Morgunblaðið - 02.07.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1986
21
FLUGSl
BÍLALEIGi
ISNEYTISBIRI
Oryggis og tollahlið
LAGER/VIÐHALD/FLUGELDHÚS
■... —v 'i jrvwrjw/iiH—T-"-
'•wriVticmrrr
’ö HREINSISTÖf /SORPGI
'c=r Arc/l/l Ml anooyt'
ELDS JEYTIS BÍ
Areratra^
VERKSTÆÐI
FLUGSKÝLI
FRAGTFLUG
Ar CirqolUMfnqH
iTFLUG
(Einkaflug)
Hluti af deiliskipulagi flugstöðvarsvæðisins. Lengst tíl vinstri (austur) & myndinni hægri við hana gefur að líta eldsneytisbirgðastöðina. Að öðru leyti talar myndin sínu
er nýja flugstöðin, fyrir miðri mynd er fyrirhuguð þjónustubygging Flugleiða og til máU.
nýju flugstöðvarbygginguna voru
iðnaðarmenn að ganga frá pípu-
lögnum og loftræstingu stöðvarinn-
ar. Pípulögnum, stokkum og lág-
spennukerfí er komið fyrir í rými á
milli burðarplötu og niðurhengdra
lofta.
Loftræstistokkar koma frá fyrir-
tækinu Blikk og stál hf. en það var
verkfræðistofan Fjarhitun, sem
hannaði lagna- og loftræstikerfí.
Lofthitun verður í hinni nýju flug-
stöðvarbyggingu, þ.e.a.s. loft er
hitað upp og því dælt í gegnum
loftræstikerfíð. íslensk steinull er
notuð til einangrunar.
íslenskar bergtegundir verða í
endanlegum frágangi á lofti og
veggjum; basaltflísar á gólfí og
brotsteinn úr hraungiýti á veggjum.
Hugsunin að baki þessum frágangi,
er væntanlega að minna á íslenska
náttúru.
Um þessar mundir er verið að
ganga frá jarvegsvinnu undir undir
flughlöðin (flugvélarstæði) við flug-
stöðvarbygginguna. Flatarmál
þeirra er rúmlega tveir hektarar og
munu um 10.000 rúmmetrar af
steypu og 10.000 tonn af malbiki
fara í þau.
Einnig eru nú hafnar fram-
kvæmdir við nýjan veg frá Keflavík
að flugstöðvarbyggingunni, þ.e. nú
munu flugfarþegar ekki lengur
þurfa að aka í gegnum athafna-
svæði vamarliðsins, og er það iiður
í aðskilnaði flugs vamarliðsins og
almenns flugs.
Flugvallarsvæðið liggur í vestur
frá byggð í Keflavík. Þetta land-
svæði er hrjóstmgt sléttlendi;
hæðarmunur mestur um 2-3 metr-
ar. Lágur hryggur liggur til norðurs
og suðurs um miðbik svæðisins, en
á þessum hrygg er flugstöðvar-
byggingin. Byggingin hefur stefnu
til flugvallar í suður, þ.e. úr miðri
suðurhlið hennar gengur landgang-
urinn til flugvéla. Svæði þetta er
um 40 metra yfir sjávEirmáli.
Staðsetning flugstöðvarsvæðis-
ins er staðfest með aðalskipulagi
Keflavíkur, Njarðvíkur og Keflavík-
ef þörf krefur. 30. maí síðastliðinn
hófst jarðvegsvinna við húsið á
vegum Hagvirkis og hefur nýlega
verið opnað útboð í byggingu húss-
ins. í núverandi flugeldhúsi vinna
um 70 manns við afar slæmar
aðstæður á rúmlega 300 fermetra
svæði og er hámarksafkastageta
þess eldhúss 3.000 bakkar á sólar-
hring. Hámarksafkastageta hins
nýja eldhúss verður 6.000 bakkar
á sólarhring. Að sögn Leifs Magn-
ússonar, framkvæmdastjóra þróun-
arsviðs Flugleiða, er stefnt að þvf
að byggingin verði tekin í notkun
í byrjun oktober 1987.
10.000 rúmmetrar af steypu,
1.200 tonn af stáli og 2.200 fer-
metrar af stáli hafa farið í hina nýju
flugstöðvarbyggingu. Framkvæmd-
ir hófust 7. október 1983 er Geir
Hallgrímsson tók fyrstu skóflu-
stunguna og áætlanir um bygging-
arframkvæmdir og kostnað hafa
staðist. Kostnaður við hina nýju
flugstöð var áætlaður 42 milljónir
Bandaríkjadala. Flugstöðin er í eigu
íslenska ríkisins og mun veita 400
til 500 manns atvinnu, fyrir utan
þá, sem tengjast flugstöðinni
óbeint.
Nýja flugstöðin.
urflugvallar frá árinu 1972 og
endurskoðun þess frá 1982. Af
flugstöðvarsvæðinu liggur einnig
fyrir deiliskipulag er gerir ráð fyrir
byggingu flugskýla og verkstaeða,
vöruhúsa og húsnæðis fyrir aukið
skrifstofuhald, flugeldhús, hótel,
bílaleigu o.fl. Einnig er f skipulag-
inu gert ráð fyrir eldsneytisbirgða-
stöð með sex eldsneytistönkum.
Samhliða flustöðvarbyggingunni
er verið að reisa tvö mannvirki á
svæðinu, sem tekin verða í notkun
um svipað leyti og flugstöðvíir-
byggingin, en það eru eldsneytis-
birgðastöð og þjónustubygging á
vegum Flugleiða hf.
800 metrum fyrir vestan flug-
stöðvarbygginguna rís eldsneytis-
birgðastöð og er hún reist í sam-
vinnu olíufélaganna þriggja og
Flugleiða. Til að byija með verða
einungis þrír geymar af sex byggðir
og mun það vera nóg miðað við
núverandi aðstæður, en hver tankur
verður um 1.000 rúmmetrar að
stærð. Frá dælustöð liggja leiðslur
neðanjarðar í tólf brunna í flug-
hlaði, tvo fyrir hveija flugvél. Jarð-
vegsframkvæmdir við birgðastöð-
ina munu hefjast mjög fljótlega og
er stefnt að því, að sögn Gunnlaugs
Helgasonar hjá Skeljungi, að tank-
amir verði reistir í september.
Kostnaður við birgðastöðina var í
október 1985 áætlaður 60 milljónir
og er þar reiknað með niðurfellingu
tolla og aðflutningsgjalda á bygg-
ingarefni. Birgðastöðin er hönnuð
af verkfræðiskrifstofum Shell-fyrir-
tækisins.
220 metrum fyrir vestan flug-
stöðina mun rísa 3.700 fermetra
þjónustubygging á vegum Flug-
leiða. Þar mun verða til húsa flug-
eldhús, frílager, fraktdeild, tækja-
verkstæði, ásamt varahlutageymslu
og aðstöðu fyrir flugvirkja. Vilyrði
er fyrir stækkun húsnæðisins síðar
Morgunblaðið/Bjami
Unnið við innréttingar. Á myndinni sést inn landganginn (flugvélar.
X /
RKBRAUT N