Morgunblaðið - 02.07.1986, Qupperneq 23
éjaíanáí
Pfthwisr hriteíí #{
Insnkam »J»íu
ftllt áókveðiS um
sanikomudog ÍHþingts
«t<«ik«t> í <«««.<« vifcv<
'* ^'s^íw 4 i &«»««$ sírSw
SSBfe»áá (SáifiViiSt ", ,,
fa«wSÍ»
>i»nwin|stástfjðrn Xhip.
Ur n\m Poítiajt
^wj* Ríjti hs<i ó«ááJ(!|it«Sfti8.
Fosge’sto í Poznaa eta yiiiiuil
Miktl ’ ■’- vs-:".:V
fvrír dyrum í IVílíanrf* • ..«,«
*.*Í9*t
tzsidingae ktiia Hoíarada gtfúfur
ii aS fiugvétartfaki "•■<'» »• » »i
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1986___________________________23
Suður-Afríka:
Raquel Welch
hrósarsigri
Kvikmyndaleikkonan Raqu-
el Welch sést hér fagna
sigri. Hún vann mál, sem
hún höfðaði gegn Metro
Goldwyn Mayer-kvikmynda-
verinu og fleiri aðilum, eftir
að hún var svipt hlutverki
sinu í kvikmyndinni „Cann-
ery Row“ eftir skáldsögu
Johns Steinbeck. Welch
krafðist skaðabóta og fékk
11 milljónir dala (um 450
miUjónir króna).
Harðir bardagar í
grennd við Kabul
Islamabad, AP.
HARÐIR bardagar hafa geisað
undanfarna daga milli skæruliða
og afganska stjómarhersins og
sovéska hernámsliðsins um-
hverfis höfuðborgina Kabul, að
sögn vestrænna heimildar-
manna. Hefur mjög mikið tjón
orðið í þorpinu Paghman, sem
er skammt frá Kabul, eftir eld-
flaugaárásir.
Hafa Sovétmenn og afganski
stjómarherinn beitt flugvélum og
þyrlum í árásunum, en skæruliðar
em sagðir hafa varist af hörku.
Þó er hvorki vitað hveijir hafa
haft betur í bardögunum né hve
margir hafa fallið í þeim.
Einnig herma sömu heimildir, að
skæruliðar hafí skotið niður vöm-
flutningaflugvél sl. fimmtudag með
þeim afleiðingum að um 100 her-
menn létu lífið. Samkvæmt óstað-
festum fréttum vom hermennimir
Afganar. Hins vegar drógu tals-
menn skæmliða í Pakistan þessar
fréttir í efa, og kváðu ólíklegt að
svo stór flugvél hefði verið skotin
niður án vitneskju þeirra.
Þá var skýrt frá því, að í síðustu
viku hefðu a.m.k. sex sprengjur
spmngið í Kabul. Ekki er vitað
hveijir stóðu á bak við sprenging-
amar, en heimildarmennimir töldu
líklegt að þar hefðu skæmliðar
verið að verki.
Námamenn grípa
til skæruverkfalla
Jóhannesarborg, AP.
LEIÐTOGAR Stéttarfélags svartra námaverkamanna samþykktu í
atkvæðagreiðslu í gær að hefja skæruverkföll til að mótmæla því
að tiu háttsettir embættismenn stéttarf élagsins hefðu verið hnepptir
í gæsluvarðhald samkvæmt neyðarlögunum.
Þessar aðgerðir stéttarfélagsins forðast fangelsun.
Sendiherra Suður-Aftíku í Lon-
don sagði í ræðu á neðri málstofu
breska þingsins á mánudag að
stjóm Suður-Afnku myndi svara
fyrir sig ef gripið yrði til efnahags-
ráðstafana gegn Suður-Afríku.
Denis Worrall kvað ýmsar ráðstaf-
anir koma til greina, sem gætu
haft öngþveiti í Suður-Afríku í för
með sér. „Og stjómin mun ömgg-
lega taka að íhuga að stöðva endur-
greiðslur á erlendum lánum,“ sagði
Worrall.
Sprengja sprakk í Jóhannesar-
borg í gær með þeim afleiðingum
að sex konur og tvær ungar stúlkur
særðust. Sprengingin átti sér stað
á strætisvagnabiðstöð í miðborginni
nærri stærsta skýjakljúfi landsins.
Þetta er tíunda sprengingin í Suð-
ur-Afríku síðan sett vom á neyðar-
lög 12. júní. Þrír menn hafa beðið
bana og 98 særst í þessum spreng-
ingum.
gætu dregið úr framleiðslu á gulli
í þessu mesta gullframleiðslulandi
heims. Ákvörðunin siglir í kjölfar
þess að forseti stærsta stéttarfélags
landsins, Sambands suður-afrískra
stéttarfélaga, var handtekinn. Þess
má geta að hann er einnig varafor-
seti Stéttarfélags svartra náma-
verkamanna og hefur ekki mátt
geta hans í fréttum vegna neyðar-
hafta, sem sett hafa verið á suður-
afríska fjölmiðla.
Marcel Golding, talsmaður stétt-
arfélags námaverkamanna, sagði
að aðgerðir ættu að hefjast í dag
og yrðu þær vandlega skipuiagðar.
Ætlunin með þessu væri að knýja
stjómendur náma til að þrýsta á
stjómvöld um að láta leiðtoga stétt-
arfélagsins lausa. í félaginu em 550
þúsund svertingjar, sem vinna í
gull-, kola-, demanta- og platínu-
námum í Suður-Afríku.
Bannað er að greina frá því
hvemig mótmæla námamennimir
hafa ráðgert að grípa til.
Eigendur náma hafa hvatt
stjómvöld til að láta leiðtoga Sam-
bands suður-afrískra stéttarfélaga
lausan, ef rétt sé að hann sé í
haldi. Slíkt sé nauðsynlegt til að
raska ekki starfsemi í námunum
og halda jafnvægi á vinnumarkaði.
Hermt er að ýmsir aðrir framámenn
í sambandinu séu nú í felum til að
Púíska kommúrJstastíórmn kiýtur Yapirðúsi:
í V»8 heisniuni biauS og hjálsat bosmngat
En ttftolmæb v«rk»m»nn«
vor« {>;*'?«« maut «»r,ö
ásta»4ið
Slctlm *r lolllnn trá, co andi Isons rikir cnn j Srcml
Hússar bcíttu orrustu-
|l'!tscivélum $je$jn verkamönnum
i Paxrnm ttm lif'fjíws
>x n'iiin
Krúsjcff gefut út skipanir tit afíra
kammúnístafiokka heitns
Frásagnir Morgunblaðsins af verkfallinu og óeirðunum í Poznan. Fréttirnar bárust alheimi þar sem alþjóðleg kaupstefna stóð yfir í borg-
inni þegar óeirðir brutust út.
vopnað vélbyssum. Laust þar í
bardaga, en verkamenn vom vopn-
lausir. Hermt er að hundrað manna
hafí beðið bana og enn fleiri særst.
Jafnframt að þúsundir manna hafí
verið handteknir. Með atburðunum
í Poznan hófst frelsisalda, sem
flæddi yfir kommúnistaríkin, en hún
brotnaði og fjaraði út með innrás
Sovétmanna í Ungveijaland.
Atburðimir í Poznan hófust 30.
júní 1956 með því, að verkamenn
úr Stalín-verksmiðjunum hópuðust
saman og kröfðust hærri launa.
Ákváðu þeir að fara í kröfugöngu.
Jókst hún stöðugt eftir því sen
gengið var áfram. Skiptu kröfu-
göngumenn er þeir komu í mið-
borgina þúsundum og jafnvel tug-
þúsundum.
Lögreglumenn vom á götunum,
er gengið var um, en þeir gátu
ekkert aðhafzt og sumir voru jafn-
vel hlynntir eða vingjamlegir.
Gengið var inn að miðju borgarinn-
ar í 15-20 manna breiðri fylkingu
og bám göngumenn kröfuspjöld
með kröfum m.a. um hærri laun
og fijálsar kosningar. Hrópuðu
göngumenn einnig kröfur sínar og
hæstkváðuvið rópin: Við heimtum
brauð.
Gegn skriðdrekaliði
Mannsöfnuðurinn fór niður á
aðaltorg borgarinnar og að bæki-
stöðvum öryggislögreglunnar. Var
fangelsið við „Frelsistorg" brotið
upp, föngum sleppt út og kveikt í
lögreglustöðinni. Þá ætlaði múgur-
inn einnig að gera árás á bækistöðv-
ar kommúnistaflokksins, en þá
gerðust aðrir atburðir, sem komu í
veg fyrir það.
Skriðdrekalið æddi inn í borgina
og fótgöngulið vopnað vélbyssum
kom með vörubifreiðum og safnað-
ist á torginu framan við ríkisbank-
ann. Síðan var vopnum beitt gegn
mótmælahópnum. Erlendir menn,
sem staddir vom í borginni, heyrðu
skothríð alllengi dags.
Sagt er að verkamennimir hafi
valið daginn af ásettu ráði vegna
þess að þá stóð yfir alþjóðleg vöm-
sýning í Poznan. Þar með yrði
alheimi kunnugt um atburðina. Af
opinberri hálfu var sagt að æsing-
amar væra af útlendum rótum
Aðgerðir verkamannanna stóðu
í nokkra daga og vom verksmiðjur
lokaðar af þeim sökum um skeið.
Þá var sett útgöngubann, sem
verkamenn virtu að vettugi. Vopn-
uðust þeir vélbyssum og hand-
sprengjum. Auk skriðdreka og stór-
skotaliðs beitti rússneski herinn
orrustuflugvélum gegn verkamönn-
unum.
Svikafáni
Reyndar beitti sovézki herinn
öllum brögðum. Eitt sinn settust
verkamenn um ráðhúsið, en flokkur
rússneskra hermanna hafðist þar
við, og höfðu skriðdreka sér til
vamar. Vora verkamenn fjölmennir
og réðust til atlögu úr öllum áttum.
Drógu Rússar þá upp hvítan fána,
sem merkir uppgjöf, en er verka-
menn hugðust taka bygginguna
herskildi, og komu í ljós, hófu Rúss-
ar skothríð — og tókst þeim þannig
að lokka marga út úr fylgsnum sín-
um og fella þá.
í framhaldi af uppreisninni í
Poznan kom til alvarlegra óeirða í
öðmm borgum landsins, og verka-
menn og námamenn víða um landið
efndu til „þegjandi verkfalls" með
því að draga stórlega úr afköstum.
M.a. var gert verkfall í prentsmiðju
kommúnistaflokksins og varð að
kalla öryggislögregluna á vettvang
til að þvinga prentara til að halda
vinnu áfram.
Breiddist út
Upp úr virtist sjóða þegar fregn-
imar bárast af atburðunum í Pozn-
an. Efnt var til geysisfjölmennra
útifunda í Búdapest í Ungveijalandi
þar sem mótmælt var einræði og
kúgun kommúnistastjómarinnar.
Heimtaði mannfjöldinn aukið frelsi
og betri lífskjör.
Ennfremur breiddist uppreisnar-
aldan til Sovétríkjanna og kom til
harðra átaka og vopnaviðskipta í
Eystrasaltsríkjunum, Eistlandi,
Lettlandi og Lithaugalandi. Reis
þar mikil mótmæla- og hermdar-
verkaalda gegn Rússum. Frelsis-
sveitir sátu t.d. um útvarpsstöðina
í Ríga í Lettlandi í tvo sólarhringa
en urðu að hörfa fyrir ofurefli
rússneskra herskara.
Los Angeles:
Rússum gert
að greiða
miskabætur
Los Angeles, AP.
BANDARÍSKUR dómarí kvað
upp þann úrskurð í gær að Sovét-
mönnum bærí að greiða banda-
rískum kaupsýslumanni 250 þús-
und doUara í skaðabætur fyrír
að lýsa því yfir opinberlega að
hann værí njósnarí.
Þetta er í fyrsta sinn sem Sovét-
mönnum er gert að greiða miska-
bætur í öðm landi en Sovétríkjun-
um, að sögn lögfræðings stefnanda.
Kaupsýslumaðurinn Raphael
Gregorian stundaði viðskipti í Sov-
étríkjunum með læknislyf, en var
rekinn úr Iandi árið 1984. Stuttu
síðar birtist grein í sovéska dag-
blaðinu Izvestia, þar sem hann var
sakaður um njósnir í þágu Banda-
ríkjanna.
+
N-Irland:
Bílsprengja drep-
ur hermann
Belfast, iVP.
HERMAÐUR lét lífið er sprengja
sprakk í bíl hans á fimmtudag í
síðustu viku. Hermaðurínn var
félagi í Vamarliði Ulsters, sem
aðallega er skipað mótmælend-
um.
Talið er að sprengjan hafí verið
tengd rafkerfi bflsins og sprangið,
þegar hermaðurinn sneri svisslykl-
inum. Enginn hefur enn lýst ábyrgð
á hendur sér vegna sprengjunnar.
GENGI
GJALDMIÐLA
London, AP.
Bandaríkjadollari lækkaði
gagnvart öllum helstu gjald-
miðlum heims á gjaldeyrísmörk-
uðum í gær og hefur hann ekki
verið lægri gagnvart flestum
þeirra í sjö vikur.
í Tókýó kostaði dollarinn 163,65
japönsk jen (163,95) þegar viðskipt-
um lauk og 163,675 þegar gjaldeyr-
ismarkaðir lokuðu í London.
í London kostaði sterlingspundið
síðdegis í gær 1,5455 dollara
(1,5330).
Gengi annarra helstu gjaldmiðla
var á þann veg að dollarinn kostaði:
2,1775 vestur-þýsk mörk
(2,1950), 1,7745 svissneska franka
(1,7965), 6,9500 franska franka
(7,0125), 2,4520 hollensk gyllini
(2,4765), 1.494,00 ítalskar lírur
(1.509,00) og 1,3795 kanadíska
dollara (1,3875).