Morgunblaðið - 19.04.1986, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 19.04.1986, Qupperneq 56
LAUGARDAGUR19. APRÍL1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Verktakasamband íslands gerir ríkinu tilboð: Fé til vegagerðar aukið um 650 milljónir næstu þijú ár Sparar þjóðarbúinu hundruð milljóna næstu sex árin A Island og Noregur skipta loðnukvóta SAMKOMULAG hefur náðst milli Noregs og íslands um skipt- ingu 800.000 tonna loðnukvóta við ísland og Jan Mayen á tíma- bilinu 15. júli til 30. nóvember. Samkomulag þetta var gert eftir að slitnaði upp úr viðræðum íslend- inga, Norðmanna og Grænlendinga um nýtingu loðnustofnsins á fundi í Kaupmannahöfn. Kvótinn skiptist þannig að ís- lendingar fá að veiða um 650.000 tonn af loðnu, en Norðmenn tæp 150.000 tonn. Norðmenn fá auk þess heimild til að veiða 400 tonn af botnfiski innan íslenskrar físk- veiðilögsögu. Tívolí og dýragarð í Laugardal? DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri hefur lagt fram tilögu um að borgarverkfræðingi verði falið í samvinnu við garðyrkjustjóra að gera áætlun um uppbyggingu í Laugardal í samræmi við tiUögur Reynis Vilhjálmssonar, sem þeg- ar hafa verið kynntar í skipu- lagsnefnd borgarinnar. I tillögu borgarstjóra kemur fram, að áætlunin skuli miðuð við 4 ára framkvæmdatíma og hún skuli taka til umhverfis, íþrótta- mannvirkja, grasagarðsins og gróð- ursetningarátaks á svæðinu. Jafn- framt skuli gerð uppbyggingar- áætlun um skemmtigarð (TívolO, sem einkum verði ætlaður yngstu borgurunum og dýragarð, þar sem verði sýnishom af dýrategundum af norðlægum slóðum, sjávardýra- garð og gróðurskála. Loks skuli í áætluninni gert ráð fýrir vélfrystu skautasvelli næst Laugardalshöll- inni. I tillögu borgarstjóra kemur einn- ig fram, að framkvæmdaáætluninni skuli fylgja kostnaðaráætlun, sem hægt verði að leggja til grundvallar við gerð fjárhagsáætlunar vegna ársins 1987. VERKTAKASAMBAND ís- lands hefur lagt fyrir forsæt- isráðherra, samgönguráð- herra og fjármálaráðherra tillögu um að flýta þeim vegagerðarf ramkvæmdum, sem fyrirhugaðar eru sam- kvæmt núgildandi langtíma- að afhenda aðeins hluta af þjóðinni yfírráðarétt yfír auðlindum þjóðar- innar allrar, eins og gert er með núverandi kvótakerfi, án þess að því fylgi miklar skyldur því öll þjóð- in þyrfti að hafa lífsviðurværi sitt af þeim. Líkti hann ferskfískút- flutningi sjómanna og útgerðar- manna við það að leyfa erlendum skipum að veiða í íslenskri landhelgi og sagði síðan: „Ef við erum orðnir svona fijálslyndir á annað borð, að vilja sigla með stóran hluta af aflan- um okkar óunninn á erlendan markað með ærnum tilkostnaði þó, væri þá ekki alveg athugandi að bjóða aflann út,“ sagði Friðrik Páls- son einnig. Sjá ræðu Friðriks Pálssonar sem birt er í heild á blaðsíðu 16 og 17. áætlun ríkisstjórnarinnar. Leggur Verktakasambandið til, að fé til nýframkvæmda verði aukið verulega á árun- um 1986—1988 miðað við það sem nú er áætlað, en siðan verði dregið úr framkvæmd- um á ný á árunum 1989-1991. í bréfí Verktakasambandsins til ráðherranna segir, að megintil- gangurinn með tillögunni sé að jafna sveiflur í verklegum fram- kvæmdum og talið sé að það muni spara þjóðarbúinu hundruð millj- óna á næstu sex árum. Gert er ráð fyrir í tillögunni, að ekki verði veruleg röskun á heildarfram- kvæmdamagni hins opinbera á næstu sex til átta árum eins og það er áætlað nú, þótt vegafram- kvæmdum verði flýtt. í tillögunni er reiknað með, að útgjöld til nýframkvæmda í vega- gerð verði um 5.100 milljónir króna á árunum 1986—1988, en sam- kvæmt langtímaáætlun var reikn- að með að þessi fjárhæð yrði um 4.450 milljónir króna á núgildandi verðlagi. Alþingi veitir hins vegar aðeins 902 milljónir á yfírstand- andi ári í stað 1.352 milljóna sem gert er ráð fyrir í langtímaáætlun- inni. í tillögunni er þannig gert ráð fyrir því, að framkvæmdafé verði á þessu þriggja ára tímabili aukið um 650 milljónir króna frá lang- tímaáætlun og er það álíka fjárhæð og skerðing langtímaáætlunarinn- ar á árunum 1983—1985. Sé aftur á móti tekið mið af fjárveitingu Alþingis í ár, 902 milljónir, og reiknað með að hún haldist óbreytt á næstu tveimur árum gerir tillag- an ráð fyrir 2.400 milljóna króna aukningu framkvæmdafjár. Gert er ráð fyrir að viðbótarfj'ár- ins verði aflað á innlendum láns- Qármarkaði með útgáfu skulda- bréfa, sem Verktakasambandið gæfí út, auk þess sem bensíngjald yrði hækkað fari svo að olíuverð lækki enn frekar. Verktakasambandið gerir ráð fyrir, að undirbúningur fram- kvæmda verði í höndum Vegagerð- ar ríkisins og Vegagerðin ákveði forgangsröð verkefna. Oll verk verði boðin ,út og þar á meðal nokkur stórverk' upp á 30—100 milljónir króna á völdum köflum samhliða smærri verkefnum til að styrkja hlut bæði stærri og minni fyrirtækja. Þá segir í tillögunni, að virkjana- framkvæmdir liggi nú niðri að mestu og stórvirk tæki standi ónýtt, engin atvinnugrein hérlendis búi við jafn slæm rekstrarskilyrði og verktakaiðnaðurinn og öll skyn- samleg rök hnígi í þá átt, að nauðsynlegt sé að taka upp virkari stýringu á því fé, sem fer til verk- framkvæmda í landinu, með það fyrir augum að jafna stórfelldar sveiflur. Fyrir réttu ári gerði Hagvirki hf. rfkinu tilboð um að Ieggja bundið slitlag á allan veginn milli Reykjavíkur og Akureyrar fyrir 920 milljónir króna. Því tilboði var ekki tekið. Friðrik Pálsson forstjóri SH: Kvótanum verði skipt á milli vinnslustöðvanna FRIÐRIK Pálsson forstjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna varp- aði þeirri hugmynd fram í ræðu sem hann hélt á ráðstefnu Fiskiðnar á fimmtudag að fiskveiðikvótanum verði skipt á vinnslustöðvar í stað skipa. Vinnslustöðvarnar myndu síðan semja við aðra útgerðar- menn eða áhafnir eigin skipa um að ná í þann afla, sem þeir hefðu fengið úthlutað, á sem hagkvæmastan hátt. Vinnslustöðvamar myndu síðan frysta aflann eða salta eða flytja hann ferskan á erlendan markað, unninn eða óunninn, allt eftir því sem mest gefur í aðra hönd. Taldi Friðrik að þessi leið myndi skila þjóðarbúinu mestu í bráð og lengd, en væri þó viðkvæm í framkvæmd eins og það kerfí sem við búum við í dag. I ræðu sinni á ráðstefnunni gagnrýndi Friðrik stóraukinn út- flutning á ferskum físki í gámum. Hann sagði meðal annars: „Þó að hátt verð á erlendum ferskfísk- mörkuðum, sem auk þess kann að vera tímabundið, verði til þess, að útflutningur af ferskum físki stór- aukist, er síður en svo sjálfgefíð, að það tryggi mestan afrakstur. feað er fyrst og fremst ranglátt kvótakerfí sem kallar á þetta ástand." Hann sagði að markmiðið með nýtingu auðlindarinnar væri hvorki að hámarka ágóða sjómanna né útgerðarmanna, heldur að tryggja að þjóðin í heild hafí sem mestan heildarágóða. Þess vegna þurfí að líta á lokaafurðina og haga nýtingu aflans þannig, að sem mest verði til skiptanna fyrirþjóðina alla. Friðrik sagði að það gengi ekki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.