Morgunblaðið - 02.07.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1986
31
Morgunblaðið/Skapti
Þær vinna í eldhúsinu þessar — og eiga allan heiðurinn af bakstrin-
um, en allt sem boðið er upp á á kaffihlaðborðinu er heimabakað.
Frá vinstri: Þórdís Jónsdóttir, Sigþrúður Tóbíasdóttir og Inga Jónas-
dóttir.
Hótel Edda
á Hrafnagili
Akureyn.
HÓTEL Edda í Hrafnagilsskóla í Eyjafirði opnaði 14. júni og er
þetta annað sumarið sem hótel er starfrækt þar. Hótelstjóri er
Ingibjörg Sigurðardóttir og sagði hún í samtali við biaðamann að á
hótelinu væru 35 gistiherbergi - “við getum gist tæplega 100 manns
i rúmum og auðveldlega 60-70 manns þar fyrir utan í svefnpoka-
plássi í skólastofunum."
Ingibjörg sagði að boðið væri upp
á allar veitingar, alla daga frá kl.
8 til 23.30, og væri kaffihlaðborðið
á sunnudögum sérstaklega vinsælt.
“Kaffihlaðborðið er opið kl. 3 til 6
á sunnudögum, og í dag voru til
dæmis um 400 manns hjá okkur,"
sagði hún er blaðamaður leit við
síðastliðinn sunnudag - og þá hafði
greinilega verið nóg að gera!
Sundlaugin á Hrafnagili er opin
alla daga vikunnar frá kl. 10 til 22.
“Hun er mjög þægileg, sérstaklega
fyrir bamafólk því hún er stór og
grunn," sagði Ingibjörg. Síða í
vikunni sagðist hún fá Ijósalampa
á hótelið. Þá má nefna að við hótel-
ið er grasvöllur þar sem hótelgestir
geta stundað knattspyrnu.
Ingibjörg sagði “allmikið" hafa
verið að gera á hótelinu i sumar.
“Hér er ágætis funda- og ráðstefnu-
aðstaða sem hefur talsvert verið
notuð og þá tel ég hótelið mjög vel
staðsett, til dæmis er það ákjósan-
legt fyrir bamafólk. Það er vel út
úr mestu umferðinni en samt er
ekki nema tíu mínútna keyrsla til
Akureyrar."
Morgunblaðið/Skapti
Ingibjörg hótelstjóri, lengst til vinstri, ásamt starfsfólki í matsalnum,
Ingólfi Arasyni, Sólveigu Hallgrímsdóttur, Eyrúnu Ingvadóttur og
Sigurði Kolbeinssyni.
Nýja húsnæðislánakerfið:
Áhersla á lán til
þeirra sem eru að
byg-gj a í fyrsta sinn
í KJÖLFAR kjarasamninganna í febrúar siðastliðnum hefur verið
gerð uppstokkun á öllu húsnæðislánakerfinu. Nú nýlega var svo
birt ný reglugerð um lánveitingar Byggingarsjóðs ríkisins.
Lánsréttur í hinu nýja húsnæðis-
lánakerfi ræðst af því hvort um-
sækjandi hafi greitt iðgjöld í lífeyr-
issjóð tvö undangengin ár fyrir lán-
veitingu og hversu mikið sá lífeyris-
sjóður lánar til Húsnæðisstofnunar
með skuldabréfakaupum. Einnig er
tekið tillit til þess hvort um fyrstu
kaup sé að ræða eða umsækjandi
eigi íbúð fyrir.
Lánsréttur ræðst
af skuldabréfakaupum
lífeyrissjóða
Ef lífeyrissjóður umsækjenda
hefur keypt skuldabréf fyrir 55%
af ráðstöfunarfé sínu veitir það rétt
á hámarksláni.
Kaupi lífeyrissjóður fyrir 20% af
ráðstöfunarfé sínu á umsækjandi
lágmarkslánsrétt, en sé keypt fyrir
minna en 20% fæst ekki lán.
Ef umsækjandi hefur greitt ið-
gjöld til fleiri en eins lífeyrissjóðs á
undanfömum tveimur árum, áður
en umsókn er lögð fram, ákvarðast
lánsréttur hans af skuldabréfa-
kaupum hvers einstaks sjóðs í hlut-
falli við iðgjaldagreiðslur.
Lánin geta aldrei orðið hærri en
sem svarar 70% af kostnaðaráætlun
íbúðar eða 70% af raunverulegu
kaupverði hennar.
Við mat á því hvað telst raun-
vemlegt kaupverð eru hafðar til
hliðsjónar upplýsingar Fasteigna-
mats ríkisins um kaupverð íbúða á
hveijum tíma.
Ef óeðlilegur munur er á fast-
eignamati og raunvirði, nemur láns-
ijárhæð 70% af þeirri íjárhæð sem
Húsnæðisstofnunin viðurkennir
sem raunhæft mat á kaupvirði.
Allt að 2,1 milljón
Fyrir þá sem eru að byggja eða
kaupa sína fyrstu íbúð geta lánin
numið allt að 2.100.000 krónum við
kaup á nýrri íbúð, ef umsækjandi
hefur hámarkslánsrétt, en 700.000
kr. miðað við lágmarkslánsrétt.
Fyrir þá sem eru að byggja eða
kaupa nýja íbúð og eiga íbúð fyrir
nema lánin allt að 1.470.000 kr.
Við kaup á notuðu húsnæði geta
lánin hjá þeim sem eru að kaupa
eða byggja í fyrsta sinn orðið allt
að 1.470.000, miðað við hámarks-
lánsrétt en hæst 1.029.000 kr. hjá
þeim sem eiga íbúð fyrir.
Allar upphæðir miðast við láns-
kjaravísitölu og eru teknar til end-
urskoðunar ársfjórðungslega.
„I fyrsta sinn“
Umsækjandi getur talist vera að
byggja í fyrsta sinn, þó að hann
hafi áður fengið lán úr Byggingar-
sjóði ríkisins.
Þetta gildir ef um hjónaskilnað
er að ræða; ef umsækjandi hefur
þurft að selja sína fyrri íbúð vegna
greiðsluerfiðleika; eða vegna
greiðsluþrots/gjaldþrots.
Einnig ef umsækjandi hefur átt
verkamannabústað fyrir og er að
hefja nýbyggingu utan verka-
mannabústaðakerfisins, að því skil-
yrði uppfylltu að eignarhluti hans
hafi numið lægri ijárhæð en sem
svarar 25% af hámarkslánsljárhæð
til nýbyggingar.
Önnur undantekningartilfelli
geta einnig komið til greina.
Lánsréttur hjóna
Lánsréttur hjóna eða sambýlis-
fólks, sem bæði eru útivinnandi,
miðast við meðaltal af lánsrétti
þeirra beggja. Ef annar aðilinn
hefur heimilisstörf að aðalstarfi
hefur hann sama lánsrétt og maki.
Umsækjandi sem hefur heimilis-
störf að aðalstarfí en er hvorki í
sambúð né hjúskap hefur hámarks-
lánsrétt.
Ekki stærri en 220 fm
í þessari nýju reglugerð eru einn-
ig þau nýmæli að lán til nýrra íbúða,
stærri en 170 fm, skerðast um 2%
fyrir hvem fermetra sem íbúðin er
stærri en 170 fm. Ekki eru veitt lán
til stærri íbúða en 220 fm.
Miðað er við innanmál hússins
alls að frádregnum bílskúr.
Gildir þetta um teikningar sem
samþykktar eru af byggingamefnd-
um frá og með 1. september 1985.
Umsókn og- úthlutun
Umsókn er gerð á þar til gerðum
eyðublöðum sem Húsnæðisstofnun-
in lætur í té. Þeir sem uppfylla öll
skilyrði um lánveitingu eiga að fá
bindandi svar um lánsíjárhæð og
afgreiðslutíma innan tveggja mán-
aða frá því að umsókn var lögð
fram.
Umsókn um lán skal berast Hús-
næðisstofnun ríkisins innan eins árs
frá dagsetningu kaupsamnings.
Lán á að afgreiða í þeirri röð sem
umsóknir berast og/eða íbúðir
verða veðhæfar. Þó eiga þeir sem
eru að byggja eða kaupa í fyrsta
sinn að ganga fyrir, biðtími þeirra
á að vera að minnsta kosti helmingi
styttri en þeirra sem eiga íbuð fyrir.
Áður en hægt er að veita lánið
verður að leggja fram endanleg
fullnægjandi gögn, þar á meðal nýja
kostnaðar- og greiðsluáætlun. Ef
hún er verulega frábrugðin þeirri
fyrri kemur til greina að endur-
skoða lánsfjárhæðina sem ákveðin
hafði verið í hlutfalli við breyting-
amar.
Ráðgjáfastöð Húsnæðisstofnun-
ar ríkisins gerir síðan mat á þessum
áætlunum. Ef útséð er um að
umsækjandi geti á engan hátt stað-
ið undir greiðslum á láninu, að
mati Húsnæðismálastjómar, skal
honum skýrt frá því og annaðhvort
krafist ríkari ábyrgðar eða lánveit-
ingu frestað þar til ú'árhagur um-
sækjanda leyfír lánið eða lánveit-
ingu synjað.
Lán eru ekki veitt oftar en á fimm
ára fresti, þau eru til allt að 40 ára
og verðtryggð að fullu. Raunvextir
eru ákveðnir af ríkisstjóminni á
hveijum tíma.
Núverandi ríkisstjóm hefur sagt
að vextir verði 3,5% í stjómartíð
hennar.
Harður
árekstur
HARÐUR árekstur varð á mótum
Álftanesvegar og Reykjavíkur-
vegar í Hafnarfirði í gærmorg-
un. Sendibifreið, sem var á leið
norður Reykjavíkurveg, skall á
fólksbifreið, sem ók austur Álfta-
nesveg. Ökumaður sendibifreið-
arinnar og ungur sonur hans
voru fluttir í sjúkrahús og munu
meiðsli þeirra vera nokkuð alvar-
leg.
Rannsóknarlögreglan í Hafnar-
firði biður sjónarvotta að slysinu
að gefa sig fram. Sérstaklega hefur
lögreglan áhuga á að ræða við
ökumann bifreiðar er ók á eftir
sendibifreiðinni norður Reykjavík-
urveg, því ekki eru ökumenn á eitt
sáttir um stöðu umferðarljósanna.
Borgarnes:
Eyjólfur Torfi Geirsson
kosinn oddviti hreppsins
Borgaraesi.
FYRSTI fundur nýkjörinnar hreppsnefndar í Borgarnesi hefur verið
haldinn. Eyjólfur Torfi Geirsson, sem skipaði fyrsta sæti á lista
Alþýðuflokks, var kjörinn oddviti til eins árs. Gísli Karlsson var
endurráðinn sem sveitarstjóri. Skipað var í nefndir og ráð hrepps-
ins. Og staðfestir voru sérkjarasamningar Borgarneshrepps við
Starfsmannafélag Borgarneshrepps og Verkalýðsfélags Borgarness.
Á fundinum lagði nýkjörinn
oddviti fram málefnasamning
meirihlutans og kynnti helstu atriði
hans. Þar var m.a. komið inn á
eftirfarandi:
Atvinnumál.
„Unnið verði að því að styrkja
og efla þann atvinnurekstur sem
fyrir er. Allar hugmyndir um ný
atvinnutækifæri fái faglega um-
fjöllun strax. Athugað verði með
tímabundna ráðningu aðila til að
aðstoða fyrirtæki er eiga í vanda
og leita nýrra leiða í atvinnurekstri.
Borgameshreppur hafi forgöngu
um og verði þátttakandi í að tryggja
að ætíð sé fyrir hendi atvinnuhús-
næði fyrir nýjan atvinnurekstur.
Sérstök áhersla verði lögð á mikil-
vægi Borgamess sem ferðamanna-
bæjar og miðstöðvar samgangna á
Vesturlandi."
Skipulagsmál.
„Hraðað verði endurskoðun aðal-
skipulags Borgamess. Stefnt verði
að því að gerð verði landnýtingar-
áætlun fyrir Borgames. Lögð verði
áhersla á að sérkenni Borgamess
verði varðveitt eins og hægt er.
Gengið verði frá staðsetnigu fram-
tíðaríþróttarsvæðis. “
Hitaveitan.
„Leitað verði samstarfs við hita-
veitur sem líkt er komið fyrir og
Hitaveitu Akraness og Borgarfjarð-
ar og knúið á um lausn er tryggi
rekstur veitunnar og viðunandi
orkuverð."
Morgunblaðið/Theodór
Frá fyrsta fundi nýkjörinnar hreppsnefndar Borgameshrepps.
Konur voru í meirihluta á þessum fundi i fyrsta skipti i sögu hrepps-
nefndarinnar.
Almannatengsl.
„Efla skal útgáfu Fréttabréfs
Borgameshrepps. Haldinn verði
minnst einn borgarafundur á ári.
Hreppsmálasamþykkt verði tekin
til endurskoðunar með það að
markmiði að opna stjómsýsluna."
í hreppsnefnd sitja nú þijár
konur, en á þessum fyrsta fundi
hreppsnefndarinnar sat sú fjórða
sem varamaður fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Vora konur því í meiri-
hluta á þessum fundi og hefur það
ekki gerst áður í sögu hreppsnefnd-
ar í Borgamesi.
- TKÞ