Morgunblaðið - 02.07.1986, Side 52
FASTEIGNA
flf] MARKAÐURINN
ít—' líl
LIFLEG SALA
Okkurvantar
eignirásöluskrá
símar: 11540-21700
MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLÍ 1986
VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR.
Lýsisverð;
Er nú helmingi
lægra en í fyrra
MIKIÐ verðfall hefur orðið á Iýsi
og loðnumjöli, og er lýsisverð nú
um helmingi lægra en í fyrra.
Likur eru þvi taldar á að hluti
lýsisframleiðslunnar verði ekki
seldur úr landi heldur notaður
til brennslu i verksmiðjunum.
Ástæður þessa verðhruns er
mikið framboð pálmaolíu, en lýsi
og pálmaolía eru notuð jöfnum
höndum til framleiðslu á ýmsum
' *r'^iiatvælum.
Jón Reynir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Síldarverksmiðja rík-
isins, sagði að lýsisverð hefði farið
lækkandi frá áramótum, en væri
nú með Iægsta móti. „Þetta kemur
Þingað um
IVIúlahrepp
FUNDUR um framtíð Múla-
hrepps á Barðaströnd verður
haldinn í félagmálaráðuneytinu
á morgun.
Þeir sem þinga um Múlahrepp
verða skattstjóri Vestfjarða-
umdæmis, oddvitinn í Múlahreppi,
oddviti Barðastrandarhrepps, odd-
vitinn í Gufudalshreppi, og fulltrúar
Fjórðungssambands Vestfjarða,
Hagstofunnar, Sambands íslenskra
sveitarfélaga og félagsmálaráðu-
neytisins.
sér mjög illa fyrir okkur, sérstak-
lega með tiliiti til loðnuvertíðarinnar
sem er framundan, en við fáum
mesta lýsið úr loðnunni nú fyrir
áramótin þegar hún er feitust. Lýsi
frá Suður-Ameríku var selt um
daginn til Evrópu á 150 dollara, en
það er helmingur af lægsta verði
sem við fengum á síðustu vertíð og
þótti það þá lágt verð.“ Talið er að
lýsisverð muni þó styrkjast aftur í
vetur, því gert er ráð fyrir að jurta-
olían hækki í október. „Ég geri ráð
fyrir að það borgi sig að brenna
lýsið fremur en selja það, en það
er þó háð verði á svartolíu," sagði
Jón Reynir. Hann sagði að mjölið
hefði ekki fallið jafn mikið í verði,
það væri líklega svipað og í fyrra,
en þá var verð á loðnumjölinu lágt,
líkt og lýsisverðið. „Verðið hækkaði
í vor en hefur lækkað aftur."
Háskólinn fær hús
V erslunarskólans
Fjármálaráðuneytið hefur annast sölu á áðurnefndum
fest kaup á húsnæði Verslun- eignum Verslunarskóla íslands.
arskóla Islands að Þingholts- -----
stræti 37. Kaupverðið er 20,5
milljónir króna og er fyrir-
hugað að Háskóli Islands fái
húsnæðið til umráða.
Við eruni 100 ára ídag
VeriÖ velkomin
Tugir þúsunda afmælisgesta
TALIÐ er að gesti Landsbankans í 100 ára afmælinu í gær
hafi mátt telja í tugum þúsunda á landinu öllu og sagði Pétur
Sigurðsson, formaður bankaráðs, í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi að hann teldi daginn frábærlega vel heppnaðan. Sér-
staklega kvaðst Pétur glaður yfir því hversu mörg börn hefðu
heimsótt bankann. Þessi mynd var tekin í gær við dyr aðal-
bankans í Reykjavík en parið sem þar heilsaði gestum og kvaddi
var klætt fötum, sem voru i tízku við stofnun Landsbankans.
Sjá frásagnir á bls. 4, 5 og 30.
Gamla verslunarskólahúsið
við Grundarstíg hafði áður verið
selt fyrir 11 milljónir króna, en
kaupandi þess var Þórður John-
sen. Húseign Verslunarskólans
við Hellusund er enn óseld, svo
og auð lóð við Grundarstíg, en
að sögn Þorvarðar Elíassonar,
skólastjóra, var ákveðið að setja
þær eignir síðast í sölu. Eigna-
miðlunin í Þingholtsstræti hefur
Mjög miklir rekstrar-
erfiðleikar í frystingu
Eilífar skuldbreytingar leysa ekki vand-
ann, segir sjávarútvegsráðherra
FRYSTIHÚSIN í landinu eiga nú
við mikla rekstrarörðugleika að
etja. A mánudag var tilkynnt
ákvörðun um að hætta frystingu
hjá Hraðfrystistöðinni i Reykja-
jsr. ■\m
L p
mMtt ||É3
imiiiis** 'fsö jjá
a m* ,..
Morgunblaðið/Einar Falur
Togarar Granda ínýjan búning
Togarar Granda hf. eru nú að skrýðast nýjum búningi, en litur þeirra til þessa hefur
tekið mið af fyrri útgerðum þeirra, BÚR og ísbiminum. Fyrstur til að skrýðast nýju
litunum var Ásgeir, en nú hefur Snorri Sturluson einnig breytt um svip. Litaskiptin
hafa átt sér stað um leið og skipin haf a verið tekin í slipp til viðhalds og viðgerða.
vík í haust vegna rekstrarerfið-
leika og þess, að lausn á vandan-
um í heild væri ekki í sjónmáli.
Ellefu frystihús innan Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna töp-
uðu á síðasta ári að meðaitali
9,6% af tekjum og veltufjárstaða
þeirra rýmaði um 350 milljónir.
A aðalfundi Félags Sambands-
fiskframleiðenda var samþykkt
ályktun þar sem fullyrt var að
frystiiðnaðurinn í ýmsum byggð-
arlögum væri í rúst.
Leitað hefur verið til opinberra
sjóða og stjómvalda vegna þessara
erfiðleika og talið að á þriðja tug
frystihúsa þurfi nú á að halda mill-
jörðum króna í formi aukinna lána
og skuldbreytinga til að geta haldið
rekstri áfram. Knútur Karlsson,
framkvæmdastjóri Kaldbaks á
Grenivík, segir í samtali við Morg-
unblaðið, að staðan sé víða orðin
svo slæm að menn þori ekki að
stoppa af ótta við að komast ekki
af stað aftur. Vandinn sé ekki
aðeins vegna erfiðleika nú, heldur
hafi skuldasöfnun undanfarin ár
ekki síður slæm áhrif. Menn tapi í
dag og geti ekki borgað gömlu
skuldimar og þurfi á skuldbreyt-
ingu og lækkun vaxta að halda.
Jón Ingvarsson, formaður stjóm-
ar SH, segir þetta ekki koma á
óvart miðað við rekstrarstöðuna nú
og undanfarin ár. Það sé því mjög
miður að stjómvöld skuli ekki viður-
kenna stöðuna og bregðast við í
ljósi hennar. A sama tíma og 11
hús innan SH hafí tapað um 9,6%
af tekjum hafí Þjóðhagsstofnun
metið tap frystingar upp á 1% af
tekjum.
I tilefni lokunar Hraðfrystistöðv-
arinnar segir Halldór Ásgrímsson,
sjávarútvegsráðherra, í samtali við
Morgunblaðið, að eilífar skuldbreyt-
ingar leysi lítinn vanda. Nú sé hins
vegar unnið að því í samvinnu við
bankana að endurskipuleggja rekst-
ur þeirra frystihúsa, sem verst
standa.
Sjá á bls. 5 umsagnir vegna
fyrirhugaðrar lokunar Hrað-
frystistöðvarinnar.
Geislavarnir:
Sérfræðingar frá Yín
komnir til ráðgjafar
TVEIR sérfræðingar frá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni í Vín
komu til landsins I gær. Óskaði heilbrigðisráðherra eftir heimsókn
þeirra til ráðgjafar um geislavarnir og rannsóknir á umhverfis-
geislun.
Að sögn Sigurðar M. Magnússon-
ar, forstöðumanns Geislavarna rík-
isins, kynna sérfræðingamir sér
starfsemi Geislavama, hitta að máli
ráðuneytismenn, heimsækja
Landspítalann, Háskóla íslands og
fleiri stofnanir. Eftir ferðina munu
þau skrifa skýrslu um athuganir
sínar og leggja fram tillögur um
hvemig hraða má uppbyggingu
geislavama hér á landi.
Sérfræðingamir halda héðan af
landi brott á föstudag.