Morgunblaðið - 02.07.1986, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1986
irr • 3r / g* 0 • /«/• AP/Símamynd
Komið i veg fyrir sjalfsmorð
Á þessum myndum má sjá hvernig lögreglumenn í Boston í Massachusetts í Banda-
ríkjunum koma í veg fyrir að ung stúlka, Adriana Montilla að nafni, fremji sjálfs-
morð með því að varpa sér fram^af brún þrílyfts húss. Á fyrri myndinni fylgjast
lögreglumennirnir með Montilla. Á síðari myndinni hafa þeir gripið í hana og búa
sig undir að kippa henni inn um glugga. Eftir að Montilla var bjargað var hún færð
á sjúkrahús.
Kína — Sovétríkin:
Stj órnmálasam-
band ekki batnað
Peking, AP.
LÍTIÐ hefur miðað í átt að bættum stjórnmálasamskiptum Sovét-
manna og Kínveija að sögn aðstoðarutanríkisráðherra Kína, Qian
Qichen.
SAMKVÆMT samkomulagi ríkj-
anna, sem gert var á síðasta ári,
áttu utanríkisráðherrar ríkjanna að
hittast að máli, en ekki hefur enn
verið ákveðið hvenær sá fundur
verður. Qichen sagði að efnahags-
tengsl Kína og Sovétrílq'anna hefðu
aukist að undanfömu, en það sama
væri ekki hægt að segja um stjóm-
málasamband ríkjanna: „Ekkert
hefur breyst í þeim efnum," sagði
hann.
Kínveijar hafa lýst yfír því að
tilgangslaust sé að halda fund
utanríkisráðherranna nema Sovét-
menn breyttu stefnu sinni í utan-
ríkismálum. Er hér einkum um þijá
þætti að ræða: Að Sovétmenn hætti
stuðningi sínum við hemámslið Ví-
etnama í Kambódíu, dragi herlið
sitt til baka frá Afganistan og kín-
versku landmærunum.
Ef af heimsókn sovéska utan-
ríkisráðherrans verður, þá yrði það
hin fyrsta frá því að Andrei Gro-
myko kom þangað árið 1959. í ráði
var að kínverski utanríkisráðherr-
ann mundi endurgjalda heimsókn-
ina síðar.
Ungrerjaland:
Danmörk:
Ólöglegir flóttamenn
frá Austurlöndum
Umdeildur erkibiskup látinn
Búdapest, AP.
LASZLO Lekai kardínáli, erkibiskup kaþólskra í Ungveijalandi, lést
á mánudaginn af hjartaslagi, 76 ára að aldri. Hann reyndi mjög að
bæta sambúð kirkjunnar og ungverskra yfirvalda á valdatima sínum
og var gagnrýndur fyrir of mikla undanlátssemi. Fyrirrennari hans
i embætti, Mindszenty kardináli, var einarður i baráttu sinni fyrir
sjálfstæði kirkjunnar.
MIKILL fjöldi flóttamanna frá
Austurlöndum hefur að undan-
förnu komist með ólöglegum
hætti frá Vestur-Þýskalandi til
Danmerkur. Mest hefur borið á
fólki frá Libanon. Frá áramótum
hefur danska lögreglan hand-
tekið 300 manns af þessum sök-
um og ekkert lát virðist á flótta-
mannastraumnum. í Danmörku
eru uppi grunsemdir um að
flóttafólkið njóti aðstoðar Vest-
ur-Þjóðveija við að komast yfir
landamærin.
Að sögn lögreglumanna í landa-
mærabænum Padborg á Suður-
Jótlandi bendir ýmislegt til þess að
yfírvöld í Vestur-Þýskalandi hygg-
ist herða gildandi löggjöf um flótta-
menn og að þar með muni fleiri
sækja um hæli í Danmörku. Fjölgað
hefur verið í lögregluliði Padborgar
m.a. vegna þess hve tímafrekt það
reynist að yfírheyra flóttamennina
sökum tungumálaörðugleika.
í Danmörku hafa vaknað grun-
semdir um að menn í Vestur-
Þýskalandi aðstoði fólkið við að
komast jrfír landamærin til Dan-
merkur. í mörgum tilfellum hafa
flóttamennimir farið yfír landa-
mærin á stöðum þar sem engin
gæsla er og fullyrða margir að þeir
geti ekki hafa gert það án hjálpar
manna sem kunnugir eru staðhátt-
um.
Lögreglumenn í Padborg segjast
hafa rökstuddan grun um að flótta-
mennimir fái hjálp frá Vestur-
Þýskalandi. Segja þeir að við yfír-
heyrslur verði tungumálaerfíð-
leikamir nánast óyfírstíganlegir
þegar talið berst að því hvort flótta-
fólkið hafí fengið utanaðkomandi
hjálp.
(Úr Aktuelt.)
Lekai sætti sig við, að ríkið stæði
ofar kirkjunni. Ríkisfjölmiðlar fóru
vinsamlegum orðum um hann og
sjálfur sagði hann Vatíkanið styðja
stefnu sína.
Lekai refsaði harkalega klerkum,
sem þóttu hvassyrtir í garð komm-
únista og sagði aðstæður allt öðru
vísi í Ungveijalandi en í Póllandi.
Mindszenty kardínáli var á sínum
tíma fangelsaður af yfírvöldum, en
látinn laus 1956. Er Sovétmenn
bældu niður ungversku uppreisnina
sama ár, fékk hann hæli í banda-
ríska sendiráðinu í Búdapest. Þar
dvaldi hann síðan í 15 ár, en tókst
þá að flýja til Austurríkis, þar sem
hann lést 1975.
Gorbachev ber
lof á Jaruzelski
Lögreglan réðst á fólk, sem minntist verkfallanna í Poznan fyrir 30
árum, en með þeim hófst frelsisalda, sem flæddi yfir kommiinistaríkin
Varsjá, AP.
MIKHAIL Gorbachev, leiðtogi sovézka kommúnistaflokksins, hrósaði
á mánudag Wojciech Jaruzelski hershöfðingja ákaft, fyrir að bægja
frá þeim hættum, sem steðjuðu að kommúnismanum i Póllandi, vegna
óháðu verkalýðsfélaganna, Samstöðu. Gorbachev hrósaði Jaruzelski
sérstaklega fyrir að „veijast árásinni gegn sósialismanum, með eigin
afli“, en talið er að hann hafi þar átt við setningu herlaganna 1981.
Þrátt fyrir fullyrðingar beggja leiðtoganna um að nú væri allt með
kyrrum kjörum i Póllandi, kom til átaka milli lögreglu og fólks, sem
minntist verkfallanna í Poznan fyrir 30 árum.
Veður
víða um heim
Lœgflt I ð »
Akureyri 13 alskýjaft
Amsterdam 1S 27 heiðskfrt
Aþsna 20 31 heiðskírt
Barcelona 27 heiðskfrt
Berlfn 16 28 heiðskírt
Bríissel 13 30 heiðskfrt
Chicago 15 18 heiðskfrt
Dublin 12 17 heiðskfrt
Feneyjar 24 heiðskfrt
Frankfurt 13 28 heiðskfrt
Genf 16 28 heiðskírt
Helsinki 20 léttskýjað
Hong Kong 28 32 heiðskfrt
Jerúaalem 16 25 heiðskfrt
Kaupmannah. 16 24 helðskfrt
Las Palmas 24 léttskýjað
Lissabon 17 26 heiðskfrt
London 16 26 heiðskfrt
Los Angeles 22 35 heiðskírt
Lúxemborg 26 hélfskýjað
Malaga 26 hálfskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Mlami 26 30 rignlng
Montreal 16 léttskýjað
Moskva 12 21 skýjað
NewYork 16 27 rignlng
Osló 16 30 heiðskfrt
París 16 27 helðskfrt
Peking 21 28 heiðskfrt
Reykjavík 16 mlstur
Ríóde Janeiro vantar
Rómaborg 18 32 heiðskfrt
Stokkhólmur 14 24 heiðskírt
Sydney 7 15 skýjað
Tókýó vantar
Vinarborg 24 skýjað
Þórshöfn 13 þoka
Kuwait:
Öll ríkisstjórnin
sagði af sér
Kuwait, AP.^
RÍKISSTJÓRN Kuwait sagði af
sér í gær vegna deilna við þing
landsins.
Utanríkisráðherra stjómarinnar
afhenti forsætisráðherranum, Saad
Abdullah Al-Sabah krónprins,
lausnarbeiðnimar fyrir hönd allra
ráðherranna að sögn fréttastofu
landsins, sem ekki tilgreindi nánar
ástæðumar fyrir afsögnunum.
Ótilgreindar heimildir herma, að
þingið hafí viljað yfírheyra fjóra
ráðherra vegna meintra mistaka í
starfí.
Olíumálaráðherrann er talinn
bera sök á lélegum varúðarráðstöf-
unum við olíumannvirki, þar sem
nýlega urðu keðjusprengingar, er
ríkisstjómin kenndi skemmdar-
verkamönnum um.
Benin:
Sprenging í
bj órverksmiðju
Abuja, Nígeríu, AP.
AÐ minnsta kosti niu týndu lffi
í mikilli sprengingu, sem varð í
bjórverksmiðju í Afríkuríkinu
Benin i vesturhluta álfunnar.-
Ekki er vitað hversu margir
slösuðust en sprengingin lagði
verksmiðjuna og nærliggjandi
byggingar I rúst.
Ekki er vitað með vissu hvað
olli sprengingunni né heldur hvort
um slys var að ræða eða pólitískt
hermdarverk. Mathieu Kerekou
forseti Benin var staddur í heim-
sókn í Nígeríu en hélt heimleiðis
er hann frétti um atburðinn.
Gorbachev fór mörgum, fögmm
orðum um stjómsnilli Jamzelskis.
Hann tók sérstaklega fram, að
þetta segði hann ekki af skyldu,
eða í kurteisisskyni, heldur af djúpri
sannfæringu.
í lok ræðu Gorbachevs færði
Jamzelski honum veggteppi, með
ásjónu Leníns ísaumaðri, og féllust
þeir í faðma að því loknu.
30 ár frá verkfalli og
óeirðum í Poznan
Til átaka kom á sunnudag, þegar
óeirðalögregla réðst á 3.000 manna
göngu, sem farin var til þess að
minnast 30 ára afmælis verkfalls
pólskra verkamanna í Poznan.
Verkamenn í Stalín-verksmiðjunum
lögðu niður vinnu og kröfðust
bættra lífskjara. Yfírvöld gripu til
grimmilegra hefndaraðgerða og
bældu mótmæli verkamanna niður
með vopnavaldi. Skriðdrekar komu
æðandi inn í borgina og herlið
Konimúnistaleiðtogamir Gorbachev og Jaruzelski sjást hér meðal fulltrúa á 10. flokksþingi pólska
kommúnistaflokksins i Varsjá.