o Þjálfun starfsmanna Síðast en ekki síst hefur B.M. Vallá kappkostað að auka þekkingu bílstjóra sinna og annarra starfsmanna á steinsteypu og meðferð hennar með skipulögðum fundum og námskeiðahaldi. Markmiðið er fyrsta flokks steinsteypa og örugg meðhöndlun hennar á byggingarstað. Stórir, sterkir og stundvísir AUK HF. 100.2/SlA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.