Morgunblaðið - 02.07.1986, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 02.07.1986, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1986 45 Sigrún Ólafsdóttir ásamt Phyllis Kaminsky frá Sameinuðu þjóðunum, fyrir framan teikningu af fyrrum forseta Bandaríkjanna, Harry S. Truman. Sigrún fulltrúi námsmanna — við verðlaunaafhendingu úr „Truman-sjóði „Heiðarlegur, hreinskiptinn og ábyrgur". Þetta eru þau lýsingar- orð sem oftast heyrast, þegar rætt er um Harry S. Truman, sem varð forseti Bandaríkjanna er Franklin Roosevelt lést þann 12. apríl 1945. Frami Trumans var ekki byggður á tignum ættum, auði eða völdum, heldur öllu frem- ur á því hversu trúr hann var alþýðu lands síns og uppruna sín- um. Hann var fyrirmynd al- múgamannsins ameríska. Aðdáendur forsetans stofnuðu líka sjóðinn „The Harry S. Tru- man Good neighbour Award Foundation" árið 1952, sem hefur það að markmiði að heiðra þá, sem unnið hafa að því að mannkyn megi lifa í sátt og samlyndi í hættulegum heimi. I gegnum árin hafa margir frægir tekið við þess- um verðlaunum, t.a.m. Barry M. Goldwater, Omar Bradley, Gerald Ford, Hyman Rickover, Nelson A. Rockefeller, Dr. Jonas Salk, Jeane Kirkpatrick og nú í ár hinn hvíthærði leiðtogi demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, „Tip“ O’Neil. skyldur frammámanna gagnvart öllum þjóðum — til þess að undir- strika að ekki dugi minna en að allir leggi sig fram um að gerast „góðir grannar", hefur sjóðs- stjómin valið fulltrúa úr hópi er- lendra nemenda í Missouri til að vera viðstaddir verðlaunaafhend- inguna í Cansas City. I ár varð íslensk stúlka, Sigrún Ólafsdóttir, m.a. fyrir valinu. Sigrún hlýddi á Tip O’Neal flytja aðalræðu dagsins í hádegisverðar- boði, sem haldið var þann 8. maí sl., að viðstöddum 800 aðdáendum hins látna forseta. Frétt í Times fyrir 65 árum að er ekki laust við að okkur íslendingum sámi alltaf svolítið þegar útlendingar segjast aldrei hafa heyrt á eyju okkar minnst, hvað þá heldur öll hin stórkostlegu afrek þessarar þjóðar. Athugasemdum um ísbimi sem gæludýr og snjóhús með lyftum, tökum við að vísu með stök- ustu ró, brosum út í annað en for- dæmum í huganum aðra eins fáfræði. Því hlýnar okkur alltaf um hjartaræt- ur þegar við öðru hveiju rekumst á greinar um landið okkar góða eða viðtöl við einhveija þá íslendinga sem gert hafa garðinn frægan. Ekki alls fyrir löngu rákumst við á frásögn eina sem tengist Fróni, í dagblaðinu Times sem út kom þann 30. júní 1921. En þó svo liðin séu nú rétt 65 ár frá því grein þessi var rituð látum við frásögnina fljóta hér með, þó ekki værí nema bara til að sanna hið fomkveðna sem hefur breyst síðan amma var ung: „Konungleg heimsókn til íslands” Skálað í sódavatni (Frá okkar eigin fréttarítara) Kaupmannahðfn, 29. júní 1921. Hin konunglega heimsókn til ís- lands hefur nú sérstætt yfirbragð. Hún er annars eðlis en heimsóknim- ar 1874 og 1907 að því Ieyti að Kristján X. fór þangað nú sem konungur íslands og Valkyijan, skip föruneytisins, sigldi undir ís- lenskum gunnfána, er hún kom til Reykjavíkur. Konungur hélt stutta ræðu við komuna og stjómaði síðan ríkisstjómarfundi þar sem mikið var rætt um breytinguna á stöðu lands- ins. Forsætisráðherra, Jón Magnús- son, hélt ræðu þar sem hann bauð konung velkominn og gat þess að í dag hefði fyrsti konungur íslands tekið land á nákvæmlega þeim stað, sem fyrsti norski landnámsmaður- inn hafði gert á öldinni níundu. Ennfremur var oft haft orð á endur- heimtum Danmerkur á héruðunum í Norður-Slésvík. Glatt var á hjalla, þótt einungis hafí verið skálað í sódavatni, enda áfengisbann í gildi á eyjunni. Drottningin klæddist ís- lenskum þjóðbúningi, sem er úr svörtu silki, skreyttu gulli, en bún- ingurinn var gjöf frá islenskum konum, drottningunni til handa. Á þriðjudaginn lögðu konungshjónin upp í ferð um Suðurland. Þau tóku þátt í hátíðahöldum að Þingvöllum en þar var löggjafaþingið haldið til foma. Það sem af er ferðalaginu hefur verið unnt að fara akandi um Iandið, en síðar munu konungs- hjónin þó verða að notast við hesta. Reykjavíkurdvölina notaði drottn- ingin því til þess að kynnast farar- skjóta sínum, litlum íslenskum hesti. Veðrið hefur farið dagbatnandi síðan hinn tigni hópur kom til lands- ins og hafa þátttakendur dáðst mjög að hinn tigni hópur kom til -ífOYAL VISIT TO ICELAND. TOASTS IN SODA WATER. (FROM OUR OWN CORRE8PONDENT.) COPENHAGEN, June 29. Thé Royal viait to Iceland hos a charac- tor of its own. It diflers from those of 1874 and 1907 in that on this occasion Christian X. goes as King of Iceland and the Royal Icolandic Standard was run up when the Valkyrion, which is con- voying the Royal party, arrived off Reykiavik. The King made a short spoech in Icelandic, and afterwards pre- 8ided over a Council of State. This change of tho statu8 of the ialand was referred to during the various coremonies. Tho Prime Minister, Mr. Jon Magnusson, in his specch of wnlcome, pointed out that the ílrst Iccl&ndic King had now landcd at Revk- jarlk In the snot whoro the flrst Norwoglan scttlor toucheil land in tho ninth contury. Thore were frequont roferences to the reunion of North Slesvig with Denmark. The festivitios seem to have beon very animatcd, though the toasts, tho island being “ dry,” wcro drunk in soda watcr. Tho Queen woro the national Icelandic costumo of black silk cmbroidcrcd with’ gold, a gift from the lcelandic women. On Tuesday thclr Majesties eet out on a trip tq the southom parts of tho island. In tho aftomoon they attendod the popular featival at Thingvalla.'whero a general law court was hold as in tho oldcn timcs. So far tho Royal party havc bcon ablo to travcl in motor-cara ; lator it will only bo poasiblo to proceod on horacback. Dunng her Rtay at Roykjavik tho Qúoon lias triod hcr amall Icclandic pony. landsins og hafa þátttakendur dáðst mjög að hinni mögnuðu og kviku birtu norrænna sumamátta." Þar höfum við það! COSPER — Ég fékk hakkað buff i hádeginu í gær. Er eitthvað nýtt fréttaþjáþér? ^húsgagnaftöllin Ul'l l-I-BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410 J ÖRKIN/SlA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.