Morgunblaðið - 02.07.1986, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 02.07.1986, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1986 „Mjöff mikilvægur dómur“ — segir Halldór Ásgrímsson „ÉG VIL leggja áherslu á það, að þetta mál fjallar ekki um okkur, heldur tengist það hval- veiðibanninu og samningum í kjölfar þess á milli Bandaríkj- anna og Japans,“ sagði Halldór Ásgrimsson i samtali við Morg- unblaðið, „við höfum farið eftir banninu en nýtt okkur heimild til veiða í rannsóknarskyni.“ Krislján Loftsson forstjóri Hvals hf.: Hefur ekkert með samn- inginn við Japani að gera „MÉR er nú ómögulegt að koma auga á nokkurt mikilvægi þessa dóms fyrir okkur íslendinga," sagði Kristján Loftsson, forstjóri Hvals h.f., „enda eru engin lög eða reglugerðir í Japan, sem heimila innflutningsbönn eða höft á sölu hvalaafurða." Kristján taldi að þótt hæstiréttur Bandaríkjanna hefði komist að gagnstæðri niðurstöðu, hefði það ekki þurft að yera áhyggjuefni fýrir íslendinga. Ómögulegt væri að segja til hvaða ráða Japanir hefðu gripið, ef Bandaríkjamenn hefðu skorið veiðiheimildir þeirra í banda- rískri lögsögu verulega niður. Mætti þar til dæmis nefna hugsanlegt innflutningsbann í Japan á banda- rískum sjávarafurðum, sem skiptu hundruðum milljóna króna og myndi leika fískiðnað í Alaska mjög grátt. „Öll þessi umræða sýnist mér vera vangaveltur um hluti, sem út- lokað verður að fá botn í. Hvaða hugsanleg áhrif hefði hugsanleg ákvörðun hugsanlega getað haft? Það er það sem menn eru að velta fyrir sér,“ sagði Kristján Loftsson. Ráðherrann gat þess, að tregðu hafi gætt í sölu á afurðum, sem verða til við þessar rannsóknir, þar eð Japanir vilja ekki eiga neitt á hættu vegna kaupa á þeim. „Mikilvægi þessa dóms fyrir okkur felst í því að hann minnkar líkurnar á því að Banda- ríkjamenn hafi afskipti af við- skiptum milli Japana og íslend- inga. Að öðru leyti eru þessi tvö máJ óskyld." I Morgunblaðinu á þriðjudag var sagt frá úrskurði hæstaréttar Bandaríkjanna um hvalveiðar Jap- ana og fiskveiðiréttindi. Hann var á þá leið að stjórn Bandaríkjanna væri ekki skuldbundin til að tak- marka fiskveiðiheimildir Japana í bandarískri lögsögu vegna hval- veiða þeirra í Kyrrahafi. Urskurður- inn var samþykktur með 5 atkvæð- um gegn 4. Samkvæmt fyrri úr- skurði áfrýjunardómstóls, var stjóm Bandaríkjanna skyldug til að helm- inga fiskveiðikvóta sérhvers ríkis, sem virti hvalveiðibann Alþjóða- hvalveiðiráðsins að vettugi. Aðspurður um afleiðingar þess ef álit minnihluta hæstaréttar Bandaríkjanna hefði orðið ofan á, sagðist Halldór ekki gera sér grein fyrir þeim, hins vegar væri þessi niðurstaða mjög mikilvæg fyrir stjómvöld í Bandaríkjunum. Það hefði verið meiri háttar áfall fyrir stjómvöld í Bandaríkjunum, ef dómurinn hefði fallið á hinn veginn, enda hefði það takmarkað svigrúm stjómvalda til samninga á alþjóð- legum vettvangi. Einnig hefði það getað haft áhrif á öðrum sviðum. Halldór Asgrímsson heldur um næstu helgi til Bandaríkjanna til viðræðna við þarlend stjómvöld. „Við ræddum við bandarísku full- trúana á fundi Alþjóðahvalveiði- ráðsins í Malmö um rannsóknar- áætlun Islendinga, og var talið nauðsynlegt að eiga frekari viðræð- ur eftir að þeim fundi lauk,“ sagði Halldór Ásgrímsson. Halldór kvaðst hvorki vera bjartsýnn né svartsýnn á skilning bandarískra stjómvalda á sjónarmiðum Islendinga, en að áhersla yrði lögð á að kynna sjónar- mið okkar, þannig að enginn mis- skilningur ætti sér stað á milli stjómvalda landanna. „Sá orðrómur hefur verið nokkuð áberandi að með rannsóknaráætlun okkar séum við aðeins að færa veiðar okkar í nýjan búning; þessum orðrómi þarf að eyða,“ sagði Halldór. „Nýju reglumar í takt við það sem við höfum stefnt að“ — segir Árdís Þórðardóttir formaður stjórnar lánasjóðsins „MÉR FINNST það makalaust hversu margir býsnast yfir ofvexti í útgjöldum hins opinbera, en þegar beita á aðhaldi þá er alltaf óskap- ast yfir því að ekki megi hrófla við þessu atriði, betra væri að skerða eitthvað annað — og hvað það er liggur oftast milli hluta,“ sagði Árdís Þórðardóttir, stjómarformaður Lánasjóðs íslenskra námsmanna, þegar hún var innt álits á nýjum úthlutunarreglum sjóðs- ins. Árdís sagði að stjóm sjóðsins hefði gert tillögur um breytingar á úthlutunarreglunum og þær síðan flestar hlotið samþykki ráðherra. í þeim komi fram að stjómin telji að sér beri skylda til að beita aðhaldi við úthlutun lána. Árdís sagði að nú hefðu tvær veigamiklar breyt- ingar orðið á reglum sjóðsins. Annarsvegar væri tekið tillit til skólagjalda vegna náms eftir BS- og BA-próf víðar en í enskumælandi löndum. Hinsvegar væri mönnum ekki lengur refsað fyrir tekjur sínar eða styrki sem þeim hlotnast. Varð- andi þá stefnu að greiða ekki skóla- gjöld vegna fyrrihlutanáms, ef kostur er á sambærilegu námi á íslandi sagði Árdís: „Ég vil benda á að á undanfömum árum hefur sjóðurinn takmarkað verulega það tillit sem er tekið er til skólagjalda á fyrsta hluta háskólanáms. Þær skorður hafa jafnan verið settar hvort sambærilegt nám má stunda á íslandi. Samkvæmt 2. grein laga númer 72/1982 sem sjóðurinn starfar eftir er lánasjóðnum heimilt að veita Ijárhagsaðstoð til sémáms erlendis verði hliðstætt nám ekki stundað hérlendis. Við höfum því ekki gert annað en að samræma reglumar. Með þessu erum við að beina augum fólks í fyrrihlutanámi frekar að þeim landsvæðum þar sem háskólanám er borgað af hinu opinbera. Þannig teljum við að hægt sé að gæta aðhalds í útgjöld- um sjóðsins og vega þar með upp á móti útstreymi fjár vegna breyt- inga á tekjutilliti." „Með þessum nýju reglum er stjómin að hvetja nemendur til að afla sér sem mestra tekna,“ sagði Árdís. Hinsvegar taldi hún að ef ekkert tillit hefði verið tekið til tekna hefði útstreymi fjár úr sjóðn- unum aukist um of. „Ég tel það æskilegt að láta af öllu eftirliti með tekjum lánþega og öllum skorðum á hvar þeir stunda nám. Til þess að ná því markmiði þurfum við að verðleggja peningana hóflega. Mér verður það æ Ijósara að setja verður lög um að námslánin beri vexti. Einnig þyrfti að koma í veg fyrir að lánin afskrifist eftir 40 ár eins og nú er. Þá gætum við líka komið upp öflugu styrkjakerfi til þeirra einstaklinga sem skara fram úr.“ Árdís sagði að hugmyndin um styrkjakerfi gerði ráð fyrir því að þeim yrði úthlutað með aðstoð skól- anna, sem Ieggðu mat á hverjir væru þeirra verðir. Ekki þyrfti endilega að miða við frábæran árangur, heldur fyrst og fremst að þeir sem sýnt hefðu ágætar fram- farir nytu þeirra. „Ég tel að þessar nýju reglur séu fýllilega í takt við það sem sjóðstjómin hefur verið að stefna að undanfarin ár. Við viljum hvetja námsmenn til að afla sér tekna og stuðla að nauðsynlegu aðhaldi í úthlutun fjárins." i Morgunblaðið/Óli K. Magnússon Tuminn er ónýtur nema hvað allt skraut, sem á honum er úr eir, er í lagi og verður notað aftur á endurbyggðan tura. Gamli iðnskólinn: Endurbygg- ingu ljúki 10. ágúst „Endurbygging gamla iðn- skólans, sem nú er í eigu borgarinnar, hefst að öllum líkindum í dag, en í heila viku höfum við verið að hreinsa til í húsinu. Við stefnum síðan á að ljúka verkinu 10. ágúst,“ sagði Leifur Blumenstein, byggingaf ræðingur, i samtali við Morgunblaðið, en hann hefur umsjón með endur- byggingu hússins. Efsti hluti tumsins var tekinn af húsinu sl. mánudag og verður hann endurbyggður undir stjóm Magnúsar Bjömssonar, sem einnig sá um endurbyggingu hans þegar húsið var gert upp og lagfært. Leifur sagði að tum- inn væri að mestu ónýtur nema hvað allt skraut úr eir er í lagi og yrði notað aftur. „Reisa verð- ur allt risið upp aftur og að hluta loftið, sem er yfir annarri hæð hússins. Byggingarfyrirtækinu ístaki hefur verið falið að sjá um verkið og verða allt að 12 manns við vinnu." Leifur sagði að óljóst væri enn hvað um baðstofuna yrði, en ljóst væri að útskurður sá er Ríkharður Jónsson vann á sínum tíma væri gjörónýtur. Húsið var byggt árið 1905, en baðstofan var ekki byggð inn í það fyrr en árið 1924. Aldarafmæli Landsbanka íslands í gær: Afmælisveisla á öllum afgreiðslustöðum bankans Banka- og deildarstjórar reyndu eftir megni að vera sem mest á lausu í gær til þess að geta blandað geði við viðskipta- vini meira en venjulega. Hér á miðri mynd má sjá þá Guðmund Guðmundsson forstöðumann afgreiðslusviðs, Sigurbjörn Sigtryggsson aðstoðarbanka- stjóra og Jóhann Ágústsson framkvæmdastjóra afgreiðsiu- sviðs í aðalbanka. LANDSBANKI íslands hélt upp á aldarafmæli sitt í gær á 42 af- greiðslustöðum bankans um ídlt land og er víst óhætt að segja að menn hafi verið i hátíðarskapi. Það var nóg að gera hjá starfs- fólki eins og venjulega þann 1. hvers mánaðar, en að þessu sinni var enginn að flýta sér og allir með bros á vör. Fólk dvaldi lengur en vant er í bankanum yfir veitingum og mátti sjá á borðum fleiri blóma- skreytingar sem bankanum hafði borist í tilefni tímamótanna. „Þetta er óskaveður - þama sérðu að við höfum sambönd alls staðar," sagði Jóhann Ágústsson, framkvæmda- stjóri afgreiðslusviðs í aðalbanka, þegar blaðamann bar að garði undir hádegi í gær, en hann ásamt öðru starfsfólki bankans, stóð úti og bauð viðskiptavini velkomna. Inni í afgreiðslusalnum var boðið upp á kaffi og meðlæti og sá starfsfólk bankans um að nóg væri á borðum og að yngstu gestimir fengju smá- dót, blöðrur og góðgæti. Afgreiðsl- an fór þó fram með hefðbundnum hætti. Afgreiðslusalurinn var skreyttur sérstaklega I tileftii tímamótanna og starfsfólkið vígði í gær nýju búningana sína sem settu mikinn hátíðarblæ á afmælishaldið. Konur klæddust rauðum drögtum og karl- ar gráum buxum, hvítri skyrtu og bám rautt bindi. Bankastjórar höfðu lokið móttöku með fyrra móti. Um tuttugu manns höfðu komið þá um morguninn, sem er nokkuð eðlilegur fjöldi, en þar af vom tveir sem aðeins höfðu komið til þess að spjalla um lífíð og tilver- una, eins og stundum bregður við, að sögn eins bankastjórans. Skólahljómsveit Kópavogs undir stjóm Bjöms Guðjónssonar byijaði að leika fyrir framan Langholts- útibú kl. 9.00 í gærmorgun, síðan fyrir framan Miklubrautarútibú, þá Vegamótaútibú og síðast marséraði hljómsveitin niður Bankastrætið og að aðalbankanum, þar sem hljóm- svéitin lék um stund um hádegis- bilið. Þá kom hún aftur kl. 15.30 og lék fram að lokun bankans. „Lík- lega koma miklu fleiri tif okkar í aðalbankann áður en dagurinn er úti, en ég átti von á í upphafi ef marka má fyrsta klukkutímann sem bankinn var opinn," sagði Jóhann um hádegisbilið í gær, en á fyrsta klukkutímanum höfðu 1.400 kaffi- dryklqarmál verið notuð. í upphafi var hinsvegar gert ráð fyrir að milli 5-6 þús. manns kæmu í heild, en venjulega um mánaðamót koma milli 3.500 til 4.000 manns og á öðrum dögum fer tala viðskiptavina ekki niður fyrir 2.500, að sögn Jó- hanns. Afmælisgestir bankans skrifuðu allir í gestabók og einnig æfðu sumir þeirra sig á hraðbankanum svokallaða sem hafði verið komið fyrir í bankanum tii bráðabirgða í tileftii afmælisins. Sögusýning Landsbanka íslands og íslenskrar seðlaútgáfu og myntsláttu er opin til 20. júlí í nýja Seðlabankahúsinu. Virka daga verður opið kl. 16.00- 22.00 og um helgar kl. 14.00-22.00. Aðgangur er ókeypis. Þá hefur verið ákveðið að þeim bömum, sem fæddust í gæ'r á afinælisdegi bank- ans, verðpr send kjörbók með 2.500 króna innistæðu síðar í sumar. Morgunblaðið/Einar Falur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.