Morgunblaðið - 02.07.1986, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ1986
Alltaf jafn formlegur — David
Lee Roth, sem m.a. lýsti þvi yfir
i samkvæminu að hryðjuverka-
menn myndu ekki hindra hljóm-
leikaferðir hans í sumar.
Quincy Jones ásamt konu sinni, Peggy Lipton og syni sinum frá
öðru hjónabandi, Quincy III, sem nú er 17 ára að aldri.
Quincy Jones
hlýtur
mannúðar-
verðlaun
r ónlistarsnillingnum Quincy Jones var nýlega haldið hóf á
Hilton-hótelinu í New York. Gestgjafarnir voru samtökin „T.J.
Martell Foundation", en það er nokkurs konar góðgerðafélag
poppheimsins. A ári hveiju veita samtökin svokölluð „mannúðar-
verðlaun" til þess tónlistarmanns, sem þykir hafa skarað fram-
úr, haft heilmikil og góð áhrif á iðnaðinn, sem slíkan. Félagið
tekur hlutverk sitt líka mjög hátíðlega og safnar látlaust pening-
um allan ársins hring, sem renna beint til hinna ýmsu hópa,
sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Til að mynda hafa á þessu
ári safnast 3,6 milljónir bandaríkjadala, eða u.þ.b. 148 milljónir
íslenskra króna, til styrktar krabbameinsrannsóknum. Allir láta
félagsmennimir 2000, eitthvað af hendi rakna, en öll met sló
þó Michael Jackson um daginn, er hann gaf samtökunum heila
sjúkradeild, sem rúmar 19 manns. Þetta ætti að afsanna þá
kenningu í eitt skipti fyrir öll, að popparar séu ekkert annað
en sjálfumglaður ruslaralýður, sem geti ekkert annað en glamr-
að á gítar og gargað einhveija vitleysu.
Hófíð á Hilton-hótelinu var með eindæmum vel heppnað og
heiðursgestinum var ákaft hrósað í öllum þeim erindum, sem
þar voru flutt. Til að mynda sagði söngvarinn James Ingram:
„Quincy er einhver sú besta manneskja, sem ég hef kynnst."
__Sáb<infyrÍr
stödd í sjúkrastofunni, er hann
lést.
Söngkona Tina Tumer er ekki
gædd þeirri gáfu að geta séð fram
í tímann frekar en flest okkar
hinna, en hún trúir þó statt og
stöðugt á hæfni margra annarra
til þess. Segist hún aldrei fara út
í neinar framkvæmdir án þess að
leita fyrst ráða hjá spákonu.
Hinn háttvirti breski leikari,
Sir Alec Guinnes, er sagður svo
með eindæmum sannspár maður
að það jaðrar við að óhuggulegt
sé. Það sem hann er þó frægastur
fyrir á þessu sviði eru ummæli
þau, sem hann lét falla er James
Dean sýndi honum nýja kappakst-
ursbílinn sinn. „Ég skil ekki enn
þann dag í dag hvað olli því að ég
hugsaði mig um,“ segir Alec, en
hann sagði við Dean: „Lofaðu mér
því drengur minn að þú munir
aldrei setjast upp í þennan bfl,
því þá verður þú dáinn innan
viku.“ Það stóð heima. Sjö dögum
síðar lét Dean lífið í bflslysi.
Ja, hveiju á maður svo að trúa?
Sumar stj örnur
trúa á fylgjur
og fyrirboða
Allt tal um fylgjur og fyrir-
boða hefur nú um langa hríð
verið snarlega afgreitt sem kerl-
ingarkjaftæði, blaður og bull. Það
þykir ekki við hæfi að fullorðið
fólk með sæmilega menntun og
greind trúi á önnur eins fyrirbæri
nú til dags, heldur heyri allt slfld
fortíðinni til — magnaðar drauga-
sögur eigi aðeins heima í myrkv-
um baðstofum eða við flöktandi
kertaljós.
Ef marka má okkar heimildir
virðist samt sem nú megi búast
við byltingu í þessum efnum.
Stjömumar, bæði leikarar og tón-
listarmenn, hafa nefnilega marg-
ar hveijar viðurkennt að þær trúi
á alls kyns vættir og yfimáttúra-
legar verar. Og ef að líkum lætur
mun almenningur fylgja þeim fast
eftir. Sumir segja þessar sögur
þeirra einungis sönnun þess að
listamennimir hafi æði skrautlegt
hugmyndaflug, aðrir efast ekki
eina mínútu um sannleiksgildi
sagna þeirra.
Meðal þeirra sem segja sig
margoft hafa fengið einhvers
konar vísbendingu eða hugbnoð
um það, sem verða vill, er leikkon-
an Sophia Loren. Þess era líka
nokkur dæmi að Loren hafí breytt
Sophia Loren — ekki bara sér-
vitur, heldur sannspá.
áætlun sinni á síðustu stundu, án
þess að geta gefið neina „skyn-
samlega" ástæðu fyrir því. Eitt
sinn harðneitaði hún t.d. að stíga
upp í flugvél eina sem hún átti
pantað far með. Nokkram klukku-
tímum síðar hrapaði vélin og fór-
ust allir sem um borð voru. Einnig
hefur það komið fyrir ofcar en
einu sinni að Sophia hefur rokið
skyndilega upp til handa og fóta
og tryggt allar eigur sínar í bak
og fyrir. Það hefur líka staðið
heima. Fáum dögum síðar er
Tína Turaer myndi sennilega
spara sér stórar fjárfúlgur,
gæti hún spáð sjálf, en þvi
miður verður hún að leita á
náðir annarra hvað það snertir.
venjulega brotist inn hjá henni eða
það kviknar í. Elizabeth Taylor
hefur þessa hæfileika líka, að
eigin sögn. Hún segist hafa séð
dauða Burtons fyrir nákvæmlega
á þeirri stundu sem hann átti sér
stað. Því vissi hún hvers kyns var
þegar síminn hringdi. Atburðarás-
inni gat hún lýst fyrir læknunum
rétt eins og hún hefði sjálf verið