Morgunblaðið - 02.07.1986, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLl 1986
Þormar G. Kristjáns
son — Minningarorð
Flautuleikur, kór-
söngur, dans og
myndbandaveisla
Jónshúsi í Kaupmannahöfn.
UM HVÍTASUNNU var leikið á flautu af mikilli list í íslensku
guðsþjónustunum beggja vegna Sundsins, þ.e. í Kaupmannahöfn og
Malmö. Gunnar Gunnarsson flautuleikari iék eins og stundum áður,
en nú útsetningar eftir Jón Þórarinsson tónskáld við tvö sálmalög,
sem hann hafði sérstaklega samið fyrir þetta tækifæri. Einnig lék
Sigríður Helga Þorsteinsdóttir á fiðlu og tóku þau Gunnar undir
við söng kirkjukórs íslenska safnaðarins. Við kirkjukaffið á eftir
rakti Steindór Steindórsson frá Hlöðum gamlar minningar frá
Hafnarárunum, en hann hefur undanfarið dvalið í Kaupmannahöfn
sem styrkþegi Carlsberg-sjóðsins og rannsakað hvemig íslenskir
styrkþegar sjóðsins hafa hagnýtt sér framlag úr honum.
í dag er borin til hinstu hvflu
Þormar Grétar Kristjánsson, er lést
við vinnu sína 20. júní sl.
Mig langar með örfáum orðum
að minnast Jomma, eins og hann
var kallaður í daglegu tali. Eg hitti
hann fyrst fyrir 6 árum er ég kom
á heimili ömmu mannsins míns.
Jommi var alltaf glaður og tilbúinn
að hjálpa öðrum í erfíðleikum þrátt
fyrir sín veikindi, alltaf var hann
tiibúinn að takast á við ný verkefni.
Ég þakka fyrir þær stundir þegar
hann kom á heimili mitt á sl. ári
ásamt eftirlifandi konu sinni, Vil-
helmínu Guðmundsdóttur, til að líta
á bamabömin.
Elsku Vilheimína, guð styðji þig
og styrki í þinni miklu sorg.
Heiða
Dánartilkynningar virðast yfír-
leitt koma á óvart. Þormar Krist-
jánsson eða Jommi, eins og hann
var almennt kallaður, hafði ekki
gengið heill til skógar um alllangt
skeið, en hann bar veikindin vel og
virtist síst verr haldinn af þeim en
verið hafði. Hann fór til vinnu
sinnar eins og venjulega föstudag-
inn 20. júní, heimsótti bróður sinn
í síðdegiskaffitímanum, en um
kvöldmatarleytið var hann allur.
Aðstæður breytast stundum fljót-
lega.
Hann hét Þormar Grétar Vídalín
fullu nafni, fæddur í Hafnarfirði
hinn 1. október árið 1923. Foreldrar
hans voru hjónin Kristján Vídalín
Brandsson stýrimaður og Guðríður
Guðbjörg Þorláksdóttir. Fjölskyldan
flutti til Reykjavíkur árið 1926 og
þar ólst Þormar upp. Þormar var
ungur að ámm er hann fór að
vinna, enda var slíkt venja í þá tíð.
Hann stundaði sjó framan af starfs-
ævinni, en vann síðan margvíslega
landvinnu, a.m.k. frá því á 6. ára-
tugnum, var í bæjarvinnunni, vann
sem sendibifreiðarstjóri og m.a. á
Þresti. Starfsmaður Hamars var
hann um skeið, en að síðustu vann
hann sem garðvörður í grasagarðin-
um í Laugardal. Hann var harð-
duglegur starfsmaður, samvisku-
samur og kappsamur og vinsæll af
samstarfsmönnum.
Þormar kvæntist Vilhelmínu
Guðmundsdóttur úr Hafnarfírði
hinn 15. desember árið 1964. Þau
eignuðust ekki böm, en Vilhelmína
hafði verið gift áður og ólu þau
Þormar upp yngstu böm hennar.
Sá er þetta ritar kynntist Þormari
Kristjánssyni er hann kvæntist
systurdóttur hans árið 1957. Við
voram fyrst til heimilis hjá tengda-
foreldum mínum á Njálsgötu 33,
en þá bjór Þormar á neðri hæðinni
ásamt móður sinni og bróður.
Samgangur var að vonum mikill
innanhúss, enda var hér um fjöl-
skylduhús að ræða. Þormar kom
oft upp á efri hæðina, og mikil
tengsl vora milli hans og konu
minnar, sem leit á hann nánast sem
eldri bróður. Hann var maður léttur
í lund og greiðvikinn og gat verið
hrókur alls fagnaðar. Sambandið
hélst þótt við flyttum af Njáls-
götunni og hann stofnaði heimili,
enda var Þormar tíður gestur hér
á heimili okkar. Hann var ætíð
boðinn og búinn til að aðstoða og
mörg hafa þau smáviðvik og snún-
ingar verið í gegnum tíðina, sem
hann hefur leyst af hendi fyrir mig
og mína. Hafí Þormar Kristjánsson
heila þökk fyrir samfylgdina.
Að síðustu viljum við hjónin flytja
eiginkonu Þormars, bömum hennar
og systkinum Þormars, okkar alúð-
arfyllstu samúðarkveðjur.
Lýður Björnsson
Einar G. Sveinbjömsson konsert-
meistari í Malmö var organisti í
Rosengárds-kirkjunni þar á annan
í hvítasunnu eins og vant er. En
nú hafði honum heldur betur bæst
liðsauki, sem var kona hans, Manu-
ela Wiesler, hinn heimsfrægi flautu-
leikari, en þau höfðu verið gefín
saman í hjónaband laugardaginn á
undan. Lék Manuela einleik og með
manni sínum og jók á hátíðleik
stundarinnar.
Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands
var á söngför um Norðurlöndin og
hélt þá tónleika í Skt. Pálskirkju
og Jónshúsi við fögnuð áheyrenda
enda vel þjálfaður og lagaval Qöl-
breytt. Einsöngvaramir stóðu sig
einnig vel, þau Jenný D. Gunnars-
dóttir, Kristjana Stefánsdóttir og
Ásmundur Sverrir Pálsson. Héðan
lá svo leið Ámesinganna til Malmö
og Lundar. Söngstjóri kórsins er
Jón Ingi Sigurmundsson.
Haukur Morthens skemmti hér í
Jónshúsi ásamt félögum sínum þijú
kvöld í röð f maflok og gerði glatt
í kringum sig eins og honum er
lagið. Segja áheyrendur að stutt
hafí verið í tárin hjá sumum við að
rifja upp gömlu lögin og heyra góða
lagameðferð þeirra enda allir vei
þekktir hljómlistarmenn; auk
Hauks þeir Karl Möller á hljómborð,
Guðmundur Steingrímsson á
trommur og Gunnar Bemburg á
bassa. Á meðan á tónleikum og
dansleik stóð hékk uppi falleg sýn-
ing á verkum Áma Elfar frá
Reykjavík í félagsheimilinu og
minnti á afmæli höfuðborgarinnar
á þessu ári.
„Norræn myndbandaveisla" var
haldin í félagsheimilinu, einnig síð-
ustu dagana f maí og var dagskráin
Qölbreytt: ljóðalestur, tónlist, kvik-
myndir og myndbönd frá öllum
Norðurlöndunum. Ljóð sín lásu
fínnska skáldið Ihalainen, sem hef-
ur gefíð út nokkrar ljóðabækur, og
danski blaðamaðurinn og ljóðskáld-
ið Helge Krarup. Um hljómlistina
sáu þeir Guðmundur Eiríksson og
Tryggvi Guðmundsson. Fjórar
stuttar kvikmyndir vora sýndar og
skal nefnd kvikmyndin L’Or d’Is-
lande frá 1965, sem tekin er af
Erik Hagens og sýnir fslenska gull-
ið, vatnið, og bregður upp mannlífs-
myndum að heiman. Myndböndin
vora fleiri, þó engin frá Finnlandi
vegna póstmannaverkfalls þar, en
tvær íslenskar komu frá Ástu Ólafs-
dóttur, sem búsett er í Hollandi.
Myndbandaveislan var skipulögð af
Galleri Trekanten, sem m.a. er
verkstæði fyrir myndbönd, og af
íslenskum aðilum hér í borg.
— G.L.Ásg.
Birtíng
afmælis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakín á þvi, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verð-
ur grein, sem birtast á f mið-
vikudagsblaði, að berast f sfð-
asta iagi fyrir hádegi á mánu-
dag og hliðstætt með greinar
aðra daga. í minningargrein-
um skal hinn látni ekki ávarp-
aður. Þess skal einnig getið,
af marggefnu tilefni, að frum-
ort ljóð um hinn látna eru
ekki birt á minningarorðasfð-
um Morgunblaðsins. Handrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu lfnubili. Meginregla er
að minningargreinar birtist
undir fullu höfundarnafni.
Eiginmaður minn, t PÁLL GESTSSON, Selvogsgrunni 8,
lést í Landakotsspítala sunnudaginn 29. júní.
Gunnþóra Jónsdóttir.
t Hjartkær móðir okkar, stjúpmóðir og tengdamóðir.
DAGBJÖRT LÁRA EINARSDÓTTIR,
Háukinn 3, Hafnarfirðl,
verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 3.
júlíkl. 13.30.
Ingibjörg Kristinsdóttir, Svavar Geirsson,
Þórunn S. Kristinsdóttir, Bjarni Pótursson,
Ragnar E. Tryggvason, Guðrún Guðmundsdóttir,
Ebba S. Eðvarðsdóttir, Lóra Eðvarðsdóttir,
Arndi's Kristinsdóttir, Sigurjón Júlfusson,
Ragnheiður Kristinsdóttir, Úlfar Haraldsson.
t
Þökkum innilega auösýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSTU KRISTJÁNSDÓTTUR,
Eskihlfö 14a.
Garðar Pólsson, Lllja Jónsdóttir,
Hannes Pálsson,
Áróra Pálsdóttlr, Hafstelnn Jónsson,
Björn Pálsson, Slgurlaug Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hjartkær eiginmaöur minn, faðir, tengdafaðir og afi,
KJARTAN ÓLAFSSON,
. vörubifreiðastjóri,
Mlklubraut 28,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 3. júlí kl.
13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag
Islands.
Erna Helgadóttir,
Kjartan Andrósson,
Kristbjörg Kjartansdóttir, Björn Þorvaldsson,
Jórunn Lfsa Kjartansdóttir, Hallur Hallsson,
Magdalena Kjartansdóttir, Þórarinn Stefánsson
og barnabörn.
ii
raðauglýsingat-
radauglýsingar
Atvinnumálaráðstefna
á Eyrarbakka
Atvinnumálaráðstefna tengd tilkomu brúarinnar á Ölfusá við Óseyrar-
nes og þróun atvinnulífs i þéttbýliskjörnum Árnessýslu, verður haldin
í samkomuhúsinu á Eyrarbakka nk. föstudag 4. júli og hefst hún kl.
13.15. I kaffitímanum veröur Hraðfrystihús Stokkseyrar heimsótt.
Ráðstefnan er öllum opin en hennl mun Ijúka síödegis.
Stutt framsöguerindi flytja:
Fiskvinnsla: Ólafur Óskarsson, frkvstj. Hraöfrystihúss Stokkseyrar.
Útgerð: Sveinn H. Hjartarson, hagfræðingur LÍÚ.
Iðnaðun Þráinn Þorvaldsson, frkvstj. Útflutningsmiöstöðvar iðnaðar-
ins., Páll Pálsson, forstjóri Iðntæknistofnunar fslands.
Ferðamál: Birgir Þorgilsson, frkvstj. Ferðamálaráös, Bragi Einarsson
í Eden, Þorsteinn Ásmundsson, Selfossi.
Óseyrarnesbrúin: Helgi Hallgrímsson, yfirverkfræðingur Vegagerð-
arinnar. Ráðstefnustjóri verður Helgi Ivarsson, bóndi í Hólum.
Að loknum framsöguerindum verða fyrirspurnir, þá umræöuhópar
og siðan sameiginlegar umræður.
Þingmenn Sjátfstæóisfíokksins á Suðuriandi.
Sumarferð sjálfstæðis-
félaganna f Norðurlands-
kjördæmi eystra
Sumarferð sjálfstæöisfélaganna i Norðurlandskjördæmi eystra verð-
ur farin laugardaginn 5. júlí í Ásbyrgi. Hist verður á flötinni i byrginu
um hádegi á laugardag og tjaldað. Frjáls tími fram að kvöldverði
(eigið nesti). Alþingismennirnir Árni Johnsen og Halldór Blöndal flytja
ávarp. Fjöldasöngur og skemmtiatriði undir stjórn Árna Johnsen.
Forsetakvartettinn syngur. Svefnpokapláss fyrir þá sem vilja í Skúla-
garði. Nánari upplýsingar á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins milli kl.
17.00-18.00 daglega í síma 96- 21504.
Nefndin.
Merkurferð
Laugardaginn 5. júlí nk. mun Heimdallur, félag ungra sjálfstæöis-
manna i Reykjavik, gangast fyrir Þórsmerkurferð. Lagt verður af
stað frá Valhöll kl. 9.30. Reistar veröa hringlaga tjaldbúðir og verður
i miðju þeirra eldstæði, þar sem matreiöslumeistari mun grilla kvöld-
mat. Verði er mjög stillt i hóf eða kr. 850 og er þá innifalin rútuferð
fram og til baka, morgunveröur, skemmtiatriði á kvöldvöku og kynnis-
ferð i býtið á sunnudeginum.
Áhugasamir vinsamlegast tilkynnið um þátttöku í síma 82900.
Allt ungt sjálfstæðisfólk velkomið.
Ferðanefnd Heimdallar,
Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna i
Reykjavik.
IIEIMDALI.ÚR
,F • U • S .