Morgunblaðið - 02.07.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2, JÚLÍ 1986
29
Hollustuvernd ríkisins
hefur eftirlit með
innflutningi matvæla
„ VEGNA fréttar á baksíðu Morgunblaðsins þann 28. júní sl., þar sem
ranglega er staðhæft að Geislavarnir ríkisins fylgist með innfluttum
matvælum í samvinnu við yfirvöld í viðkomandi löndum í Evrópu,
þá vilja Hollustuvernd ríkisins og Geislavarnir ríkisins taka fram
eftirfarandi:
Hollustuvemd ríkisins hefur nú
um nokkurt skeið, m.a. í samræmi
við ákvæði reglugerðar frá 2. maí
sl. um bann við innflutningi mat-
væla frá nokkrum tilteknum Aust-
ur-Evrópulöndum, haft eftirlit með
innflutningi matvæla frá Evrópu,
með tilliti til geislavirkni. Sérstak-
lega hefur verið fylgst með inn-
flutningi á fersku grænmeti, ávöxt-
um og berjum. Þegar ástæða hefur
þótt til að mati Hollustuvemdar rík-
isins hafa þessar sendingar verið
geislamældar af starfsmönnum
Geislavama ríkisins. Ekki hefur til
þessa fundist nein vísbending um
geislavirkni í matvælunum.
Hollustuvemd ríkisins hefur haft
samstarf við hliðstæðar stofnanir á
Norðurlöndum og mun fylgjast
grannt með þróun þessara mála.“
INNLENT
Hlaðvarpinn:
Af salið afhent
l. JÚLÍ var afsal fyrir Hlaðvarpanum, Vesturgötu 3, afhent
forsvars-konum Vesturgötu 3 hf. sem er hlutafélag kvenna. Þær tóku
við húsinu 5. júlí í fyrra og hafa komið þar upp margskyns starf-
semi. Kaupin voru fjármögnuð að mestu með sölu hlutabréfa til
kvenna. Enn er töluvert af hlutafénu ógreitt og hvetja forustukonurn-
ar kynsystur sínar eindregið til að greiða það.
Húseignin á Vesturgötu 3 er tvö Húseignin var formlega opnuð 19.
sambyggð hús, Bkhúsin, og eitt
stakt, framhúsið. Alls em þetta um
1.000 fermetrar. Kaupverðið var
9.5 milljónir króna og var síðasta
afborgunin greidd um mánaðamót-
in. Hlutabréf hafa selst fyrir u.þ.b.
3,2 milljónir en þar af em um 700
þús. kr. ógreidd hlutafjárloforð. Þá
fengu þær 2ja milljóna króna ríkis-
styrk. En 3,5 til 4 milljónir króna
em teknar að láni.
Konumar þurfa að greiða 1 til
1.5 milljónir króna af lánunum í
ágúst og september. Því vilja for-
ystukonur Hlaðvarpans eindregið
hvetja konur til að greiða hlutafjár-
loforð sín: „Því það væri þrælfúlt
að missa þetta allt nú þegar þetta
er komið í fullan gang,“ eins og
Súsanna Svavarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Vesturgötu 3 hf.,
komst að orði. Enn er hægt að
kaupa hlutabréf, en karlar mega
ekki eiga hlutabréf, aftur á móti
mega þeir kaupa þau ef þeir gefa
þau konum. Aðrar fjáröflunarleiðir
kváðu þær vera leyndarmál enn sem
komið er.
Reksturinn er frá og með síðustu
mánaðamótum kominn í fullan
gang og stendur reksturinn undir
sér að sögn Súsönnu. Það sem
umfram er er notað til endurbóta
og kaupa á tækjabúnaði í húsið.
maí með bókakaffí, sem var 12
kvölda dagskrá. Tókst hún vel að
sögn þeirra. í húsunum er myndlist-
arsalur. Þar sýnir Ásgeir Einarsson
pastel-, vatnslita- og olíumálverk
til 10. júlí. Meðal annarra sem þar
sýna í sumar eru: Norska batíklista-
konan Edna Cers, Anna Concetta
sem sýnir klippimyndir og málverk,
Helga Egilsdóttir og Guðrún Krist-
jánsdóttir.
Þá er aðstaða fyrir leikhús í hús-
inu. Þar sýndu í vetur m.a. Eggleik-
húsið og Kjallaraleikhúsið. 23. júlí
verður frumsýnt leikritið „Hinir
sterkari" eftir Ágúst Strindberg.
Inga Bjamason er leikstjóri en leik-
arar eru: Margrét Ákadóttir, Anna
Einarsdóttir og Albert Aðalsteins-
son. Fleiri leiksýningar eru einnig
í bígerð.
Þá eru í húsunum herbergi sem
leigð eru út. Tveir kvenlistmálarar
eru þar með vinnuherbergi, einn
rithöfundur, og tveir karllistmálar-
ar eru að leigja aðstöðu í kjallaran-
um. Þá geta konur fengið vinnuher-
bergi fyrir lítið fé. Þá er Alþýðuleik-
húsið með skrifstofu í húsinu og
arkitektanemar em með vinnuað-
stöðu til að vinna að skipulagsverk-
efnum. Einnig em starfræktar þijár
verslanir í húsinu og ein hár-
greiðslustofa.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
„Nei, nei, Jón minn, við erum bara á æfingu núna.“ Ómar Ragnarsson og Jón Páll Sigmarsson á
æfingu fyrir „reiptog aldarinnar", sem fer fram á fimmtudagskvöld. Ómar mun aka bílnum og
togast á við Jón Pál á tveimur jaf nfljótum.
Keppni í rallycross o g reiptog aldarinnar
LIÐUR í íslandsmeistarakeppninni á stómm átta strokka amerískum verður m.a. keppni milli Jón Páls
í rallycross fer fram á brautinni á keppnisbflum. Ökumenn í sjálfri Sigmarssonar og Ómars Ragnars-
Kjóavöllum á Vatnsendahæð á rallycross-keppninni verða m.a. ís- sonar í reiptogi! Ómar verður á
fímmtudagskvöld. landsmeistarinn Jón Hólm á Volks- gömlum Prinz-bfl sínum en Jón
Keppt verður á torfæmjeppum á wagen, Öm Stefánsson á nýupp- verður á tveimur jafnfljótum.
svokölluðum „buggy“-bílum og í gerðum Toyota-bfl og Steingrímur Rallycross-keppnin hefst klukkan
fyrsta skipti hérlendis verður keppt Ingasson á Nissan. Til skemmtunar 20.00 á fímmtudagskvöld.
Þessar konur sem hafa, ásamt fleirum, verið virkar í hópnum sem stendur að Vesturgötu 3 hf., þ.e. Hlaðvarpanum, komu anmnn til að
taka á móti afsalinu. Frá vinstri talið er fyrst Súsanna Svavarsdóttir fr.kv.stj., Helga Bachmann formaður, Valgerður Gunnarsdóttir, Lára
Arnórsdóttir, Helga Thorberg varaformaður, með Hauk son sinn, Sigrún Björnsdóttir og Svanhildur Jóhannsdóttir.
Leiðrétting
á frétt
í Morgunblaðinu á sunnudag var
frétt um bifreiðaslys á Bústaðavegi. i
Þar sagði að bifreiðinni hefði verið ,
stolið, sem er rangt. Einnig sagði j
að tvennt hefði verið í bifreiðinni,
en hið rétta mun vera að fímm
manns sátu í bifreiðinni þegar
óhappið varð, en hins vegar var
tvennt flutt á slysadeild.
Eru hlutaðeigandi beðin velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Leiðrétting
Sú villa var í frétt blaðsins af
lestarferðinni frá Hellu í gær, að
sagt var að Fáksmenn hafi verið
með kaffí og lummur á boðstólum
í Árbæjarsafni. Hið rétta er að það
var Ðillonshús, sem er veitingasala
Árbæjarsafns, sem stóð fyrir veit-
ingunum.
el I
alViURSTÖÐ;
Verslunarráð íslands:
„Jöfnunargjaldið ekki tilkomið vegna
verðfellingar á óunnum kartöflum“
„AÐ ÁLITI sérfróðra manna mun 5% jöfnunargjaldið Ieiða til þess,
að innfluttar kartöflur geta orðið 40-50% dýrari út úr búð en þær
innlendu," segir i ályktun Verslunarráðs íslands sem borist hefur
Morgunblaðinu.
Orðrétt er ályktun Verslunar-
ráðsins, sem formuð er í bréfí til
landbúnaðarráðherrra, á þessa leið:
„Þann 25. júní sl. var gefin út
reglugerð um álagningu 40% gjalds
á tollverð unninna kartaflna og 50%
á tollverð óunninna kartaflna.
Umrædd álagning er rökstudd á
þá leið að innfluttar kartöflur séu
töluvert ódýrari en þær íslensku og
gjaldið því lagt á til að jafna verðið
og styrkja samkeppnisaðstöðu ís-
lenskra kartaflna. Einnig er fullyrt
að gjaldið breyti ekki framfærslu-
kostnaði. Verslunarráðið telur að
álagningin fái ekki staðist á grund-
velli þessa rökstuðnings.
Þegar lögin, sem álagningin er
grundvölluð á, voru til umræðu á
Alþingi, sagði forsætisráðherra
m.a. eftirfarandi orðrétt: „Þetta
frumvarp er eingöngu flutt til að
heimild fáist til að vemda innlenda
framleiðslu á kartöflum þegar um
óeðlilega verðfellingu er að ræða á
innflutningi eins og mér er tjáð að
sé, sérstaklega með ýmiss konar
framleiddar vörar úr kartöflum.“
Fullyrða má að engar upplýsing-
ar liggja fyrir um óeðlilega verð-
fellingu á þeim kartöflum sem fyrir-
hugað er að flytja til landsins.
Óunnar kartöflur era keyptar á
erlendum uppboðsmarkaði. Jöfnun-
argjaldið er því sannanlega ekki til
komið vegna verðfellingar á óunn-
um kartöflum. Þess vegna verður
því ekki trúað, hæstvirtur land-
búnaðarráðherra, að þér gangið
þannig í berhögg við hæstvirtan
forsætisráðherra. Yfírlýsingum for-
sætisráðherra. hlýtur að eiga að
vera hægt að treysta, enda hafði
umrædd yfírlýsing m.a. þau áhrif,
að framkomin breytingartillaga við
framvarpið á Alþingi var dregin til
baka.
Að áliti sérfróðra manna mun
50% jöfnunargjaldið leiða til þess,
að innfluttar kartöflur geta orðið
40-50% dýrari út úr búð en þær
innlendu. Þar sem gjaldið kemur
ekki aðeins í veg fyrir að kartöflur
hérlendis lækki í verði, heldur veld-
ur því að verð þeirra hækkar,
gangið þér hæstvirtur landbúnaðar-
ráðherra, einnig hvað þetta varðar,
í berhögg við ríkisstjóm og forsæt-
isráðherra. Á Alþingi fullvissaði
forsætisráðherra þingheim um að
heimildir framvarpsins yrðu ekki
notaðar, ef gjaldið myndi hækka
framfærslukostnað I landinu.
Ákvörðun heildsöluverðs á kartöfl-
um er fijáls. Þær íslensku kartöflur
sem nú era á markaðinum era
orðnar ársgamlar. Það er því eðli-
legt að verð þeirra lækki. Þá lækk-
un er óeðlilegt að koma í veg fyrir
með stjómaraðgerðum.
Með vísan til ofanritaðs og vísan
til bréfs ráðsins til formanna þing-
flokkanna frá 9. apríl 1986, vill
Verslunarráðið mótmæla þessari
álagningu og skora á yður að aftur-
kalla hana þegar í stað.“
u